Morgunblaðið - 12.12.1995, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
myndir - keramik
Líf 03 list
fjölbreytileg
listaverk
Opið kl. 12-18 virka daga. sími 567 3577. Stangarhyl 7.
Conny
Laugavegi 48.
simi 561 1080.
| Ný sending af undirfatnaði
| í hvftu, grænu og vínrauðu.
~W'r'--------
-kjarni málsins!
Abendingar á mjólkurumbúðum, nr. 47 af 60.
Lymsk áhrif...
Áhrif erlendra tungumála á íslensku koma ekki einungis fram
í því að við „slettum“, þ.e. notum erlend orð. Erlend orðaröð
og beinar þýðingar á orðasamböndum geta ekki síður haft slæm
áhrif á tunguna.
Sumir segja:
- Núna telur hver mínúta.
- Fyrir einhverjum árum síðan.
- Aður en baðað er í lauginni.
Betra er:
- Hver mínúta skiptir máli.
- Fyrir nokkrum árum.
Áður en farið er í laugina.
V » er okt,
MJÓLKURSAMSALAN
tslenskufræðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjótkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs.
I DAG
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu á dögunum
og söfnuðu 1.607 krónum sem þær gáfu í söfnunina
fyrir Flateyringa. Stúlkurnar heita: Harpa Guðmunds-
dóttir, Andrea Guðmundsdóttir, Rakel Sigrún Valsdótt-
ir og Sandra Valsdóttir
COSPER
SÝNDU svolitla biðlund, röðin kemur bráðum að þér.
Með morgunkaffinu
ÉG skil vel að þér sárni,
en nútíma læknavísindi
hafa enn ekki fundið upp
lyf sem vinnur gegn gráu
hári.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Upplýsingar
óskast
VÍSUR þessar lærði ég
af móður minni, Sólveigu
Guðmundsdóttur frá
Stóru-Háeyri á Eyrar-
bakka, en hún eignaði
þær konu á Bakkanum
sem kölluð var Imba
Slæpa. Þætti mér for-
vitnilegt að vita hvort
einhveijir lesendur
Morgunblaðsins kannast
við vísur þessar og eins
hvort einhveijir vita hver
þessi kona var. Ég hygg
að hún hafi verið á lífi í
kringum síðustu aldamót
og ekki er ósennilegt að
til séu fleiri vísur eftir
hana.
Um kisu
Situr hún í hrauknum,
hún er nett,
hún er sett,
hún er fríð í framan.
Veiðikamparnir á henni
eru stuttir á henni
eins og rófan á henni.
Um Gunnu
Gunna er á möttli,
hún er líka á frakka,
því ungur maður ætlar
hana að lakka.
Þekki einhver til þessa
er hann vinsamlega beð-
inn að hafa samband við
undirritaða.
Sigríður Ingimarsdóttir,
Efstaleiti 12,
Reykjavík.
Tapað/fundið
Regnbuxur
töpuðust
DÖKKBLÁAR regnbux-
ur í fullorðinsstærð töp-
uðust í Smáíbúðahverfi
sl. miðvikudag. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
587-3974.
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
Hvítur leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp í
klukkuúöltefli sem sjálfur
Gary Kasparov (2.777)
tefldi á Internetinu. Ka-
sparov hafði hvítt og átti
leik í þessari stöðu gegn
Bandaríkjamanninum E.
Larso sem tefldi í Washing-
ton. Svartur lék síðast 19.
- Bc8-a6 í erfíðri stöðu.
20. Bxh7+! - Kxh7 21.
Be7 - Dd3 22. Dh5+ -
Kg8 23. Bxf8 - Rb7 24.
Be7 - Bc4 25. d6 - Rd8
26. Bxd8 - Hxd8 27. Dh4
- Dxd6 28. Dxc4 og með
hrók yfir vann Kasparov
auðveldlega.
Kasparov var staddur
í Evrópuhöfuð-
stöðvum Intel stór-
fyrirtækisins
bandariska, sem
eru í Miinchen. And-
stæðingar hans tíu
voru hins vegar
staddir í ísrael,
Þýskalandi, Lond-
on, New York,
Kanada, Washing-
ton, Indlandi og í
Danmörku. Þeir
höfðu 45 mínútur
hver á skákina, en
Kasparov klukku-
tima. Leikirnir bár-
ust samstundis á milli um
Internetið. Kasparov
vann sjö skákir en gerði
þijú jafntefli.
