Morgunblaðið - 12.12.1995, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Skólastjóri St. Lawrence grunnskólans í vesturhluta London stunginn til bana
Ihuga að þyngja við-
urlög við hnífaburði
London. Reuter. The Daily Telegraph.
BRESK yfirvöld íhuga að þyngja
viðurlög við því að ganga með
hnífa á almannafæri í kjölfar þess
að skólastjóri í Lundúnum var
stunginn til bana á föst'udag er
hann reyndi að koma einum nem-
anda sínum til bjargar frá ungl-
ingagengi. Morðingja hans er enn
leitað en fullyrt er að nú þegar
hafi tekist að bera kennsl á nokkra
pilta úr hópnum.
Morðið á Philip Lawrence, 48
ára skólastjóra St. Lawrence
grunnskólans í vesturhluta Lond-
on, ’hefur vakið upp vakið mikla
reiði í Bretlandi, þar sem atburður
sem þessi er fáheyrður. Fjöldí nem-
enda skólans kom með blóm að
morðstaðnum alla helgina.
Samkvæmt núgildandi lögum
geta menn hlotið allt að tveggja
ára dóm fyrir að bera hníf á al-
manriafæri. Flestum málum lýkur
hins vegar með 1.000 punda, um
100.000 ísl. kr. sekt.„Ef við teljum
að ástandið muni batna við að
herða lögin, munum við láta verða
af því,“ sagði Michael Howard inn-
anríkisráðherra í gær. Gillian
Shepherd menntamálaráðherra
hefur krafist þess að málið verði
rannsakað sérstaklega og stjómar-
andstæðingar hafa tekið undir
kröfur um að hart verði tekið á
þeim sem beri hnífa á almanna-
færi.
Athygli beinist að agavanda
Lawrence hljóp til á föstudag
þegar hann sá hóp unglingspilta
með skýluklúta á höfði, vopnaða
járnstöngum og hnífum, ráðast að
ungum dreng. Einn þeirra stakk
hann í brjóst og lést skólastjórinn
á sjúkrahúsi átta klukkustundum
síðar af sárum sínum. Drengurinn
sem hann hugðist koma til bjarg-
ar, hlaut höfuðáverka og var út-
skrifaður af sjúkrahúsi í gær.
Morðið hefur beint athyglinni
að agavandamálum og sívaxandi
ofbeldi í breskum skólum, sem
kennarar hafa reynt að vekja
máls á. Agavandamálin hafa verið
deiluatriði Verkamannaflokksins
og íhaldsflokksins, en þeir fyrr-
nefndu saka stjórnvöld um að
veita ekki nægu fé til mennta-
mála, sérstaklega ekki til hverfa
í stórborgum.
Reuter
SKÓLAPILTUR í St. Georgs-
skóla í London biðst fyrir í
gær á skólalóðinni en á föstu-
dag var skólastjóri hans myrt-
ur er hann reyndi að bjarga
nemanda úr klóm unglinga-
gengis. Öll kennsla féll niður
í skólanum í gær og sóttu
nemendur minningarguðs-
þjónustu um skólastjórann.
Hæstiréttur um
Kwasniewski
Sekur um
kosninga-
lagabrot
Varsjá. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR Póllands staðfesti
fyrir síðustu helgi kjör Aleksanders
Kwasniewskis sem næsta forseta
landsins og vísaði á bug áskorunum
um að það yrði ógilt. Rétturinn
komst þó að þeirri niðurstöðu, að
hann hefði brotið kosningalög með
því að halda því ranglega fram í
kosningabaráttunni, að hann væri
hagfræðingur að mennt. Talið er,
að það geti orðið til að skaða álit
hans og virðingu í forsetaembætti.
Um 600.000 stuðningsmenn Lech
Walesa, fráfarandi forseta, skoruðu
á hæstarétt að ógilda kjör Kwasni-
ewskis vegna ósanninda hans en
rétturinn sagði í úrskurði sínum, að
ógerlegt væri að komast að því
hvaða áhrif þau hefðu haft á kjós-
endur. Kwasniewski sigraði Walesa
með þriggja prósentustiga mun.
Vandræðaleg staða
Reuter
JOSEPH Rotblat, handhafi friðarverðlauna Nóbels, tekur við ámaðaróskum vinkonu sinnar, Mary Swartz.
Galileo
sendir
upplýs-
ingar
Los Angeles. Reuter.
