Morgunblaðið - 22.03.1996, Blaðsíða 1
100 SÍÐUR B/C/D
69. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 22. MARZ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
E-vítamín
dregur úr
hjarta-
áföllum
London. Reuter.
E-VÍTAMÍN getur dregið úr
hjartaáföllum um hvorki meira
né minna en 75%. Er þetta
niðurstaða breskra vísinda-
manna við Cambridge-háskóla
eftir umfangsmiklar rann-
sóknir á 2.000 hjartasjúkling-
um.
„Við erum í sjöunda himni
og vissulega kom það okkur á
óvart, að E-vítamínið skyldi
hafa jafngóð áhrif og við höfð-
um framast vonað,“ sagði
Morris Brown prófessor og
einn vísindamannanna. „Hér
eftir mun ég ráðleggja fólki,
sem er með hjartakveisu eða
er hætt við hjartasjúkdómum,
að taka E-vítamín.“
Mikið af E-vítamíni er í olíu-
ríkri fæðu, til dæmis ólífum,
en hún er uppistaðan í matar-
æði Miðjarðarhafsþjóða. Þar
er miklu minna um hjartasjúk-
dóma en norðar í Evrópu.
Sögðu þeir Brown og sam-
starfsmenn hans, að E-víta-
míngjöf væri miklu áhrifa-
ríkari en aspirín og þau lyf,
sem nú eru notuð til að lækka
kólesterólmagn í blóði.
Hjartaáföllin
75% færri
Rannsóknin stóð í hálft ann-
að ár og var helmingi sjúkling-
anna, 1.000 manns, gefið E-
vítamín en hinum helmingnum
svokölluð lyfleysa, sem engin
áhrif hefur. Niðurstaðan kom
vísindamönnunum verulega á
óvart. Fjöldi hjartaáfalla í
hópnum, sem fékk E-vítamín,
var aðeins fjórðungur áfall-
anna í hinum hópnum.
Ofbeldi
mótmælt
ÞUSUNDIR námsmanna og
kennara gengu um götur Var-
sjár í Póllandi í gær til að mót-
mæla vaxandi ofbeldi í landinu
og syrgja einn félaga sinn. Féll
hann fyrir byssukúlum glæpa-
manna. Námsmenn í Gdansk
efndu til „svartrar göngu“, eins
og þessi mótmæli gegn ofbeld-
inu eru kölluð, í síðasta mánuði.
Yfirlýsingar um kúariðusmit vekja afar hörð viðbrögð
Fimm ríki setja bann
við bresku nautakjöti
Brussel, London. Reuter.
YFIRLÝSING Stephens Dorrells, heilbrigðisráðherra Bretlands, um að kúa-
riða geti borist í menn hefur víða vakið ótta og orð hans í gær um að svo
gæti farið að lóga yrði öllum nautgripum á Bretlandi hafa verið sem olía á eld.
Reuter
Reuter
NEYTENDUM í Evrópu
stendur ekki á sama um -
hvaðan nautakjötið er komið
eftir að bresk stjórnvöld
sögðu að menn gætu smitast
af kúariðu. Hér sést þýskur
kjötkaupmaður, sem auglýsir,
að hann selji aðeins nautakjöt
frá þýskum framleiðendum.
farið að slátra þyrfti öllum nautgrip-
uin á Bretlandi. Douglas Hogg,
landbúnaðarráðherra Bretlands,
vildi hins vegar ekki gera mikið úr
þeim kosti og sagði að vísindanefnd-
in hefði ekki mælt með slíkum að-
gerðum þótt það hefði verið á valdi
hennar.
Bretar hertu reglur um hreinlæti
og nýtingu þeirra líffæra, sem sýkj-
ast af riðu, árið 1989 og embættis-
menn halda því fram að þeir, sem
hafi látist af Creutzfeldt-Jakob-
heilahrörnun á Bretlandi, hafi feng-
ið sjúkdóminn fyrir þann tíma.
■ Þrýst á ESB/21
Fimm Evrópuþjóðir, Belgar,
Frakkar, Hollendingar, Portúgalar
og Svíar, ákváðu að banna innflutn-
ing á bresku nautakjöti í gær og
Þjóðveijar settu fram kröfu um að
bann næði til alls Evrópusambands-
ins(ESB).
Ástæða þessa fárs er sú að ráð-
gjafarnefnd bresku stjómarinnar
skipuð vísindamönnum komst að
þeirri niðurstöðu að tengsl geti verið
á milli kúariðu og Creutzfeldt-Jakob-
heilahrörnunar og Dorrell greindi frá
henni á þingi á miðvikudag.