Tæknilega er mjög
auðvelt að koma slíkum
viðburði á og aðstæður
eru ekkert ósvipaðar
venjulegu fjöltefli. En
Kasparov virðist eiga erf-
itt með að aðlaga sig
nýrri tækni og andstæð-
ingar hans voru ekki það
sterkir að undir venjuleg-
um kringumstæðum hefði
hann átt að sigra 10-0.
Víkveiji skrifar...
UM ÁRAMÓT kemur út mikill
fjöldi dagbóka og vasabóka,
sem fólk notar til margvíslegra
þarfa. Að auki eru nú til tölvuforrit
með slíkum bókum, svo sem Micro-
soft Schedule + og Lotus Organiser,
svo að dæmi séu nefnd. Töluvert er
um, að fólk í viðskiptalífinu kaupi
slíkar bækur, sem gefnar eru út af
útgáfufyrírtækjum brezka tímarits-
ins Economist og brezka dagblaðsins
Financial Times og bandaríska dag-
blaðsins International Herald Trib-
une, sem gefið er út í París. í þeim
bókum eru handhægar upplýsingar,
fyrir þá, sem eru mikið á ferð á
milli landa. Prentsmiðjan Oddi hefur
gefíð út dagbækur, sem eru áþekkar
að gæðum.
En íslenzkar útgáfur eru af ýmsu
tagi. Ein slík minnisbók er nú að
koma út 43. árið í röð. Það er
minnisbók Fjölvíss, sem hefur að
geyma mikið af gagnlegum upplýs-
ingum. Það sem mesta athygli vek-
ur þó og gerir það að verkum, að
þessi bók er sérlega gagnleg fyrir
fólk er sú staðreynd, að í henni er
að finna götukort yfir allt höfuð-
borgarsvæðið og að því er virðist
flesta eða alla kaupstaði á landinu.
Höfuðborgarsvæðið er orðið svo
víðfeðmt, að það er af sem áður
var, að auðvelt sé að rata um það
allt. Þvert á móti má ætla, að þeir
séu fáir, sem lenda ekki einhvern
tíma í vandræðum með að komast
leiðar sinnar, ekki sízt í nýjum
hverfum. I minnisbók Fjölvíss eru
götukortin handhæg og aðgengileg.
xxx
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur hefur löngum
haft Iag á að fylgjast með tímanum
og nýjum straumum í samfélaginu
í starfsemi sinni. Þetta kemur enn
einu sinni í Ijós nú, þegar félagið
hefur tilkynnt, að það muni und-
irbúa kröfugerð fyrir næstu kjara-
samninga m.a. með því að bera
saman launakjör verzlunarmanna
hér og í Danmörku.
Hvað sem mönnum kann að
finnast um slíkan samanburð er
ljóst, að hann er að verða mjög al-
mennur á meðal fólks. Atvinnurek-
endur hafa í mörg ár lagt áherzlu
á, að íslenzk atvinnufyrirtæki verði
að búa við sambærileg starfsskil-
yrði og keppinautar þeirra í öðrum
löndum. Nú kemur VR og segir í
raun: Þið verðið Iíka að búa starfs-
fólki ykkar sambærileg launakjör
og tíðkast í öðrum löndum, annars
má búast við að það leiti til ann-
arra landa eftir vinnu. Það var ekki
við öðru að búast en þetta sjónar-
mið kæmi fram fyrr en síðar af
hálfu launþegasamtakanna.
xxx
UMFJÖLLUN Morgunblaðsins í
fyrradag um áfengisauglýs-
ingar er íhugunarverð. Það er bann-
að að auglýsa áfengi í íslenzkum
íjölmiðlum. Á sama tíma eru seld
hér erlend dagblöð og tímarit með
áfengisauglýsingum. Tvær sjón-
varpsstöðvar auglýsa nú aðgang að
mörgum erlendum gervihnattarás-
um. Þar er áfengi auglýst. Nú þeg-
ar má búast við, að tugir þúsunda
íslendinga hafi aðgang að slíkum
stöðvum. Gera má ráð fyrir, að út-
breiðsla þeirra verði orðin mjög víð-
tæk eftir örfá misseri. Með hvaða
rökum er hægt að banna áfengis-
auglýsingar öllu lengur í íslenzkum
fjöimiðlum?