Morgunblaðið - 28.01.1996, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1996
MQRGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
kANsrru vet- w&aÞ, [
verah&zmauk? '
ÉG ER.M& HEfí
/EGNA EFT7/Z -
LAUNANNA/
Grettir
6TUMDUM HELD 66 AÐ þ^R þyKJ
V/ENNA UM þBNNAN BAUQSA
BN MtG
Smáfólk
mey,marcie..what's ou R
MOMEWORK FORTOMORROU)?
Hæ, Magga ... hvað er að læra
fyrir morgundaginn!
Við eigum að læra hluta af ritn- „Manstu eftir konu Lots_“ Ég
ingargrein... náði því!
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
Island —
nafli alheimsins
Frá Jóni Oddi Þórhallssyni:
ÉG VIL byrja á því að þakka Ást-
þóri Magnússyni, talsmanni Friðar
2000, fyrir mjög góða grein þann
11. janúar sl. Þar skrifar hann
undir fyrirsögninni: Tökum for-
ustuna. Þar á hann við að íslend-
ingar skuli gera friðarboðskap að
atvinnugrein og að okkur sé í blóð
borið að flytja út fyrir landsteinana
dýrmæta „friðarreynslu" sem er
kærkomin og nauðsynleg fyrir all-
an heiminn. Og ef rétt yrði haldið
á spilunum á næstu mánuðum og
árum geti forseti íslands orðið
mesta tekjulind þjóðarinnar.
Þetta „markaðsstarf“ þarf að
vinna á hugsjónagrundsvelli smátt
og smátt og svo með tímanum
myndi þetta start skila sér í
ómældum ferðamannatekjum.
Meira að segja spádómar fram-
tíðarinnar eru hliðhollir okkur. í
bókinni Spádómarnir miklu eftir
Guðmund S. Jónasson, tala þeir
Nostradamus, Edgar Cayce, Dr.
Adam Rutherford, dr. Helgi Pjet-
urss o.fl. um að íslandi og íslend-
ingum sé ætlað „forustu-friðar-
hlutverk" í mjög náinni framtíð.
Máli þessu til stuðnings, langar
mig að benda á pýramídann mikla
í Egyptalandi. Hann er sagður
sýna kristna trú á vísindalegum
grundvelli. í suðausturhorni pýr-
amídans mikla e_r leiðarvísir sem
sagður er vísa á ísland. Þessi leið-
arvísir var uppgötvaður 1925 en
fram að þeim tíma var aðeins vit-
að um einn leiðarvísi, svonefndan
Betlehemsgeisla sem talið er að
vísi á fæðingarstað Jesú Krists.
Dr. Adam Rutherford, sem var
pýramídafræðingur, trúði því að
Islendingar en ekki gyðingar væru
guðs útvalda þjóð. I Matteusar-
guðspjalli segir Jesú Kristur við
gyðinga: „Guðsríki verður frá yður
tekið og gefið þeirri þjóð, sem ber
ávexti þess.“
Til gamans læt ég fylgja með
mynd úr bókinni „Hin mikla arf-
leifð íslands" sem út kom árið
1939 og er eftir Dr. Adam Ruther-
ford.
Þar sem að Ástþór Magnússon
talar um að gera friðarboðskapinn
að atvinnugrein sýnist mér bera
vel í veiði fyrir ferðamálayfirvöld
í Skagafirði því ég get ekki betur
séð samkv. myndinni en að næsti
messías muni koma frá Sauðár-
króki.
En án gríns aðjpá líst mér vel
á þá hugmynd hjá Ástþóri að reyna
að stefna saman helstu leiðtogum
heims á Þingvöllum árið 2000 til
að undirrita einhverskonar jarðar-
sáttmála.
Eftir lestur greinar Ástþórs um
að taka forystuna í friðarmálum
heimsins, sé ég að maðurinn á
hvergi annarstaðar heima en á
Bessastöðum. Hvað annað á næsti
forseti íslands að hafa í fyrirrúmi
en það sem kom fram í grein Ást-
þórs 11. janúar 1996.
Að lokum vil ég segja þetta.
Ef penninn er beittasta vopnið
ættir þú að geta byijað þriðju
heimstyijöldina með penna þínum.
Einnig ættir þú að geta afvopnað
allar þjóðir heims með sama penn-
anum.
JÓN ODDUR ÞÓRHALLSSON,
Víðigrund 7, Sauðárkróki.
Athugasemd
við hugvekju
Frá Sóleyju Jónsdóttur:
JÓNA Kristín Þorvaldsdóttir,
sóknarprestur í Grindavík, segir í
Hugvekju í Morgunblaðinu hinn
7. jan. sl.: „Barnaskírn er sjálfsögð
í hugum þeirra, sem taka orð Jesú
alvarlega er Hann segir: „Leyfið
börnunum að koma til mín og
varnið þeim eigi, því slíkra er
Guðs ríki.“ (Markúsarguðspjall
10:14). Tilvitnun lýkur.
Hvernig getur guðfræðingurinn
Jóna Kristín lesið það út úr þessum
orðum Jesú, að Hann sé að tala
um barnaskírn? Sennilega vegna
þess, að „erfikenningar manna“
kenna að þarna sé Jesús að tala
um barnaskírn.
í Nýja testamentinu er ekki að
finna eitt orð um það, að skíra
eigi ung börn. Jesús segir í Matt-
eusarguðspjalli 28:19: „Farið því
og gjörið allar þjóðir að lærisvein-
um, skírið þá í nafni föður, sonar
og heilags anda.“ (Þýðing 1981.)
Lærisveinar eru þeir, sem tekið
hafa ákvörðun um að fylgja Jesú
Kristi. Þegar talað er um skírn í
Biblíunni er auðvitað alltaf átt við
niðurdýfingarskírn, eins og Jesús
sjálfur var skírður af Jóhannesi
skírara í ánni Jórdan, um það má
lesa í Matteusarguðspjalli
3:16-17: „Þegar Jesús hafði verið
skírður, sté hann jafnskjótt upp
úr vatninu. Og þá opnuðust himn-
arnir og hann sá anda Guðs stíga
niður eins og dúfu og koma yfir
sig. Og rödd kom af himnum:
„Þessi er minn elskaði sonur, sem
ég hef velþóknun á.“ (Þýðing
1981.) í Postulasögunni 8:36—39
lesum við líka um biblíulega nið-
urdýfingarskírn, einnig þar var
Andi Drottins.
Barnaskírnin er mikil og hættu-
leg villa, sem klædd er í fallegan
búning. Þetta geta allir séð, sem
vilja leita sannleikans í Orði Guðs,
Biblíunni, en ekki erfikenningum
manna. Þeir sem taka orð Jesú
alvarlega afneita barnaskírn.
SÓLEY JÓNSDÓTTIR,
Akureyri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.