Morgunblaðið - 22.03.1996, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.03.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUUAGUR 22. MARZ 1996 47 ! I I I : i ' i i í i 4 FRÉTTIR Oryggi barna í bílum SLYSAVARNAFÉLAG íslands, Umferðarráð og „Betri borg fyrir börn“ (samvinnuverkefni Reykjavík- urborgar og SVFI) efna saman til átaks til að vekja athygli á mikil- vægi öryggis barna í bílum dagana 25.-29. mars nk. Markmiðið með átakinu er að hvetja alla sem með bílum ferðast til að spenna bílbeltin og sjá tii þess að börnin noti viðeigandi öryggisbún- að. Á árinu 1995 slösuðust 128 börn 14 ára og yngri sem voru farþegar í bílum. Það er því miður alltof al- gengt að börn séu laus í bílum og nýti ekki þann öryggisbúnað sem er fyrir hendi eða nýti hann ekki rétt. Af þeim börnum sem slasast kemur í ljós að aðeins helmingur þeirra notar öryggisbúnað við hæfi. Þess vegna er rík ástæða til að vekja at- hygli á því hversu mikið gildi þessi öryggisbúnaður hefur. Þeir sem að átakinu standa eiga samstarf við marga aðila sem láta sig varða velferð og öryggi barna. Leitað er til heilsugæslustöðva og óskað eftir samvinnu og fræðslu fyr- ir foreldra, fulltrúar úr Slysavarnafé- lagi íslands víða um land kanna notk- un öryggisbúnaðar fyrir börn fyrir utan leikskóla, leitað hefur verið til leikskóla og grunnskóla og óskað eftir að fjallað verði sérstaklega um öryggi barna í bílum, lögreglan verð- ur með sérstakt eftirlit um þetta málefni þessa viku og fjölmiðlar munu fjalla sérstaklega um þetta málefni þessa viku. í frétt frá SVFÍ, Umferðarráði og Betri borg fyrir börn eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að veita öryggi barnanna í bílum athygli og leggja áherslu á að öryggi þeirra er á okkar ábyrgð. Fagþekking verði nýtt við neyðarsímsvörun S J Ú KRAFLUTNING ARÁÐ Land- læknis hefur sent dómsmálaráðherra eftirfarandi álit um málefni neyðar- símsvörunar: „Mikil umræða hefur verið að undanförnu um málefni neyðarsím- svörunar í landinu og er fagnaðar- efni að samræmt neyðarnúmer sé komið fyrir allt landið. Sjúkraflutningaráð Landlæknis starfar samkvæmt reglugerð nr. 503 frá 18. nóvember 1986 útgefnu af heilbrigðisráðuneytinu og er ráðgef- andi um allt er varðar sjúkraflutn- inga í landinu. Neyðarsímsvörun hefur verið sinnt af aðilum sem hafa þekkingu af störfum á vettvangi svo sem sjúkra- flutningamönnum, lögreglu og slökkviliðsmönnum. Mjög góð reynsla hefur verið af neyðarsímsvörun þessara aðila þar sem þeir hafa greint ástandið í gegn- um síma og gefið viðeigandi leiðbein- ingar. Hægt er að fullyrða að það hafi skipt sköpum í mörgum tilfell- um. Sjúkraflutningaráð Landlæknis telur því mjög brýnt að fagþekking þessara aðila verði nýtt við neyðar- símsvörun í landinu.“ Segir frá starfi á Vestur- bakkanum FÉLAGIÐ Ísland-Palestína efnir til kaffifundar laugardaginn 23. mars nk. í Lækjarbrekku. Gestur fundarins er Sigurbjörg Söebech, hjúkrunarfræðingur, sem er nýkomin heim frá Palestínu þar sem hún starfaði í rúmt ár á vegum Alþjóða Rauða krossins. Sigurbjörg hafði umsjón með stuðningi Rauða krossins við heilsugæslu Palestínu- manna og heimsötti í starfi sínu ekki ■ NÝLEGA færði Hans Petersen hf. Iþróttasambandi fatlaðra styrk að upphæð 474.225 kr. sem er hluti ágóða af jólakortum sem verslanir Hans Petersen hf. seldu fyrir jólin 1995. Þessi ágóði hefur á undanförnum árum runnið til hinna ýmsu góðgerðarmála en í ár ákvað fyrirtækið að ágóðinn rynni til íþróttasambands fatlaðra til upp- færri en 190 heilsugæslustöðvar á Vesturbakkanum. Sigurbjörg mun segja frá starfi sínu og viðhorfum og sýna myndír sem teknar voru á meðan á dvöl hennar stóð. Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 15.30. Lj ósmyndasýn- in g grunnskóla og félagsmið- stöðva í Reykjavík SYNING á ljósmyndum, sem nem- endur í grunnskólum og félagsmið- stöðvum í Reykjavík hafatekið, verð- ur opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, föstudaginn 22. mars, kl. 16. Borgarstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, opnar sýninguna og afhendir verðlaun. Samtals bárust um 400 myndir í keppnina. Sýningin er í tvennu lagi: Svart á hvítu. Svart/hvítar myndir sem nem- endur hafa unnið að öllu leyti sjálfir á námskeiðum innan skólanna eða í fél agsmiðstöðvum Reykj avíku rborg- ar á vegum íþrótta- og tómstunda- ráðs. Verkefnin þar voru: Portrett, daglegt líf og fijáls myndefni. Ljósmyndasprettur ÍTR þar sem í . boði voru 10 verkefni. Dómnefnd skipuðu eftirtaldir ljós- myndarar: Sigurgeir Birgisson frá Ljósmyndavörum, Arnaldur Hall- dórsson tilnefndur af BECO og Guð- mundur Ingólfsson frá ísmynd. Ljós- myndavörur hf. gáfu verðlaun fyrir bestu litmyndirnar, BECO, sérhæfð ljósmyndaþjónusta og ILFORD gáfu verðlaun fyrir bestu svart/hvítu myndirnar. Nýsköpunar- sjóður náms- manna fær 10 milljónir BORGARRÁÐ hefur ákveðið að veita 10 milljónum til Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Áður hafði Alþingi samþykkt til hans 15 milljóna króna framlag á Qárlögum og er hann því 25 milljónir eða stærri en nokkru sinni fyrr á þessum árstíma. Sjóðurinn var stofnaður árið 1992 að frumkvæði Stúdentaráðs Háskóla íslands og styrkir einstaklinga, fyrir- tæki og stofnanir til þess að ráða námsmenn til metnaðarfullra rann- sóknarverkefna yfir sumartímann þar sem áhersla er lögð á nýsköpun- argildi verkefnisins og sjálfstæð vinnubrögð námsmannsins. í fyrra styrkti sjóðurinn um 150 námsmenn til álíka margra verkefna og hafa mörg þeirra vakið talsverða athygli. Meðal þeirra má nefna Ráð- byggingar íþróttastarfs fatlaðra hér á landi. Á myndinni veitir Camilla Th. Hallgrímsson (t.v.), varafor- maður ÍF styrknum viðtöku úr hendi Guðrúnar Eyjólfsdóttur (t.h.), sölustjóra hjá Hans Petersen hf. Með þeim á myndinni er Olafur Eiríksson, einn af Ólympíuförum fatlaðra til Atlanta 1996. gjafarforrit fyrir vinnslustjóra í fisk- vinnslu sem þrír verkfræðinemar unnu og hlutu fyrir það Nýsköpunar- verðlaun forseta íslands sem veitt voru í fyrsta skipti í febrúar. Þeir hafa nú gengið frá sölu á forritinu til Marels hf. Mótframlög fyrirtækja verkefni til framdráttar Vonir eru bundnar við að frekari framlög fáist til þess að hægt sé að gefa enn fleiri stúdentum tækifæri á að vinna að rannsóknum á sumrin og í því skyni er nýtt ákvæði í regl- um sjóðsins um að framlög fyrir- tækja í formi mótframlaga í launum námsmanns geti veitt verkefninu forgang ef val stendur á milli tveggja jafngóðra verkefna. Umsóknarfrest- ur um framlag úr sjóðnum er til 3. apríl nk. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu SHÍ. VI o g FB talast á um græðgi ÚRSLIT í Mælsku- og rökræðu- keppni framhaldsskólanna verður haldin i kvöld, 22. mars, í sal 1 í Háskólabíói. Að þessu sinni eigast við Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Verzlunarskóli íslands og umræðu- efnið er græðgi, sem VÍ mælir með en FB á móti. Húsið verður opnað kl. 19 en keppnin hefst stundvíslega kl. 19.30 og verður lokið fyrir 23. Miðaverð er 200 kr. Sólstöðuhópur- inn ræðir um sorg- barna SÓLSTÖÐUHÓPURINN gengst fyr- ir fyrirlestri í Norræna húsinu laug- ardaginn 23. mars kl. 13. Fyrirlestur- inn er opinn öllum er áh'uga hafa á og kostar 500 kr. