Morgunblaðið - 01.02.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 9
FRÉTTIR
Hitaveitan
tekur upp
gæðastjómun
STJÓRN Hitaveitu Reykjavíkur hefur
samþykkt sérstaka stefnu fyrir fyrir-
tækið. Þar kemur m.a. fram að Hita-
veitan ætlar að marka sér stefnu varð-
andi afhendingaröryggi og vatnsgæði,
þar sem vikmörk á hita, þrýstingi og
efnainnihaldi verða skilgreind.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjómar veitustofnanna Reykjavíkur-
borgar, sagði að ákveðið hefði verið
að öll veitufyrirtæki borgarinnar
settu sér stefnuskrá. Rafmagnsveita
Reykjavíkur hefði sett sér stefnumið
í fyrra og Vatnsveita Reykjavíkur
væri með þetta í undirbúningi. Alfreð
sagði að þarna væri um það að ræða
að fyrirtækin tæku upp gæðastjórn-
un. Þetta tengdist skipulagsmálum
innan þeirra. Ætlunin væri að gera
boðleiðir innan fyrirtækjanna skýrar
og bæta þjónustuna.
í stefnuskjali Hitaveitu Reykjavík-
ur segir að hlutverk fyrirtækisins sé
að annast öll þrep ja”ðhitavinnslu frá
rannsóknum til dreifingar og sölu á
heitu vatni. Fyrirtækið stefni að því
að leysa öll mál áður en þau vaída
notendum óþægindum og tryggja
þannig stöðugan og truflunarlausan
aðgang að heitu vatni.
Veittist að lög-
reglumanni
með skrúfjárni
RANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur
til rannsóknar mál manns, sem veitt-
ist að lögreglumanni í Hafnarfirði
aðfaranótt mánudags.
Lögreglumenn voru á éftirliti í
íbúðarhverfi þegar þeir sáu menn,
sem þeir höfðu grunaða um að ætla
að bijótast inn. Lögreglumenn gáfu
sig á tal við mennina og ætluðu að
handtaka þá. Annar mannanna reyndi
að komast hjá handtöku og dró upp
skrúijárn og hjó til lögreglumannsins.
Honum tókst að yfirbuga manninn
og færa hann til fangamóttöku.
Meiðsl lögreglumannsins eru
óveruleg.
Fræðslumiðstöð
sett á fót
BORGARRÁÐ samþykkti á þriðju-
dag samhljóða að setja á fót Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur, í samræmi við
afgreiðslu skólamálaráðs.
Fræðslumiðstöðinni er ætlað að
gegna núverandi hlutverki Skóla-
skrifstofu Reykjavíkur og Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur og taka til
allrar starfsemi grunnskólanna í
Reykjavík.
Þá samþykkti borgarráð með
þremur atkvæðum fulltrúa R-listans
að auglýsa starf yfirmanns Fræðslu-
miðstöðvarinnar hið fyrsta.
Hjúkrunarfræð-
ingar semja
FÉLAG íslenskra hjúkrunarfræðinga
og samninganefnd ríkisins hafa und-
irritað nýjan kjarasamning, en samn-
ingar félagsins runnu út um síðustu
áramót.
Að sögn Ástu Möller, formanns
félagsins, var samið um að hjúkrun-
arfræðingar féngju 3% hækkun launa
frá og með 1. janúar 1996. Auk þess
hefðu verið gerðar minniháttar breyt-
ingar á eldri kjarasamningi. Samn-
ingurinn gildir út þetta ár.
Skrifstofusljóri
lyfjanefndar
FJÓRIR hafa sótt um stöðu skrif-
stofustjóra lyfjanefndar ríkisins sam-
kvæmt upplýsingum frá heilbrigðis-
ráðuneytinu. Umsóknarfrestur um
stöðuna rann út 19. janúar.
Umsækjendurnir eru Trausti Pét-
ursson, Rannveig Gunnarsdóttir,
Guðlaug B. Björnsdóttir og Einar
Birgir Haraldssson.
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Árshátíð Fáks
verður haldin í félagsheimilinu
laugardaginn 3. febrúar.
Húsið opnað kl. 18.00.
Borðhald hefst kl. 19.30.
Miðaverð aðeins kr. 2.000.
Kántrý-stemmning mun ráða ríkjum fram á nótt.
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn.
Aldurstakmark 18 ár.
Sjáumst hress. Stiómin.
t Dl ITII \IADI IDII
\ KUIU/ YUKUdIL
: amm ■ mm ■ n ■ ■.■
Með áfanqakerfi ræður þá námshraöanum!
d] Nýir nemendur byrja vikulega.
n Ökuréttindi á öll þrjú ökutækin í einu eöa hvert fyrir sig.
□ Reynslumiklir kennarar, fagleg kennsla.
□ Góö kennsluaðstaða.
□ Kennsla fer fram á kvöldin og um helgar.
□ Stundaskráin er sveigjanleg, þú ræöur ferðinni!
1 I Öll kennslugögn verða eign nemandans að loknu námi.
□ Verö frá 45.000- stgr. (allt innifalið nema útg. skírteinis).
□ Flestir taka próf á rútu, vörubíl og leigubíl í einu.
□ Greiöslukjör (munið afslátt margra stéttarfélaga).
ÖKU
$KOMNN
IMJODD
Kennsla tll réttinda á hóp-, vöru- og lelgubifreiö
Skrifstofutími mánudaga-fimmtudaga 13-20, föstud. 13-17
Þarabakka 3, Mjóddinni, 109 Rvík, sími 567-0300
PARTAR
Varahlutasala
Boddíhlutir, hurðir, stuðarar,
Ijós, bretti, húdd o.fi.
Rartar, varahlutasala,
Kaplahrauni 11, sími 565-3323.
Stóíar - stólar
Úrval af boróstofuítólum og stökum stólum.
Antíkmunír • Klapparstíg 40 • Simí 552 7977.
Fallegur húsbúnaður
Leikföng og barnavörur
n Ofl, Ofl.
Vid höfum það allt saman
ov
Magastn
Húsgagnahöllinni
***&*«?*
Husgagnahollinni nr>Urin.
V
BOdshöföa 20-112 ReyKjavík - Sfmi 587 1410