Morgunblaðið - 15.11.1995, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 15.11.1995, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR15. NÓVEMBER 1995 29 AÐSENDAR GREINAR i i < i I € Réttiirimi til eigin afkvæmis Opið bréf til heilbrigðisráðherra Réttur hvers einstakl- ings til að eignast afkvæmi er umfjöll- unarefni þessarar NÚ GET ég ekki lengur orða bundist og verð að skrifa nokkrar línur til að vekja at- hygli á neyð þeirra sjúklinga sem þurfa á aðstoð tæknifijóvgunar að halda. Þannig er mái með vexti að ég á vin- konu sem er í þessum fjölmenna en fyrirferð- arlitla hópi. Hún fékk úrskurð um að hún gæti ekki átt fleiri böm þegar hún var búin að eiga eitt bam, þá tæp- lega tvítug. Alla tíð síð- an þá eða í um 13 ár hafa þau hjón reynt án Anna Kristín Bjarnadóttir lands í því skyni en því miður þá tókst það ekki heldur. Eflaust þekkjum við öll fólk í svipaðri að- stöðu og þessi góða vinkona mín og reyn- um að skilja hvemig þessu fólki líður sem á í þessum raunum, þó við getum aldrei sett okkur í þeirra spor. Ég minnist þess þegar hún kom úr glasafijóvgun að við vomm ekki síður spennt en þau að vita niðurstöðumar úr með- ferðinni, og þegar svarið kom neikvætt greinar. Anna Kristín Bjamadóttir gagnrýnir að fólk sem haldið er ófijósemi njóti ekki sömu fyrirgreiðslu í heilbrigðiskerfinu og aðrir. árangurs að eignast bam. Hún fór í hveija aðgerðina á fætur annarri í þeirri von að nú mundi það_ tak- ast, en allt fór á annan veg. Ýmsir velviljaðir vinir og vandamenn gáfu þeim húsráð af ýmsu tagi að fara eftir, þar sem þessi ráð dugðu mörg- um að sögn (þó þekki ég engan sem varð bamshafandi af því að fara í sólarlandaferð, fá sér hund til að dreifa huganum eða mála herbergið í róandi litum og hlusta á slökunar- spólur daginn út og inn). Ég minn- ist þess sérstaklega að hún sagði mér frá því að lækninrinn hennar hefði ráðlagt henni að mæla sig á morgnana til að fylgjast með egg- losi, og ég ætla ekki að lýsa því hvemig þeim hjónum leið þann tíma þegar kynlífið var farið að snúast í kringum hitamæli en ekki langanir. Þau lögðu hart að sér við að safna peningum til að komast í glasa- fijóvgun erlendis, áður en glasa- fijóvgunardeildin var opnuð hér heima, og fóm þau þrisvar til Bret- aftur og aftur þá vom þetta erfiðir tímar fyrir okkur öll, hvað segir maður við vinafólk sitt þegar lífíð reynist svo óréttlátt aftur og aftur? Hvemig huggar maður grátandi vini sina og hjálpar þeim að beijast við alla þessa höfnun, reiði og óréttlæti þegar allar hugsanlegar leiðir hafa bmgðist? Af hveiju er þetta lagt á þetta fólk aftur og aftur? Ég hef oft spurt sjálfa mig hversu mörg sambönd þola slíkt álag en fæ eng- in svör. Ég man líka eftir stundunum sem við sátum saman nokkrar æskuvin- konur og engin sagði henni frá því ef hún var bamshafandi vegna þess að við sem vomm að ganga með okkar annað og þriðja bam fannst lífið hafa verið óréttlátt þó að við væmm sjálfar mjög ánægðar með okkar óléttur. Það var ekki fyrr en hún benti okkur á að hún væri að verða utanveltu frá hópnum að við gerðum okkur grein fyrir því hvað við vomm í raun að gera. Þessi vin- kona mín hefur í dag la'gt sig fram um að sætta sig við lífið og tilver- una og. njóta þess eina bams sem hún þó á, og kallar oft litla krafta- verkið