Morgunblaðið - 13.02.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.02.1996, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * Fundur formanna landssambanda ASI Drögiim að breytingnm á vinnulöggjöf hafnað FORMENN landssambanda innan ASÍ hafna alfarið þeim drögum að breytingum á vinnulög- gjöf sem nú eru í vinnslu í félagsmálaráðuneyt- inu. Þeir leggja til að aðilar vinnumarkaðarins geri með sér rammasamning um gerð áætlun- ar þar sem kveðið verði á um hvernig standa skuli að viðræðum um gerð kjarasamninga. í honum verði settar reglur um verkföll þar sem kveðið yrði á um að þau megi ekki boða fyrr en viðræðuáætlun hafi verið gerð og kjarakröf- ur lagðar fyrir viðsemjendur og kynntar sátta- semjara. Formenn landssambanda innan ASÍ telja ástæðulaust að hrófla við gildandi lögum um sáttastörf í vinnudeilum og lögum um stétt- arfélög og vinnudeilur. „Þau frumvarpsdrög sem nú liggja fyrir fela í sér takmörkun á réttindum launafólks eins og samnings- og verkfallsrétti og umboði og hlutverki ein- stakra stéttarfélaga í kjaramálum umbjóðenda sinna,“ segir í ályktun formannafundar lands- sambanda ASÍ sem haldinn var í Ölfusi 9. febrúar sl. í ályktun fundarins segir ennfremur að skipulagsmál og vinnuaðferðir innan samtaka atvinnurekenda hafi á undanförnum árum tor- veldað mjög farsælar lausnir í kjaradeilum á vinnumarkaði. Algert miðstýringarvald heild- arsamtaka atvinnurekenda sé tímaskekkja í samskiptum á vinnumarkaði nútímans. Formenn landssambanda innan ASÍ vilja að aðilar vinnumarkaðarins semji á breiðum grundvelli um samskiptareglur og vinnubrögð við gerð kjarasamninga og fleiri atriði, líkt og aðilar vinnumarkaðarins í nágrannalöndunum hafi gert til fjölda ára. Sameiginlegri tillögugerð um samræmdar reglur hafnað Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, segir að nefnd sem aðilar vinnumarkaðar- ins skipa, hafi undanfarið 1 Vi ár unnið tillögur sem miða að því að draga úr átökum á vinnu- markaði. Drög að fyrrnefndu frumvarpi hafi tekið mið af þessari vinnu. „Með ályktun formannafundar ASÍ er verið að hafna sameiginlegri tillögugerð um sam- ræmdar reglur fyrir vinnumarkaðinn í heild og gerð tillagna um það að einstakir samingsaðilar semji sína vinnulöggjöf sín á milli. ASI hefur ekkert umboð til þess að semja um slíkt. Við sjáum ekki að líkur séu á því að samningar við einstök verkalýðsfélög um verkfalls- og við- ræðureglur hjálpi okkur mikið fram á við. Það vekur reyndar furðu að formenn ASÍ gera kröfu um að VSÍ verði svipt samningsumboði fyrir aðildarfyrirtæki sín því forystumenn verkalýðs- félaganna sameinast ekki betur í nokkrum söng öðrum en þeim hve mikil ósvinna það sé að nokkrum láti sér til hugar koma að setja reglur um starfsemi verkalýðsfélaganna. Það stendur ekki til að Vinnuveitendasambandið hætti að gera kjarasamninga,“ sagði Þórarinn. Samruni fjölmiðla- fyrirtækja í Hafnarfirði FJARÐARPÓSTURINN og Hafn- firsk fjölmiðlun hf. sameinuðust um seinustu mánaðamót, en sameining þessara fyrirtækja hefur verið í bí- gerð um skeið, í því skyni að ná fram hagræðingu í rekstri. í seinasta