Morgunblaðið - 26.01.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.01.1996, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Samninjfaviðræáur um kvéta igienzkra akipa I Barentshafi i qjAlfheldu Af hverju ert þú með svona stóran munn amma mín? Reglur um hámarksvexti líftryggingasamninga í KJÖLFAR þess að auglýsingar hafa að undanfömu birst í fjölmiðlum frá seljendum svokallaðra söfnunarlíf- trygginga hefur Vátryggingaeftirlitið vakið athygli á nýlegri reglugerð um leyfilega hámarksvexti í slíkum tryggingasamningum. Sala trygginga af þessu tagi hefur aukist að undan- fömu með tilkomu vátryggingafélaga inn á íslenska markaðinn. Hinn 31. október síðastliðinn tók giídi reglugerð um hámarksvexti í líf- tryggingasamningum í íslenskum krónum. Samkvæmt reglugerðinni er líftryggingafélögum sem hafa starfs- leyfi hér á landi heimilt að gefa lof- orð um vexti í líftryggingasamningum í íslenskum krónum að hámarki 3% til viðbótar verðtryggingu, og að há- marki 4,5% í óverðtryggðum líftrygg- ingasamningum. Þegar gildistími líf- tryggingasamnings í íslenskum krón- um er átta ár eða skemmri og ið- gjald er greitt í eitt skipti fýrir öll mega loforð um vexti þó hæst nema 5,5% til viðbótar verðtryggingu og 7% í óverðtryggðum líftrygginga- samningum. Rúrik Vatnarsson hjá Vátrygg- ingaeftirlitinu sagði í samtali við Morgunblaðið að í umræðu um þessa tryggingagrein að undanfömu hefði stundum mátt halda að verið væri að lofa mjög hárri ávöxtun, og því þótt ástæða til að benda fólki á gild- andi reglugerð. Erlendar reglur gilda um erlenda sjóði Rúrik sagði að sumir líftrygginga- samninganna sem seldir væru hér væru reyndar í erlendri mynt, þ.e. iðgjaldið væri greitt væri með íslensk- um krónum, en viðmiðunin væri þá þeir erlendu sjóðir sem greitt væri úr og giltu þá reglur um hámarks- ávöxtun í viðkomandi landi. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson LOMAN-hænuungar í útungunarstðð Nesbús. Þýskar Loman-hænur í eggjaframleiðslu Vogum. Morgunblaðið. Á NÆSTU mánuðum munu tvö stór eggjaframleiðslufyrirtæki, Vallá og Nesbú, hefja framleiðslu eggja með nýjum hænsnastofni sem heitir Loman og er upprunn- inn frá Þýskalandi en er fluttur hingað frá Noregi. Að sögn Sigurðar Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Nesbús, eru Loman-hænurhar betri fram- leiðsludýr en þær sem hafa verið notaðar hingað til. I maí í fyrra voru flutt inn egg af þessum stofni og fóru þau að Hvanneyri í einangrun í 13 vikur. Síðan voru ungar úr eggjunum í uppeldi í 13 vikur þar til þeir fóru að verpa. Þannig hefur verið búinn til stofn sem hefur orpið eggjum sem fóru til útungunar og 28. des- ember sl. voru fyrstu eggin frá stofnfughinum sett í útungun í út- ungunarstöð Nesbús. 18. janúar sl. komu fyrstu ungarnir úr eggjun- um. Það líða svo 5 mánuðir þar til fuglamir fara að verpa. Það verður því liðið rúmt ár frá því eggin voru flutt inn og þar til hænurnar fara að verpa eggjum fyrir almennan markað. „iMotendur og njótendur" háiendisins Lítið fengið að fylgjast með Fridrik Stefán Haildórsson FRIÐRIK Halldórs- son er formaður Ferðaklúbbsins 4x4, en í honum eru um 1.000 áhugamenn um ferðalög innanlands á bifreiðum, yfirleitt jepp- um, sem hafa drif á öllum hjólum. Þeir hafa sér- stakt dálæti á því að ferð- ast um miðhálendi ís- lands og því vilja þeir leggja orð í belg þegar hálendið er skipulagt til framtíðar. Fyrir nokkru var frá því greint í Mörgunblað- inu að Skipulag ríkisins hefði birt fyrstu drög að skipulagi miðhálendisins sem unnin hafa verjð af landslagsarkítektastof- unni Landmótun-. í viðtal- inu sagði Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, að rætt hefði verið við flesta eða alla þá sem láta sig skipulag há- lendisins varða. Þó væri enn mik- íl vinna framundan og nú mætti búast við því að sá ágreiningur sem kynni að vera fyrir hendi manna og hópa í millum kæmi fram. Hvernig líst Friðriki á þau drög sem lögð hafa verið fram? „Það er