sitt þó hann sé ekki lítill leng- ur. Ég skrifa þessa grein í þeirri von að hún veki fólk til umhugsunar um það hversu alvarlegur þessi sjúk- dómur er þó að hann dragi fólk ekki til dauða, eða valdi líkamlegum örkumlum. Nú þegar áformað er að hækka gjald fyrir tæknifijóvgunarmeðferð- ir á Landspítalanum get ég ekki orða "bundist. Við sem ekki emm veik getum farið í ýmsar aðgerðir á sjúkrahúsum þessa lands án þess að greiða fyrir það krónu og nefni ég í því sambandi aðgerðir eins og ófijósemisaðgerðir (sem við greiðum reyndar að hluta sjálf) og ef við skiptum um skoðum þá fáum við að fara í ókeypis aðgerð þar sem reynt er að tengja aftur það sem var lokað í fyrri aðgerðinni; verðum Athugasemd við fréttaauka frá Lyfjaverslun Islands hf. Hefur forstjóri Lyffa- verslunar íslands ekki Jón Þorsteinn Gunnarsson I < í < < < Á ÉG ÞAKKA Þór Sigþórssyni fyrir grejn hans sem birtist í Morgunblaðinu 9. nóv- ember sl. Til upplýs- ingar má geta þess að grein mín sem birtist í Morgunblaðinu 3. nóvember sl. var af- hent Morgunblaðinu til birtingar tveimur vik- um áður, en þá var mér tilkynnt að um 100 greinar biðu birt- ingar hjá blaðinu, svo einhver dráttur yrði óhjákvæmilegur á birt- ingu greinar minnar. Ég fagna sérstak- lega útkomu Lyfseðils, fréttabréfs Lyfjaverslunar íslands sem nú hef- ur verið gefíð út í fyrsta sinn og sent hluthöfum. Hver sá sem hefur fylgst með málefnum Lyijaverslun- ar Islands frá því fyrir fyrsta aðal- fund félagsins, hlýtur að skilja upp- hafsmálsgreinar í grein minni þann 3. nóvember sl. þannig að ég sé að óska eftir nýjum fréttum af félaginu en ekki sögulegum staðreyndum sem Þór gerir mikið úr að hafí ver- ið sendar hluthöfum í maí sl. Þær upplýsingar sem ég lýsti eftir bár- ust svo hluthöfum með Lyfseðli, m.a. um afkomu fyrstu sex mán- aða, tveimur og hálfum mánuði eft- ir að þær upplýsingar lágu fyrir opinberlega. Þór telur mig bæði ófrægja félag- ið og skaða ímynd þess með skrifum mínum. Þar erum við ekki sam- mála. Það er einmitt hlutverk hlut- hafa í almenningshlutafélögum að láta skoðanir sínar í ljós og veita stjóm og stjórnendum eðlilegt að- hald. Ég hef meiri áhyggjur af því að forstjóri í almenningshlutafélagi skuli svara hluthafa með jafnmikl- um hroka og Þór gerir í grein sinni. Slík framkoma frá for- stjóra gæti skaðað fé- lagið og styður því mið- ur þá skoðun mína, að forstjóri Lyfjaverslunar íslands hafi ekki náð að aðlaga sig til fulls þeim grundvallarmun sem er á því að vera forstjóri ríkisfyrirtækis og almenningshlutafé- lags. Tæplega 2/s hlutar af grein Þórs eru birt- ing á minnisblaði sem Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoð- andi, hefur verið beð- inn um að semja vegna greinar minnar. Það stendur ekki til af minni hálfu að hefla skoðana- skipti við Stefán um reikningsskila- aðferðir. Ég vil aðeins geta í þessu sambandi að fyrirmyndina að þvi að bera saman hagnað félagsins fyrstu sex mánuði 1994 og 1995 tók ég upp úr fréttabréfi Kaup- þings, september 1995, bls. 7. Þar birtist m.a. tafla með upplýsingum um hagnað nokkurra fyrirtækja á Verðbréfaþingi fyrstu sex mánuði 1994 og 1995 og reiknuð út breyt- ing í prósentum. Ut úr töflunni má iesa að hagnaður Lyfjaverslunar- innar hafi lækkað um 17% á milli ára og hef ég ekki séð þeirri fram- setningu