Morgunblaðið - 03.02.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.02.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Aflaverðmæti togaraflot- ans 24 milljarðar í fyrra Baldvin Þorsteinsson EA10 með mesta aflann og hæsta afiaverðmætið HEILDARAFLAVERÐMÆTI ís- fisktogara í fyrra reyndist vera 10,2 milljarðar króna sem er um 4% minnkun frá fyrra ári. Heildar- aflaverðmæti frystitogara var tæpir 13,7 milljarðar króna sem er aftur á móti tæplega 5,5% aukning frá fyrra ári. Meðalafli á úthaldsdag hjá ísfisktogurum var um 9,1 tonn eða 0,3% minni en árið 1994. Meðal- afli frystitogara á úthaldsdag var 11,6 tonn eða um 12,5% minni en síðasta ár. Þessu veldur meðal ann- ars minni úthafskarfaafli á árinu vegna verkfalls sjómanna. Hæsta aflaverðmæti frystiskipa náði sem fyrr Baldvin Þorsteinsson EA 10, alls tæpum 567 milljónum króna, en í öðru sæti varð Guðbjörg IS 46 með aflaverðmæti upp á tæp- „Skugga- s1jórii“ í Dagsbrún AÐSTANDENDUR B-listans sem varð undir í kosningu til stjómar Dagsbrúnar á dögunum hafa ákveðið að setja á laggimar svokallaða „skuggastjórn" til að veita nýkjörinni stjóm Dagsbrúnar aðhald. Kristján Ámason, formannsefni B-listans, sagði að skuggastjómin myndi fylgjast náið með því hvort nýkjörin stjóm hafi hug og dug til að efna þau kosningaloforð sem hún hafí gefið og þá ekki síst hvort stað- ið verður við fyrirheit um að bréyta lögum félagsins í lýðræðisátt. „Við ætlum að standa undir þeim áskorun- um sem hafa borist okkur. Við vinn- um næstu orustu. Það er sigurorust- an,“ sagði Kristján. Hann sagði að þetta væri gert að áeggjan fjölda Dagsbrúnarmanna. Skuggastjómin myndi starfa fram að næstu kosningum í Dagsbrún sem væntanlega yrðu að ári liðnu og koma saman fyrsta þriðjudag í hveij- um mánuði. í ályktun sem samþyklrt var af þessu tilefni segir: „Allt eru þetta vinnandi Dagsbrúnarmenn sem eru staðráðnir í að veita þeirri stjóm sem tekur við á næsta aðalfundi Dagsbrúnar strangt aðhald og harða stjómarandstöðu. Skuggastjóm Dagsbrúnar mun krefjast þess að viðtakandi stjórn Dagsbrúnar vinni á heiðarlegum og lýðræðislegum grunni að öllum málum Dagsbrún- arverkamanna svo að vegur þeirra og kjör megi vera sem mest og best, öðmm verkalýðsféiögum til eftir- breytni og styrktar í allri framtíð." ALLSHERJARNEFND Alþingis hélt sérstakan fund í gærmorgun um vímuefnavandamálið og fékk á sinn fund fulltrúa þeirra opinberu stofnana sem koma að því máli. Sólveig Pétursdóttir formaður allsheijamefndar sagði að nefndar- menn hefðu talið rétt að halda þenn- an fund til að fá upplýsingar um stöðu mála eftir þá miklu umræðu sem undanfarið hefði orðið um vímuefni. Hún sagði að viðmælendur nefndarinnar hefðu talið að fræðsla og forvarnir hefðu mjög mikla þýð- ingu. Það væri hins vegar ekki for- gangsverkefni að stækka refsi- rammann hér á Iandi. Hámarksrefs- ing er nú 10 ár fyrir fíkniefnasölu, sú sama og í Danmörku og Sví- þjóð, en í Noregi er hámarksrefsing 21 ár. Einnig væri kveðið á um ar 529 milljónir króna. í þriðja sæti varð Haraldur Kristjánsson HF 2 með tæplega 487 milljónir. Ásbjörn RE hæsti ísfisktogarinn Ásbjöm RE 50 var með lang- mest aflaverðmæti ísfísktogara, alls tæplega 305 milljónir króna, en í öðm sæti ísfisktogara varð Skafti SK 3 með tæplega 269 milljónir og í þriðja sæti varð Viðey RE 6 með aflaverðmæti upp á 262 milljónir króna. Mestum afla á árinu 1995 náði lágmarksrefsingu í Noregi og Sví- þjóð þegar um sérstaklega alvarleg brot væri að ræða. Sólveig sagði að sú skoðun