Morgunblaðið - 21.11.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1995 13
Akureyrin til hafnar með metafla
eftir 67 daga túr
Afskaplega ánægð-
ir að komast heim
AKUREYRIN EA, togari Samlietja
hf. kom til Akureyrar um miðnætti
með metafla úr Smugunni eftir 67
daga túr. Aflinn var 430 tonn af
þorskflökum og er aflaverðmætið
um 121 milljón króna. Afli upp úr
sjó var rétt um 1.100 tonn,
!Við erum afskaplega ánægðir
með að komast heim enda hefur
þetta verið langur og strangur túr,“
sagði Sturla Einarsson, skipstjóri í
samtali
Sturla sagði að veiðin í Smug-
unni hefði verið léleg framan af
túrnum en mun betur hafí gengið
seinni mánuðinum. „Veiðin jókst
eftir því sem dögunum fjölgaði og
það var mjög jákvætt. Það hefði
verið verra fyrir mannskapinn ef
þróunin hefði verið á hinn veginn."
Heimferðin úr Smugunni tók um
fjóra og hálfan sólarhring en Akur-
eyrin lenti í brælu og það tafði för
togarans. Akureyrin var við veiðar
nyrst í Smugunni síðustu vikurnar
og þar var góð veiði og ágætis veð-
ur.
Sturla segir að mun meiri veður-
sæld sé nyrst í Smugunni en syðst
enda nokkurt skjól frá ísnum. Frost-
ið fór niður í 15° og í stillum lagði
sjóinn þar norðurfrá. Þá var myrkur
nánast allan sólarhringinn að sögn
Sturlu.
Samkomulag Aðalskoðunar og Múlatinds
Bifreiðaskoðun
hefst í Ólafsfirði
SAMKOMULAG hefur verið gert
milli Aðalskoðunar hf. og bifreiða-
verkstæðisins Múlatinds í Ólafsfirði
um skoðun ökutækja. Starfsemin
hefst í dag, þriðjudaginn 21. nóvem-
ber.
Aðaskoðun hóf skoðun ökutækja
í janúar á þessu ári og hefur fyrir-
tækið aðsetur í Hafnarfirði, mark-
aðshlutdeild þess á höfuðborgar-
svæðinu er um 30%. Múlatindur
hefur fengið heimild hjá dómsmála-
ráðuneytinu til að framkvæma þar
skoðun ökutækja og fær Aðalskoð-
un til afnota hluta aðstöðunnar.
Verkstæði Múlatinds hefur uppfyllt
kröfur Löggildingarstofunnar og
hefur réttindi til að skoða ökutæki.
Samkeppni í skoðun ökutækja
hefur eingöngu verið á höfuðborg-
arsvæðinu, en forsvarsmenn Aðal-
skoðunar telja að skoðun á lands-
byggðinni verði að leysa í sam-
vinnu við heimamenn á viðkomandi
stöðum og koma þannig á sam-
keppni.
ABC-hjálpar-
starfið kynnt
AKUREYRINGUM og nærsveitar-
mönnum gefst tækifæri á að kynn-
ast ABC-hjálparstarfínu á kynning-
arkvöldi sem haldið verður í hús-
næði KFUM og K í Sunnuhlíð í
kvöld, þriðjudagskvöldið 21. nóvem-
ber.
Sérstakur gestur er Robert
Salomon frá Indlandi, hann segir
m.a. athyglisverða sögu frá upp-
vexti sínum, en hann er fyrrverandi
styrktarbarn Mission of Mercy, eins
af samstarfsaðilum ABC-hjálpar-
starfsins.
ABC-hjálparstarfið er íslenskt
samkirkjulegt hjálparstarf sem hef-
ur að markmiði að veita bágstödd-
um börnum þriðja heimsins hjálp
sem kemur að varanlegu gagni,
gefa fátækum börnum kost á skóla-
göngu og heimilislausum börnum
heimili.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Stórtónleikar til styrktar Flateyringum
Rúm hálf milljón króna safnaðist
RÚMAR 514 þúsund krónur
söfnuðust á stórtónleikum til
styrktar Flateyringum sem
haldnir voru í Iþróttahöllinni á
Akureyri á sunnudag. Alls
greiddu 518 gestir aðgangs-
eyri, þar af 47 börn og komu
mun færri á tónleikana en að-
standendur þeirra vonuðust
eftir.
