Morgunblaðið - 26.01.1996, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.01.1996, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ 6 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996 FRÉTTIR Ognaði afgreiðslu- stúlku með Snjóleysið á skíðasvæðinu í Bláfjöllum hefur slegið fyrri met Morgunblaðið/Þorkell ÞORSTEINN Hjaltason, fólkvangsvörður í Bláfjöllum, hefur starfað á svæðinu í átján ár. Þeir fyrstu fá að renna sér um helgina m. \/\ I / STARFSMENN hafa í ýmsu að snúast þótt fáir hafi lagt leið sína á skíðasvæðið í vetur. Hér er verið að bijóta ís af vírnum í stólalyftunni. LANGÞRÁÐUR snjór féll í Blá- fjöll í gær. Starfsmenn tróðu hann jafnóðum með stórvirkum troðurum svo hann fjúki ekki ef frystir og hvessir. Þorsteinn Hjaltason fólksvangsvörður seg- ir að ekki hafi fyrr verið svo lengi snjólétt í Bláfjöllum frá því að menn hófu að iðka skíðaíþrótt- ir þar. Þrátt fyrir snjóleysið tapast ekki miklar tekjur, að sögn Þor- steins, því janúar sé jafnan rysj- óttur og fáir dagar sem nýtist til skíðaiðkana og útiveru. Um miðjan dag í gær var kominn 12 sentimetra jafnfallinn snjór i Blá- fjöllum og Þorsteinn sagði að skíðasvæðið yrði líklega opið um helgina, en sennilega aðeins fyrir æfingar keppnismanna fyrst um sinn. Tólf sveitarfélög standa að Bláfjallanefnd sem fer með skipulag á svæðinu en reksturinn er í höndum Iþrótta- og tóm- stundaráðs. Þorsteinn og félagar hafa umsjón með öllum lyftum á svæðinu, ellefu talsins, en flutn- ingsgeta þeirra er 8 þúsund manns á dag. Á bilinu 70-100 þúsund manns koma í Bláfjöll á hveiju ári. íþróttafélögin sem eiga skiðaskála á svæðinu verða líklega fyrir tekjutapi vegna þess að ekki hefur verið skíðakennsla og útleiga á skíðaskálum, en Blá- fjallanefnd sér um rekstur á lyft- um á þeirra svæðum. Þá er hún í samstarfi við ÍR og Víking sem eiga skíðasvæði í Hamragili. Mars og apríl eru skíðamánuðirnir Ómar Einarsson, fram- kvæmdastjóri íþrótta- og tóm- stundaráðs, segir að tekjutap og minni útgjöld haldist í hendur þegar svona stendur á í Bláfjöll- um. „Það eru færri starfsmenn í vinnu, minni snjómokstur og snjóruðningur og við höldum að okkur höndum varðandi ráðning- ar á aukastarfsfólki. Við erum nú ekki farnir að örvænta. Fyrir nokkrum árum opnuðum við 7. nóvember og sá vetur reyndist ein versta vertíðin. Það var næg- ur snjór, en alltaf vitlaust veð- ur,“ sagði Ómar. Þorsteinn Hjaltason sagði að svæðið hefði aldrei verið opnað svo seint. í kringum 1984 hefði það ekki verið opnað fyrr en 21. janúar en nú væri það met fallið. „í hittifyrra opnuðum við 7. nóvember og svo er opnað alls staðar þar á milli. Það má þó geta þess að þó við opnum fyrir jól er svæðið lítið sótt þá og yfir- leitt rysjótt tíðarfar. í janúar er oft rysjótt og þá erum við yfir- leitt að beijast við að undirbúa fyrir besta tímann, í mars og apríl. Reyndar var janúar besti mánuðurinn í fyrra en það er undantekning. Mars og april eru skíðamánuðirnir,“ sagði Þor- steinn. Skíðavörur seljast illa Þorsteinn sagði að það væru ekki einvörðungu íslendingar sem kæmust ekki á skíði núna því snjólaust væri í Evrópu og í Bandarikjunum, eftir asahláku víða. „Það er eitthvert annað mynstur í veðurfari núna en oft áður. Það er þó enginn sem seg- ir að þetta hafi aldrei gerst áður.