Morgunblaðið - 03.02.1996, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
Athugasemd við grein
fræðslustjóra þjóðkirkjunnar
Frá Kristjáni Baidurssyni:
ÉG HNAUT um einkennilegar full-
yrðingar fræðslustjóra þjóðkirkj-
unnar í Morgunblaðinu 27. janúar
sl. í greininni segir Örn Bárður Jóns-
son orðrétt:
„Kirkjan er seld undir sömu örlög
ogönnurjarðnesk fyrirbrigði. (Róm.
8:20).“ Þetta er auðvitað hárrétt en
svo heldur fræðslustjórinn áfram:
„En von kirkjunnar og trú er sú að
kirkjan sé ekki alfarið af þessum
heimi.“ Þetta geta væntanlega flest-
ir tekið undir, að vona það og trúa
því að kirkjan njóti blessunar guðs.
En síðan kemur fullyrðing: „Kirkan
er verk guðs og hann viðheldur
henni. Hún er postulaleg kirkja,“
o.s.frv. og síðar „Framtíð hennar
er ekki undir mönnum komin. Við
syndugir mennirnir getum hvorki
gert kirkjuna volduga né heldur
eyðilagt hana. Hún er í almáttugri
hendi guðs.“
Þetta virðist mér fjarska mikil
einföldun hjá fræðslustjóranum og
hagræðing á staðreyndum.
Kirkjan er ekki verk guðs heldur
manna, kirkjan er seld undir sömu
örlög og önnur jarðnesk fyrirbrigði,
kirkjan verður því hvorki betri né
verri en þeir syndugu menn sem
starfa í henni og fyrir hana. Kirkjan
endurspeglar mannlífíð á hveijum
tíma og framtíð hennar hlýtur alltaf
að vera komin undir því hvemig þjón-
um hennar tekst til við að vinna
henni, viðhalda henni og búa henni
framtíð meðal fólksins. Eins og dæmi
frá fortíðinni sanna geta einstakir
menn gjörbreytt framtíð kirkjunnar
séu þeir nógu duglegir og hugrakkir
að fylgja sannleikanum og sinni eig-
in sannfæringu. I því sambandi næg-
ir að nefna Luther.
Luther hengdi upp sínar 95 grein-
ar á kirkjuhurðina í Wittenberg árið
1517 gegn spillingu kaþólsku kirkj-
unnar. Hann fylgdi sinni sannfær-
ingu og lagði út í baráttu við kenni-
valdið sem þá var harðsnúið ein-
veldi. Þetta hugrakka frumkvæði
hans hafði geysileg áhrif á framtíð
kirkjunnar í heiminum eins og öllum
er kunnugt.
A þessum tíma voru ráðamenn
kirkjunnar langt komnir að eyði-
leggja hana. Syndaaflátssala og
spilling innan kirkjunnar viðgekkst
í skjóli hins mikla páfavalds. Það
er staðreynd sem ekki er hægt að
mæla á móti að bæði góðir menn
og vondir hafa áhrif á kirkjuna og
líf heilla þjóða. Þessi fullyrðing að
menn geti hvorki gert kirkjuna vold-
uga né eyðilagt hana fær ekki stað-
ist. Þetta er aukinheldur hættuleg
kenning, sem gefur í skyn að ekk-
ert sé hægt að gera fyrir kirkjuna
því hennar málefni lúti einhveiju
öðru náttúrulögmáli en aðrar mann-
legar stofnanir.
KRISTJÁN BALDURSSON,
Bakkahlíð 18, Akureyri.