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina: Glíma barna við sorg og eru fyrirles- arar þau Inga Stefánsdóttir og Sig- urður Ragnarsson, sálfræðingur. Einnig mun Ingibjörg Marteinsdóttir syngja einsöng. Boðið verður upp á umræður að fyrirlestri loknum. ■ VINÁ TTUFÉLA G íslands og Kúbu heldur aðalfund laugardag- inn 30. mars kl. 14 á veitingahúsinu Lækjarbrekku, efri hæð. Á dag- skrá eru venjuleg aðalfundarstörf, auk skýrslu og umræðna um Kúbu í dag og verkefni félagsins. Stjórn VÍK skipa Gunnar Magnússon, Inga Sigurðardóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, formaður, Sigur- laug S. Gunnlaugsdóttir, ritari og Sylvía Magnúsdóttir, gjaldkeri. Varamenn eru Jóhanna Finnboga- dóttir og Sólborg Alda Péturs- dóttir. VELKOMIN I FONIX OG GERI REYFARAKAUP RAFTÆKI OG INNRÉTTINGAR Á TILBOÐSVERÐI m ASKO ÞVOTTAVÉLAR - WJRRKARAR - UPPÞVOTTAVÉLAR Nú er lag að fá sér sænskt hágæðatæki frá Asko - með verulegum afslætti. ALLT AÐ 10% AFSLÁTTUR -10 ■20 -25 -30 KÆLISKAPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR Dönsku GRAM kæliskáparnir eru rómaðir fyrir glæsileika, hagkvæmni, styrk og endingu. Þú getur valið um 20 gerðir kæliskápa, með eða án frystis. Einnig 8 stærðir frystiskápa og 4 stærðir af frystikistum. ALLT AÐ 15% AFSLÁTTUR NILFISK NÝ NILFISK FYRIR NÚTÍMAHEIMILI Nú kynnum við nýjar gerðir frá NILFISK, GM-300 seríuna, glæsilegri ogfullkomnari en nokkru sinni fyrr. 4 gerðir og litir. ALLT AÐ 15% AFSLÁTTUR ftTmririý) INNBYGGINGAROFNAR OG -HELLUR Margar gerðir og litir af ofnum til innbyggingar. Helluborð með 2 eða 4 hellum, bæði „venjuleg" og keramik. Einnig gashelluborð. DéLonghi - Dásamleg tæki ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR ELDHÚSVIFTUR - MARGAR GERÐIR Venjulegar, hálfinnbyggðar, m/útdregnum gler- hjálmi, veggháfar eða til innbyggingar í háf. ALLT AÐ 15% AFSLÁTTUR BORÐOFNAR FYRIR SÆLKERA Þeir eru notadrjúgir litlu borðofnarnir frá DéLonghi. Þú getur steikt, bakað eða grillað að vild á styttri tíma og með mun minni orkunotkun en í stórum ofnum eða eldavélinni. ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR Q O.ERRE LOFTRÆSTING ER OKKAR FAG! Mikið úrval af loftræstiviftum fyrir hvers konar húsnæði, til heimilisnota eða í atvinnuhúsnæði. SMARAFTÆKI EMIDE euRks Ávaxtapressur, brauðristar, brauð- og áleggshnífar, djúpsteikingarpottar, dósahnífar, eggjasjóðarar, handsugur, hárblásarar, hitamælar, hnífabrýni, hrærivélar, hraðsuðukönnur, matvinnsluvélar, rafmagnsofnar, ryksugur, ryk- og vatnssugur, safapressur, straujárn - og ótal margt-fleira. ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR NeftOc eTdHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR Dönsku NETTOIine innréttingarnar eru falleg og vöúduð vara á vægu verði. Við bjóðum þér allt sem þig vantar í eldhúsið, baðherbergið eða þvottahúsið, og þar að auki fataskápa í svefnherbergið, barnaherbergið eða anddyrið. Frí teiknivinna og tilbodsgerð. ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR flSSSSSS- IL FRl HEIMSENDING ■ FJARLÆGJUM GAMLA TÆKIÐ AN GREIÐSLU OPIÐ LAUGARDAG 10-16 OPIÐAÐRADAGA 9-18 HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI552 4420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.