Morgunblaðið - 02.02.1996, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ættarveldi 1 frambobi
Gætum við aðeins fengið að kíkja á íbúðina?
Formaður matvælafræðiskorar um fyrirhugaða stofnun
matvæla- og sjávarútvegsgarðs við Háskóla íslands
Snýst um samkeppni við
erlendan matvælaiðnað
ÁGÚSTA Guðmundsdóttir pró-
fessor í matvælafræði og formaður
matvælafræðiskorar við Háskóla
íslands segir að matvælafræði
hafi verið kennd innan Háskóla
íslands í 19 ár og þaðan hafi út-
skrifast um 130 matvælafræðing-
ar. Sjávarútvegsgreinar hafi einn-
ig verið kenndar innan ýmissa
deilda Háskóla íslands í áratugi.
Háskóli íslands hyggist ekki fara
inn á svið Háskólans á Akureyri
með fyrirhugaðri stofnun mat-
væla- og sjávarútvegsgarðs heldur
sé tilgangurinn fyrst og fremst
að stuðla að því að
innlendur matvælaiðn-
aður verði samkeppn-
isfær við erlendan
matvælaiðnað.
Stjórn Eyþings,
Sambands sveitarfé-
laga í Eyjafirði, hefur
!ýst yfir áhyggjum sín-
um af þeim „yfirgangi
sem birtist í baráttu
Háskóla íslands gegn
uppbyggingu og þróun
Háskólans á Akur-
eyri,“ eins og segir í
ályktun sambandsins.
Meistaranám í sjáv-
arútvegsfræðum fer
fram í Háskóla íslands
en í Háskólanum á Akureyri er
kennt til BS-prófs.
Skarast ekki
„Yfirlýsingar Eyþings hljóta að
vera á misskilningi byggðar. Okk-
ar hugmyndir skarast alls ekki við
það sem þeir eru að gera fyrir
norðan, en þeir hafa ekki kennt
matvælafræði til þessa. Háskóli
Islands er ekki að fara inn á svið
sem Háskólanum á Akureyri er
ætlað að sinna. Það væri hins veg-
ar ankannalegt ef Háskóli Islands
sinnti ekki greinum sem varða
Yfirlýsingar
Eyþings hljóta að
vera á misskilningi
byggðar
þessa mikilvægustu atvinnugrein
þjóðarinnar,“ sagði Ágústa.
Menntun til að mæta
samkeppni
„Að sjálfsögðu munum við
vinna að því að efla þessar greinar
innan Háskóla ís-
lands vegna þess að
málið snýst alls ekki
um samkeppni há-
skólanna á íslandi
heldur fyrst og fremst
um samkeppni við er-
lendan matvælaiðnað
og innflutning á er-
lendum matvælum.
Við þurfum að efla
menntun til þess að
mæta þeirri sam-
keppni sem við stönd-
um frammi fyrir
núna,“ sagði Ágústa.
Háskólinn á Akur-
eyri hefur vakið máls
á því að sett verði á
stofn matvælasetur við háskólann
þar. Ágústá segir að ef velja eigi
á milli tveggja staða hljóti höfuð-
borgarsvæðið að verða fyrir val-
inu.
„Það er dýrt að byggja upp
þetta nám og Háskóli íslands hef-
ur enn ekki haft bolmagn til að
byggja yfir verklegar greinar í
þessum fræðum. Verkleg kennsla
í matvælafræði hefur síðustu árin
farið fram á Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, en í upphafi náms-
ins fór verkleg kennsla fram á
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins. Höfum við efni á því í vax-
andi samkeppni við erlenda aðila
að nýta ekki þá sérfræðinga sem
starfa á þessum sviðum við Há-
skóla íslands?" segir Ágústa.
„Nú stendur Háskóli íslands
frammi fyrir því að þurfa að skipu-
leggja framtíðaraðstöðu fyrir mat-
væla- og sjávarútvegsgreinar sem
eru í örum vexti. Það er augljós
hagkvæmni fólgin í því að sú upp-
bygging verði í nánum tengslum
við stærstu rannsóknastofnanir
þjóðarinnar á þessum sviðum, þ.e.
