Morgunblaðið - 28.01.1996, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.01.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1996 11 færsla grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga. Undirbúningur þess hefur leitt til þess að sveitarstjórn- armenn hafa farið að tala meira saman og í sumum sveitum telur fólk að það verði flókið og erfitt að takast á við þetta verkefni í hefðbundnu samstarfí sjálfstæðra sveitarfélaga. Mörgum finnst þungt í vöfum að taka ákvarðanir vegna verkefna sem sveitarfélögin vinna nú þegar að, þar sem málin þurfa að fara til afgreiðslu í mörgum sveitarstjórnum. Þriðja atriðið og það sem flestir nefna er sameining sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum sem nú stendur yfir. Eindreginn stuðningur sveitarstjórnarmanna og íbúa við sameiningu hefur vakið eftirtekt og greinilega smitað út frá sér. Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, segir að áhuginn hafi víða verið fyrir hendi en telur að sameiningin fyrir vestan hafi ýtt við mönnum. Tekwr ef langan tima Þó víða sé rætt um sameiningu og hún leiði væntanlega til samruna sveitarfélaga hér og þar um landið virðist ljóst að raunveruleg endur- skipulagning á hreppaskipan lands- ins er ekki á döfinni. Það vekur at- hygli að sums staðar em nokkrir þéttbýliskjamar að sameinast í eitt sveitarfélag með nokkur þúsund íbúa, jafnvel þar sem yfir fjallvegi er að fara, eins og á Vestfjörðum og hugmyndir eru um á Austfjörð- um, en á sama tíma geta sveitarfé- lög með allt niður í 50 íbúa ákveðið að starfa áfram. Þessi ólíku sveit- arfélög eiga síðan að starfa hlið við hlið að sömu verkefnum. Hér hlýtur að vanta stefnumótun. Valgarður Hilmarsson á Fremsta- gili, formaður héraðsnefndar Aust- ur-Húnavatnssýslu, segir að samein- ing tveggja eða þriggja hreppa skipti engu máli, víðtæka sameiningu þurfí ef hún eigi að ná tilgangi sínum. Ólafur Ragnarsson á Djúpavogi telur að sameining á fijálsum grund- velli taki of langan tíma og sveitarfé- lögin tapi of mörgum tækifærum á meðan beðið er eftir þróuninni. Seg- ist hann ekki sjá að samstaða takist um þetta verk enda geti einn og einn maður komið í veg fyrir samein- ingu sveitarfélaga sem eigi saman. Telur hann nauðsynlegt að lögfesta lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga og vill miða við 2.000 íbúa. Lýkur ekki nema med lögþvingun „Löggjafarvaldið hefur ekki vilj- að taka af skarið um það að efna til heildarendurskipuiagningar sveitarstjórnarkerfisins þegar á hefur reynt og svo virðist vera sem töluverður hluti þingmanna taki mjög mikið mið af skoðunum og viðhorfum sveitarstjórnarmanna til sameiningar. Valdið hefur í raun legið hjá sveitarfélögunum þar sem andstaðan hefur verið mikil, eins og sést á niðurstöðu sameiningar- kosninganna 1993,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðing- ur sem vinnur að doktorsritgerð við háskólann í Gautaborg um samein- ingu sveitarfélaga á Isiandi, þegar hann er spurður að því hvað valdi því að ekki hefur gengið betur að sameina sveitarfélög. Grétar Þór segir að svo virðist sem í raun hafi aldrei komið til greina að beita lögþvingun til að sameina sveitarfélögin. „Miðað við þá miklu andstöðu sem víða virðist vera við sameiningu er fremur fátt sem bendir til þess að málinu ljúki með fijálsum samningum sveitarfé- laganna. Ekki er þar með sagt að ekki geti átt sér stað sameining hér og þar. En ef á að klára þetta dæmi og endurskipuleggja allt sveitarstjórnarstigið er mjög fátt sem bendir til að það takist án lög- þvingunar," segir Grétar Þór. Útilokar valdboö Núverandi stjórnvöld sveitar- stjórnarmála útiloka lögþvingunar- leiðina. Páll Pétursson félagsmála- ráðherra segir að ef