mótmælt á opinberum vettvangi. Ég hef góða reynslu af Kaupþingi og Kaupþingi Norður- lands fyrir áreiðanleika í upplýsing- aðlagað sigtil fulls að þeim grundvallarmun, spyr Jón Þorsteinn Gunnarsson, sem er við „óvart" bamshafandi getum við farið í fóstureyðingu án endur- gjalds. Við getum farið í lýtaaðgerð- ir, sem sumar hveijar eru ókeypis, tannréttingar, og sótt um að fá hluta kostnaðarins endurgreiddan, svo ekki sé nú talað um áfengismeðferð sem við getum farið í aftur og aftur án þes að borga fyrir það krónu. Nú spyr ég: Hver- eru rökin fyrir því að láta fólk, sem vegna sjúkdóms getur ekki átt böm, greiða allan kostnað við glasafijóvgunardeild Landspítalans sem er ríkisrekin stofnun? Þetta fólk greiðir sömu skatta og aðrir landsmenn og meðal annars fyrir skólagöngu bamanna okkar, leikskóla o.fl. þó að það komi^ ekki til með að geta glaðst yfir vel- gengni bama sinna í skólanum eins og við. En þurfi það svo á læknisað- stoð að halda þá er það látið greiða fyrir hana að fullu - en kannski er þetta bara upphafið á því að rakka alla sem þurfa að fara á sjúkrahús til að fá bót meina sinna? Höfundur er starfsmaður í heils- dagsskóla. á ríkisfyrirtæki og almenningshlutafélagi? um og vönduð vinnubrögð. Þá er Kaupþing væntanlega sá utanað- komandi aðili, sem bestar upplýs- ingar hefur um málefni Lyijaversl- unarinnar, því það fyrirtæki sá um að semja sölu- og skráningarlýsingu og hafa umsjón með sölu á hluta- bréjtum í félaginu. Ég hef áður lýst því yfir opinber- lega að ég hef trú á starfsemi Lyfja- verslunar íslands, og framtíð fé- lagsins. Ég óska starfsmönnum Lyfjaverslunarinnar velfamaðar í starfi, til hagsbóta fyrir þá sjálfa og eigendur félagsins. Ég mun hins vegar, svo lengi sem ég verð hlut- hafi í félaginu, leyfa mér að gera athugasemdir við einstök málefni tengd því, þegar mér kann að þykja ástæða til slíks. Höfundur er reks trarhagfræðing- ur og hluthafi í Lyfjaverslun Is- lands. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfaí 1. flokki 1989 1. flokki 1990 2. flokki 1990 2. flokki 1991 3. flokki 1992 2. flokki 1993 2. flokki 1994 3. flokki 1994 Innlausnardagur 15. nóvember 1995. 1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 896.628 kr. 89.663 kr. 8.966 kr. 1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: • 791.613 kr. 79.161 kr. 7.916 kr 2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.572.802 kr. 157.280 kr. 15.728 kr. 2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.461.957 kr. 146.196 kr. 14.620 kr. 3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.451.648 kr. 1.290.330 kr. 129.033 kr. 12.903 kr. 2. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.952.105 kr. 1.190.421 kr. 119.042 kr. 11.904 kr. 2. flokkur 1994: Nafnverð: ^.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.530.214 kr. 1.106.043 kr. 110.604 kr. 11.060 kr. 3. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. Innlausnarverð: 5.429.117 kr. 1.085.823 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. 108.582 kr. 10.858 kr. Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. [£h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS I 1 HÚSBRÉFAOEILO • SUOURLANDSBRAUT 24 • 108 RÍHJAVlK • SlMI 569 6900

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.