Morgunblaðið - 12.12.1995, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 39
AÐSENDAR GREINAR
Um sérskólana og rétt
fatlaðra til skólagöngu
Svar til formanns Félags íslenskra sérkennara
ÉG ÞAKKA góðar óskir til okkar
hér í Dalbrautarskóla og óska þér
og þínum alls góðs. Ég tel mig
ekki vera að óvirða þig persónu-
lega þó ég sé ekki sammála skoð-
unum þínum eins og þú gefur í
skyn. Ef þú hefur lesið það úr
skrifum mínum þá þykir mér það
leitt. Þú tekur af allan vafa um
fyrir hvern þú flytur mál þitt og
er það gott. Hitt veit ég að þó þú
Ef flytja á rekstur sér-
skóla til sveitarfélaga,
— —
segir Olafur Olafsson,
verður að tryggja
starfsgrundvöll þeirra
með lögum.
talir sem fulltrúi allra sérkennara
þá mælir þú ekki fyrir munn þeirra
allra. Svo að allt verði nú klárt
með umboðin þá skrifa ég sem
skólastjóri í Dalbrautarskóla en
ekki sem talsmaður allra sérskól-
anna.
Tilefni svars míns um daginn
var að hluta leiðrétting á alhæf-
ingu þinni um búsetu nemenda
sérskólanna. En megintilefnið var
að gera athugasemdir við þær til-
lögur þínar að því fé sem til sér-
skólanna er nú varið, verði dreift
út um landsbyggðina, og sérskól-
arnir þar með brotnir niður.
Réttur barna til skólavistar í
heimaskóla er tryggður með nýju
grunnskólalögunum og er það vel.
Við erum sammála um það. En
réttur þeirra til skólavistar í sér-
skóla, ef það er eina úrræðið sem
hentar þeim, er ekki tryggður með
nýju grunnskólalögunum. Það þarf
að koma til álit sérfræðinga á því
að sérskóli sé heppilegasta úrræð-
ið og að auki þarf peningavaldið
að samþykkja það fyrir sitt leyti,
til að barnið fái þar vist. Þetta er
skerðing á réttindum og það er
afturför.
Sérskólamir hafa þróast hver
með sínu sniði og þar vinnur fag-
fólk sem hefur mikla sérhæfða
þekkingu. Þeir eru miðstöðvar fyr-
ir fagþekkingu á sínu sérsviði.
Starfsfólk sérskólanna annast
kennslufræðilega greiningu og
veitir ráðgjöf til kennara sem ann-
ast kennslu fatlaðra nemenda víðs-
vegar á landinu. Sérskólarnir eru
allir staðsettir í Reykjavík nema
Hvammshlíðarskóli á Akureyri.
Eins og þeir starfa í dag eru þeir
þjónustustofnanir fyrir allt landið.
A undanförnum árum hafá margar
fjölskyldur fatlaðra barna flutt til
Reykjavíkur vegna þjónustu sem
einungis þar er að fá. Þar býr því
væntanlega hærra hlutfall slíkra
fjölskyldna en annars staðar á
landinu.
Ef taka á fast fjármagn, þó lít-
ið sé, frá sérskólunum mun starf
þeirra rýrna, og hrynja að minnsta
kosti um tíma, ef mikið verður
tekið. Þeir hafa verið byggðir upp
sem heild. Ef sérskólarnir eiga að
standa undir nafni og þar á að
dafna skólastarf sem byggir á
samfellu og öryggi fyrir alla sem
þar vinna og læra, þarf að ganga
svo frá málum að ekki verði held-
ur unnt að kippa þaðan kennslu-
magni tímabundið. Slíkar hug-
myndir eru einnig uppi þó ekki
hafi þær komið fram í grein þinni.