meirihluti íbúa sveitarfélaga sjái sér hag í að sam- einast og leiti að fyrra bragði til ráðuneytisins muni það aðstoða við íslandshandbókin/SS FRÁ Sauóórkróki, Tindastóli i baksýn. Veróur Krókurinn höfuóstaóur sameinaós sveitarfélags? SKAGFIRDINOAR VIUA SAMEININGU pPPHAFIÐ að vinnu við sameiningu að minnsta kosti sjö sveitarfélaga í Skagafirði má rekja til þess að nokkrir sveitarstjómarmenn úr þeim sex sveitarfélögum sem samþykktu sameiningu alls Skagafjarðar í kosningun- um árið 1993 hittust á fundi í desember. Þeir höfðu reynd- ar átt óformlegar samræður fyrir ári. Fulltrúar Fljóta- hrepps mættu einnig á fundinn þó þar hafi sameiningin verið felld. Að sögn Snorra Bjöms Sigurðssonar, bæjar- stjóra á Sauðárkróki, varð það niðurstaðan að skoða vel sameiningu þessara sveitarfélaga. Aliar sveitarstjómimar hafa nú samþykkt að hefja formlegar viðræður um samein- ingu og er vinna við undirbúning þeirra að hefjast. Sveitarfélögin sem taka þátt í viðræðunum eru Sauðár- króksbær, Skefilsstaðahreppur, Staðarhreppur, Viðvíkur- hreppur, Hólahreppur, Hofshreppur (Hofsós) og Fljóta- hreppur. Hreppsnefnd Seyluhrepps, þar sem Varmahlíð er aðal þéttbýliskjarninn, hefur óskað eftir þátttöku. Öðr- um hreppum héraðsins hefur verið boðin þátttaka en ekki er vitað um afstöðu þeirra. Ef ákveðið verður að sameina umrædda átta hreppa mun nýja sveitarfélagið mynda landfræðilega heild úr Fljótum, út á Skaga og upp á Vatnsskarð, nema hvað Skarðshreppur sem umlykur Sauðárkrók og Rípuhreppur í Hegranesi lenda á milli. Tveir landfræðilega stórir hreppar í framhéraðinu, Akra- hreppur (Blönduhlíðin) og Lýtingsstaðahreppur, yrðu einn- ig utan nýja sveitarfélagsins. Undirbúningur vandaóur Snorri Björn segir ákveðið að vanda undirbúning sam- einingar fremur en að flýta henni. Menn telji meiri líkur á að árangur náist með því móti. Stefnt er að því að þetta ár verði notað í málefnavinnu og er lögð áhersla á að koma jafnt jákvæðum sem neikvæðum hliðum sameining- ar strax upp á borðið. Síðan er stefnt að kosningum um sameiningu á næsta ári. Ef íbúarnir samþykkja verður kosið til sveitarstjórnar nýs sveitarfélags í almennum sveit- arstjórnarkosningum árið 1998. Snorri Björn segist hafa verið fylgjandi sameiningu alls Skagafjarðar í eitt sveitarfélag en það gerist ekki nema með vilja íbúanna. Hann telur meiri líkur á að af skagfirsku sameiningunni verði en þegar reynt var 1993. Ýmsar forsendur hafi breyst. í fyrsta lagi nefnir hann það til sögunnar að mönnum hafí fundist að valdboði væri beitt of mikið í stóru sameiningartilrauninni og hrokk- ið í baklás þess vegna. Þá hafí atvinnumálunum hrakað mikið á þeim stutta tíma sem síðan er liðinn og menn sjái hlutina þess vegna í eitthvað öðru ljósi. „Ég trúi því að fólk sjái það núna að betra er að spyma við fótum gegn þessari öfugþróun þegar starfað er í einni heild,“ segir Snorri Björn. Viljum fylgjast meó „Við viljum fá að fylgjast með og taka þátt í þessum viðræðum," segir Sigurður Haraldsson í Grófargili, odd- viti Seyluhrepps. Sigurður segir að hreppsnefndin hafí beitt sér fyrir umræðum um sameiningu hreppanna í fram- héraðinu, þ.e.a.s. Seyluhrepps, Lýtingsstaðahrepps og Akrahrepps, enda hafi þessi sveitarfélög mikla samvinnu, meðal annars í skólamálum. Hins vegar hafí ekki fengist undirtektir í hinum hreppunum. Sameiningin var felld í Seyluhreppi árið 1993 með miklum mun. Sigurður vill ekkert fullyrða um það hvort vilji íbúanna hafi breyst en segir mikilvægt að skoða all- ar hliðar mála. Því vilji hann fylgjast með þeim viðræðum sem nú eru að hefjast. Íslandshandbókin/JKS NESKAUPSTAÐUR er f jölmennasfi staóurinn af þeim þremur bæjum og kauptúnum sem hugmyndir eru um aó sameina ú