Morgunblaðið - 06.01.1996, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996_________________________
FRÉTTIR
TÆKJUNUM var komið fyrir í nóvember. Valtýr Björn Thors stendur Neðansjávarmyndavélin
á milli neðansjávarmyndavélarinnar og setgildranna aftast í bátnum. er á stöðugri grind.
Viðamikil forrannsókn á umhverfisáhrifum nýrrar skolplagnar
Neðansjávarmyndavél tek-
ur tvær myndir á sólarhring
Laugardagslottóið
Vinnings-
hafar verða
14-16.000
í kvöld
ÍSLENSK getspá spáir því að 14-
16.000 manns hreppi stóra og
smáa vinninga í laugardagslottó-
inu í kvöld. Eins og fram hefur
komið er fyrsti vinningur fimm-
faldur og er talið öruggt að vinn-
ingsupphæðin verði ekki undir 22
milljónum. Heildarupphæð vinn-
inga fer fer væntanlega yfir 33
milljónir.
Fyrsti vinningur í laugardags-
lottóinu hefur tvisvar verið fimm-
faidur áður. Vinningur var í fyrsta
skipti fimmfaldur 10. desember
árið 1994. Vinningsupphæðin var
27.083.300 kr. og skiptist hún á
milli fimm vinningshafa. Hver fékk
því 5.416.660 kr.
Aftur var fyrsti vinningur fímm-
faldur 2. september árið 1995.
Vinningsupphæðin fór upp í
22.546.380 kr. og skiptist hún á
milli tveggja. Hvor fékk því
11.273.190 kr.
Lofum ekki of miklu
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri íslenskrar get-
spár, sagði að fyrsti vinningur
hefði verið kominn upp í í
15.582.000 kr. í hádeginu í gær.
„Við höldum okkur við spána um
að vinningurinn fari upp í 22 millj-
ónir enda reynum við að lofa aldrei-
of miklu. Hins vegar eykst salan
væntanlega mjög mikið áður en
sölustöðum lokar,“ sagði hann.
Vilhjálmur var inntur eftir því
hvort mikið framboð af nýjum get-
raunum og happdrættum hefði
haft áhrif á söluna í haust. „Eðli
lottósins er að salan gangi í sveifl-
um. Salan dróst svolítið saman í
júlí og ágúst en hefur rést af aft-
ur. Við erum því ekkert að kvarta
og erum mjög bjartsýn héma hjá
Lottóinu," sagði hann.
GATNAMÁLASTJÓRI hefur
hleypt af stokkunum viðamikilli
forrannsókn á hugsanlegum um-
hverfisáhrifum af nýrri skolplögn
frá Ánanaustum. Einn liður rann-
sóknarinnar felst í því að taka
sýnishorn og neðansjávarmyndir
af seti á hafsbotninum út af Ána-
naustum við Akurey. Kjartan
Thors, jarðfræðingur, segir að
ekki þurfi að staðsetja tækin með
bauju á yfirborðinu því GPS-stað-
setningartækni sé orðin svo full-
komin að hægt sé að staðsetja þau
með eins metra nákvæmni.
Kjartan sagði að markmiðið
með því að kanna setmyndun og
setflutning á hafsbotninum væri
að meta hvað yrði um föst efni frá
fyrirhugaðri skolplögn í Ána-
naustum á næsta ári. „Við höfum
annars vegar komið fyrir svoköll-
uðum setgildrum eða rörum í
botninum til að fá sýnishorn af
því seti sem fellur til botns til
rannsóknar. Hins vegar höfum við
komið fyrir neðansjávarmyndavél
til að fylgjast með hreyfingum
sets á botninum. Myndavélin er á
um 20 m dýpi og tekur 2 myndir
á sólarhring," sagði hann.
Hífð upp og skipt
um filmu
Kjartan segir að GPS-staðsetn-
ingartækni hafi komið að góðum
notum við rannsóknina. „Við vild-
um komast hjá því að hafa baujur
á yfirborðinu því hætta var á að
skip og bátar á leið til og frá
Reykjavíkurhöfn fengju baujurn-
ar í skrúfuna. Okkur varð til
happs að GPS-staðsetningartækni
hefur fleygt svo fram að við getum
staðsett tækin með eins metra
nákvæmni. Þegar komið er á stað-
inn er rennt niður fjarstýrðri neð-
ansjávarmyndavél og myndavélin
á botninum kemur í ljós á sjón-
varpsskjá. Síðan er krækt í reipi,
sem fest er við myndavélina á
botninum, og hún hífð upp,“ sagði
Kjartan en einu sinni í mánuði er
náð í sýnishom af seti og skipt
um filmu í myndavélinni. Rann-
sóknin hófst í nóvember og enn
eru ekki komnar niðurstöður úr
fyrstu sýnatökunni. Ætlunin er að
halda rannsókninni áfram eftir að
skolplögnin hefur verið lögð.
