Morgunblaðið - 06.01.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 21
KJÓLAR sem kostuðu 6.900
og 7.900 krónur áður. Núna
var hægt að kaupa báða kjól-
ana fyrir 1.490 krónur sem
eru um 10% af upprunalegu
verði.
EKKI er óalgengt að veittur
sé 30% afsláttur af þeim fatn-
aði sem kom í búðir í haust
eða fyrir jól. Afslátturinn er
oft meiri ef um er að ræða
gamlar birgðir.
Algengt er að
afsláttur á útsöl-
um nemi 30-40%
ÞAÐ var yfirleitt mikið að gera
í þeim verslunum sem þegar
voru byrjaðar með útsölur síð-
astliðinn fimmtudag en þá var
farið og rölt milli búða. Ekki
er hægt að segja að útsölur hafi
almennt Verið byijaðar þá en
margir verslunareigendur sögð-
ust ætla að láta til skarar skríða
um helgina eða í næstu viku.
Svo virðist sem lækkunin
nemi að meðaltali um 30-40% á
nýlegum fatnaði en oft eru eldri
birgðir seldar með meiri af-
slætti. í lokin er verðið oft lækk-
að enn frekar. Ekki er eingöngu
um að ræða fatnað á útsölum,
seljendur beimilistækja bjóða nú
afslátt af varningi sínum og í
janúar er oft hægt að kaupa t.d
búsáhöld, gjafavöru, jólavarn-
ing, málningu, parket og jafnvel
húsgögn á niðursettu verði.
Mikið að gera strax
klukkan átta
Útsalan hjá Iðunni á Seltjarn-
arnesi hófst klukkan átta sl.
fimmtudagsmorgun. Að sögn
Lovísu Marinósdóttur var
ákveðið að opna svona snemma
til að viðskiptavinir gætu átt
þess kost að koma áður en þeir
færu til vinnu. „Við erum með
30% afslátt af nýjum fatnaði en
svo erum við líka með meiri
afslátt af öðrum flíkum.“ Lovísa
segir að buxur séu vinsælastar
á útsölunni en síðan sé salan
nokkuð jöfn.
Margir byija með útsölu á
Iöngum laugardegi
Síðastliðinn fimmtudag voru
ekki margar verslanir við
Laugaveg með útsöluskilti í
gluggum sínum en þó voru búð-
irbins og Benetton, Blu di Blu,
Stjörnur og fleiri byijaðar með
útsölu.. Margar verslanir við
Laugaveg ætla að láta til skarar
skríða í dag, á Iöngum laugar-
degi, en búðir við Laugaveg og
í nágren ii eru með opið til
klukkan i7 í dag. Að sögn Aðal-
heiðar Karlsdóttur hjáEngla-
börnum, sem er í Laugavegs-
samtökunum, er afslátturinn al-
mennt svipaður milli verslana
frá 30% og upp í um 70% eftir
því hvort um er að ræða nýjar
vörur eða ekki. Hún segir mis-
munandi hversu lengi útsölurn-
ar komi til með að standa en
býst við að margir verslunareig-
endur verði með útsölu út jan-
úar.
Útsalan var hafin þjá Flash á
Laugaveginum sl. fimmtudag.
STUNDUM er hægt að kaupa
búsáhöld og gjafavöru á
niðursettu verði.
VÍÐA þar sem jólavarningur
er seldur hefur hann verið á
útsölu að undanförnu.
Þar var afslátturinn að meðal-
tali um 30-50% en á einni slánni
var jafnvel hægt að borga um
10% af upprunalegu verði fyrir
fatnað eins og kjóla, buxur og
peysur.
Útsölur í Borgarkringlunni
að byrja
Kristján Óskarsson, markaðs-
stjóri Borgarkringlunnar, segir
að útsölur séu í þann mund að
hefjast í Borgarkringlunni og
flestar búðir byrji í næstu viku.
Hann segir að afslátturinn
verði á bilinu 30-60% og í ein-'
staka tilfellum eitthvað meiri.
NEYTENDUR
GUÐRÚN Rúnarsdóttir sagðist alltaf kíkja á útsölur og fata
fjölskylduna upp. „Þetta borgar sig ef afslátturinn er um 50%.
Ef ég get keypt mér buxur á 3.500 sem áður voru á sjöunda
þúsund þá er ég sátt.“ Sonurinn Jón Rúnar Gíslason var með
mömmu sinni á útsöluröltinu og bar sig bara vel. Guðrún sagð-
ist hinsvegar ekki leggja meira á hann en svona tvær búðir í einu.
BJÖRG Óskarsdóttir sagðist
einungis hafa farið á eina út-
sölu. „Mig vantar kuldaskó og
á eftir að athuga hvert ég fer
til að skoða skó.“ Hún segir
að sér finnist borga sig að
kaupa á útsölum ef um sé að
ræða vandaðan fatnað. Þegar
hún er spurð hvort hún kaupi
á aðra fjölskyldumeðlimi segist
hún eiga unglinga og þeir verði
sjálfir að sjá um sín fatakaup.