FYRSTU upplýsingarnar frá
geimfarinu Galileo bárust til
jarðar á sunnudag en vonast
er til, að úr þeim megi lesa
ýmsan fróðleik um Júpíter og
jafnvel um myndun sólkerfisins.
Sendingin frá Galileo hófst
upp úr hádegi að ísl. tíma á
sunnudag og hélt síðan áfram
allan daginn. Tekur það nokk-
urn tíma fyrir vísindamennina
að lesa úr upplýsingunum en
þær eiga að gefa mynd af gufu-
hvolfinu um Júpíter, samsetn-
ingu þess og veðurskilyrðum
almennt á þessari stærstu rei-
kistjömu í sólkerfínu.
Athugunin á Júpíter var gerð
með könnunarhnetti, sem var
sendur frá Galileo inn í gufu-
hvolfið þar sem hann brann upp
eftir 75 mínútur. Talið er, að
hann hafi getað sent frá sér
mælinganiðurstöður til Galileos
í allan þann tíma og fyrstu 43
mínúturnar munu verða að ber-
ast til jarðar þar til á morgun,
miðvikudag.
Sólina ber í niilli
Vísindamenn hjá NASA,
bandarísku geimferðastofnun-
inni, óttuðust, að þessi fyrsta
sending yrði dálítið trufluð
vegna þess, að sólin er á milli
Júpíters og jarðar en sendingin
verður endurtekin tvisvar í jan-
úar þegar skilyrðin verða betri.
Sendingu á öllum 75 mínútun-
um_ lýkur síðan í febrúar.
Á næstu tveimur árum mun
Galileo fara 11 hringi um Júpít-
er og mjög nærri þremur
stærstu tunglunum, Ganyme-
des, Kallistó og Evrópu. Þá
mun hann einnig taka myndir
úr nokkurri fjarlægð af fjórða
tunglinu, lo. Ferðinni mun
ljúka 7. desember 1997 þegar
Galileo kveður með sinni síð-
ustu sendingu áður en hann
steypist inn að Júpíter og
brennur upp.
Nóbelsverðlaunin afhent í Osló og Stokkhólmi
Vísindamenn hvattir til að
Þótt hæstiréttur hafi ekki hróflað
við niðurstöðu forsetakosninganna
þá er úrskurðurinn mikið áfall fyrir
Kwasniewski. „Þetta er heldur vand-
ræðaleg staða,“ sagði Jozef Oleksy
forsætisráðherra og samráðherra
Kwasniewskis í síðustu ríkisstjórn
kommúnista fyrir 1989. Ýmsir aðrir
kunnir menn segja, að þetta mál
háfi svert álit Kwasniewskis og geti
dregið dilk á eftir sér.
Kwasniewski mun sveija emb-
ættiseið sinn sem forseti 23. desem-
ber en búist er við, að andstæðingar
hans muni þá nota tækifærið til
nýrra árása á hann. „Margir telja,
að þar sem hann hafi ekki verið trúr
yfir litlu, muni hann ekki verða trúr
yfir miklu,“ sagði félagsfræðingur-
inn Halina Franczak og bætti því
við, að gæti stjórnarandstaðan sett
niður deilumar sín í milli, þá gæti
hún hagnast á þessu máli í þingkosn-
ingunum 1997.
Fyrir ríkisrétt?
Þótt hæstiréttur hafi kveðið upp
sinn dóm þá er ekki víst, að málinu
sé þar með lokið fyrir dómstólunum.
Marian Krzaklewski, formaður Sam-
stöðu, segir, að samtökin ætli að
kanna hvort unnt sé að draga
Kwasniewski fyrir ríkisrétt en hann
dæmir í málum æðstu embættis-
manna.
þróa ekki gjöreyðingarvopn
Ósló, Stokkhólmi. Reuter.
JOSEPH Rotblat, handhafi friðarverðlauna Nó-
bels, hvatti vísindamenn á sunnudag til þess að
neita að þróa gjöreyðingarvopn og að vekja at-
hygli á öllum þeim tilraunum og verkefnum sem
kunni að skapa hættu fyrir mannkyn. Rotblat
veitti friðarverðlaununum viðtöku við hátíðlega
athöfn í Ósló á sunnudag en þá voru einnig
afhent tíu önnur nóbelsverðlaun í Stokkhólmi.
