Morgunblaðið - 12.12.1995, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 47
AÐSEIMDAR GREINAR
GÆÐl 0 G G OT T^^V E R Ð
Hlutverk lífeyrissjóða
I FLESTUM lönd-
um tíðkast ríkisleynd-
armál, þ.e. mál sem
ekki má tala um og
aðeins fáir útvaldir
þekkja. Hérlendis hef-
ur húsnæðiskerfið
sætt þessari meðferð,
aðeins fáir útvaldir
þekkja það og það má
ekki tala um það.
Samtöl við stjórn-
málamenn hafa sýnt
mér að margir þeirra
botna ekkert í hús-
næðiskerfinu og hvað
þá almenningur. Fé-
lagshyggjujafnað-
Jón Kjartansson
frá Pálmholti
arvinstrimenn boðuðu til fundar á
Hótel Sögu 4. desember sl. um
það hvort þeir ættu að sameinast
um að sameinast eða ekki. I til-
efni af þessu var gefið út blað sem
var víst borið út í öll hús Reykja-
víkur. Ég leitaði með stækkunar-
gleri að orðinu húsnæði í blaði
þessu en fann það hvergi, ekki
heldur orðið lífeyrissjóður en þeir
hanga oftast á sömu spýtu.
Síðustu árin hafa menn sum-
staðar brotið innsiglið af gömlum
leyndarmálum og fyrir skömmu
gerðust þau undur að ungir sjálf-
stæðismenn kynntu úttekt sína á
húsnæðiskerfinu. Ég spyrði for-
mann þeirra hvort heimildakönnun
hefði ekki reynst erfið. Hann sagði
það hafa tekið tvo menn marga
mánuði að ná nauðsynlegum upp-
lýsingum og rengi ég hann ekki.
Niðurstaða þeirra er sú að ungt
fólk getur ekki keypt hús nema
hafa 450 þús. kr. í kaup á mánuði.
í sumar talaði Finnur Ingólfsson
viðskiptaráðherra um lækkun
vaxta og fékk fyrir vikið einhveija
verstu yfirhalningu sem íslenskur
ráðherra hefur fengið. í haust kom
hann á fund hjá sambandi spari-
sjóða og talaði gegn einokun „að-
iia vinnumarkaðarins" á skyldu-
sparnaði fólksins, lífeyrissjóðun-
um. Þótt sjóðirnir séu a.m.k. 60
-koma þeir fram sem ein heild,
annast alla afgreiðslu sjálfir og
hafa fullt samráð um útlánakjör.
Þeir ráða um 40% af öllu lánsfé
og hafa því afgerandi áhrif á
vaxtakostnaði lántaka. Þeir hafa
t.d. fjármagnað „félagslega hús-
næðiskerfið" með um 7% vöxtum
sem eru svo greiddir niður af ríkis-
sjóði. Þannig rennur verulegur
hluti af kostnaði ríkisins vegna
handmálaður
safngripur
kr. 1.980
SILFURBUÐIN
Kringlunni 8 -12 - Sími 568-9066
-Þar fœrðu gjöfina -
húsnæðis til lífeyris-
sjóðanna en ekki til
fólksins sem býr í
íbúðunum.
. Iðgjöld til lífeyris-
sjóðanna voru árið
1994 um 17 milljarðar
kr. en greiddur lífeyrir
á sama tíma aðeins
8,7 milljarðar kr. Aðr-
ar tekjur sjóðanna,
þ.e. vextir og afborg-
anir af útlánum, voru
um 35 milljarðar á
árinu. í árslok 1994
voru eignir lífeyris-
sjóðanna 234 milljarð-
ar kr. en það er 12%
aukning milli ára. Með sömu aukn-
ingu næstu 10 ár verða eignir sjóð-
anna 850 milljarðar kr. árið 2005.
Miðað við 5% vexti yrðu vaxtatekj-
ur þeirra þá um 42 milljarðar á
ári. Nú á að hlífa sjóðunum við
fjármagnstekjuskatti og sat Ás-
mundur Stefánsson, fyrrum for-
seti ASÍ, sem sérlegur fulltrúi fjár-
málaráðherra í stjórnarnefndinni
sem samdi reglurnar um skatt
þennan og gætti hagsmuna lífeyr-
Verulegur hluti kostn-
aðar ríkisins rennur til
lífeyrissjóðanna, segir
Jón Kjartansson frá
Pálmholti, en ekki til
fólksins sem býr í
íbúðunum.
issjóðanna. Félagshyggjujafnaðar-
vinstrimenn trúa víst enn þeirri
helgisögn að „verkalýðshreyfing-
in“ sé hreyfiafl í þjóðfélaginu,
þótt „aðilar vinnumarkaðarins“ sé
í reynd sterkasti varðhundur ríkj-
andi kerfis. Sé horft yfír sviðið
blasir við annars vegar botnlaus
skuldasöfnun heimilanna og hins
vegar botnlaus eignasöfnun lífeyr-
issjóðanna. Vill ekki einhver taka
sig til og rekja samhengið þama
á milli.
Höfundur er formaður Leigjenda-
samtakanna.
Siðfræöi
Níkornakkosar
Siðfræði Níkomakkosar
eftir Aristóteles
íslensk þýðing eftir Svavar Hrafn Svavarsson
sem einnig ritar inngang og skýringar.
Ritstjóri: Þorsteinn Hilmarsson.
Siðfrœði Níkomakkosar er eitt merkasta rit Aristótelesar.
í ritinu spyr hann þriggja meginspuminga um mannlega breytni.
Þeirra hefur sjaldan verið spurt af meiri ákafa en um þessar mundir.
Spurt er hvað sé hamingja og hvemig manneskjan
verði hamingjusöm. Það leiðir til spurningar um mannlega breytni:
Hvers vegna er góð breytni einhvers virði og hvers virði er hún?
Loks er spurt hvers konar siðgerð búi að baki góðri breytni.
Þannig er dyggðin kynnt til sögunnar og útskýrt hvemig dyggðug
siðgerð mótar athafnir okkar og hamingjuna sjálfa; því er spurt hvað
aðskilji vitrænar dyggðir og siðrænar, hverjar séu siðrænar dyggðir
og hvemig megi lýsa hófsemi og hugrekki, veglyndi og réttlæti.
Fyrir ritinu er ítarlegur inngangur um ævi, ritverk og kenningar
Aristótelesar, skýringarkaflar eru við hvem hluta verksins,
neðanmálsgreinar og atriðisorðaskrá.
Siðfrœði Nikomakkosar er alls 666 síður í tveimur bindum
í fallegri öskju. Ritið er 32. ritið í flokki
Lærdómsrita Bókmenntafélagsins.
Vakin er sérstök athygli á eftirtöldum Lærdómsritum:
Saga tímans, Um vináttuna, Manngerðir sý>í’ð,'líí>.
og Handan góðs og ills. á
HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNIAFÉLAG
SÍÐUMÚLA 21 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 588 9060 • FAX 588 9095
&
»11® b€í
>Mn
Eyjaslóð 7 Reykjavik S. S11 2200
Rosenthal - þegflf Pu
j vcl u'
Briiðkaupsgjafir
• Tímamótagjafir
• Verð við allra hæfi
Hötimill OggcPð/ l sérflokki Laugavegí 52, sími 562 4244.
SCARF