Fjölmargir tónlistarmenn komu
fram á tónleikunum, sem þóttu
takast vel og þá flutti sr. Pétur
Þórarinsson hugvekju. Á mynd-
inni er Kór Tónlistarskólans á
Akureyri og Kammersveit skip-
uð kennurum við skólann að
flytja þátt úr Gloriu eftir Vi-
valdi. Stjórnandi er Michael
Clark og einsöngvari Björg
Þórhallsdóttir.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks um Krossanes
Gagnrýnivert að auglýsa
ekki sölu bréfanna
SIGURÐUR J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki gagnrýnir bæjarstjór-
ann á Akureyri fyrir að hafa ekki
auglýst hlutabréf bæjarins í
Krossanesi með formlegum hætti,
en þremur aðilum var gefinn kost-
ur á að senda inn tilboð.
Sigurður sagði bæjarráð hafa
staðið frammi fyrir því á fundi á
fimmtudag að þrjú tilboð lágu fyr-
ir í verksmiðjuna frá aðilum sem
sýnt höfðu verulegan áhuga á að
kaupa hana. Bæjarstjóri hafi mar-
goft lýst yfír að verksmiðjan væri
til sölu þannig að mönnum hefði
átt að vera það ljóst. „Niðurstaða
bæjarráðs var sú að ákveðið var
að ganga til samninga við hæst-
bjóðendur enda þótti tilboðið
áhugavert, það verður svo bæjar-
stjórnar að taka afstöðu til þess
hvort ástæða sé til að breyta þeirri
ákvörðun," sagði Sigurður.
Eðlilegt að reyna að fá sem
mest fyrir bréfin
Heimir Ingimarsson, Alþýðu-
bandalagi sagðist ekki hafa kynnt
sér nákvæmlega hvernig að málinu
var staðið og gæti því lítið tjáð sig
um það. „Mér hefði fundist eðlilegt
að bréfín hefðu verið auglýst eða
vakin á því athygli á þeim stöðum
þar sem kaup af þessu tagi ger-
ast. Ég stóð í þeirri meiningu að
það hefði verið gert og geri enn á
meðan mér hefur ekki verið sýnt
fram á annað,“ sagði Heimir.
„Komi í ljós að staðið hafi verið
að málinu með öðrum hætti en
siðareglur markaðarins bjóða, að
þá verði málið tekið upp á nýjan
leik. Það er eðlilegt að bærinn reyni
að fá sem mest fyrir hlutabréfín
Oddur Halldórsson varabæjarfulltrúi og tilboðshafi gagnrýnir sölu hlutabréfa í Krossanesi
Bjóðendur áttu að vera
viðstaddir opnun tilboða
ODDUR Halldórsson, blikksmiður
og varabæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins á Akureyri, gagnrýnir þau
vinnubrögð sem viðhöfð voru við
útboð á sölu hlutabréfa bæjarins í
loðnuverksmiðjunni í Krossanesi.
Oddur fór fyrir hópi aðila sem bauð
í bréf bæjarins og var það tilboð
lægst þeirra sem bárust. Eins og
komið hefur fram bárust þrjú tilboð
í bréf bæjarins fyrir tilskilinn tíma
og eitt eftir að tilboðsfrestur rann
út.
Sverrir Leósson útgerðarmaður
lagði fram tilboð í verksmiðjuna
eftir að tilboðsfrestur rann út og
sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið að sitt tilboð, sem hann lagði
fram fyrir hönd fleiri aðila, hafí
verið 10 milljónum króna hærra en
hæsta tilboð þeirra þriggja sem
buðu í bréfin fyrir tilskilinn tíma.
Tilboð Sverris, sem hljóðaði upp á
160 milljónir króna, barst að kvöldi
16. nóvember en fyrr um daginn
hafði bæjarráð samþykkt að fela
bæjarstjóra að ganga til samninga
við Þórarin Kristjánsson o.fl. um
kaup á hlutabréfum bæjarins í
Krossanesi hf. Jafnframt hefur Jak-
ob Björnsson bæjarstjóri sagt að
tilboð Sverris hafi borist of seint
og ekki sé ástæða til að taka málið
upp að nýju.
