Morgunblaðið - 10.12.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 53
FRETTIR
Hönnun-
Frá hug-
mynd til
framleiðslu
FJÓRÐI fyrirlestur af átta í röð
fyrirlestra og fræðslufunda um
byggingarlist og hönnun verður
haldinn mánudagskvöldið 11. des-
ember kl. 20 í Ásmundarsal, Freyju-
götu 41.
Það er Arkitektafélag íslands,
Byggingarlistadeild Listasafns
Reykjavíkur og Norræna húsið sem
skipulagt hafa þessa fyrirlestraröð.
Haldnir verða átta fyrirlestrar mán-
aðarlega á tímabilinu september-
apríl og fara þeir ýmist fram í
Norræna húsinu á Kjarvalsstöðum
eða í Ásmundarsal, Freyjugötu 41.
Fyrirlesaramir koma víðs vegar
að; frá Finnlandi, Bretlandi og Dan-
mörku og fjalla þeir um verk sín
og viðhorf til byggingarlistar og
hönnunar. Auk þess verða íslenskir
fyrirlesarar.
♦ ♦ ♦
Jólafundur
Hvatar
JÓLAFUNDUR Sjálfstæðiskvenna-
félagsins Hvatar verður haldinn í
Átthagasal Hótels Sögu sunnu-
dagskvöldið 10. desember. Fundur-
inn hefst kl. 20 og að venju verður
ýmislegt til skemmtunar og hátíðar-
brigða.
Sr. Vigfús Þór Árnason flytur
hugvekju, ungir tónlistarmenn
koma fram, Ingólfur Margeirsson
mun lesa úr bók Maríu Guðmunds-
dóttur og Sigríður Hannesdóttir
leikkona flytur gamanmál. Einnig
verður efnt til happdrættis og sung-
in jólalög við undirleik Hafliða Jóns-
sonar.
.....♦-------
Skemmtikvöld
á Færeyska
sjómanna-
heimilinu
FÆREYSKA sjómannaheimilið í
Reykjavík þarf að endurnýja ýmis
tæki og efnir til skemmtikvölds til
þess að gefa fólki kost á að leggja
sitt fram til styrktar starfinu.
Á skemmtikvöldinu verður boðið
upp á söngatriði, spilað verður
bingó og hægt verður að kaupa sér
kaffi og meðlæti. Skemmtikvöldið
í Færeyska sjómannaheimilinu,
Brautarholti 29, verður mánudags-
kvöldið 11. desember kl. 20.
---------♦ » ♦----
■ ALÞÝÐUFLOKKUR Kópa-
vogs býður Kópavogsbúum í jóla-
kaffi milli kl. 15 og 17 sunnudag-
inn 10. desember nk. í félagsheim-
ili flokksins, Hamraborg 14a.
Ókeypis kaffi og meðlæti.
, •/'///fff
I f
'fi
Sói tata
p <; r * A i« i r y - uU' o p <• í ,í
Tríó Nordica
"Tríóið nálgast Clöru Schumann með miklum
kœrleik, Felix Mendelson með djúpum
tilflnningum og Franz Berwald með ögrandi
snilli. Alveg framúrskarandi diskur!"
Stig Jacobsson-Svenska Dagbladet 08.10.1995
Kristinn Árnason - Barrios/Tórrega
‘Svo lék tæknin í höndum gítarleikarans að
maður varð varla var við hana; túlkunin var í
fyrirrúmi, mjúk streymandi, plastísk og gegn
músíkölsk...'’ Mbl. 05.09.1995 - Ríkharður örn
Pálsson
GUÐNIFRANZSON • GERRIT SCHUIL
nttiitir ?iwc
Guðni Fransson og Gerrít Schuii -
Brahms/Schumann
"Magnað hárómantískt tónverk í tilflnningaríkum
flutningi Guðna Franssonar klarinettuleikara og
Gerrit Schuil pfanóleikara. Sórlega vönduð
geislaplata."