HULDA Haraldsdóttir var að
kíkja á fyrstu útsöluna í ár
þegar við hittum hana. Hún
segist kaupa bæði á sig og
bóndann ef hún rekist á eitt-
hvað sem henni líkar á útsölu.
„Ég býst ekki við að kaupa
margar flíkur að þessu sinni.
Mér finnst þetta borga sig ef
ég sé flík sem mér líkar og
afslátturinn nemur t.d. um
40%,“ segir hún.
Villandi
saman-
burður á
parketi
SAMKEPPNISSTOFNUN
hefur beint þeim tilmælum
til fyrirtækisins Egils Árna-
sonar hf., sem selur Káhrs-
parket, að í auglýsingum á
parketinu skuli framvegis
koma skýrt fram að eingöngu
sé verið að bera saman nýja
Káhrs-parketið og eldri gerð-
ir sömu tegundar en ekki
tegundir annarra framleið-
enda.
Þetta kemur fram í
Fréttabréfi Samkeppnis-
stofnunar sem kom út í des-
ember síðastliðnum. Þar
segir ennfremur að ástæða
tilmælanna sé kvörtun frá
keppinaut á gólfefnamark-
aðinum, sem dregur í efa að
fullyrðingar í auglýsingu
Egils Árnasonar hf. standist.
í auglýsingunni er sagt að
Káhrs-parket sé sterkara en
ekki tilgreint hvað sé verið
að bera það saman við. í
upplýsingabæklingi um Ká-
hrs-parketið segir að lakk
sem þróað hefur verið innan
fyrirtækisins hafi helmingi
meira slitþol en hefðbundin
UV-lökk, sem framleiðand-
inn notaði áður. Keppinaut-
urinn telur hins vegar að
ekkert sé til sem heiti hefð-
bundið UV-lakk heldur sé
verð og gæði lakktegunda
mismunandi og því geti sam-
anburðurinn eingöngu átt
við um Káhrs-parket. Einnig
kemur fram í fréttabréfinu
að forsvarsmaður Egils
Árnasonar hf. hafi fallist á
tilmæli Samkeppnisstofnun-
ar.
Morgunblaðið/Ásdís
MARGIR kaupa á útsölum föt
á börnin fyrir næsta vetur,
úlpur, kjóla, peysur og svo
framvegis. Afslátturinn er
oft á bilinu 30-50% og munar
um minna þegar fata þarf
nokkur börn.
Steikt hrogn
að hætti Rúnars
Flestar búðir í Kringlunni
byija með útsölu 11. janúar
Einar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, seg-
ir að ákveðið samflot sé hjá
verslunareigendum í Kringlunni
með útsölurnar í ár. Sumsstaðar
eru útsöluskilti komin upp eins
og hjá hjá Cosmo og Byggt og
búið en að sögn Einars ætlar
meirihluti verslana að byija með
útsölu fimmtudaginn ll.janúar
næstkomandi.
Götumarkaður verður síðan
haldinn í lok útsölu, þann 16 og
17 febrúar næstkomandi.
Útsalan hefst á næstu dögum
hjá Hagkaup. „Við komum til
með að lækka vörurnar um
40-70% og þetta er ein besta
útsala sem við höfum haft til
þessa,“ segir Þorbjörn Stefáns-
son, innkaupastjóri sérvöru-
deildar hjá Hagkaup. „Við verð-
um til dæmis með búsáhöld,
gjafavöru, fatnað og skó á nið-
ursettu verði.
HROGNATÍMINN er framundan
og nú þegar hafa hrogn sést í sum-
um fiskborðum. í gær, föstudag,
var kílóið af hrognum selt á 550
krónur hjá fiskbúðinni Vör og hjá
Hagkaup kostaði það 498 krónur.
En hvernig er best að meðhöndla
og matreiða hrognin?
Rúnar Marvinsson, veitingamað-
ur á veitingastaðnum Við Tjörnina,
var með svar á reiðum höndum.
„Pakkið hrognunum þétt inn í
plastfilmu og bindið hnút á báða
enda. Setjið þau svona í sjóðandi
vatn og sjóðið í um það bil fimm
mínútur. Áð þessu búnu eru hrogn-
in kæld og tekin úr plastinu. Skerið
í sneiðar.
Búin er til hvítlauksolía með því
að setja hvítlauk og olíu í mat-
vinnsluvél. Smyijið olíunni á sárin
og saltið ef vill. Steikið síðan í
smjöri.
Færið hrognin á disk og hellið
síðan á pönnuna slettu af hvítvíni
eða mysu ef hvítvín er ekki til.
Bætið saman við saxaðri ferskri
steinselju og smávegis af ijóma.
Bæta má við hvítlauk ef þurfa þyk-
ir.“
Þar með er kominn pottþéttur
réttur, segir Rúnar, og ef um er
að ræða forrétt eru hrognin borin
fram með ristuðu brauði. Ef hafa
á hrognin sem aðalrétt þá má borða
með þeim kattöflur, salat eða annað
sem vill.