Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 39
BÆNDASKÓLINN Á HÓLUM
ur. Það má líka geta þess sem þeir
vita sem reynt hafa, að það er
óhemju mikil vinna að útbúa um-
sóknir um þessa styrki og maður
gerir ekki annað á meðan. Umræðan
um þörf á rannsóknum hefur stór-
aukist síðustu árin og greinilegt að
víða er vilji fyrir hendi að eitthvað
gerist. Við fáum mikinn stuðning frá
Félagi hrossabænda og móralskan
stuðning frá Landsambandi hesta-
mannafélaga, en það vantar pening-
ana. Hinsvegar gerast hlutirnir
þannig að einhvers staðar verður að
bytja og meiri von er að peningar
fáist þegar menn eru farnir að sjá
að eitthvað er gert. Byrja verður
verk jafnvel út á krít og sjá svo
hvað setur. Auðvitað gerum við út
á bjartsýnina, en við erum jarðbund-
in og látum hagsmuni greinarinnar
sitja í fyrirrúmi í verkefnavali. Til-
gangurinn er jú að hleypa stoðum
undir atvinnugreinina."
Kortlagning-
kynbótahrossanna
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SIGRÍÐUR framkvæmir hér beygjupróf á hesti til að kanna hvort
hann sé með spatt. Norski neminn Solveig Vik heldur í hestinn.
Framan af munu rannsóknir á ís-
lenskum hestum einkennast af söfn-
un grunnupplýsinga. Menn hafa eitt
og annað á tilfinningunni, en það
vantar tilfinnanlega tölur um hveijar
staðreyndirnar eru. Mikið er byggt
á erlendum rannsóknum á erlendum
kynjum og eru þær gjarnan fléttaðar
saman við reynslu manna hér á
landi.“
Söluhamlandi sjúkdómar
efstir á blaði
„Nauðsynlegt er að setja upp for-
gangslista yfir þau atriði sem þarf
að rannsaka hjá íslenskum hestum
og þar hljóta að vera efst á blaði
sjúkdómar sem hamla sölu og mark-
aðsstarfi eins og sumarexem og
spatt. Þá tel ég afar brýnt að varð-
veita þá góðu fijósemi sem er í stofn-
inum en til þess vantar ýmsar upplýs-
ingar. Það hefur sýnt sig að þessi
eiginleiki hefur tapast í mörgum
ræktuðum kynjum erlendis. Auk þess
væri hægt að hagræða betur í rækt-
unarstarfinu með sæðingum. Að
menn geti valið þann hest sem best
hæfir hryssunni en ekki þann sem er
í héraðinu það og það skiptið. Sömu-
leiðis þarf að afla meiri þekkingar
hversvegna ýmsar hryssur eiga erfitt
með að festa fang og stóðhestar að
fylja. Þá má nefna rannsóknarefni
eins og þjálfunarástand hrossa, hófa
og útigöngu hrossa.
Engar hrossarannsóknir eru á
fjárlögum hjá ríkinu og því þarf að
afla fjár til rannsókna með öðrum
hætti. Má segja að við séum með
alla aríga úti til að afla ijár, sótt er
um tii allra sjóða sem hugsast get-
„Sem starfsmaður yfirdýralæknis
á ég að gera ýmsa aðra hluti svo
sem að fylgja eftir verkefni um stað-
festingu á ætterni helstu kynbóta-
hrossa landsins og afkvæma þeirra
með blóðtöku. Við erum nú að reyna
að finna hentugt form á þetta brýna
verkefni. Best væri að taka blóðsýni
úr kynbótahrossum á sýningum þeg-
ar þau hafa hlotið dóm og örmerkja
þau með einstaklingsmerkingu til að
festa dóminn við ákveðinn einstakl-
ing. Með þessum hætti væri samtím-
is verið að safna mikilvægum upplýs-
ingum í upplýsingabanka. Menn
setja kostnaðinn af þessum blóð-
flokkagreiningum mikið fyrir sig á
þessum síðustu og verstu tímum. I
mörgum nágrannalöndum eru fyrir
hendi reglur um að staðfesta verði
ætterni kynbótahrossa héðan með
blóðsýnum eða DNA-rannsóknum og
því nauðsynlegt að blóðgreining for-
eldra liggi fyrir,“ segir Sigríður í
lokin.