Austf jörówm. EIMSKIPSMÁLIÐ SITUR í REYÐFIRÐINGUM ÆJARSTJÓRN Neskaupstaðar hefur samþykkt ályktun þar sem hvatt er til viðræðna urti stór- aukna samvinnu og hugsanlega sameiningu Neskaup- staðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Lagt er til að hvert sveitarfélag tilnefni þijá menn í nefnd til að fjalla um þessi mál og að nefndin hefji störf í febrúar. Guðmund- ur Bjarnason, bæjarstjóri í Neskaupstað, segir að þessi þrjú sveitarfélög hafi með sér töluverða samvinnu. Telur hann raunhæft að vinna að sameiningu með það að markmiði að kosið verði til nýrrar bæjarstjórnar í sveitar- stjórnarkosningunum eftir tvö ár. Nýja sveitarfélagið yrði með tæplega 3.500 íbúa. Hann segir að sveitarfélögin vinni nú sameiginlega að svæðisbundinni byggðaáætlun þar sem opinber þjón- usta er skipulögð. Við þá vinnu hafi þessi mál verið rædd í víðu samhengi. Hins vegar segir Guðmundur að kveikj- an að umræddri ályktun bæjarstjórnar Neskaupstaðar sé stanslaus fólksfækkun og erfiðleikar á landsbyggðinni. Undanfarin ár hefur íbúum í Neskaupstað og Reyðar- firði fækkað verulega, eða þar til á síðasta ári að þróun- in stöðvaðist. Aftur á móti varð veruleg fækkun á Eski- firði á síðasta ári, en þar hafði ríkt stöðugleiki í nokkur ár. Hugmyndir um hafnasamlag Arngrímur Blöndahl, bæjarstjóri á Eskifirði, segir að sér lítist ágætlega á að hefja viðræður um sameiningu við Neskaupstað og Reyðarfjörð. Segir hann ákveðið að Eskfirðingar fari í þessar viðræður. „Við teljum ástæðu til að skoða þessi mál með opnum huga. Byggðin verður öflugri í stærri einingum," segir hann. Hafnarstjórn Eskifjarðar samþykkti í vikunni jákvæða afstöðu til stofnunar hafnasamlags með Neskaupstað og Reyðarfirði. Yrði þá sameiginleg stjórn og rekstur á höfununum. Mikil átök urðu milli þessara þriggja sveitarfélaga þegar Eimskip ákvað viðkomuhöfn vegna beinna siglinga frá Austurlandi til Evrópu. Allar sveitarstjórnirnar vildu fá þetta til sín. Neskaupstaður datt fyrst út vegna þess að þar er varla aðstaða fyrir Eimskip. Eskifjörður varð síðan fyrir valinu og fór Reykjafoss þaðan í fyrsta skipti síðastliðinn fimmtudag. Þessi ákvörðun situr mjög í Reyðfírðingum. Þar er nýlega búið að byggja upp hafskipahöfn fyrir 150 milljón- ir kr. og allar aðstæður fyrir hendi. Og þar hafa strand- ferðaskip Eimskips viðkomu. Meginhluti framleiðslunnar sem á að flytja kemur hins vegar frá SH-frystihúsunum í Neskaupstað og á Eskifírði og er talið að Norðfirðing- ar hafi lagst á sveifina með Eskfirðingum í samskiptum við Eimskip. Af samtölum við sveitarstjórnarmenn á Reyðarfirði að ráða getur þetta mál spillt fyrir þátttöku Reyðarfjarðar í samstarfi og sameiningu. Þeir telja að öflugir aðilar á hinum stöðunum hafi þvingað Eimskip til að hverfa frá því að nýta bestu aðstöðuna með óeðli- legum aðferðum. Þorvaldur Aðalsteinsson, oddviti Reyðarfjarðarhrepps, segir að óskað hafi verið eftir viðræðum við Eskfirðinga þegar Eimskipsmálið var í gangi en þeir hafi ekki svar- að. Á sama tíma og Norðfirðingar og Eskfirðingar hafi verið að hugsa um samstarf og jafnvel sameiningu hafi þeir ekki getað unnt Reyðfirðingum þess að nýta 150 milljóna króna fjárfestingu. Nú þyrfti hins vegar að fara út í verulega fjárfestingu við Eskifjarðarhöfn vegna sigl- inga Eimskips. Hreppsnefndin á Reyðarfirði hefur ekki tekið afstöðu til tillögu Norðfirðinga. ísak Ólafsson, sveitarstjóri á Reyðarfirði, lýsir þeirri almennu skoðun sinni að samein- ing sé af hinu góða og því stærri sem hún sé þeini mun betri. Telur hann sameiningu tveggja staða ekki næga, allir þurfi að vera með þannig að einingin verði hagkvæm. framkvæmdina eins og mögulegt sé. „Ég er hins vegar alfarið á móti því að sameina