Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Termo
sængur
Áöur 1 stk.
2.990,-
Sængur
verasett
Áöur Allt aö l .290
Lúxusdýna
„Serenad“ st. 105x200
Áöur 19.900,-
|PrT \ • j ' i
Skeifunni 13 Norðurtanga 3 Reykjavíkurvegi 72 Holtagörðum
108Reykjavík 600Akureyri 220 Hafnarfjörður v/Holtaveg
568 7499 462 6662 565 5560 104 Reykjavík
588 7499
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Eftirmæli um Marka-Leifa
ÞANN 25. janúar sl. er óskað eftir því í Velvakanda,
að birt sé ljóð eftir Jónas Tryggvason frá Finnstungu,
er hann kvað eftir Hjörleif Sigfússon (Marka-Leifa)
Sólhvarfatíð og vetur úti og inni.
Illviðrahrinur krenlqa stutta daga.
Afreðagljáin allan byrgir haga.
Engin þess von, að frosti og hríðum linni.
Fetar sig veginn, einn, í ótíðinni,
óskilatryppi milli byggða rekur.
Þunnklæddan mann á hjarni í spori hrekur,
hnikar þó ei af leið á göngu sinni.
Liðin er tíð og framar fást ei svör
við farandgestsins spum, hvort yrði hann fær um
ennþá einn dag að hitta á veðra hlé.
Góð
póstþjónusta
ÁRNI Gunnarsson hringdi
til Velvakanda til að vekja
athygli á því hversu góða
póstþjónustu við búum við
hér á íslandi. Hann nefndi
sem dæmi að hann tók við
bréfi sl. þriðjudagsmorgun
sem- var póststimplað á
Jótlandi sl. sunnudag.
Sendingin hefur því ekki
tekið tvo sólarhringa.
Þetta er ekkert eindæmi
því hann segist taka við
miklum pósti á hveijum
degi og yfirleitt skili hann
sér mjög fljótt og vel.
Aldrei um Vatnsskarð oftar beinir för
útigangsmaður, krýndur silfurhærum,
aleinn á ferð með óheimt vonarfé.
Einnig er spurt um menn, sem hafa afþakkað Fálka-
orðuna. Forsetaritari gefur allar upplýsingar um úthlut-
un og afþökkun orðunnar. Hann er til húsa í Stjórnar-
ráðshúsinu við Lækjartorg.
Leifur Sveinsson.
„Útigangsmaður, krýndur silfurhærum..."
íslenskt
ullargarn
KONA hringdi og vildi
benda Kristbjörgu
Ragnarsdóttur bónda á að
mikið og gott framboð er
af íslensku ullargarni og
íslenskum uppskriftum. I
viðtali sem tekið var við
hana í Morgunblaðinu
segist hún aðallega nota
norskt garn þar sem ekki
sé til íslenskt ullargarn.
Af myndunum má sjá að
hún notar einnig norskar
pijónauppskriftir. A.m.k.
tvö íslensk, alveg sérstak-
lega góð pijónablöð eru
gefín út hér á landi með
frábærum uppskriftum og
er ástæða til að benda
Kristbjörgu á þau.
Madame
Butterfly
ÉG fór loksins að sjá og
heyra Madame Butterfly
hjá Islensku óperunni um
helgina. Ég skemmti mér
konunglega. Sýningin er
að mínu mati fyrsta
flokks. Söngur, leikur,
leiktjöld, lýsing og stjórn-
un eru eins^og best verður
á kosið. Ástarsagan og
dramað kringum hana
komst afar vel til skila á
sannfærandi hátt og það
fór ekki á milli mála að
áhorfendur hrifust með,
allir sem einn.
Ég skora á ykkur sem
ekki hafið enn farið að sjá
sýninguna, en hafið verið
að velta því fyrir ykkur,
að láta verða af því strax,
áður en það verður um
seinan. Þetta er óborgan-
leg skemmtun!
Már Viðar Másson.
Happ í hendi
MIG langar að hæla
Hermanni Gunnarssyni
fyrir þáttinn Happ í hendi.
Hann er alveg einstakur
barnavinur og sést það á
börnunum þegar nafn
hans ber á góma. Það
hefur verið ómaklega
vegið að honum í fjöl-
miðlum upp á síðkastið.
Ása
Tapað/fundið
Úr tapaðist
ÚR AF gerðinni Zenith
með svartri tölustafalausri
skífu, silfraðri umgjörð og
svartri slönguskinnsól tap-
aðist á leiðinni frá Lauga-
vegi ofanverðum og niður
í miðbæ sl. föstudag.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 552-1550 á
daginni eða 552-0612 eftir
kl. 18.