eflaust margt ágætt við þessi drög en eins og Stefán benti á mun ágreiningur nú koma fram. Fullyrðingar hans um að svo stórt verk sem þetta verði seint eða aldrei unnið svo öllum líki standast fyrst og fremst ef haldið verður áfram að vinna að þessu líkt og gert hefur verið. Það er mín skoðun og eflaust félaga minna í 4x4 og margra annarra að ekki sé tekið tillit ti! þeirra sem við getum kallað land- lausa íslendinga. Þar erum við að tala um meirihluta landsmanna sem eru notendur og njótendur hálendisins. Það hefur augljóslega verið mikið rætt við þá aðila sem hafa tekjur eða aðra hagsmuni af svæðinu, s.s. rafmagnsveitur, Landsvirkjun og bændur. Við hin höfum lítið eða ekkert fengið að blanda okkur í málið og það geng- ur ekki.“ Getur þú nefnt dæmi um þetta tillitsleysi og sýnt fram á vinnu- brögð sem betur mættu fara að þínu áliti? „Já, já, við getum nefnt dæmi um skipulagsmál Hveravalla sem mikið hafa verið í fréttum að undanförnu. Þar finnst okkur sveitamenn hafa farið algerlega offari. Þar bera vinnubrögðin keim af því að þessir aðilar hafi fundið peningalykt, að nú sé lag að mjólka peninga af ferðamönn- um. Því sé kominn tími til að þeir taki sjálfír við uppbyggingu og skipulagningu á svæðinu, jafn- vel þótt það kosti að henda F'erða- félagi íslands út með þá uppbygg- ingu sem félagið hefur staðið fyr- ► Friðrik Stefán Halldórs- son er fæddur 27. maí 1959. Hann er bankamaður í húð og hár, eftir að hafa útskrif- ast sem viðskiptafræðingur frá HÍ starfaði hann hjá Út- vegsbanka íslands og Islands- banka áður en hann réðst til Búnaðarbankans þar sem hann starfar nú. Friðrik veitir Ferðaklúbbnum 4x4 for- mennsku og hefur gert svo síðan 1994, en hann var þar einnig formaður á árunum 1985-88. Eiginkona Friðriks er Bergljót Friðriksdóttir og eiga þau tvær dætur, Auði og Ester. heilu rúturnar fullar af ferða- fólki, en snyrtiaðstaðan er einung- is tvö klósett. Ljóst er að það verður að leysa mörg vandamál á þessum svæðum. Hins vegar mega menn ekki gleyma því að þetta eru hálendisperlur og sér- staða þeirra felst í því að menn fá á tilfínninguna að þeir séu þeir fyrstu sem þar fara um. Þetta á ekki síst við um útlendingana. Þessi sérkenni verður að varð- veita.“ Hvað teljið þið hjá 4x4 að beri þá að gera? Lausnin felst í því að setjast niður og ræða málin. Og það verða fleiri að ræða saman heldur en talsmenn hreppa annars vegar og stofnanir og hið opinbera hins vegar. Að þeim viðræðum verða einnig að koma notendur og njót- endur landsgæðanna t.’d. ferða- menn, en fulltrúar þeirra gætu verið talsmenn Ferðaklúbbsins 4x4, Ferðafélags íslands og Úti- vistar, skotveiðimenn, vélsleða- og skíðamenn og jafnvel fleiri." En hafa verið einhvetjar óskir? Hefur ekki farið afskaplega lítið fyrir þessum hópum sem þú nefn- ir? ír. Lýsingarnar á því sem þarna á að standa eru auk þess ófagrar, maður sér fyrir sér raf- ------ magnsgirðingar, stein- steypu og það eina sem vantar er skiltið yfir hamborgarastaðnum. Ég er hræddur úm að —— menn verði að hugsa sinn gang betur.“ Ekki verður þó Um það deilt að á þessum svæðum er geysileg- ur átroðningur og fullkomlega nauðsynlegt að grípa til allra ráða til að vernda þau eða hvað? „Já, það er auðvitað alveg rétt, sbr. Geysissvæðið. Annað dæmi er t.d. í Nýjadal, þar sem koma Ekki tekið tillit til landlausra íslendinga „Opinberlega hefur lítið farið fyrir okkur, það er rétt en ein- hvetjar þreifingar hafa verið, ein- --------- hveijir fundir og símt- öl. En það ber að nefna á móti, að við höfum fengið afskaplega lítið að vita og fylgjast með að því undanskildu að einn fundur hefur farið fram með starfsmönnum „nefndarinnar". Það má eiginlega segja að við höfum ekki fyrr en nú vitað hver óvinurinn er og hvernig hann lítur út. Hópur útivistarfélaga hefur nú óskað eftir því að fá að taka þátt í þeirri vinnu sem fram und- an er og það er ljóst að við látum í okkur heyra hér eftir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.