Major fordæmir Frakka
Frakkar riðu á vaðið í gær með
að banna innflutning á bresku
nautakjöti og brást breska stjórnin
hart við. John Major, forsætisráð-
herra Breta, gaf út harðorða yfirlýs-
ingu. Þar var bannið fordæmt og
sagt „móðgun" við reglur ESB um
frelsi í viðskiptum. Kvaðst Major
ætla að kvarta við framkvæmda-
stjóm sambandsins.
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, sagði hins
vegar á blaðamannafundi í París að
yfirlýsingin um að tengsl gætu ver-
ið milli Creutzfeldt-Jakob-sjúk-
dómsins og kúariðu gæfi fullt tilefni
til þessara viðbragða.
Verðhrun á Bretlandi
Verð á nautakjöti lækkaði um 15
af hundraði á breskum mörkuðum
í gær. Kaupmenn og veitingahúsa-
eigendur reyndu að róa almenning,
en í mötunejdum fjölda skóla var
nautakjöt tekið af matseðlinum.
Dorrell sagði í gær að svo gæti
Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, í Moskvu
Ekki verður hvikað
frá stækkun NATO
Moskvu. Reuter.
JAVIER Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, NATO,
gerði rússneskum ráðamönnum það
ljóst í Moskvu í gær, að ekki yrði
hætt við stækkun bandalagsins í
austur, hvað sem andstöðu þeirra
liði. Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
lofaði því fyrir viðræðurnar við
Solana í gær að taka mjög harða
afstöðu gegn stækkuninni og
kveða fastar að orði en rússneski
utanríkisráðherrann hefði gert
hingað til.
„Ákvörðun um að stækka NATO
var tekin 1994,“ sagði Solana á
blaðamannafundi í Moskvu í gær.
„Að því er unnið og á því verður
engin breyting."
Rússar eru mjög andvígir stækk-
un NATO, sem þeir telja ógnun við
öryggi sitt, og Jejtsín hét í gær að
koma því betur til skila á fundinum
með Solana en Jevgení Prímakov
utanríkisráðherra hefði gert.
Prímakov of linur
„Hann hefur verið allt of- linur
en ég ætla ekki að tala neina tæpi-
tungu,“ sagði Jeltsín, sem á undir
högg að sækja gegn kommúnistum
í þessu máli og öðrum.
Soiana sagði, að ljóst væri, að
afstaða Rússa til stækkunar NATO
hefði ekkert breyst en lagði áherslu
á, að NATO væri ekki lengur það
sama og það var á timum kalda
stríðsins.
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem var
væntanlegur til Moskvu í gær, sagði
í Prag, að NATO hefði heitið að
taka við nýjum aðildarríkjum og við
það yrði staðið. Christopher mun
eiga fund með Prímakov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, og sitja fund
fimmveldahópsins um málefni ríkj-
anna i Júgóslavíu fyrrverandi.
Ummæli Christophers
fordæmd?
Gennadí Seleznyov, forseti dúm-
unnar úr flokki kommúnista, sagði
í gær, að gagnrýni Christophers á
samþykkt dúmunnar, neðri deildar
rússneska þingsins, um endurreisn
Sovétríkjanna væri afskipti af rúss-
neskum innanríkismálum. Vegna
þess myndi dúman greiða atkvæði
í dag um yfirlýsingu þar sem um-
mæli hans væru fordæmd.
A leið til Tævans
TAUGASTRÍÐ Kínverja og
Tævana magnaðist enn í gær
og Bandaríkjamenn bjuggu sig
undir að safna saman stærsta
herskipa- og flugvélaflota sín-
um í A-Asíu frá Víetnamstríð-
inu. Dagblað i Hong Kong hafði
eftir kínverskum embættis-
mönnum að Kínverjar myndu
tortíma flotanum með „eldhafi“
ef hann sigldi inn á Tævansund.
Á myndinni siglir bandaríska
flugvélamóðurskipið Nimitz um
fjölfarið sund milli Singapore
og Indónesíu í átt að Suður-
Kínahafi. Skipið er hlaðið her-
flugvélum og búist er við að það
verði komið að Tævansundi á
morgun eða á sunnudag, en þar
er fyrir flugvélamóðurskipið
USS Independence. Skipunum
fylgja m.a. þrír kjarnorkuknún-
ir kafbátar, beitiskip búið stýri-
flaugum, fjórir tundurspillar og
tvær freigátur, auk birgða-
skipa.