Fjarðarpósti er greint frá því að þessar aðgerðir séu taldar styrkja stöðu sameinaða fyrirtækisins til lengri tíma litið. Jafnframt verða kannaðir til hlítar möguleikar á að reka útvarpsstöðvar í Garðabæ og Kópavogi og stefnt er að því á næstu misserum að hefja sjónvarpsstarf- semi á svæðinu sunnan Reykjavíkur. Útsendingar lengjast Fjarðarpósturinn mun koma áfram út vikulega í Hafnarfirði eins og verið hefur, með áhersiu- og út- litsbreytingum þó, en útgáfa Bæjar- frétta leggst niður. Utsendingar Útvarps Hafnarfjarðar lengjast við samrunann og verða alla virka daga frá kl. 15-19 og Sjónvarp Hafnar- fjarðar sendir áfram út alla daga nema laugardaga frá 18.30-19 og á sunnudögum frá 17.30. Kópavogspósturinn sem komið hefur út í náinni samvinnu við Fjarð- arpóstinn í um ár verður gefinn út áfram hálfsmánaðarlega með svip- uðu sniði og áður, að undanskildum efnis- og útlitsbreytingum sem fylgja Fjarðarpóstinum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson. HELGA Björg og Stefán Hallur prúðbúin með verðlaunagripi sína. Veiðifélag um stór- laxa ÞAÐ VORU gleðilegir endurfund- ir þeirra Helgn Bjargar Antons- dóttur, 7 ára, og Stefáns Halls Jónssonar á árshátíð Stangaveiði- félags Reykjavíkur á laugardags- kvöldið. Þau voru óvænt veiðifé- lagar hálfan dag um miðjan ágúst í fyrra er SVFR gekkst fyrir barna- og unglingaveiðidegi í Ell- iðaánum og Helga Björg gerði sér þá lítið fyrir og veiddi 13,5 punda hæng á flugu. Undir handleiðslu Stefáns Halls, sem var fylgdar- maður nokkurra krakkanna, tókst að landa stórlaxinum. Þeir veiðimenn sem veitt hafa stærstu laxana á vatnasvæðum SVFR eru jafnan heiðraðir með bikarafhendingum á árshátíðinni og eru þá kallaðir upp á svið við dynjandi iófatak. Upp úr dúrnum kom, að lax Helgu Bjargar var stærsti fluguveiddi laxinn úr EIl- iðaánum sumarið 1995 og hreppti hún því svokallaðan Útilífsbikar. A sviðinu fagnaði Helga síðan Stefáni Halli, sem reyndist hafa veitt stærsta flugulaxinn í Norð- urá sumarið 1995. Það var 17 punda fiskur sem hann veiddi á Klettabreiðu. Bikarinn er nefndur Norðurárflugubikarinn og gefinn af kaffihúsinu Mílanó. Einhver hafði á orði að þau Helga Björg og Stefán ættu að stofna veiðifé- Iag um stórlaxa. Alþjóðleg samtök borgarstjóra í norðlægum borgum Sænskar borgir halda ráð- stefnu vetrarborga árið 2000 SÆNSKU borgirnar Luleá og Kir- una halda ráðstefnu vetrarborga sameiginlega árið 2000. Um ráð- stefnuna sóttu, fyrir utan borgirnar tvær, Reykjavík og japanska borgin Aomori. Alþjóðleg samtök borgar- stjóra í norðlægum borgum hafa haldið ráðstefnu vetrarborga á tveggja ára fresti frá árinu 1982. Næsta ráðstefna verður í Harben í Kína árið 1998. