Morgunblaðið - 02.02.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 13
AKUREYRI
Skipstjórinn á Hjalteyrinni EA
Teygjanlegt hugtak
hvað er mokveiði
„RÆKJUVEIÐIN hefur verið mjög
góð frá áramótum en það er samt
ekkert sem segir manni að það sé
meira af rækju í sjónum nú en áður
og heldur ekkert sem segir að það
sé minna af henni,“ sagði Brynjólfur
Oddsson, skipstjóri á Hjalteyrinni
EA, togara Samheija hf., í samtali
við Morgunblaðið.
Hjalteyrin kom til Akureyrar á
miðvikudag með fullfermi af rækju,
rúm 120 tonn, eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær. Togarinn var
hálfan mánuð í túrnum og var afla-
verðmætið um 21-22 milljónir króna.
Brynjólfur sagðist hafa misst troll-
ið er báðar togvírarnir slitnuðu og
það hafi tafið skipið frá veiðum í tvo
daga. Hjalteyrin var við veiðar fyrir
norðan land, sitt hvorum megin við
Kolbeinseyjarhiygginn og var veiðin
mjög góð.
„Það fer nú samt að verða teygj-
anlegt hugtak hvað sé mokveiði.
Menn eru orðnir svo góðu vanir að
þeir eru farnir að fúlsa við því sem
þótti góð veiði fyrir þremur árum.
Hins vegar er orðið erfiðara að fínna
stóru rækjuna enda orðið þétt setið
um þessi þekktu mið af frystiskip-
um.“
Brynjólfur segir að vinnslugeta
Hjalteyrarinnar sé um 10-15 tonn á
sólarhring og ekki sé hægt að taka
meira um borð en vinnslan leyfir.
„Rækjan stendur óvenju djúpt
núna en oft stendur hún grunnt.
Þetta er mjög misjafnt milli ára og
rækjan hegðar sér aldrei eins. Það
er samt ekkert sem bendir til að
þessi mikil afli að undanförnu hafi
nokkur einustu áhrif á veiðina,"
sagði Brynjólfur.
Ahaldahús Akureyrarhafnar
Þremur af fimm
starfsmönnum sagt upp
H AFNARSTJ ÓRN Akureyrar
samþykkti á fundi sínum í vikunni
að segja upp þremur af fimm
starfsmönnum áhaldahúss hafnar-
Kyrrðarstund
LAUFÁSPRESTAKALL: Kyrrðar-
og bænastund verður í Svalbarðs-
kirkju næstkomandi sunnudags-
kvöld, 4. febrúar kl. 21.
innar frá og með 1. febrúar. Þeir
munu láta af störfum í vor og
sumar.
Hafnarstjórn hefur jafnframt
ákveðið að leggja niður starfsemi
áhaldahússins í núverandi mynd
og í framtíðinni verður farið
meira í útboð verka.
Tveir menn starfa áfram í
áhaldahúsinu og munu þeir
sinna minni háttar viðhaldi og
eftirliti og vera hafnarvörðum
til aðstoðar.
Kynning
í boói -
wbúnaður
A laugardegi í Tæknivali:
Autodesk View,
CorelXara, Printhouse,
Intemet Mania o.fl.
Kynning á morgun frá kl. 10.00 til 16.00.
£
Autodesk View
Byltingarkennt stjórnunarforrit sem
getur sýnt þér allar skrár (bæði
ópakkaðar eða pakkaðar) frá t.d. Word,
Excel, AutoCAD, CorelDraw o.fl. án
þess að þú þurfir að eiga viðkomandi
forrit til staðar.
Þú getur skoðað skjöl, flett blaðsíðum,
skrifað athugasemdir og skilaboð inn á
þau, án þess þó að skjölin breytist
varaniega. Autodesk View er frábær
hönnun frá framleiðanda AutoCAD.
CorelXara
Gífurlega hraðvirkt 32 bita teikniforrit
með t.d. ótrúlegri hæfni í stækkun og
minnkun, 3D vinnslu o.fl. Hönnunar-
möguleikar opnast þér í nýrri vídd.
Corel Printhouse
Létt og einföld útgáfa af CorelDraw 6.0
með frábæru teiknisafni til hönnunar að
þinni forskrift. Með hjálp Corel-spekingsins
(the wizard) verður öll uppsetning og
hönnun einföld og hraðvirk.
Corel Internet Mania
Vandað forrit fyrir Internet-tengingar.
Gott fyrir heimasíðugerð og uppsetning
vefþjóna (web-server) verður ekkert mál.
Corel Internet Mania þjónar þér
hraðvirkt um allan heim.
Tæknival
Opib
laugardag
kl. 11-16
Tryggðu þér góö skiptikjör á nýjum ríkisveröbréfum um
leib og þú innleysir spariskírteinin sem nú eru á gjalddaga.
Starfsfólk Þjónustumibstöbvar ríkisverbbréfa veitir þér trausta og faglega rábgjöf varöandi skiptikjör á nýjum ríkisveröbréfum.
Nú er í boöi fjölbreytt úrval ríkisverðbréfa sem uppfylla óskir þínar um góða ávöxtun, lánstíma, öryggi, verðtryggingu o.fl.
Ríkisvíxlar H 3 mánubir
Ríkisvíxlar ■ ómánubir
Ríkisvíxlar K» 12 mánubir
Ríkisbréf WŒS23BI 3 ár
Ríkisbréf L Lf Sár
Árgreibsluskírteini MliMMaMlM
Spariskírteini MMMMMMMMI5 ár
Spariskírteini MiiMMMRMHManM
Spariskírteini Mmmmmmmmmm
I Óverbtryggft ríkisverftbréf
| Verbtryggö ríkisveröbréf
noár
110 ár
; 20 ár
Komdu í I’jónustumiðstöðina og nýttu þér skiptikjörin. Ekki bíða fram á síðustu stundu.
ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverflsgötu 6,2. hæö, sími 562 6040
fax 562 6068