í ræðu sinni við verðlaunaathöfnina í Ráðhúsi
Óslóar, hvatti Rotblat þau ríki sem ráða yfir
kjarnorkuvopnum til að eyða þeim á næstu tíu
árum. Hann minntist aðeins lítillega á kjarnork-
utilraunir Frakka í Suður-Kyrrahafi og ekkert
á kjarnorkutilraunir Kínveija, sendiherrum ríkj-
anna til mikils léttis.
Verðlaunahafar Nóbels hljóta hver um sig
eina milijón dollara, tæpar 70 milljónir ísl. kr.
og deilir Rotblat sínum verðlaunum með Pugw-
ash-samtökum sem hann stofnaði til að sporna
við útbreiðslu kjamorkuvopna.
Skaða ímynd vísindanna
Rotblat sagði að vísindamenn eins og sýndir
hefðu verið í kvikmyndinni „Dr. Strangelove11
hefðu ýtt undir vopnakapphlaupið á árum kalda
stríðsins. „Þeir sködduðu ímynd vísindanna mjög.
Ef allir vísindamenn gæfu þessu ákalli gaum,
yrðu ekki þróaðir fleiri kjarnaoddar, engir
franskir vísindamenn yrðu á Mururoa, engar
nýjar tegundir af .efna- og sýklaeitri þróaðar.
Vopnakapphlaupið yrði fyrir bí... Ég bið vísinda-
menn um að vera minnungir þess hveijar skyld-
ur þeirra eru gagnvart mannkyni," sagði hinn
87 ára gamli verðlaunahafi. Hann vann á sínum
tíma að þróun kjarnorkusprengjunnar en hætti
því árið 1944 er hann gerði sér grein fyrir þeirri
ógn sem af henni stafaði fyrir allt mannkyn.
Rotblat sem er fæddur í Póllandi, hefur búið
í Bretlandi frá stríðslokum og helgað líf sitt
baráttunni gegn kjarnorkuvopnum.
Þá hvatti Rotblat vísindamenn til að vekja
athygli á því ef verið væri að vinna að tilraunum
sem gætu reynst mannkyni hættulegar. „Það
kann að kalla á refsiaðgerðir, að menn verði að
gjalda fyrir sannfæringu sína. Það kann að kalla
á harða refsingu, eins og sást í tilfelli Mordec-
hai Vanunu. Eg tel að hann hafi þjáðst nóg.“
sagði Rotblat en ísraelinn Vanunu, sem vann
við kjarnorkurannsóknir í heimalandi sínu, var
dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir njósnir og land-
ráð í leynilegum réttarhöldum í ísrael árið 1986.
Ástæðan var sú að hann hafði látið The Sunday
Times fá ljósmyndir úr húsakynnum rannsóknar-
stöðvar kjarnorkuvopna.
Látið undan freistingunni
í Stokkhólmi voru afhent tíu Nóbelsverðlaun
sem flest runnu til Bandaríkjamanna. írska ljóð-
skáldið Seamus Heaney, handhafi bókmennta-
verðlaunanna, mælti fyrir munn annarra verð-
launahafa er hann þakkaði fyrir sig og vitnaði
í orð Oscars Wilde um að besta leiðin til að losna
við freistingar, væri að láta undan þeirn. „Ég
hef látið undan freistingu þessara verðlauna og
tel að það sé rétt.“
Aðrir verðlaunahafar voru Bandaríkjamenn-
irnir Martin Perl og Frederick Reines, sem hlutu
verðlaun í eðlisfræði, Hollendingurinn Paul
Crutzen, Mexíkómaðurinn Mario Molina og
Bandaríkjamaðurinn F. Sherwood Rowland sem
deildu verðlaunum í efnafræði, Bandaríkjamenn-
imir Edward Lewis og Eric Wieschaus og Þjóð-
veijinn Christiane Nússlein-Volhard sem hlutu
nóbelsverðlaun í læknisfræði og Bandaríkjamað-
urinn Robert Lucas sem hlaut nóbelsverðlaun í
hagfræði. Fyrrverandi eiginkona hans, Rita, var
ekki viðstödd, en hún fær helming verðlaunaupp-
hæðar hans vegna samnings sem þau gerðu er
þau skildu en þar áskilur hún sér rétt til helm-
ings verðlaunaupphæðarinnar, hljóti eiginmaður-
inn einhvern tíma nóbelsverðlaun.
i
I
>
>
i
>
>
í
i
i
i
i
i
>