Morgunblaðið - 12.12.1995, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 41
AÐSEMPAR GREINAR
Leikskóli óskast
í Smáíbúðahverfi
ÁSTAND í dagvist-
armálum er verra en
skyldi víða í Reykjavík
og hvað verst í Bú-
staða- og Smáíbúða-
hverfum. Þar eru í
augnablikinu alls 143
börn á biðlistum hjá
Dagvist barna. Borg-
aryfirvöld kynntu á
sínum tíma áform um
nýjan leikskóla við
Hæðargarð, nálægt
Breiðagerðisskóla.
íbúar í nágrenninu
mótmæltu, foreldrafé-
lag og kennararáð
Breiðagerðisskóla
sömuleiðis. Rökin voru
meðal annars þau að umferð ykist
enn við skólann og nýbyggingin
takmarkaði möguleika á að stækka
skólahúsið í framtíðinni.
Yfirvöld Reykjavíkur hörfuðu
þá að sinni og fínkembdu hverfín
í leit að annarri hugsanlegri bygg-
ingarlóð. Hlnn 8. nóvember var
svó kynnt hugmynd um leikskóla
fyrir 80 börn í norðausturhorni
Grundargarðs í Smáíbúðahverf-
inu. Þetta gerðist á fundi í Breiða-
gerðisskóla þar sem mættu íbúar,
borgarstjóri, stjórnarformaður
Dagvistar barna, forstöðumaður
borgarskipulags og borgarverk-
fræðingur. Skiptar skoðanir voru
meðal íbúa sem þarna voru. Sum-
ir lögðust strax gegn hugmynd-'
inni, aðrir voru á báðum áttum,
enn aðrir voru jákvæðir. Engin
afstaða var tekin á fundinum og
engin ályktun samþykkt - enda
ekki efni til slíks þegar fólk var
þarna að sjá í fyrsta sinn frumtil-
lögur að skipulagi. Tveir fulltrúar
íbúa voru tilnefndir í lok fundar
að ræða málið áfram við forystu-
menn borgarinnar.
Borgaryfirvöld létu duga að
boða þennan fund með sex línum
í bréfi til íbúa um stund, stað og
umræðuefni. Engar teikningar,
engar upplýsingar fylgdu með og
ekkert slíkt kynningarefni hefur
sést enn þann dag í dag frá borg-
inni. Það er út af fyrir sig furðu-
legt og gagnrýni vert. Nú, þegar
meira en mánuður er liðinn frá
kynningarfundinum, ber svo við
að byijað er að safna liði í Smá-
íbúðahverfinu gegn hugmynd um
leikskóla í Grundargarði. Það þykja
mér slæm tíðindi. Enn
verra er þó að fulltrúar
fundarmanna úr
hverfinu skyldu strax
14. nóvember skrifa
undir bréf til borg-
arskipulags og mót-
mæla leikskóla í garð-
inum „fýrir hönd íbúa
í nágrenni Grundar-
garðs“. Hvar og hve-
nær var fengið umboð
til að senda ráðamönn-
um Reykjavíkur slíkt
erindi í nafni allra sem
nálægt garðinum góða
búa?
Kjami þessa máls
er sá að ástandið í
dagvistarmálum hverfisins okkar
er óviðunandi og kallar á nýjan
leikskóla. Ég óttast að andstaða
íbúa verði til þess að vandinn verði
alls ekki leystur - nema með því
að byggja yfir börnin á biðlistunum
í öðrum hverfum!
Ástandið í dagvistar-
málum hverfisins okkar
er óþolandi, segir Atli
Rúnar Halldórsson,
sem sjá vill leikskóla
rísa við Hæðargarð.
Ég er á þeirri skoðun að nýr
leikskóli eigi best heima við Hæð-
argarð og tel rökin gegn þeim
áformum ekki nógu sannfærandi.
Hinn kosturinn er norðausturhorn
Grundargarðs. Leikskólastarfsemi
á þar ágætlega heima og yrði garð-
inum og hverfinu til góðs. Fleiri
eru kostirnir í raun ekki; ef marka
má orð ráðamanna borgarinnar á
fundinum í Breiðagerðisskóla.