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og fylgdarlið sóttu 7. ráðstefnu vetrarborga í Winnipeg í Kanada í síðustu viku. „Við höfðum ekki áður verið með og sóttum því um upp á von og óvon. Luleá hefur hins vegar verið með í allmörg ár og sótt um að halda ráðstefnuna þrisvar sinnum áður. Ef ráðstefnan hefði komið í okkar hlut hefðum við því getað talist mjög heppin. Hins vegar var okkur gefinn kostur á að kynna borgina af því við sóttum um og fengum mikið hrós fyrir kynning- una,“ sagði Ingibjörg Sólrún og tók fram að kynningin væri mikilvægur liður í að koma Reykjavík „á kort“ hinna borganna. Bæklingarnir kláruðust, Ingibjörg sagði að ráðstefnan byggðist annars vegar á fundum borgarstjóra og sérfræðinga á ýms- um sviðum og hins vegar á stórri vörusýningu. Reykjavík, Flugleiðir, Útflutningsráð og Verslunarráð voru með sameiginlegan bás á sýn- ingunni. „Áhuginn á básnum var mjög mikill enda er hér mjög sterkt íslenskt samfélag. Ég held reynar að áhuginn hafi verið svo mikill að allir bæklingar hafi hreinlega klár- ast,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Ingibjörg Sólrún kom fram með Susan Thomson, borgarstjóra Winnipeg, í sjónvarpsþætti á mánu- dag. Sama dag sat hún fyrir svörum með borgarstóra Luleá og kana- dískum borgarstjóra í eins konar kanadískri „Þjóðarsál" í útvarpi. Sjópróf- um lokið í dag SJÓPRÓFUM í máli gríska flutningaskipsins, sem hafði næstum strandað á Eskifirði aðfaranótt mánudags í síðustu viku, verður haldið áfram og lokið á Eskifirði í dag. Sjópróf- in hófust síðastliðin laugardag og mætti þá 1. stýrimaður skipsins, en skipstjóri þess og 1. vélstjóri mættu ekki fyrir dóminn. Að sögn Tryggva Þórhalls- sonar dómarafulltrúa var lögð fram beiðni í réttinum frá full- trúa Siglingamálastofnunar um að sjóprófum yrði frestað svo taka mætti lögregluskýrsl- ur af áhöfn gríska skipsins. Skipið kom að landi á Norð- firði kl. 17 á sunnudaginn og fór skýrslutakan fram þá um kvöldið. Fjórir með allar lottótölur réttar FJÓRIR skiptu með sér fyrsta vinningi þegar dregið var í Lottói sl. laugardagskvöld og hafa þeir allir gefið sig fram á einn eða annan hátt. Fyrsti vinningur var fimmfaldur að þessu sinni og komu 5.065.580 krónur í hlut hvers og eins. Vinningshafarnir fjórir eru búsettir á Akureyri, Akranesi, Eyrarbakka og í Reykjavík. Tölur kvöldsins voru 19, 20, 24, 26 og 27. Bónustalan var 23. Að sögn Vilhjálms Vil- hjálmssonar, framkvæmda- stjóra íslenskrar Getspár, fengu 8.093 einstaklingar lottóvinning þetta kvöld ef all- ir eru meðtaldir. Fjórir ein- staklingar voru með fjórar aðaltölur réttar auk bónustölu og fengu þeir hver um sig samtals 303.620 krónur. 218 fengu 9.610 krónur fyrir fjórar tölur réttar og 7.867 manns fengu 620 krónur í vinning fyrir þijá tölur réttar. Hágöngumiðlim Náttúru- verndarráð undirbýr umsögn NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ hefur til umfjöllunar fyrirætl- anir Landsvirkjunar um bygg- ingu 40 ferkílómetra lóns við Hágöngur. Aðalheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Náttúru- verndarráðs, sagði að verið væri að undirbúa umsögn ráðsins um Hágöngumiðlun, en frestur til þess sé til 4. mars næstkomandi. Umsögnin fari síðan til skipulagsstjóra. Aðspurð sagði Aðalheiður að fulltrúar Landsvirkjunar hefðu kynnt ráðinu fyrirætlan- ir um Hágöngumiðlun, en ráð- ið hefði ekki tekið afstöðu, þar sem beiðni um umsögn Nátt- úruverndarráðs hefði ekki bor- ist fyrr en í síðustu viku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.