hefði komið fram á fundinum, að laga- ramminn mætti vera skýrari og að hingað til hefði skort á heildaryfir- sýn og samræmingu aðgerða. Hins vegar væm nýlegar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar til þess fallnar að bæta úr því, svo sem skipun nefnd- ar fulltrúa ráðuneyta sem á að Baldvin Þorsteinsson EA, en hann aflaði alls 6.968 tonna, í öðm sæti varð Haraldur Kristjánsson HF með 5.807 tonn og Málmey SK varð í þriðja með 5.576 tonn. Af ísfísktogumm varð Ásbjörn RE aflahæstur með 6.198 tonn, í öðm sæti varð Sturlaugur H. Böð- varsson AK með 4.426 tonn og Ottó N. Þorláksson RE varð í þriðja sæti með 4.401 tonn. Ef litið er á meðalafla á úthalds- dag, þá varð Baldvin Þorsteinsson efstur frystiskipa með 22,84 tonn að jafnaði yfir árið, en úthaldsdagar ’koma með tillögur um aukna sam- ræmingu aðgerða í þessum mála- flokki. Einnig vinnuhópur sem dómsmálaráðherra hefur skipað og á m.a. að skoða og samræma hegn- ingarlögin og lög um ávana- og fíkniefni. Talsverðar vonir em einnig bundnar við væntanlegt fmmvarp um breytt skipulag Iögreglunnar. Sólveig sagði að á fundinum hefði í því sambandi verið bent á að mjög togarans vom alls 305. Haraldur Kristjánsson varð í öðru sæti með 20,23 tonn á dag, en honum var haldið úti í 287 daga á árinu. í þriðja sæti að þessu leytinu til varð Málmey SK með 18,53 tonn á dag, en Málmey var á veiðum í 301 dag á árinu. Ef árangur ísfisktogara er skoð- aður að þessu leyti kemur í ljós að Ásbjöm RE var með mestan afla á dag að jafnaði, 24,12 tonn, en Ás- björn var á veiðum í 257 daga á árinu. í öðm sæti varð Ottó N. Þorláksson RE með 4.401 tonn eft- ir veiðar í 257 daga og í þriðja sæti varð Sturlaugur H. Böðvarsson AK með 16,89 tonn á dag, en skip- inu var haldið úti til veiða í 262 daga á síðasta ári. sterk tengsl væm á milli fíkniefna- brota og annarra afbrota og því nauðsynlegt að menn öðluðust betri yfirsýn. » Vilja fylgjast með Á fundinn mættu fulltrúar dóms- málaráðuneytis, Dómarafélags ís- lands, ríkissaksóknara, Fangelsis- málastofnunar, lögreglustjórans í Reykjavík, útlendingaeftirlitsins og tollstjórans í Reykjavík. „Við vildum heyra álit þessara fulltrúa, ekki síst á því hvort þeir telja ástæðu til að breyta löggjöf og hvernig þeir telja að framkvæmd dóma hafi verið. Við óskuðum eftir því að fá að fylgjast með störfum þessara nefnda, en mál dómsmála- ráðuneytisins heyra undir allsheij- arnefnd," sagði Sólveig Pétursdótt- ir. Stefnt að flutningi grunnskóla 1. ágúst Samkomu- lag um flutning réttinda SAMKOMULAG hefur tekist milli ríkisins, kennarafélaganna og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga um flutning réttinda kennara þegar gmnnskólinn verður fluttur frá ríki til sveitarfélaga. Bjöm Bjamason menntamálaráðherra kynnti drög að fmmvarpi um þennan flutning í ríkisstjórninni í gær. Frumvarpið gerir ráð fyrir að réttindi kennara færist með þeim til sveitarfélag- anna. Björn sagði að gott samkomulag hefði tekist milli allra aðila sem að málinu koma um að réttindi kenn- ara verði óbreytt eftir að kennarar hefja störf hjá sveitarfélögunum. „Þessi þáttur málsins, sem er mjög viðkvæmur, hefur verið leystur með farsælum hætti á gmndvelli mjög góðs starfs sem unnið hefur verið innan réttindanefndarinnar og verkefnisstjómarinnar. Ég fagna því að þessum áfanga er náð í þessu mikla máli.