Seljandi kann hugsanlega að
óska eftir frekari boðum
I bréfi sem Jakob Björnsson
bæjarstjóri sendi fulltrúa eins hóps-
ins sem bauð í hlutabréfín vegna
athugasemda þess hóps varðandi
hlutabréfasöluna, segir m.a: „Það
er kunnara en frá þurfi að segja
að þegar hlutabréf eða önnur vara
er til sölu er ekkert sem skyldar
seljandann til þess að kynna þau
tilboð sem hann kann að fá fyrir
öllum þeim sem vilja kaupa. Þvert
á móti kann slíkur háttur að vera
andstæður hagsmunum seljanda.
Þannig kann seljandi að vilja óska
eftir frekari boðum og þá hugsan-
lega frá öðrum en þeim sem bjóða
I fyrstu atrennu eða eftir atvikum
að hætta við söluna eða viðhafa
aðra aðferð síðar.“
„Mér finnst það hrein móðgun
við þá sem buðu í hlutabréfin, að
bréf þess efnis, að tilboðsfrestur
rynni út 14. nóvember, barst ekki
fyrr en 10. nóvember en er dagsett
8. nóvember. Við höfðum því aðeins
fjóra daga til að vinna tilboðið, sem
ég hef frekar viljað líta á sem vilja-
yfírlýsingn um frekari viðræður.
Þá er gagnrýnivert að tilboðin
skyldu ekki opnuð á formlegan hátt
og í viðurvist þeirra sem buðu,“
segir Oddur. Hann hafði rúmum
tveimur mánuðum áður leitað eftir
viðræðum við bæjarstjóra um kaup
á meirihluta í Krossanesi hf. en
ekkert endilega á öllum bréfum
bæjarins.’
Hann segir sjálfsagt fyrir bæinn
að skoða einnig tilboð Sverris Leós-
sonar, ekki síst ef það er 10 milljón-
um króna hærra en tilboð Þórarins
Kristjánssonar o.fl. „Ég er ekki með
þessu að taka afstöðu með einum
bjóðanda frekar en öðrum en bæjar-
sjóð hlýtur að muna um 10 milljón-
ir króna.“
Oddur segir að það rýri verðgildi
verksmiðjunnar að kaupandi þurfi
að Iosa allar ábyrgðir bæjarins við
kaup hlutabréfanna. „Með því er
bærinn að segja að hann treysti
okkur engan veginn fyrir rekstrin-
um. Bærinn hefur heldur ekki verið
mjög fastheldinn á ábyrgðir og er
bæjarábyrgð vegna miðasölu á HM
i handbolta gott dæmi þar um,“
Sala á öðrum hlutabréfum í eigu
Akureyrarbæjar hefur verið nokkuð
til umræðu og til viðbótar hefur
bæjarráð falið bæjarstjóra að bjóða
til sölu hlutabréf bæjarins í Fóður-
verksmiðjunni Laxá hf. „Ég tel eðli-
legt að bærinn kaupi hlutabréf
tímabundið til að hjálpa fyrirtækj-
um. Hins vegar á bærinn að selja
bréf sín í Utgerðarfélagi Akur-
eyringa hf., enda rekstur bæjarút-
gerða dottinn upp fyrir. Þá fjár-
muni getur bærinn notað til að
borga skuldir og bæta stöðu Fram-
kvæmdasjóðs. Bærinn hagnast
heldur ekki á því að eiga þessi hiuta-
bréf því vextir af lánum Fram-
kvæmdasjóðs vegna hlutabréfa-
kaupa eru hærri en sá arður sem
bærinn fær til baka af þessum fyrir-
tækjum."
Oddur segir ennfremur að fyrir-
tæki eins og Krossanes og ÚA séu
í raun munaðarlaus, þar sem eng-
inn innan bæjarkerfisins hugsi um
þau. Sé það hins vegar gert, af
þeim aðilum sem kosnir eru til að
gæta hagsmuna bæjarins, er litið
á það sem pólitísk afskipti, að
mati Odds.