Morgunblaðið - 03.02.1996, Síða 41

Morgunblaðið - 03.02.1996, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 41 MINNINGAR MESSUR Á MORGUN Við sjáum nú á bak miklum öð- lingi. Hann var höfðingi heim að sækja, hvort heldur var á Sólbergi eða í Hafnardal. Hann var reglumað- ur í lífi, í starfi og í tómstundum. Hann var léttur í máli og hafsjór af fróðleik um vestfirska sögu og ættir. Missir þeirra sem næst honum stóðu er mikill. Innilegustu samúðar- kveðjur til Fríðu, barna, tengda- barna og annarra aðstandenda. Haukur Tómasson. Ekki hafði mér dottið það í hug að rúnturinn laugardagskvöldið tutt- ugasta janúar um Hafnarijarðarhöfn og hesthúsahverfið í Kópavogi yrði sá síðasti sem við nafnarnir ættum eftir að fara saman. Eg hef verið að þvælast um með honum frá því að ég man eftir mér niður í Smiðju, í Djúpið og síðast en ekki síst á rúntinum. Ég var varla farinn að geta staðið þegar mér var komið fyrir milli sætanna í Volvóun- um og Djúpið tekið vel á öðru hundr- aðinu eða allar götur bæjarins í einni lotu. í einni af þessum ferðum var stefnan tekin lengra en í Hestfjörð- inn og keyrt aðeins út á Snæfjalla- strönd, þ.e.a.s. inn í Hafnardal þar sem afi og amma höfðu ákveðið að byggja sumarbústað sem upphaflega var hugsaður til þess að slappa af í, það var aðeins eitt sem gekk ekki upp. Afi kunni ekki að slappa af, allt varð að gerast í seinasta lagi í gær. Þegr bústaðurinn var tilbúinn þá voru nokkrir dregarar í afgang og svo kassinn utan af beygjuvélinni sem hann hafði verið að kaupa fyrir smiðjuna, þetta efni var svo gott að það varð að byggja verkfæra- geymslu úr þessu sem síðan „óvart“ varð svo flott gestahús að hann tímdi aldrei að setja skóflurnar þar inn, það bjargaðist síðan þegar hann klæddi Sólberg því að undan steni- plötunum komu grindur sem var hægt að nota í skjólgirðingar inni í Djúpi, það var síðan allt of lítil vinna að setja þær upp svo að það var + Ingimundur Jónsson var fæddur á Klúku í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu 29. nóvember 1926. Hann lést á sjúkra- húsi Suðurnesja 30. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jórunn Agata Bjarnadóttir og Jón Sigurðsson bóndi á Bjarnarnesi í Strandasýslu. Systk- ini Ingimundar voru tíu, Elías Svavar, Bjarni Þorbergur (látinn), Sig- urður Þorbjörn (látinn), Bryn- hildur, Magnús, Sigríður, Guð- rún, Matthea Margrét, Sigurveig Kristín og Einar. I október 1959 kvæntist Ingimundur eftirlif- andi eiginkonu sinni Steinunni Snjólfsdóttur, f. 20. mars 1934, frá Efri-Sýrlæk í Flóa. Börn þeirra eru Jórunn Elsa, f. 1. jan- úar 1958, Jón Ingi, f. 11. janúar 1959 (látinn), Egill Steinar, f. 24. nóvember 1960, Valur Snjólfur, f. 20. febrúar 1962, Oddný, f. 20.júní 1964, Sigurður Þorbjörn, f. 14. júni 1966 og Kristinn, f. 24. desember 1968. Utför Ingimundar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju i dag og hefst athöfnin klukkan 14. NÚNA er Mundi farinn á vit for- feðra sinna. Mundi hefur hann alltaf verið kallaður frá því ég man eftir mér. Það var sko engin lognmolla þegar Mundi var að heimsækja syst- ur sína Siggu, móður mína, á Réttar- holtsveginn. Maður var varla búinn að sleppa orðinu, mamma Mundi er kominn, þegar maður var hafinn á loft og dansað með mann, galsinn og krafturinn var slíkur að það var aldrei slegið af. Þannig var líf hans, aldrei slegið frekar ákveðið að smíða bátaskýli úr skjólgirðingarefninu. Þegar þetta var komið kunni hann ekki við að byggja meira á lóðinni svo að hann sótti um stærri lóð og byijaði í skógrækt. Hann ætlaði allt- af að „dunda" sér við þetta en oftar en ekki þá fóru þær plöntur sem hann ætlaði að setja niður á einum mánuði niður á góðri helgi bara af því að það var ekki hægt að stoppa fyrr en allt var búið. Svona var allt hjá afa, hann hafði alltaf nóg að manúera og stæja. Hann hafði gaman af alls kyns vélum og tækjum. Volvóarnir urðu aldrei eldri en tveggja til þriggja