Morgunblaðið - 03.02.1996, Side 27

Morgunblaðið - 03.02.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 27 AÐSENDAR GREINAR Samstarf Evrópuþjóða í málefnum fatlaðra ÞANN 7. febrúar nk. verður haldinn í Reykjavík fræðsludagur um samstarf Evrópuþjóða í mál- efnum fatlaðra, Helios II. Af því tilefni koma til landsins tveir embættismenn, þeir Bernhard We- hrens og Philippe La- moral sem fara með yfirstjórn þessara mála fyrir hönd fram- kvæmdastjórnar ESB í Brussel. EFTA ríkin fengu fulla aðild ,að sam- starfsáætlun Helios II þann 1. janúar sl. á grundvelli sérstakra ákvæða í EES samn- ingnum. Þessi ríki eru: ísland, Noregur og Lichtenstein. Hér á eftir er ætlun- in að kynna í örstuttu máli nokkur atriði í aðdraganda, stefnu, uppbyggingu og aðgerðum sem falla undir Heli- os II. Það var árið 1988 að ráðherra- nefnd Evrópuþjóða stofnaði til framkvæmdaáætlunar fyrir fatl- aða sem hlaut nafnið Helios I, en það er skammstöfun á ensku og stendur fyrir: „Handicapped pe- ople within the european commun- ity living independently in an open society." Stefnt skyldi að jafnrétti, aðlög- un og þátttöku fatlaðra á öllum sviðum þjóðfélagsins. Áhersla var m.a. lögð á réttindi til starfsendur- hæfingar og þátttöku í atvinnulífi, blöndun fatlaðra nemenda í al- menna grunnskóla, bætta ferða- þjónustu og aðgengi. Helios I áætlunin tók þannig bæði til menntunarmála sem og félags- og atvinnumála. Aðgerðir fólust m.a. í hvatningu til aðildarríkja til að stuðla að auknum möguleikum og betri að- lögun fatlaðra á sem flestum svið- um. Einnig fólust aðgerðir í miðlun upplýsinga milli landa, svo og reynslu af þróunarverkefnum í málefnum fatlaðra. í ársbyijun 1993 tók næsta starfsáætlun við undir merkjum Helios II, en hún byggir á þeirri reynslu sem hefur fengist á undan- förnum árum, en verksviðið var gert víðtækara. Þannig má nefna samvinnu sem nær nú til allra skólastiga frá forskóla til æðri menntunar, ennfremur er aukin áhersla á starfsþjálfun og atvinnu- mál. Stefnt er að eflingu sam- starfs sem hefur þróast milli stjórnvalda, samtaka fatlaðra og stofnana í hinum ýmsu ríkjum og hvatt er til nýjunga og nýrra verkefna. Eitt af markmiðum Helios II er að efla samvinnu við fijáls og óháð fé- lagasamtök sem eru málsvarar fatlaðra í hinum ýmsu aðildar- ríkjum. Til að ná fram of- angreindum mark- miðum er starfandi ráðgjafanefnd þar sem eiga sæti tveir ríkisstjórnarfulltrúar frá hveiju aðildarríki. EFTA-ríkin hafa nú sömu réttindi og önn- ur aðildarríki varðandi fulltrúa í ráðgjafarnefndinni. Auk ráðgjaf- arnefndar er starfandi umræðu- hópur sem er einvörðungu skipað- ur fulltrúum fatlaðra og í þriðja lagi má nefna samráðsnefnd sem tengir saman hina tvo. Þá eru starfandi nokkrir vinnuhópar sem ijalla um hin ýmsu svið fatlaðra Fatlaðir eiga rétt á því, segir Margrét Margeirsdóttir, að sérstaða þeirra sé virt. en þar eiga sæti fulltrúar frá öllum aðiÍdarríkjum. í þessum vinnuhóp- um er fjallað um menntamál, at- vinnu og endurhæfíngu, ferðamál, aðgengismál og íþróttamál. Eitt af umfangsmestu viðfangs- efnum Helios II er tölvuvædda upplýsinga- og skráningarkerfið Handynet, en það var stofnað á árinu 1990 og var upphaflega