Nú er skolpi hleypt í sjóinn á
nokkrum stöðum innan borgar-
markanna. Með framkvæmdum
við skolplagnakerfið er ætlunin
að fækka skolpleiðslum. Um Ieið
verða skolpleiðslurnar stærri og
lengri eins og raunin verður t.d.
við Ánanaust.
Viðamikil
rannsókn
Eins og áður segir er um afar
umfangsmikla umhverfisrann-
sókn að ræða og að henni koma
m.a. auk Jarðfræðistofu Kjartans
verkfræðistofan Vatnaskil, Ha-
frannsóknarstofnun, Vatnamæl-
ingar, Rannsóknarstofnun Fisk-
iðnaðarins og Líffræðistofnun
Háskólans.
Guðjón Atli Auðunsson, deild-
arstjóri hjá Rannsóknarstofnun
Fiskiðnaðarins, er verkefnissljóri
heildarverkefnisins.
Nóg eða meira?
LEIKUST
Litla sviö
Þjóóieikhússins
KIRKJUGARÐS-
KLÚBBURINN
Höfundur: Ivan Menchell. Þýðing:
Elísabet Snorradóttir. Leikstjóri:
Andrés Sigurvinsson. Leikmynd: Úlf-
ur Karlsson. Lýsing: Ásmundur
Karlsson. Búningar: Helga I. Stefáns-
dóttir. Umsjón með tónlist: Andrea
Gylfadóttir. Leikarar: Bessi Bjama-
son, Guðrún Þ. Stephensen, Margrét
Guðmundsdóttir, Sigurveig Jónsdótt-
ir og Þóra Friðriksdóttir.
Föstudagur 5. janúar.
LEIKRIT þetta sem frumsýnt var
í gærkvöldi er óvenjulegt fyrir að-
eins eitt; allar persónurnar eru
komnar yfír miðjan aldur. Að öðru
leyti er þetta hefðbundinn stofuleik-
ur sem gerist ýmist í íbúð í ná-
grenni New York eða í kirkjugarði
í grenndinni. Uppsetningin tekur
mið af þessari staðreynd. Sviðs-
myndin er viðkunnanleg, sýnir
venjulega setustofu í bandarísku
millistéttarhúsi án allra útúrdúra.
Það kom á óvart að sama leik-
mynd er notuð í kirkjugarðsatriðun-
um, en það var gaman að sjá hvaða
áhrifurh er hægt að ná með breyttri
lýsingu. Smáatriði eins og lauf og
steinar fullkomnuðu umbreyting-
Morgunblaðið/Þorkell
una. Þessi lausn á skiptingum milli
þessara tveggja ólíku staða hafði
það í för með sér að áhorfandinn
er sífellt minntur á kirkjugarðinn
og táknrænt gildi hans í þeim atrið-
um sem fóru fram á heimili Idu.
Þannig skapaði sviðsmyndin ákveð-
ið andrúmsloft sem lýsingin undir-
strikaði.
Verkið fjallar um togstreituna
sem kemur upp í vinkvennahópnum,
milli Doris, sem tekur hlutverk sitt
sem ekkju mjög alvarlega, Lucille,
sem virðist taka lífínu létt eftir lát
eiginmannsins, og Idu, sem sveifl-
ast milli þessara tveggja póla. Sag-
an er sögð í fjölmörgum atriðum
og varpar ljósi á ýmsar hliðar máls-
ins. Vandamálið er að atriðin eru
misskemmtileg og leikritið verður á
köflum langdregið. Það hefði
kannski mátt fella út viss atriði,
en hætta er á að þá hefði orðið að
fóma sumum blæbrigðanna í per-
sónusköpuninni.
Málið á þýðingunni er misjafnt
og vill á köflum verða of upphafíð.
Þetta kemur best í ljós þegar per-
sónurnar blóta eða hreyta út úr sér
setningum á nútímamáli. Áhrifín
af slíkri málnotkun á sviði vilja
verða mun meiri en af bóklegra
tungutaki. Það er kannski ekki
ástæða til að hnýta sérstaklega í
þessa þýðingu, flest er í henni lip-
urt og laglega gert. En það er kom-
inn tími til að þýðendur leggi höfuð-
ið í bleyti til að finna stíl og orða-
lag (málsvið) sem hæfir nútímaper-
sónum í gamanleik.
Leikurinn í þessari sýningu var
jafn og góður. Guðrún Þ. Stephen-
sen túlkaði vel hina kaldhæðnu
Doris, sem átti þó til að vera laun-
kímin. Margrét Guðmundsdóttir
átti góða spretti sem hin auðsærða
Ida og samleikur hennar og Bessa
Bjamasonar var til fyrirmyndar.
