Morgunblaðið - 13.02.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996 7
FRÉTTIR
Heimkomu
handrita minnst
ALDARFJÓRÐUNGUR er lið-
inn frá því að Danir skiluðu
íslendingum handritunum 21.
apríl nk. og hefur verið
ákveðið að halda samkomu í
hátíðarsal Háskóla Islands af
því tilefni og setja upp hand-
ritasýningu í stofnun Arna
Magnússonar.
21. apríl 1971 komu Kon-
ungsbók Eddukvæða og Flat-
eyjarbók til landsins með
dönsku herskipi og verða
bæði handritin meðal þeirra
þjóðargersema sem sýndar
verða í Arnastofnun.
Fáséð á sýningum
„Þessi handrit hafa ekki
verið á almennum sýningum
mörg undanfarin ár, við höf-
um verið að spara þau ef svo
má segja, en við viljum minn-
ast umrædds dag með viðeig-
Morgunblaðið/Ól.K.M.
FRÁ komu handritanna til Reykjavíkur.
andi hætti,“ segir Stefán
Karlsson, forstöðumaður
Árnastofnunar. Á hátíð-
arsamkomunni verða fluttar
ræður og tónlist til að minn-
ast baráttu íslendinga fyrir
að fá handritin heim og
hvernig henni lyktaði, en sýn-
ingin mun standa í 2-3 vikur.
Sumarið 1997 verðuraf-
hendingu handrita endanlega
lokið. Fjallað var um hátíðar-
höldin á ríkisstjórnarfundi á
föstudag, en Árnastofnun hef-
ur m.a. óskað eftir fjárstuðn-
ingi við ýmis þau verkefni
sem borið hafa á góma í
tengslum við handritaheimt-
ina.
•Afhendingartimi getur veriö 25 til 35 dagar eftir skipaferöum.
VOLVO
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST
Bíll sniðinn
að þínum óskum
Volvo gerir ráö fyrir því aö þú hafir þína skoöun á því hvernig
bíllinn þinn á aö vera. Volvo sérsmíðar bílinn þinn eftir þínum
óskum án nokkurs aukakostnaðar og fæst hann afhentur á
aðeins einum mánuöi.* Eigum einnig bíla til afhendingar strax.
Volvo 440/460 er á ótrúlega góðu veröi en eftir sem áöur
færöu allt sem Volvo stendur fyrir. Öryggisútbúnaö eins og hann
gerist bestur, áreiöanleika, endingu umfram flesta bíla og ekki
síst umhverfisvænan bíl en Volvo hefur lagt mikla áherslu á
þann þátt í framleiðslu sinni.
Verð frá:
1.498.000
stgr.