með valdboði. Ég tel að það hafi ekkert annað en illt upp á sig og hefni sín síðar að hafa samfélagið sundurtætt,“ segir Páll. Hánn segir að það verði að lofa fólki að hugsa sig um og ákveða þetta sjálft, ekki megi reyna að kúga það eða kaupa til samein- ingar. Páll tekur þó fram að ráðu- neytið muni vinna að sameiningu sveitarfélaga við önnur þegar þau hafa færri en 50 íbúa nokkur ár í röð, eins og kveðið er á um í lögum. Aðspurður tekur Páll fram að hann muni alls ekki beita sér fyrir endurskipulagningu sveitarfélag- anna með átaki eins og Jóhanna Sigurðardóttir stóð fyrir 1993. „Ég mun alls ekki beita sömu aðferðum og Jóhanna í þessu máli og reyni heldur að forðast hennar aðfarir í mörgum málum. Enda bar það ekki verulegan árangur og ég held að hún hafi beinlínis komið í veg fyrir hugsanlega sameiningu í einhveij- um tilfellum með því að setja upp þá pressu sem hún gerði.“ Félagsmálaráðherra tekur ekki undir sjónarmið um að stefnuleysi ríki í málinu þegar nokkuð fjölmenn sveitarfélög sameinast á meðan sum þau minnstu vilja það ekki. „Það er meginatriðið að hægt sé að leysa verkefnin með viðunandi hætti. Það geta nokkur lítil sveitar- félög gert með samkomulagi ef þau vilja, án þess að sameinast. Ekki er algilt að málin séu auðleystari þótt þau sameinist. Þetta getur til dæmis átt við um skólamálin. En slík samvinna útheimtir auðvitað ákveðinn félagsþroska," segir Páll. Mótsagnir i afstöóunni í könnun sem Grétar Þór Eyþórs- son gerði á viðhorfum sveitarstjóm- annanna til sameiningar á árinu 1994 kom það fram, sem ekki ætti að koma á óvart, að sveitarstjórnar- menn í dreifbýlissveitarfélögum vilja síður sameiningu en félagar þeirra í stærri sveitarfélögum. Er þá miðað við hreppa með 250 ibúa eða færri. Afstaða þeirra ræðst af lýðræðinu. Ekki síst má greina vissan ótta við að stóru sveitarfélögin gleypi þau smærri og íbúar þeirra síðarnefndu hafí lítið að segja í nýju sveitarfélagi. Það vekur hins vegar athygli að greina má vemlega mótsögn í af- stöðu sveitarstjórnarmanna. Fulltrú- ar minni sveitarfélaganna eru vissu- lega mun hallari undir rökin á móti sameiningu en ekki ber svo mikið á milli þegar rökin fyrir sameiningu eru borin undir þessa tvo hópa. Hreppsnefndarmennirnir geta oft tekið undir þau rök sem sameining- arsinnar færa fyrir sameiningu, til dæmis um hagkvæmari rekstur, heildstæðari þjónustusvæði, að stór og sterk sveitarfélög geti dregið úr fólksflótta af landsbyggðinni og að lítil sveitarfélög valdi ekki lögboðn- um verkefnum. Grétar veltir því fyrir sér hvað valdi andstöðu hreppsnefndarmanna við sameiningu, fyrst þeir eru sam- mála rökunum fyrir sameiningu. Spyr hvort eitthvað annað ráði af- stöðu þeirra. Segist hann ekki geta svarað þessu út frá könnun sinni og vill heldur ekki fara mikið út í það hvort afstaða í smáhreppunum til sameiningar sé vegna persónu- legra hagsmuna, það er hvort hún stýrist til dæmis af því að menn vilji ekki missa völd sín og áhrif eins og stundum hefur verið haldið fram. í sameiningarkosningunum 1993 var að mestu farið fram hjá sveitar- stjórnarmönnunum og tillögurnar lagðar beint fyrir íbúana, þó heilu hreppsnefndirnar væru á móti sam- einingu. Flestar sameiningartillög- urnar voru felldar. Grétar segir erf- itt að sanna orsakasambandið, hvort skoðanir hreppsnefndarmanna end- urspegli vilja íbúanna eða hvort fólk- ið í hreppunum hallist að málflutn- ingi og afstöðu forystumanna sinna. Hann ségir vitað að áhrif forystu- manna í smærri sveitarfélögum séu mikil og segir að það sé tilfinning margra þeirra sem unnu að samein- ingartilrauninni 1993 að afstaða þeirra hafi víða ráðið úrslitum um niðurstöðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.