miðað við að skrá upplýsingar um hjálpartæki fyrir hreyfihamlaða. Síðar var einnig farið að safna og skrá aðrar tegundir hjálpartækja s.s. kennsluforrit fyrir skóla, hjálp- artæki fyrir sjónskerta, og hjáípar- tæki til að auðvelda boðskipti o.fl. Einnig eru skráðir framleiðendur og dreifingaraðilar hjálpartækja innan Evrópu svo og reglur sem gilda í hveiju landi um það hvern- ig fatlaðir geta nálgast þessi hjálp- artæki. Þessum upplýsingum er safnað í gagnabanka á ijölmörg- um tungumálum og fást á geisla- diskum, sem eru tiltækir í sérstök- um miðstöðvum í aðildarríkjunum. Handynet-kerfið felur ennfremur í sér rafrænt póstkerfi og dagbók. Hér á landi er þegar hafinn undirbúningur að því að tengjast Handynet-kerfinu og rriun Hjálp- artækjamiðstöð Tryggingastofn- unar ríkisins annast öll samskipti við Handynet. Til þess að kynna betur starf- semi þá sem fer fram á vegum Helios-áætlunarinnar, einkum meðal almennings, er á hveiju ári efnt til samkeppni um athyglisverð verkefni "er snerta ýmsa þætti í lífi fatlaðra. Veitt eru verðlaun fyrir bestu verkefnin, en sérstök dómnefnd metur þau. Þá eru gefin út tímarit og upp- lýsingabæklingar á nokkrum tungumálum. Helios er eina áætlun ESB sem er einvörðungu ætluð til stuðnings fötluðu fólki, en hún er samhæfð öðrum aðgerðum, s.s. Horizon - frumkvæði sem miðar að því að bæta atvinnumöguleika fatlaðra og annarra afskiptra hópa eins og t.d. langtíma-atvinnulausra, og Tide - rannóknar- og þróunar- verkefni er miðar að því að beita nýrri tækni í auknum mæli við endurhæfingu fatlaðra og aldr- aðra. Fatlaðir eins og aðrir borgarar eiga rétt á því að sérstaða þeirra sé virt og rétt til þess að fá tæki- færi til að þroska persónuleika sinn og hæfni. Þeir mega ekki sæta mismunun vegna fötlunar sinnar, þannig eru meginreglur starfsáætlunar undir merkjum Helios II. Félagsmálaráðuneytið fer með samskipti íslands og Helios II. íslendingar hófu þátttöku í Helios II á sl. ári sem áheyrnarfulltrúar en fengu fulla aðild um síðustu áramót. Nokkrir fulltrúar íslands hafa tekið þátt í vinnuhópum á vegum Helios II og munu þeir fjalla um þau mál sem þar eru efst á baugi á fræðsludeginum 7. febrúar nk. sem haldinn verður á Grand Hóteli í Reykjavík. Höfundur er fulltrúi íslands í ráð- gjafarnefnd Helios II. Margrét Margeirsdóttir Lyfjasala í sam- keppni við „báknið“ í KJÖLFAR athuga- semda Ríkisendurskoð- unar hefur einkavæð- ing ríkisfyrirtækja ver- ið nokkuð til umræðu og sýnist sitt hveijum um • ágæti þeirra að- gerða. ' Eitt virðast menn þó sammála um og það er að söluverð þeirra hafi verið stór- lega vanmetið, hvort sem almenningur eða „einkavinir" hafa feng- ið að njóta. í nýlegu viðtali við Sverri Her- mannsson Landsbanka- stjóra í Tímanum segir hann: „Við höfum nú heldur betur reynslu af einkavæðingu á íslandi. Þar hafa skattpeningar borgaranna verið gefnir í stórum stíl og nægir þar að nefna stofnun íslandsbanka, sölu SR-mjöls, Þormóðs ramma og Lyijaverzlunar". Lyfjabúr sjúkrahús- anna, segir Jón Björns- son, eru komin í beina samkeppni við apótekin. Rétt er það að sala Lyfjaverzlun- ar ríkisins er dæmi um svona einka- væðingu. Ríkið seldi hlutafé sitt í