“ Þorsteinn sagði að nú yrði bara að bíða og sjá hvernig veðr- ið yrði frá febrúarbyijun og út apríl. „Skólabörn sækja hingað yfirleitt ekki fyrr en í febrúar." Halldór Hreinsson, verslunar- stjóri í Skátabúðinni, sagði að aldrei hefði jafnlítið selst af skíðavörum og núna. „Við seljum bara gönguskó og hluti sem jafn- an er litil eftirspurn eftir á þess- um árstíma. Við höfum aldrei selt jafnmikið af regnfatnaði í janúar, því það eru allir úti að ganga eða hlaupa. En ég á von á þvi að skíðasalan hefjist eftir helgi. Við huggum okkur við það að þetta er sýnu verra í Evrópu. Frakkar þurfa að fara meira en 60 ár aftur í tímann til þess að fá samjöfnuð við snjóleysið núna í frönsku Ölpunum," sagði Hall- dór. hnífi AFGREIÐSLUSTÚLKU verslunar- innar Nóatúns við Rofabæ var síð- degis í gær ógnað með hnífi af manni sem hafði verið staðinn að því að hnupla matvöru. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu brást maðurinn við með þess- um hætti þegar honum varð ljóst að starfsfólk verslunarinnar var að gera lögreglu viðvart um að hann væri að stela og einn starfsmaður reyndi að koma í veg fyrir að hann kæmist út. Það var þá sem maður- inn greip hníf úr búðarhillu, reif íiann úr pakkningunni, ógnaði kon- unni og ruddi sér þannig leið út. Úti fyrir beið annar maður í bíl og höfðu mennirnir sig á brott á bílnum. Starfsfólkið náði bílnúmer- inu og lét lögreglu vita. Lögregla telur sig vita hver mað- urinn, sem ógnaði konunni, er en hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna búðahnupls. ! Hann hafði ekki verið handtekinn, síðast þegar fréttist. -----»*------- Togarinn Mainz í Cuxhaven Slökkvistarfi lauk í gær SLÖKKVISTARFI í togaranum Mainz, sem er í eigu DFFU í Cux- haven, lauk ekki fyrr en um hádeg- isbilið í gær, en eldur kviknaði í togaranum klukkan 8 sl. þriðju- dagskvöld. Enn hefur ekki fengist yfirsýn yfir það tjón sem orðið hefur, en að sögn Finnboga Baldvinssonar, framkvæmdastjóra DFFU, er ljóst að tjónið er gríðarlega mikið. Togarinn var að fullu tryggður og kvótalaus. „Auðvitað hefur það áhrif á rekstur fyrirtækisins að missa skip í einhvem tíma,“ segir Finnbogi. „Þau markmið sem við höfum sett okkur munu þó ekki breytast." Hafnarfjörður Þrír virtu tóbaks- varnalög ÆSKULÝÐS- og tómstunda- ráð Hafnarfjarðar kannaði fyrir skömmu hvort verslanir þar í bæ, sem selja tóbak, virtu bann tóbaksvarnalaga við sölu á tób- aki til barna undir 16 ára aldri. Af 29 sölustöðum voru aðeins þrír, sem neituðu að selja 14 ára unglingi tóbak. í frétt frá ÆTH kemur fram, að 14 ára unglingur hafi farið í fylgd tveggja starfsmanna félagsmiðstöðvarinnar Vitans á alla staði í Hafnarfirði sem selja tóbak, alls 29. Þrír staðir, Sölu- tuminn Reykjavíkurvegi 3, Nesti Reykjavíkurvegi 54 og Verslun 10-11 í Miðbæ, hafi neitað að selja drengnum tób- ak. 4-5 staðir til viðbótar hafi neitað í fyrstu og jafnvel beðið um nafnskírteini, en gefið sig fyrir einföldum rökum kaup- andans. „Þetta þýðir með öðr- um orðum að í 89,7% tilfella var bann við sölu á tóbaki til yngri en 16 ára virt að vett- ugi,“ segir í fréttinni. Kostir við að selja á stofn matvæla- og sj'ávarútvegsgarð kynntir Bygging fynr stofnunina myndi kosta 480 milljónir HASKÓLI íslands og Reykjavíkurborg hafa á undanförnum vikum kannað kosti þess að setja á stofn „matvæla- og sjávarútvegsgarð" í þeim