Morgunblaðið - 22.03.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.03.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1996 43 ODDNY ÞORSTEINSDÓTTIR + Oddný J. Þor- steinsdóttir fæddist í Brimnes- hjáleigu við Seyðis- fjörð 14. desember árið 1900. Hún lést á Sjúkrahúsi Suð- urnesja 15. mars síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jóhanna Erlends- dóttir frá Jarð- langsstöðum í Mýrasýslu og Þor- steinn Jónsson, kennari og útvegs- bóndi, ættaður frá Gerði í Suðursveit. Móðir Þor- steins var Oddný Sveinsdóttir í Gerði, merk kona, skáldmælt og margfróð og stundaði lengi ljósmóðurstörf í Suðursveit.- Oddný átti eina systur - Guð- laugu sem látin er fyrir nokkr- um árum. Guðlaug var húsmóð- ir á Fáskrúðsfirði öll sín full- orðinsár. Faðir Oddnýjar lést þegar hún var fjögurra ára og fór hún þá til föðurbróður síns Bjarna Jónssonar og konu hans Soffíu Jónsdóttur en þau bjuggu á Gilsárvöllum í Borgar- firði eystra, þar ólst hún upp til fullorðinsára. Oddný nam ljósmóðurfræði í Reykjavík ár- in 1922-23 og stundaði ljósmóð- urstörf í heimabyggð sinni 1923-1929 og síðan oft í forföll- um starfandi ljósmóður og tók síðast á móti barni árið 1950. Hún kynntist Iækningaaðferð- um þeirra Erlings Filipussonar, grasalæknis og Þórunnar móð- ur hans og nam nokkuð af fræð- um þeirra. Hún var oft til kvödd að hjúkra sjúkum, einkum til að græða brunasár. Oddný var virkur félagi í kvenfélaginu Einingu á Borgar- firði. Árið 1927 giftist hún Sigvarði Bene- diktssyni frá Hof- strönd í Borgarfirði eystra og bjuggu þau síðan á þeirri jörð til ársins 1953 en það ár fluttust þau til Ytri-Njarð- víkur. Sigvarður var sonur hjónanna Benedikts Gíslason- ar og Þorbjargar Steinsdóttur. Þau hjón bjuggu í Litlu- vík og á fleiri jörðum í Borgar- firði. Sigvarður ólst upp hjá föðurbróður sínum Sigfúsi Gíslasyni á Hofströnd. Sigvarð- ur lést árið 1966 en Oddný bjó áfram í íbúð þeirra á Hólagötu 39 til ársins 1982 en þá fluttist hún í hús fóstursonar síns Sig- mars Ingasonar að Þórustíg 10 í Ytri- Njarðvík. Árið 1992 flutt- ist hún svo á Dvalarheimilið Hlévang í Keflavík og átti þar heima síðan. Síðustu mánuðina var hún á Sjúkrahúsi Suður- nesja og þar lést hún 15. mars 1996. Oddný og Sigvarður eign- uðust ekki börn en ólu upp tvo fóstursyni frá frumbernsku, Bjarnþór Aðalsteinsson sem lést árið 1965 og Sigmar Inga- son sem býr í Ytri-Njarðvík. Auk þess höfðu nokkrir ungl- ingar lengri og skemmri við- dvöl á heimili þeirra á Hof- strönd, lengst Magnús Jónsson frá Kjólsvík, nú látinn og Jó- hannes Kristinsson sem er bú- settur í Reykjavík. Oddný verður kvödd frá Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Hún nafna mín, eins og ég kall- aði hana alltaf, lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja snemma morguns 15. mars sl. eftir erfiða sjúkralegu og langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Ég man fyrst eftir henni nöfnu minni þegar hún kom heim í Reyk- holt í Fáskrúðsfirði að heimsækja mömmu sína (langömmu mína) og systur, þ.e. ömmu mína. Ég man að sem barni fannst mér alltaf svolítið skrýtið en mjög merkilegt að heita nákvæmlega sama nafni og einhver annar, en það var yndislegt og sér- stakt að eiga slíka