Gæludýr
Kettir
fást gefins
TVEIR yndislegir kettir
fást gefins. Annar er
síamsblönduð iæða, svört
með stjömu á hálsi, getur
ekki átt kettlinga og er
merkt í eyra. Hinn er
hálfstálpaður fress, svart-
ur og hvítur að lit, mjög
góður og skemmtilegur
köttur. Uppl. í síma
561-1651.
Kettlingar
fást gefins
NÍU vikna kettlingar fást
gefins á gott heimili.
Upplýsingar í síma
557-5918 eftir kl. 18.
Víkverji skrifar...
BETRA seint en aldrei, varð
kunningja Víkveija að orði
þegar honum barst jólakort frá
frænku sinni í Kaliforníu. Bréfið
hafði verið póststimplað 4. desem-
bei síðastliðinn en var borið út á
Seltjarnarnesi um miðja síðustu
viku. Var sem sagt einn og hálfan
mánuð á leiðinni.
xxx
VÍKVERJI hefur gaman af
íþróttum, en fannst þó nóg
um þjónustu ríkisútvarpsins síðast-
liðið miðvikudagskvöld. Hann sett-
ist þá við útvarpstæki til að hlusta
á sjónvarpsfréttirnar klukkan átta,
en heyrði aðeins yfirlit fréttanna
því eftir að það hafði verið lesið
hófst íþróttarásin. Ekki voru merki-
legir leikir á dagskrá þetta kvöld
og Víkveija hreinlega blöskraði yf-
irgangurinn. Hefði ekki verið hægt
að bjóða upp á fréttirnar til hálf
níu og lýsa svo síðari hálfleikjum
kappleikjanna?
xxx
VÍKVERJI fagnaði því mjög er
Spaugstofumenn fóru aftur á
kreik í ríkissjónvarpinu og leggur
sig í framkróka um að missa ekki
af þáttum þeirra. Betri menn til
slíkrar þáttagerðar finnast ekki í
þessu landi, enda allt flinkir ieikar-
ar og flestir starfsmenn Þjóðleik-
hússins. Nú hefur það reyndar
spurst að sumum í leikhúsheiminum
þyki þeir of góðir! Víkveiji hefur
vissu fyrir því að atriði sem tekið
var upp og sýna átti í þætti drengj-
anna nýlega var ekki sýnt - að
kröfu Þjóðleikhússtjóra! Það fylgdi
reyndar sögunni að drengirnir
hefðu ekki verið alveg nógu ánægð-
ir með umrætt atriði, og jafnvel
sleppt því hvort eð var, en það er
eftir sem áður jafn athyglivert að
krafan frá leikhússtjóranum skyldi
koma fram.
xxx
*
IUMRÆDDU atriði, sem tekið
var upp í anddyri leikhússins
(með leyfi Þjóðleikhússtjóra) gerðu
strákarnir grín að því, að forráða-
menn þess skyldu fara fram á að
Jón Viðar Jónsson, leiklistargagn-
rýnandi Dagsljóss sjónvarpsins,
gagnrýndi ekki fleiri sýningar í
húsinu. Útbúið var sérstakt hlið sem
leikhúsgestir urðu að fara í gegn-
um, áður en þeim var hleypt inn,
og aðeins þeir sem voru jákvæðir í
garð leikhússins sluppu í gegn. Jón
Viðar mun hins vegar hafa sloppið
í gegn og eftir mikinn eltingaleik
um húsið verið fleygt á dyr! Þjóð-
leikhússtjóri kunni greinilega ekki
að meta grínið.
xxx
UNNINGI Víkverja keypti
GSM-síma hjá Pósti og síma
sl. sumar. Tækið bilaði á dögunum
og kunninginn fór með það í við-
gerð í stofnuninni og það kom hon-
um á óvart að ekki var möguleiki
á að fá annan síma lánaðan meðan
á viðgerðinni stóð, fyrst tækið er
enn í ábyrgð. Væri ekki betra fyrir
stofnunina að geta lánað fólki síma
til að hagnast á sölu fleiri símtala
en ella? Starfsmaður bílaumboðs
sem heyrði af málinu hafði á orði
að fyrirtæki sitt lánaði fólki nýjan
bíl meðan hinn væri í viðgerð, væri
hann enn í ábyrgð. Hann skipaði
fólki ekki að hætta að ferðast, eða
taka strætó í nokkra daga, þangað
til að viðgerð væri lokið!