Lyfjaverzluninni á genginu 1,34 eft- ir að hafa eytt hundruðum milljóna í að gera fyrirtækið söluhæft. Á sama tíma taldi Ríkisendurskoðun eðlilegt sölugengi 2,20. Hlutverk Lyijaverzlunar ríkisins var í upphafi m.a. að sjá sjúkrahúsum landsins fyrir nauðsynlegum lyfjum. í seinni tíð var hún komin í beina sam- keppni við aðra aðila á markaðnum. Við þær aðstæður hefði verið eðli- legt að leggja stofnunina niður. Á sama tíma og Lyfjaverzlun rík- isins er seld fyrir lítilræði í anda einkavæðingastefnunnar, blæs ríkið til sóknar í samkeppni við sjálfstæða atvinnustarfsemi. Undir verndar- væng opinberra aðila hefur rekstur lyfjabúra sjúkrahúsanna verið efld- ur og eru þau komin í beina sam- keppni við apótekin með almennri sölu lyfja bæði í lausasölu og sam- kvæmt lyfseðlum. Það fer ekki milli mála að þessi „sjúkrahúsapótek“ njóta sérstakrar verndar í sam- keppninni við apótekin. Þau nýta ekki eingöngu starfslið og húsnæði sjúkrahúsanna, heldur eiga þau ein að fá leyfi til að selja beint til sjúkl- inga viss lyf, sem sam- kvæmt skráningu ættu einungis a'ð notast inn- an veggja sjúkrahús- anna. Að venju virðist ekkert eftirlit hægt að hafa með framkvæmd- um á vegum opinberra aðila sem þessum. Eitt er víst að þessi svoköll- uðu „sjúkrahúsapótek" hafa farið langt út fyr- ir þann lagaramma sem Alþingismenn héldu að þeir væru að samþykkja. í grein í Morgun- blaðinu 25. nóv. sl. reyndi yfirlyfjafræðingur í lyfjabúri Landspítalans, sem tímabundið gegnir starfi skrifstofustjóra í heil- brigðisráðuneytinu, að réttlæta þá stefnu framkvæmdavaldsins, að styðja skuli við bakið á þessum rík- isafskiptum í lyfjasölunni. í um- ræddri grein kemur fram að í eldri lögum hafí verið heimildaákvæði til að afgreiða í vissum tilfellum lyf úr lyíjabúrum sjúkrahúsa þegar sjúklingar væru að útskrifast, en þessi heimild hafi ekki verið nýtt. En núna þegar á að gefa sölu lyfja fijálsa, skýtur það skökku við að ríkið fari að nýta sér þessar heimild- ir og gerist þátttakandi í hinni „fijálsu samkeppni". Einnig kemur fram í grein skrifstofustjórans að hann telur að það sé hlutverk heil- brigðisráðuneytisins að efla rekstur hinna ríkisreknu „sjúkrahúsapó- teka“, ef það „Ieiðir af sér betri þjónustu fyrir sjúklinga" og opinber- ar „skilning" sinn á hugtakinu „frjáls verzlun“ á sölu lyfja, sem ég tel að sé annar en vel flestra alþing- ismanna. Það er ljóst af Lyfjalögum nr. 93/1994 að þau ætla „sjúkra- húsapótekum“ ekki það hlutverk að annast almenna sölu lyfja. Það er jafnframt ljóst að markmið ríkis- stjórnarinnar er takmörkun ríkis- reksturs og opinberra afskipta. Því er eðlilegt að spurt sé: Hvemig stendur á því að almenn sala á lyfj- um á sér stað í „sjúkrahúsapótekun- um“? Ættu nú vinir einkavinanna á Alþingi að geta glaðst yfir, að nú sé verið að byggja eitt ríkisbáknið enn sem hægt sé að færa þeim á gulldiski eftir að uppbyggingunni á kostnað skattgreiðenda er lokið og búið að draga mátt úr og helst jarða samkeppnisaðilana. Höfundur er apótekari í Kópavogs apóteki. Jón Björnsson Pií græðir — Jbað er gefið mái! GÓLFEFNAMARKAKÐUR - SUÐURLANDSBRAUT 2 6 - S í IVI I 568 1950

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.