Athug’a-
semd við
sparnaðar-
tillögur
Frá Huldu Steinsdóttur, Eddu
Bergmann og Guðnýju
Guðnadóttur:
MEÐ TILVÍSUN í skrif Morgun-
blaðsins frá 24. jan. sl. þar sem reif-
aðar eru sparnaðartillögur stjómar
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Sá hópur, sem hér lætur frá sér
heyra, og telur þetta „Sparnaðarmál"
sig miklu varða, er hópur hreyfíhaml-
aðra og blindra, sem hefír undanfarin
mörg ár átt því láni að fagna að njóta
æfínga og samveru í Grensáslaug-
inni, en hún er nú einmitt einn sá
„blóraböggull", sem skera á af samkv.
framangreindum sparnaðartillögum.
Það má öllum vera ljóst, ekki síst
yfirmanni heilbrigðismála, hversu öll
hreyfing í vatni er nauðsynleg því
fólki, sem á við skerta starfsorku að
búa, og gæti alveg skipt sköpum
heilsufarslega, hvort það hefði slíka
aðstöðu eða ekki.
Nú gæti einhver sagt sem svo, að
nægt rými væri fyrir þetta fólk í
öðrum sundlaugum, en dæmið er
ekki svona einfalt. Grensáslaugin er
fyrst og fremst ein sú aðgengileg-
asta og að öllu leyti sú besta meðferð-
arlaug fyrir hreyfíhamlaða sem völ
er á, og raunar er fjölmörgum hreyfi-
hömluðum algjörlega ókleift að fara
í aðrar sundlaugar. Þessi sparnað-
aráform um að loka endurhæfingar-
aðstöðunni á Grensási, finnst okkur
því vera hinn versti kostur og óásætt-
anlegur að öllu leyti.
Hér að framan höfum við rætt
mest um notkun sundlaugarinnar,
þar sem hennar kostur er okkur efst
í huga, eða eins og máltækið segir:
„Sá er eldurinn heitastur, er á sjálf-
um brennur." Við viidum gjarnan
lýsa ánægju okkar og trausti á alla
aðra starfsemi Grensásdeildar sem
endurhæfíngarstaðar, svo og starfs-
fólk og lækna. Við leyfum okkur að
vitna í orð yfirlæknisins Ásgeirs B.
Ellertssonar, þar sem hann spyr: „Er
það skynsemi, hagræðing eða sparn-
aður að eyðileggja uppbygginguna á
Grensási?" Svari nú hver fyrir sig.
Heilbrigðisráðherra hefír lýst því
yfír að fyrirhugað sé m.a. að flytja
geðfatlaða á Grensásdeildina. Vissu-
lega þurfa þeir pláss í þjóðfélaginu,
en Grensásdeildin með allri sinni sér-
hönnun fyrir hreyfihamlaða passar
ekki til slíkra hluta, til þess er hún
alltof mikilvæg fyrir þá starfsemi
sem þar er nú, og verður vonandi
um alla framtíð.
Með tilliti til framanskráðra orða
er hér með skorað á hæstvirtan heil-
brigðisráðherra að snúa af villu síns
vegar og taka þessa tillögusmíð um
spamað í heilbrigðiskerfinu til mjög
alvarlegrar athugunar.
Að okkar mati er vart hægt að fínna
>. öllu fráleitari hugmynd til spamaðar.
Það er ljóst að þessi framkvæmd, ef
af verður, mun ekki leiða til neins
spamaðar, heldur þvert á móti.
HULDA STEINSDÓTTIR,
Álandi 9, Reykjavík,
EDDA BERGMANN,
Hverfisgötu 29, Reykjavík,
GUÐNY GUÐNADÓTTIR,
Sléttuvegi 3, Reykjavík.
ustur
etra
a Detra x* ■
veroi!
MITSUBISHI
LRNCER
4x4 ALDRIF
MITSUBISHI LANCER 4X4 er glæsilegur og ríkulega útbúinn skutbíll. Hann er
kraftmikill og stöðugur í akstri og þar af leiðandi traustur í baráttunni við ófærðina.
Auk þessa er hann einstaklega rúmgóður og alhliða öryggisbúnaðurinn situr í fyrirrúmi.
MMC LANCER 4x4 tilbúinn á götuna kostar