ára og inni í bústað var hann kominn með dráttarvél og bát og eitt sinn nefndi hann það við mig að hann vantaði ekkert nema fjórhjól og vél- sleða. Eitt varð ég aldrei var við en það var sá aldursmunur sem var á okk- ur, hann vissi alltaf hvað klukkan sló þegar maður fór að ræða við hann og til dæmis ef snjór og skafl- ar voru fyrir hendi þá var hann oft fyrri til en ég að athuga hvort það væri hægt að taka þá á ferðinni. Ég er alveg viss um að það hefur alveg gleymst að setja kynslóðabilið í hann á sínum tíma, því miður verða þessar bílferðir ekki fleiri en eftir er minningin ljóslifandi eins og þetta hafi allt gerst í gær, afi er eflaust kominn með ný viðfangsefni á nýjum stað því að það er ekki hans stíll að vera aðgerðarlaus. Ég þakka afa kærlega fyrir allt það sem hann hefur gert fyrir mig og látið eftir mér í gegnum árin og frá bráðagerðaviðbrögðunum sem voru beggjasvegar eða einhveiju öðru sniðugu sem hann hafði frá að segja. Um leið og ég kveð afa minn votta ég ömmu samúð mína á þess- um erfiðu tímum. Guðmundur Bjarni Björgvinsson.. • Fleirí minningargreinar um Guðmund Bjarna Jón Jónsson bíða birtingar ogmunu birtastí biaðinu næstu daga. af. Alltaf var Mundi að vinna hörðum höndum. Mundi ólst upp í Bjarn- arnesi í Steingrímsfirði. Þar byijaði hann sjósókn með föður sínum og bræðrum ungur að árum eins og tíðkaðist í þá daga ásamt búskaparstörfum. Oft höfðu þeir tekist á bræðumir og keppt sín á milli í að lyfta steinum, í hlaupum og slegist að sjálfsögðu. Móðir þeirra systkina var ekki nema 48 ára er hún lést eftir erfið veikindi. Mundi var þá 15 ára. Af því hefur lærst sam- heldni og kærleikur gagnvart öðram sem minna máttu sín. Þannig var Mundi, hann mátti ekkert aumt sjá, þá var hann tilbúinn að rétta hjálpar- hönd. Aðal ævistarf Munda var sjó- mennska og þá sem vélstjóri. Hann hafði sérstaklega gott lag á vélum og þær voru sjaldan bilaðar þegar hann sá um þær. Nauðbeygður varð hann að fara í land vegna heilsu- brests. Þá var farið að beita og síðar var hann eingöngu umboðsmaður blaðanna síðastliðin 18 ár. Hann lét sig hafa það nokkrum sinnum að keyra frá Keflavík til Stykkishólms til að heimsækja mig og ijölskyldu ásamt viðkomu hjá Rúnu systur sinni í Hítardal. Það er ótrúlegt hvað hann gat Iagt á sig sárþjáður á líkama. Það lýsir honum nokkuð vel að halda áfram meðan eitthvað er eftir. Það eru ófá skiptin sem Mundi talaði um hana Steinu sina elskuna eins og hann sagði, enda hefur það verið orð að sönnu, hún hefur verið hans stoð og stytta gegnum lífið. Við biðjum honum blessunar guðs á nýjum vegum og vottum ijölskyldu hans samúð okkar. Blessun fylgi minningu góðs frænda og vinar. Guðm, Bragi, Rakel og börn, Stykkishólmi. Guðspjall dagsins: Verkamenn í víngarði. (Matt. 20.) ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi- sala Safnaðarfélags Ásprestakalls eftir messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnunum. Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthí- asson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriks- son. Eftir messu er fundur í Safn- aðarfélaginu. Þar syngur Hrönn Hafliðadóttir við undirleik Hafliða Jónssonar píanóleikara og sr. Hjálmar Jónsson alþingismaður segir frá Hólastað. Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11 og ÍVest- urbæjarskóla kl. 13. Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 14. Vináttudag- urinn. Prestur sr. María Ágústs- dóttir. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdótt- ur. Stúlkur úr TTT-starfi flytja lestra, Ijóð og bænir. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs- þjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson. Organisti Kjartan Ólafsson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Organisti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðsluer- indi kl. 10. Eiga ríki og kirkja að skilja? Dr. Hjalti Hugason. Barna- samkoma og messa kl. 11. Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur. Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Natalla Chow syngur einsöng við undirleik Helga Péturssonar. Org- anisti Pavel Manasek. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Al- mennur safnaðarsöngur. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Börn fædd árið 1991 fá afhenta gjöf frá kirkjunni. Félag- ar úr Kór Laugarneskirkju syngja. Organisti Gunnar Gunnarsson. Barnastarf á sama tíma. Eftir guðsþjónustu verður kirkjukaffi og erindi dr. Gunnars E. Finnboga- sonar um trúarlegt uppeldi. Ólafur Jóhannsson. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Opið hús frá kl. 10. Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M. Halldórs- son. Messa kl. 14. Sr. Halldór Reynisson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Organisti Vera Gulasciova. Barnastarf á sama tíma. ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari Sigrún Stein- grímsdóttir. Prestarnir. _ BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. Ágúst S. Sigurðs- son prédikar. Sönghópur Ungs fólks með hlutverk syngur. Kaffi- sala til styrktar orgelsjóði að messu lokinni. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Organisti Smári Ólason. Sunnudagaskóli kl. 11. Gunnar Sigurjónsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Prestur dr. Sigur- jón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Organisti Lenka Mátéová. Barna- guðsþjónusta á sama tíma í um- sjón Ragnars Schram. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna. Barnaguðsþjón- usta í Rimaskóla kl. 12.30 í umsjón Jóhanns og Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Organ- INGIMUNDUR JÓNSSON isti Ágúst Ármann Þorláksson. Prestarnir. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Gídeonfélagar heimsækja söfnuðinn og segja frá störfum félagsins. Organisti Oddný J. Þor- steinsdóttir. Vænst er þátttöku fermingarbarna. Barnaguðsþjón- usta kl. 13 í umsjá sr. Bryndísar Möllu og Dóru Guðrúnar. Bryndís Malla Elídóttir. KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Einkunnar- orð: Vinátta. Börn úr 8-9 ára starfi. kirkjunnar aðstoða og syngja. Drengjakór Kársnesskóla syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdótt- ur kórstjóra. Organisti Órn Falkn- er. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Organleikari Kjartan Sigurjóns- son. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN, Rvik: Laugardag, þorraskemmtun í safnaðarheimil- inu kl. 19.30. Sunnudag, guðs- þjónusta kl. 14 í kirkjunni. Þriðju- dagur, Kátir krakkar kl. 16 í safn- aðarheimilinu. Organisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. KRISTSKIRKJA, Laridakoti: Há- messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Samkoma á morgun kl. 17. Ræðu- maður Ragnar Gunnarsson. Barnasamverur á sama tíma. Einnig kvöldsamkoma kl. 20.30. Ræðumaður Skúli Svavarsson. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11 á sunnudögum. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelf- ía: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu- maður Hallgrímur Guðmannsson. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir velkomnir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Messa kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Kaffi og maul eftir messu. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálp- ræðissamkoma kl. 20. Reidun og Káre Morken stjórna og tala. Allir velkomnir. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11. Bíll frá Mosfellsleið fer venju- legan hring. Jón Þorsteinsson. VÍDALÍNSKIRKJA: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Barnakór Biskuþstungna og Skólakór Garðabæjar syngja. Stjórnendur Guðfinna Dóra Ólafsdóttir og Hilmar Örn Agnarsson. Nemend- ur úr Flataskóla flytja hugleiðingar um vináttuna. Bragi Friðriksson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Fermingarbörn aðstoða. Organisti Ólafur W. Finnsson. Strandberg opið eftir guðsþjónustuna, kaffi- veitingar. Séra Þórhildur Ólafs. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 14. Sérstaklega vænst þátttöku fermingarbarna. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kristjana Þ. Ásgeirs- dóttir. Kaffiveitingar verða í safn- aðarheimilinu að lokinni guðsþjón- ustu. Einar Eyjólfsson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Messukaffi. Organisti Siguróli Geirsson. Kór Grindavíkurkirkju. Fermingarbörn taka þátt í athöfn- inni og annast kaffiveitingar í safn- aðarheimilinu ásamt foreldrum sínum. Ágóði af kaffisölu rennur i ferðasjóð fermingarbarna. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkju- skóli í dag, laugardag, kl. 11 i Stóru-Vogaskóla í umsjá sr. Bjarna, Sesselju og Franks. Bragi Friðriksson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Munið skólabíl- inn. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Vænst er þátttöku fermingar- barna og foreldra þeirra. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Sigurður, Þórólfur Ingi og Einar Örn sjá um létta tónlist. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. INNI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 13. Barnakór syngur. Baldur Rafn Sigurðsson. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Steinar Guðmundsson. Sunnudagaskóli kl. 12. Barnakór syngur. Baldur Rafn Sigurðsson. ÚTSKÁLAKIRKJA: Sunnudaga- skóli kl. 14. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA: Sunnudaga- skóli kl. 11. Messa kl. 14. Sóknar- prestur. STOKKSEYRARKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Ulfar Guðmundsson. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvolsvelli: Kirkjuskóli laugardag kl. 11. Sigurður Jónsson. ODDAKIRKJA, Rangárvöllum: Sunnudagaskóli í Oddakirkju sunnudag kl. 11. Helgistund á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu kl. 13. Messa í Oddakirkju kl. 14. Sigurður Jónsson. HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa: Messa sunnudag kl. 13.30. Eftir messu verður fundur með ferm- ingarbörnum og foreldrum þeirra. Kristinn Á. Friðfinnsson. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj- um: Sunnudagaskóli kl. 11. Al- menn guðsþjónusta kl. 14. Altar- isganga. Barnasamvera meðan á prédikun stendur. Heitt á könn- unni að messu lokinni. Almenn guðsþjónusta á Hraunbúðum kl. 15.15. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjal- arnesi: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Gunnar Kristjánsson sóknarprest- ur. AKRANESKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta í dag, laugardag, kl. 11. Stjórnandi er Sigurður Grétar Sig- urðsson. Messa sunnudag kl. 16. Athugið breyttan tíma. Biskup ís- lands, herra Ólafur Skúlason, set- ur séra Björn Jónsson inn í próf- astsembætti. Altarisganga. Kaffi- veitingar eftir messu. Sóknar- nefndin. BORGARPRESTAKALL: Barna- guðsþjónusta verður í Borgarnes- kirkju kl. 11.15. Dagur tileinkaður vináttunni. Messa með altaris- göngu kl. 14. Þorbjörn Hlynur Árnason. HVAMMSTANGAKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 14. Sunnudagaskólinn á Blönduósi kemur í heimsókn með barna- fræðurum sínum og presti, sr. Árna Sigurðssyni. Kristín Böge- skov djákni aðstoðar við helgi- haldið auk barnafræðaranna á Hvammstanga, Guðrúnar Jóns- dóttur og Lauru Ann-Howser. Barnakór Grunnskólans á Hvammstanga syngur, auk kirkju- kórsins, undir stjórn Helga S. 5l- afssonar organista. Kirkjukaffi í Félagsheimilinu eftir guðsþjón- ustu. Yfirskrift dagsins er „Vinátt- an og orð Guðs í Biblíunni". Sr. Kristján Björnsson. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík Laugardagur 3. febrúar: Þorraskemmfun i Safnaðarheimilinu kl. 19:30 Sunnudagur 4. febrúar: Guðsþjónusta kl. 14:00 í kirkjunni Þriðjudagur 6. febrúar: Kátir krakkar kl. 16:00 í Safna&arheimilinu m\

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.