Bessi átti salinn þegar hann lék á
léttari strengi. Hann kallaði að því
er virtist áreynslulaust fram hlátra-
sköll með hárfínni tímasetningu og
sannaði í enn eitt skiptið að hann
er einn af okkar bestu gamanleikur-
um. Þóra Friðriksdóttir skapaði
ýkta og sannfærandi mynd af
glennunni Mildred.
Sigurveig Jónsdóttir lék á als
oddi í þakklátu hlutverki Lucille.
Lucille leikur hlutverk sem er ein-
hvers staðar mitt á milli Blanche
Devereux í Klassapíum og nöfnu
hennar Ball. Sigurveig sýndi að hún
er framúrskarandi leikkona hvaða
grímu sem hún setti upp og ekki
síst í endann grímulaus. En hún
og aðrir leikendur eiga góða að þar
sem eru leikstjórinn, hönnuður
stórglæsilegra búninga, umsjónar-
maður tónlistar og förðunarfólk.
Þótt leikverkið sé ekkert tímamóta-
verk hefur fagmennska og natni
lyft því á hærri stall og gert úr
þessu mjög ánægjulega kvöld-
skemmtun.
Sveinn Haraldsson
MORGUNBLAÐIÐ
10% hækk-
un tunnu-
leigu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu um 16,4% hækkun á
sorphirðugjaldi vegna atvinnu-
húsnæðjs og 10% hækkun á
tunnuleigu. Hækkunin tók gildi
um áramót. Áætlaður tekjuauki
borgarsjóðs vegna hækkunar-
innar er 10 milljónir króna
vegna sorphirðunnar og 3,5
milljónir króna vegna sorphirðu
frá íbúðarhúsnæði.
Tillagan gerir ráð fyrir að
sorphirðugjald atvinnuhús-
næðis hækki úr 6.700 krónur á
grunneiningu í 7.800 krónur og
að tunnuleiga hækki úr 1.000
krónum og 1.100 krónur.
í greinargerð með tillögunni
kemur fram að gjald fyrir
grunneiningu hafi verið óbreytt
frá árinu 1991. Jafnframt að í
gildandi samþykkt sé heimilt
að breyta gjaldinu með hliðsjón
af byggingarvísitölu. Grunnur
gjaldsins hafí verið miðaður við
verðlag í desember 1990 eða
174,1 stig. Vísitala í des. 1995
var 205,1 stigeða 17,8% hærri.
Þá segir að tunnuleiga hafi ver-
ið óbreytt frá árinu 1994. Bent
er á að gjaldskrá einkafyrir-
tækja sé umtalsvert hærri fyrir
sorphirðu.
Sambro
seldur
TOGARINN Sambro, sem er í
eigu Færeyinga en skráður í
Belize, verður að öllum líkindum
seldur. Togarinn hefur legið í
Vestmannaeyjahöfn frá því í júní
á síðasta ári, þegar hann var
kyrrsettur þar að kröfu norska
ríkisolíufélagsins Statoil.
Ágreiningur var um hvort út-
gerð Sambro hefði staðið í skil-
um með afborganir af láni til
Statoil, sem lánaði tugi milljóna
króna til að hægt væri að útbúa
skipið til veiða, auk þess að veita
fyrirgreiðslu vegna eldsneytis-
kaupa.
Samningar um lausn málsins
tókust í desember. Erlendur
Gíslason lögmaður, sem fór með
málið fyrir hönd Statoil, sagði í
samtali við Morgunblaðið að
olíufyrirtækið hefði fengið um-
boð útgerðarinnar til að selja
togarann. Hann sagði óvíst hvort
reynt yrði að selja togarann hér
á landi eða erlendis, en það
myndi skýrast fljótlega.
La Primavera
hyggst flytja
VEITINGASTAÐURINN La
Primavera hefur tekið á leigu
um 200 fermetra húsnæði á efri
hæð Austurstrætis 9, húss Egils
Jacobsens, og hyggjast eigendur
staðarins flytja starfsemina
þangað um næstu eða þar næstu
mánaðamót.
Fræðsludeild Búnaðarbank-
ans hefur nú húsnæðið á leigu
fram til mánaðamóta febrúar og
mars, og segir Ómar Strange
annar eigandi La Primavera,
sem nú hefur aðsetur í Húsi
verslunarinnar, að unnið sé í að
flýta því að bankinn rými svæð-
ið fyrr en samningur segir til
um. La Primavera verður að
hans sögn út janúar á núverandi
stað.
„Það er gjörbyiting fyrir okk-
ur að fara í miðbæinn þar sem
skemmtanalífið er í stað þess
að vera í Kringlunni sem er mjög
róleg eftir klukkan sex á kvöld-
in. Við rekum áfram matsölu-
staðinn með sama hætti og nú
er, með sæti fyrir 60 gesti,“
segir Ómar.