nöfnu sem hún var. Eftir að ég kom suður í skóla eyddi ég oft fríum hjá henni á Hóla- götunni og var hún mér alltaf sem besta amma. Nafna var greind kona með sterk- an persónuleika, vönd að virðingu sinni og orðvör. Hún bar ekki tilfinn- ingar sínar á torg og hélt reisn sinni fram á síðasta dag. Hún var sérlega hjálpfús kona og þar sem veikindi voru annars vegar var hún ávallt reiðubúin að veita aðstoð og hlúa að af sinni einstöku nærfærni og kærleika. Nafna var lífsreynd kona. Fóst- ursonur hennar, Bjarnþór, lést eftir stranga legu aðeins nítján ára gam- all. Þetta var þung og erfið reynsla og var hún lengst af_ við sjúkrabeð hans þar til yfir láuk. Ári síðar missti hún eiginmann sinn og enn sem fyrr sýndi hún einstakan dugnað. Á erfið- um tímum gefur trúin styrk og ég veit að hún nafna mín átti sterka trúarvissu. Hún las oft í sálmabók- inni sinni og einn af uppáhalds sálm- um hennar var ,Skín, guðdóms sól á hugarhimni mínum“ eftir Ólínu Andrésdóttur og finnst mér hann lýsa svo vel hennar lífsskoðun. Við nafna áttum margar og góðar stundir saman, ekki síst nú hin seinni ár. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem ég átti með henni og mun aldr- ei gleyma þeim stundum sem ég sat við rúmið hennar á sjúkrahúsinu og hélt í höndina á henni, en það þótti henni svo notalegt. Síðasta skiptið sem ég sá hana var stuttu áður en hún dó, þá áttum við Elli yndislega stund með henni. Við sátum sitt hvoru megin við rúmið hennar og hlýjuðum henni á höndunum, því henni var oft svo kalt. Hún var glöð og naut þess að hlusta á sögur af börnunum okkar og gera að gamni sínu þrátt fyrir hversu veik hún var orðin, og farin að þrá það eitt að fá hvíldina. Þannig er síðasta minningin um hana og þannig mun ég ávallt minn- ast hennar. Ég vil þakka Guði fyrir að hafa átt svo langa samleið með nöfnu minni, en hún náði 95 ára aldri. Söknuðurinn er mikill, en minningarnar yndislegar sem við, öll Qölskyldan frá Reykholti, eigum. ,Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Briem.) Oddný Jóna Þorsteinsdóttir. Kæra Oddný. Það er komið að kveðjustund og mér finnst erfítt að hugsa til þess að þær verði ekki fleiri stundirnar sem við munum eiga saman. Kynni okkar voru ekki löng, rétt rúm fjög- ur ár. Ég minnist þess þegar ég hitti þig í fyrsta skipti í vetrarbyijun 1991. Það var í mér talsverður kyíði. En ég bægði kvíðanum frá og hugs- aði með mér, að manneskja sem hann Sigmar talar um með svo mik- illi hlýju, virðingu og væntumþykju, hún getur ekki verið hættuleg. Vissulega var það svo, að þú tókst mér einstaklega vel og sýndir mér alla tíð vinsemd og hlýju. Á þessari stundu er mér efst í huga sú reisn og sá kærleiki sem fylgdi þér og léttleiki í spori. Þegar þú gekkst föstum, traustum skrefum á milli hæða og um ganga, bæði hér heima í Laufási og á Hlévangi, það var ekki að sjá að þar væri á ferð kona á tíræðisaldri. Né heldur var það að sjá á handavinnunni þinni, sem þú varst að vinna við alveg fram á síðasta sumar. Prjónlesið þitt hefur hlýjað okkur mörgum og hannyrð- irnar frá þér prýða veggi og hillur. Allt unnið af stakri natni. Það var unun að sitja og hlusta á þig segja frá. Minni þitt var óbrigð- ult, bæði á gamla og nýja tímann, og