G RIEG
Jónas Ingimundarson - Við siaghörpuna
"Jónas Ingimundarson píanóleikari fer næmum
fingrum um slaghörpuna og flytur fjölmörg sígild
píanóverk. Platan var tekin upp í Listasafni
Kópavogs í júní á þessu ári þar sem hann er nú
með tónleikaröð undir sama nafni. Hér er að
finna eitthvaö fyrir alla."
I N' l; N N Hl IvN A RA*.. N A K M > O. I II K
Steinunn Bima Ragnarsdóttir - Píanó
’Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari flytur
píanókonsert í a-moll op.16 eftir Grieg ásamt
Sinfóníuhljómsveit Islands, svítu úr Pétri Gaut
eftir Grieg og Kinderszenen op.15 eftir
Schumann. Rómantiskur, vandaöur og hrífandi
geisladiskur sem unnendur sfgildrar tónlistar
ættu ekkl að láta fram hjá sór fara."
Hulnt.ir II. Rjsiwim>o.' Mc
Ævintýraóperan Sónata
"Ævintýraóperan Sónata eftir Hjálmar H.
Ragnarsson og Messíönu Tómasdóttur er fyrir
fólk á öllum aldri. Tónlistin er grfpandi og flýgur
frjáls upp í hæðir innsæis..."
LJÓÐAKVÖLD
Sinfóníuhljómsvoit íslands: Jón Leifs Saga
Symphony (Söguhetjur)
"Jón Leifs samdi Sögusinfóníuna (Söguhetjur) á
árunum 1941 og 1942.1 fyrsta skipti hefur
verkið nú verið tekið upp f heild sinnl og er á
þessari geislaplötu I flutningi
Sinfónluhljómsveitar íslands undir stjórn Osmo
Vanska."
Slgurður Bragason og Vovka Ashkenazy -
Ljóöakvöld
’Siguröur Bragason baritónsöngvari og Vavka
Ashkenazy píanóleikari flytja verk eftir Chopin,
Rachmaninov, Ravel og Rubenstein. Á plötunni
er aö finna slgilda tónlist á heimsmælikvaróa."
Einar Krístjánsson - Ó leyf mór þlg að leiða
"Á þessari tvöföldu geislaplötu leiöir Einar
Kristjánsson ykkur innf heim hinna
rammíslensku, blíðu en í senn kraftmiklu laga
eins og Hamraborgin, Bikarinn og Gígjan. Einnig
er að finna erlend Ijóö og aríur á safninu.
Ákaflega vandað minningarverk."
Serenade - Pétur Jónasson, Martial Nardeau
og Guðrún Birgisdóttir
"Serenade inniheldur franska og spænska
tónlist fyrir flautur og gítar. Verkin á plötunni eru
flest frá árunum í kringum aldamótin sfðustu og
er þar að finna margar perlur franskra og
spænskra tónbókmennta m.a. eftir Ravel, Satie
og Rodrigo."
lifllll
Mafíimlcettom
• FrjiiMiferl
JitUI
ItaíitMislite'itli
Gunnar Kvaran og Gísli Magnússon
"Gunnar Kvaran sellóleikari og Gísli Magnússon
píanóleikari hafa starfað lengi saman. Á þessari
geislaplötu er að finna þverskurð af því besta
sem félagarnir hafa haft á efnisskránni hjá sór í
gegnum tíðina."
Japis Brautarho Iti 2, sérversíun me<5 klassfska tónlist
Brautarholti 2 og Kringlunni sími 562 5200
Sendum f póstkröfu
sími 562-5290
Sendum í póstkröfu
sími 562-5290
jazzís
kynnir
G. INGÓLFSSON
Tvöfaldur geisladiskur
i minningu vinsælasta jaxzpíanista
islendinga til margra ára
Sæbjórn jónsson stjórnar
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR
Sóngvarar:
Ellý Vilhjálms, Raggi Bjarna og Egill Ölafs
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR
Fyrsti íslenski stórsveitardiskurinn.
Alvöru svelfla þriggja kynslóða
islenskra jazzgeggjara.
ÓLAFÍA HRÖNN OGTÓHAS R.
„KOSS“
Ólafia Hrönn syngur um kyssikonuna ægitegu.
Tómas R. og trió hans keiar vifi hlustendur.