Eðlilegt er að skoðanir séu skipt-
ar, en nauðsynlegt að vega og
meta í rólegheitum rökin með og
á móti. Ég vil sjá leikskóla rísa
við Hæðargarð, en ef áfram verður
hamast gegn þeirri hugmynd er
nýr leikskóli í Grundargarði allrar
athygli verður. Það segi ég sem
granni og vinur garðsins.
Höfundur er fréttamaður og íbúi
í nágrcnni Grundargarðs.
Atli Rúnar
Halldórsson
GERUM GÓÐAR BÆKUR BETRI
Þingmenn!
Ritstörf, bókaútgáfa og prentun skapa vinnu og verðmæti.
Mörg hundruð manns vinna við ritstörf hér á landi. Árleg velta í bókaútgáfu er yfir 1.300 milljónir
kr. Á íslandi vinna yfir 2.000 manns við bókagerð og prentun.
Foreldrar!
Lásuð þið fyrir börnin ykkar í gærkvöldi?
Mikilvaegt er að lesið sé fyrir börn. Það er forsenda þess að þau fái sjálf áhuga á lestri. Fátt er
verðmætara ungu fólki.sem elst upp í kröfuhörðum nútímaheimi, en góð lestrarkunnátta.
Bókafólk!
Hvar kaupið þið bækur?
Bókaverslanir eru kjölfesta hvers menningarsamfélags. Allir sómakærir bóksalar bjóða upp á
þjónustu sem aðrar verslanir gera ekki. Gefið ykkur tíma til að glugga í baekur í góðu umhverfi.
Kaupið baekurnar hjá fagfólki.
Sjónvarpsstjórar!
Bókmenntir, bókagerð og sjónvarp eiga samleið.
Sjónvarp og bókmenntir eru ekki andstaeður. Á tímum margmiðlunar er brýnt að
sjónvarpsstöðvarnar nýti þau taekifæri sem bókmenntir og útgáfuiðnaður bjóða upp á.
Ritstjórar!
Börn eru líka fólk.
Núna eru lesendur morgundagsins að læra að lesa. Mikilvægt er að bókum sé haldið að börnum og
að þau skilji snemma að bækur eru spennandi afþreying.Tímarit og dagblöð þurfa að höfða til barna.
Stjórnendur útvarpsstöðva!
Fólk vill heyra fallegan texta og fróðlegt efni.
Það er vandasamt að vera útvarpsþulur eða kynnir. Vandaður undirbúningur skilar meiri hlustun.
Molar úr góðri bók geta hitt í mark.
GÓÐ BÓK
BÓKASAMBAND ÍSLANDS
SAMTÖK IÐNAÐARINS - FÉLAG BÓKAGERÐARMANNA - BÓKAVARÐAFÉLAG ÍSLANDS -
HAGÞENKIR - FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA - FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKA- OG
RITFANGAVERSLANA - RITHÖFUNDASAMBAND ÍSLANDS - SAMTÖK GAGNRÝNENDA
45% hækkun á einu ári
Komdu skattaaFslættinum
korti5
Skandia býður hlutabréf með
10% útborgun og aPganginn á
boðgreiðslum til 12 mánaða
Hjá Skandia geta hjón keypt hlutabréf í Almenna hlutabréfasjóðnum hf. fyrir 270 þúsund krónur
- borgað aðeins 10% út og afganginn á boðgreiðslum Visa og Euro til 12 mánaða.
Með slíkum kaupum fá hjón u.þ.b. 90.000 króna skattaafslátt sem greiðist í
ágúst á næsta ári.
Hlutabréf í Almenna hlutabréfasjóðnum hf. hafa hækkað um 45% síðustu 12 mánuðina.
• Þú getur gengið frá kaupunum með einu
símtali við Skandia í síma 5619 700.
Skandia
Fjárfestingarfélagið Skandia hf. • löggilt verðbréfafyrirtæki • Laugavcgi 170 • sími 56 19 700
ATÓMSTÖCIN