Það er mikil freisting fyrir útdei-
lendur sérkennslukvóta að flytja
hann á milli skóla eftir þörfum á
hveijum tíma. Skammtímasjón-
armið af þessu tagi eru til þess
fallin að raska starfsöryggi sér-
skólanna og rýra þá sem mennta-
stofnanir. Reglufesta er góð fyrir
alla en hún er nauðsynleg fyrir
nemendur sérskólanna og hún
þarf að ganga í gegnum allt þeirra
umhverfi. Ef flytja á rekstur sér-
skólanna til sveitarfélaganna verð-
ur að tryggja starfsgrundvöll
þeirra með lögum.
Þú vilt fá hlutfallslega, eftir
höfðatölu þíns umdæmis, af
rekstrarfé sérskólanna og býður
Reykjavík að reka áfram þá sér-
skóla, sem þar eru, fyrir eigin
reikning, ef hún kýs að gera svo.
Síðan megi rukka fyrir skólavist
ef nemendur koma annars staðar
að. Hver á að borga? Eiga fátæk
sveitarfélög að ákveða hvort þau
vilji frekar fá skólavist fyrir nem-
anda sinn í sérskóla í
Reykjavík en bjarga
þessu á ódýran hátt
heima? Þau gætu
hugsanlega skapað
peningasvigrúm til að
bjarga öðru brýnu
hagsmunamáli. Sið-
klemmur eru þrosk-
andi, en þetta er alveg
óþarfi að leggja á
fólk. Að auki er ekki
víst að pláss sé fyrir
nemendur utan af
landi í sérskólum
Reykjavíkur, ég tala
nú ekki um ef búið
verður að skera þá
niður.
Þessi stefna gengur ekki upp.
Það á ekki að rífa niður það sem
búið er að byggja upp. Það á að
Ólafur
Ólafsson
halda uppbyggingu
áfram og bæta við
sérúrræðum úti á
landi eftir þörfum á
hveijum stað með við-
bótarfé. Að því eigum
við sérkennarar að
vinna í samvinnu við
ríki og sveitarfélög.
Margir eru þeirrar
skoðunar að sérskólar
eigi áfram að vera
ríkisreknir. Ég er
ekki á því. Ég vænti
þess að sveitarfélög
muni búa betur að
fötluðum nemendum
en ríkið hefur gert.
Höfundur er skólastjóri í
DaJbrautarskóIa.
►
►
Sameining
Lífeyrissjóðs
verkstjóra
vi& Sameinaða
lífeyrissjóðinn
ÍUl ér með tilkynnist öllum þeim, er telja
til eignar eða skuldar hjá Lífeyrissjóði
verkstjóra kt. 430269-1869,
að ákveðið hefur verið að sameina
sjóðinn Sameinaða lífeyrissjóðnum
kt. 620492-2809, frá og með
1. janúar 1 996.
■ reytingar þar að lútandi hafa verið
ákveðnar á reglugerðum fyrrnefndra
sjóða og hafa þær verið staðfestar
af fjármálaráðuneytinu í samræmi
við 2. gr. laga nr. 55/1980.
#%llfeyrir
Sameinaði
lífeyrissjóðurinn
Græddur er geymdur lífeyrir
eð vísan til fyrrnefndra reglugerða
sjóðanna tekur Sameinaði lífeyrissjóðurinn
við allri starfsemi Lífeyrissjóðs verkstjóra,
réttindum og skyldum, frá og með
1. janúar 1996, svo og eignum og
skuldum. Endanleg sameining sjóðanna
fer fram 1. april 1996 á grundvelli
tryggingafræðilegrar úttektar á stöðu
sjóðanna m.v. 31. desember 1995.
11I samræmi við ofanritað verður skrif-
stofu Lifeyrissjóðs verkstjóra að Skipholti
50 C, lokað frá og með 1. janúar 1996.
Skrifstofa Sameinaða lifeyrissjóðsins
er að Suðurlandsbraut 30, IV. hæð,
108 Reykjavik, simi 568 6555.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavik
Sími 568 6555, Myndsendir 581 3208
Grænt númer 800 6865