“ Fulltrúaráð Kennarasambands Islands krafðist þess að sérstakt frumvarp yrði flutt á Alþingi til að ^■yggja réttindi kennara. Björn sagði að þetta yrði gert. Aldrei hefði verið nein andstaða við það af sinni hálfu. Björn sagði að viðræðum um flutning tekjustofna frá ríkinu til sveitarfélaga samhliða flutningi gmnnskólans væri ólokið. Hann sagðist gera sér vonir um að jafn- góð samstaða næðist um það mál. Stefnt væri að því að standa við það markmið að grunnskólinn flytt- ist frá ríki til sveitarfélaga 1. ágúst Í996. _ 70 komið við sögu í fíkniefna- eftirliti LÖGREGLAN stöðvaði för manns á bíl skammt frá Mjölnisholti skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. Við leit fannst lítilræði af fíkniefnum á manninum, en hann er einn af um 70, sem komið hafa beint við sögu lögreglunnar undanfarnar tvær vik- ur vegna fíkniefnamála. í Mjölnisholti-hefur lögregla oftar en einu sinni haft afskipti af mönn- um vegna neyslu fíkniefna og gruns um sölu þeirra. Þegar lögreglan lét til skarar skríða og leitaði í fíkni- efnabælinu fyrir nokkru fannst þar þýfí, áhöld til fíkniefnaneyslu og lít- ilræði af fíkniefnum. Aðfaranótt fímmtudags var maður handtekinn í nágrenni staðarins með 3 grömm af kannabisefnum og annar tekinn í fyrrinótt. Þá var maður handtekinn á Hlemmi í gærmorgun með lítilræði af fíkniefnum í fórum sínum. Eftirliti haldið áfrarn Samkvæmt upplýsingum lögreglu hefur verulega dregið úr umferð við staðinn að undanförnu, vegna eftir- lits með mannaferðum. Alls hafa um 70 manns komið beint við sögu lögreglu vegna þessa eftirlits und- anfarnar tvær vikur og hafa fíkni- efni fundist í fórum rúmlega 30 þeirra, en að auki hafa fleiri tengst málum óbeint. Lögreglan mun ætla að halda eftirliti áfram á næstunni, á ýmsum stöðum og með ýmsu móti. Mjólkurkýrin Huppa 107 mjólkaði rúm 10 tonn á síðasta ári Hún hefur alltaf mjólkað vel „HÚN hefur alltaf mjólkað vel,“ sagði Kristján Pétursson, bóndi á Ytri-Reistará í Arnar- neshreppi um Huppu 107, en hún skilaði mestum afurðum allra íslenskra kúa á síðasta ári 10.103 kílóum. Kristján sagði að Huppa væri af kyni sem hann hefði ræktað í mörg ár. Hún væri meðal sinna allra bestu kúm. Kristján er danskur, en flutti til íslands árið 1954, var fyrst vinnumaður á Skjaldar- vík, siðan fjósamaður og bú- stjóri á Lundi á Akureyri. Þegar hann hóf búskap á Ytri- Reistará árið 1960 fékk hann með sér kálfa bæði þaðan og af fleiri búum í landi Akur- eyrar, eins og Naustum. Langamma Huppu 107 var Dimma sem Kristján sagði hafa verið einstaka og ævin- lega mjólkað vel. Kristján hef- ur átt þrjár kýr sem allar báru Huppunafnið og reyndust þær vel. Fyrir tveimur árum eignaðist Huppa kálfinn Akk sem nú er á nautastöðinni á Hvanneyri. Huppa á að bera HUPPA með nautkálf sinn, Akk, sem nú er á Hvanneyri. sínum fimmta kálfi í lok mars, en hún er sjö ára gömul. Faðir Huppu er einnig frá Ytri-Reistará og heitir Reitur. Hann var á sínum tíma tekinn til notkunar sem kynbótanaut á Kynbótastöð Búnaðarfélags íslands á Hvanneyri. Missti góða kú íjanúar Kristján hefur í gegnum árin átt margar metkýr. Önn- ur nythæsta kúin í hans eigu í fyrra var Hrefna. Hún veikt- ist og drapst í byijun janúar. Nautkálfur hennar hefur ver- ið seldur til Hvanneyrar. Kristján sem hefur fengið viðurkenningu fyrir mjólk sína síðustu 8 ár, en hann sagðist vera farinn að huga að því að hætta mjólkurfram- leiðslu. Hann hefur hins vegar áhuga á að reyna fyrir sér í frekari ræktun á holdakvíg- Allsheijarnefnd Alþingis fjallaði á sérstökum fundi um vímuefnavandann Forvarnir hafa mikla þýðingu > l % I : I I I t 1 H t t I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.