Hafrannsóknastofnun og Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins. Fyrir
utan samhæfinguna og samnýt-
inguna þá eru sérfræðingarnir hér
á suðvesturhorninu og án þeirra
er ekki mjög vænlegt að setja upp
þá starfsemi sem við hér erum að
talá um,“ sagði Ágústa.
Eingöngu faglegar
forsendlur
Kynntar hafa verið hugmyndir
um stofnun matvæla- og sjávarút-
vegsgarðs þar sem yrðu 40 starfs-
menn og 150 nemendur og yrði
hann staðsettur við hlið Sjávarút-
vegshússins við Skúlagötu. Þar
yrði sinnt rannsóknar- og kennslu-
starfí og ýmsum þáttum í vöruþró-
unarstarfsemi sem ekki er hag-
kvæmt að sinna innan fyrirtækj-
anna.
Ágústa segir að ísland gæti
orðið fyrir valinu sem staður fyrir
sjávarútvegsháskóla Sameinuðu
þjóðanná. Akvörðun um staðsetn-
ingu skólans yrði þó eingöngu tek-
in út frá faglegum forsendum,
þ.e. hverjir séu faglega í stakk
búnir til þess að taka að sér skól-
ann. „Það hlýtur þó að verða þann-
ig að skólinn verði staðsettur nærri
höfuðstöðvum aðalrannsókna-
stofnana atvinnuveganna á þessu
sviði,“ sagði Ágústa.
Ágústa
Guðmundsdóttir
Tannverndardagur gegn skemmdum
Sjoppur eru eins og
félagsmiðstöðvar
fyrir unglinga
Sigfús Þór Elíasson
Tannvemdardagur er
haldinn í fjórtánda
skiptið í dag, en að
honum stendur Tannvemd-
arráð og verður meginá-
herslan á matarvenjur Is-
lendinga, mikla neyslu gos-
drykkja, tannhirðu og mikil-
vægi flúortannkrems.
Sigfús Þór Elíasson pró-
fessor er í Tannverndarráði,
en hann hefur í mörg ár
unnið að forvömum gegn
tannskemmdum og gert
þijár rannsóknir á tann-
skemmdum sex, tólf og
fímmtán ára bama. Þær
sýna að tannskemmdum
hefur fækkað veralega en
hins vegar hefur hann upp-
götvað nýtt vandamál sem
sagt var frá í Morgunblað-
inu í gær. Það er tanneyðing
vegna óhóflegrar gos-
drykkjaneyslu.
- Hver er tilgangurinn með
tann verndardegi?
„Að koma í veg fyrir tann-
skemmdir með fræðslu. Þessi
fræðsla vakti mikla athygli fyrst
vegna auglýsinga á strætó og í
fjölmiðlum og það hefur tekist að
vekja athygli á tannheilsu og tann-
heilbrigði.
í kjölfarið hefur dregið úr
skemmdum, útdrætti tanna og við-
gerðum, en íslendingar áttu orðið
met í tannskemmdum. Ástæðan
er líka fjöldi tannlækna og for-
varnarstarf þeirra, til dæmis með
svokölluðum skorufyllingum sem
er plastefni sem látið er í tyggi-
skorar jaxla. Einnig að flúort-
annkremin hafa orðið betri og alls-
ráðandi.
- Hvers vegna berjast tannlækn-
ar fyrir vatns- og mjólkurdrykkju?
„Vegna óheyrilegrar gos-
drykkju sem hefur leitt til þess að
í uppsiglingu er stórkostlegt tann-
heilsuvandamál, sem Peter
Holbrook prófessor við Háskóla
íslands er nú að hefja rannsókn á.
Útlendingar á hótelum drekka
aðallega vatnið á míníbörunum á
herbergjum sínum. Þeir eru vanir
að drekka vatn í flöskum og stand-
ast ekki íslenska vatnið á flöskum.
Þegar þeir uppgötva að krana-
vatnið er jafngott verða þeir ærir
af fögnuði.
Tannverndarráð hefur þurft að
beijast fyrir því að hægt sé að fá
vatn til dæmis í íþróttahúsum og
skólum með því að mæla með sér-
stökum drykkjarvöskum.