tilgangi að efla rannsóknir, kennslu, þróunar- starf og þjónustu í þágu matvælaiðnaðar og sjáv- arútvegs. Skýrsla sem inniheldur athugun á þörf o g kostum slíkrar stofnunar var kynnt í gær. í henni er gert ráð fyrir að 190 manns geti verið að störfum samtímis í slíkri stofnun, þar af um 40 starfsmenn og 150 nemendur. Hug- mynd er uppi um að reisa byggingu við hlið Sjávarútvegshússins á Skúlagötu 4, sem hýsa myndi stofnunina auk þess að vera samtengd fyrrííéfndu húsi, og er áætlaður byggingarkostn- aður 480 milljónir króna. Samvinna ríkis og borgar skilyrði Auk rannsókna- og kennslurýmis er gert ráð fyrir að fyrirtæki alls staðar af landinu gætu leigt aðstöðu tímabundið í garðinum og fengið aðstoð við þróun á ferlum og tækjum, við lausn- ir sértækra vandamála í framleiðslu og markaðs- setingu. Þörf á rými er metin vera um 4.500 fermetrar brúttó. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir ljóst að þessari framkvæmd verði ekki hleypt af stokkunum nema með góðri samvinnu ríkis- valds og Reykjavíkurborgar, og með það í huga sé skýrsla um kosti slíkrar stofnunar lögð fram til kynningar þeim aðilum sem þyrftu að koma að málinu. Háskólinn og Reykjavíkurborg fengu Verk- fræðistofu Stefáns Olafssonar ti! að gera úttekt á þessar hugmynd, sem fæli í sér könnun á rekstri slíkra garða erlendis og viðhorf og undir- tektir fyrirtækja og stofnana í Reykjavík. í skýrslu fyrirtækisins kemur fram að meðál þeirra 36 fyrirtækja sem rætt var við í matvælaiðnaði á höfuðborgarsvæðinu, sé það tvímælalaust talið iðnaðinum til framdráttar að tengja saman rann- sóknir, háskólakennslu og þjónustu á sviði mat- vælaiðnaðar og sjávarútvegs. Meirihluti þeirra leitar nú þegar til rannsóknastofnana atvinnu- veganna um þjónustu og rannsóknir. Fyrirtækin bentu hins vegar á að núverandi aðstaða stofnan- anna sé takmarkandi þáttur í samstarfi um vöru- þróunarverkefni. Leigutekjur greiða ekki kostnað Háskóli íslands hefur á undanförnum 20 árum útskrifað 130 matvælafræðinga og sinnt fjöl- mörgum greinum sjávarútvegs innan ýmissa deilda skólans. Sveibjörn Björnsson háskólarekt- or segir í inngangi skýrslunnar að þegar tölur um byggingarkostnað sjávarútvegs- og mat- vælagarðs séu skoðaðar, verði að hafa í huga að ekki sé um frumfjárfestingu að ræða, heldur myndi stofnunin leysa af hólmi þá aðstöðu sem Háskólinn leigir undir þessa starfsemi, auk þess að mæta framtíðarþörfum matvæla- og sjávarút- vegsgreina við Háskólann. Ennfremur myndu skapast möguleikar á að taka í notkun og samnýta tækjakost þann sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins ræður yfir en hefur ekki haft húsrúm fyrir til þessa. í ofaná- lag gera skýrsluhöfundar ráð fyrir þeim mögu- leika að Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna verði til húsa hérlendis, sem sæmilegar líkur eru taldar á, og að honum verði fundinn staður í matvæla- og sjávarútvegsgarði. Sveinbjörn segir þó ljóst að kostnaði við upp- byggingu matvæla- og sjávarútvegsgarðs verði ekki hægt að mæta með leigutekjum einum sam- an. Stofnframlag sé nauðsynlegt og eru settar fram tvær tillögur í skýrslunni þar að lútandi, annars vegar að stofnframlag verði 60% af bygg- ingarkostnaði eða um 300 milljónir króna og hins vegar 40%, eða um 200 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.