Sköpuð hefur verið mjög góð að-
staða til dýrlækninga í refahúsinu,
sem áður var. Þar er nú fullkomin
aðstaða til svæfinga, flókinna að-
gerða og röntgenmyndatöku en full-
kominn tækjabúnaður var keyptur
vegna spatt-rannsóknarinnar sem
hófst í vor og er sá búnaður staðsett-
ur á Hólum. Hér er um að ræða
stöðu sem mun mótast á næstu árum
og ræðst þá framvindan mikið af
því hvernig til tekst með öflun fjár
til starfseminnar. En eitt er víst- að
verkefnin eru næg þótt fátt eitt sé
nefnt hér. Þegar talað er um_ rann-
sóknir á hrossasjúkdómum á íslandi
er greinilega verið að tala um
óplægðan akur.
QuarkXPress námskeið
96022
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuraðgjöf • námskeið • útgáfa
Grensásvegi 16 • © 568 80 90
ÞOLFIMIKENNARAR - ÞOLFIMILEIÐBEINENDUR
Laugardaginn 3. febrúar kl. 14.00 veröur
í MÆTT, Faxafeni 14, stutt námskeið í:
1. Áreyn
Dr. Þórarinn Sveinsson.
2. Notkun POLAR púlsmæla í þolfimi og við aðra
þjálfun. (Kynning).
3. Stuttur þolfimitími þar sem POLAR púlsmælar
verða notaðir.
Aðgangur ókeypis.
púlsmælar
m TIL RAFHmiMíZ!
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndurvið íslenskaraðstæður.
HAGSTÆTT VERÐ OG ■
GREIÐSLUSKILMÁLAR. %lm/M
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 - ® 5622901 og 5622900
- kjarni málsins!
Háskóli Islands Endurmenntunarstofnun
European Software Process Improvement Training Initiative
ESPITI er átak á vegum ES til að bæta hugbúnaðargerð í Evrópu. Námskeiðin eru niðurgreidd af ES.
Útflutningur hugbúnaðar - markaðir, aðferðir og reynsla
Námstefna
Útflutningur á tölvuvæddum fiskvinnslutækjum og hugbúnaði nemur nú hátt á ann
anmilljarð króna á ári. Stærstu útflytjendurnir halda fyrirlestra á námsstefnunni.
Námstefnustjóri er Oddur Benediktsson, Háskóla íslands.
Dreifing og sala hugbúnaðar á netinu. Samningar, einkaleyfi, OEM-samningar.
Markaðsaðstæður eftir löndum. Gæðastjórnun, uppsetning og rekstur kerfa úr
ijarlægð. Þróun hugbúnaðar til útflutnings. Fjármögnun hugbúnaðar til útflutnings.
Hugbúnaður og upplýsingasamfélagið. Mismunandi form starfsemi erlendis.
(Upplýsingar á Vefsíðu: http://www.rhi.hi.is/-oddur/spi/espiti/export.html.)
Friðrik Skúlason; Jóhann P. Malmquist, Softís; Lárus Ásgeirsson, Marel; Snorri
Guðmundsson, EJS; Páll Hjaltason, Hugbúnaður; Pétur Blöndal, Fjarmiðlun; Risto
Nevalainen, Tieke og Vilhjálmur Þorsteinsson, íslensk forritaþróun.
Staður: Norræna skólasetrið á Hvalfjarðarströnd.
8.-9. feb. Rútuferð fráTæknigarði 8. feb. kl. 8.15 og komið til baka 9. feb. kl. 17.00.
9.800 kr. (ferðir og upphald innifalið).
Bætt hugbúnaðargerð byggð á
sjálfsúttekt samkvæmt nýjum stöðlum
Námskeiðið er byggt á væntanlegum ISO stöðlum sem nú
er verið að ljúka við að semja. Þessir staðlar hafa verið
nefndir SPICE (Software Process Improvement and
Capability Etermination) staðlarnir. Þeir eru samdir í þeim
tilgangi að smá hugbúnaðarfýrirtæki, eigi síður en stór,
geti nýtt þá til að bæta aðferðir í hugbúnaðargerð til þess
að framleiða betri hugbúnað með lægri tilkostnaði.
(Upplýsingar á Vefsíðu:
http://www.rhi.hi.is/-oddur/spi/espiti/spisprog.html).
Risto Nevalainon, Lic. Tech., forstjóri Information
Technology Development Center, Helsinki, og Oddur
Benediktsson, prófessor Háskóla íslands.
12.-13. feb. kl. 8.15-16.00. 9.000 kr.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 525 4923. Fax: 525 4080. Tölvuóstur: endurm@rhi.hi.is