Gosdrykkir eru alltof áberandi
í skólum en algengt er að efstu
bekkingar fjármagni útskriftar-
ferðir sínar með gos- og sælgætis-
sölu í gegnum sjoppu sem þeir
reka í skólunum. Við teldum mjög
æskilegt að koma á
skólamáltíðum sem
nægðu krökkunum yfir
daginn, þær væru góð-
ar bæði frá manneldis-
og tannheilsusjónar-
miðinu og myndu vinna á þörfinni
fyrir að fá sér nammi í frímínútum.
Hvergi era fleiri söluturnar mið-
að við íbúafjölda en á íslandi. Víða
úti á landi er söluturn fyrir hveija
200 íbúa og í Reykjavík einn fyrir
hveija 500 íbúa. I mörgum sjávar-
plássum, þar sem krakkar hafa
rýmri fjárráð en í Reykjavík, er
sjoppan hreinlega eins og félags-
miðstöð og tannheilsan er eftir
því. Þetta myndar mjög slæmar
venjur.“
- En hvað er hægt að borða í
staðinn, til dæmis yfir sjónvarp-
inu?
„Poppkorn, ávexti, grænmeti.
Aðalatriðið er að borða vel á mat-
► Sigfús Þór Elíasson er fædd-
ur 1944 og alinn upp í Vest-
mannaeyjum. Hann varð stúd-
ent frá Menntaskólanum á
Laugarvatni 1964 og lauk tann-
læknaprófi frá læknadeild Há-
skóla Islands 1971. Masters-
gráðu hlaut hann í tannfyllingu
og tannsjúkdómafræði með for-
vörnum og efnisfræði frá Ind-
iana University í Indiana fylki
Bandaríkjanna. Hann var pró-
fessor við háskólann í Minnea-
polis 1974-78, og prófessor við
tannlæknadeild HÍ frá 1979.
Sambýliskona Sigfúsar er Ólaf-
ía Ársælsdóttir og eiga þau þijá
pilta, og eina dóttur af fyrra
hjónabandi hans.
málstímum. Matarlystin minnkar
ef sælgæti er borðað fyrir matinn
og leiðir til þess að það er borðað
aftur skömmu eftir matinn.
Krakkar fá mikla orku sem brenn-
ur fljótt upp og þá vilja þau meira.
Þetta er vítahringur."
- Hvað þarf að bursta oft á dag?
„Tvisvar; kvölds og morgna. Eg
mæli með því að börn fái þriggja
mínútna stundaglas og bursti
tennurnar þangað til síðasta korn-
ið fellur, því flúorið í tannkreminu
þarf að vera nægjanlega lengi í
munninum. Notkun flúors er nauð-
synleg fyrir alla sem hafa tennur,
ekki síst eldra fólkið.
Markmiðið er að vinna á bakter-
íuskáninni sem myndast og tann-
burstun er í raun að fjarlægja
hana, annars verður sýrumyndun-
in of mikil, en það tekur ekki nema
nokkrar mínútur að geija sykur
yfir í sýra og máltíð sem inniheld-
ur sykur merkir hálftíma sýrubað
tanna. Nart á milli mála þýðir
hálftíma í viðbót."
- Hver eru áhrif
reykinga á tennur?
„Þau era mikil, en
könnun sem við gerðum
í samvinnu við Hjarta-
vernd sýndi að það eru
helmings meiri líkur á að reyk-
ingafólk missi tennurnar en þeir
sem reykja ekki. Reykingar hafa
nefnilega slæm áhrif á tannhold-
ið.“
- Fyrir hverju mun Tannvernd-
arráð standa í dag?
„Við höfum hvatt allt tann-
heilsugæslufólk til að gera eitt-
hvað sérstakt á sínum vinnustað
í tilefni dagsins og að í skólum
verði dagurinn helgaður tannvernd
og fræðslu um tannheilsu. Leikrit-
ið Karíus og Baktus verður sýnt
tvisvar í Kringlunni á 2. hæð,
annars vegar í dag klukkan 15
og hins vegar á morgun klukkun
13.“
Reykingar
eyðileggja
tannholdið