þú fléttaðir gjarnan saman þjóð- legan fróðleik, frásögur af fólki og ættfræði ásamt lýsingum af stað- háttum svo úr varð lifandi frásögn um lífskjör fólks, bæði í blíðu og stríðu. Eðlilega leitaði hugur þinn oft austur á fírði. Þar voru rætur þínar og hugur þinn dvaldi oft hjá fólkinu á Borgarfirði eystra. En í raun var sama hvar borið var niður, fréttum dagsins í dag sýndir þú jafnmikinn áhuga og fréttum gær- dagsins, frammistöðu Njarðvíking- anna í körfuboltanum sem og öðrum landsmálafréttum og fréttum af vin- um og ættingjum. Þú lést þig kjör fólks miklu skipta og það hef ég fyrir satt að þú greidd- ir götu margra sem áttu við erfið- leika að stríða, hvort sem það var til lengri eða skemmri tíma. En kærleiksríkri hjálparhönd þinni vei- faðir þú ekki á torgum úti — þú vannst þín kærleiksverk í kyrrþey og krafðist ekki launa fyrir. Kær- t Innilegar þakkirfyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför BJÖRNS BJARNARSONAR fyrrv. ráðunautar hjá Búnaðarfélagi íslands, Hagamel 34, Reykjavík, Sérstakar þakkir til starfsfólks móttökudeildar hjúkrunarheimilis- ins Eirar. Rita Bjarnarson, Ella B. Bjarnarson, Helgi Torfason, Sigrún Bjarnarson, Magnús B. Eyþórsson, Jón Bjarnarson, Guðrún S. Karlsdóttir og barnabörn. t Af alhug þökkum við öllum, sem veittu okkur styrk, hlýju og huggun við andlát og jarðarför okkar elskulega SIGURBJÖRNS EINARSSONAR. Guð blessi ykkur öll. Svavar Már Einarsson, Sigfús Einarsson, Eyjólfur Vilhelmsson, Sigrún Sigurðardóttir, Sigfús B. Einarsson og ástvinir allir. leiksboðskapur Jesú Krists var þitt leiðarljós og trú þín á hann var afar sterk og traust. Síðustu mánuðir ævikvölds þíns voru á marga lund erfiðir. Þrek þitt þvarr smátt og smátt og kraftarnir leyfðu ekki að þú gætir unnið verk þín hjálparlaust og þú gast ekki tek- ið á móti gestum á sama hátt og áður. En þú gafst af hlýju þinni og kærleik til hinstu stundar. Við kveðjustundina þakka ég Guði fyrir að hafa leitt mig á þinn fund og gefið mér tækifæri til að nema af þér. Minningin um þig mun lifa með mér og vera mér leiðarljós á vegferð minni. Náð Guðs og friður veri með þér, kæra Oddný. Þess óskar þín einlæg, Lára G. Oddsdóttir. í dag kveðjum við hinstu kveðju Oddnýju J. Þorsteinsdóttur, hús- freyju og ljósmóður. Hún ólst upp á Borgarfirði eystra og bjó þar með manni sínum Sigvarði Benediktssyni til ársins 1953 er þau fluttust til Ytri-Njarðvíkur. Ég var enn barn að aldri þegar þau Oddný og Sigvarður fluttust í Njarðvíkurnar. Sigmar, fóstursonur þeirra, var giftur systur minni, Est- er, og í gegnum þau tengsl kynntist ég þeim hjónum og kom nokkrum sinnum á heimili þeirra á Hólagötu 39. En það var ekki fyrr en Oddný fluttist í húsið Laufás við Þórustíg, þar sem Ester og Sigmar bjuggu, að ég varð svo lánsöm að fá að kynn- ast henni betur. Oddný var um margt sérstök kona. Hún var fremur hlédræg og fram- koma hennar einkenndist af hógværð og mildi en þó var hún föst fyrir og ákveðin. Hún las mikið, var vel að sér um menn og málefni og var aldr- ei skoðanalaus. Hún hafði fádæma gott minni og bjó yfír miklum fróð- leik ekki síst um heimahagana og um lifnaðarhætti og verklag fólks á fyrri hluta aldarinnar. Það vár gaman að ræða við Oddnýju og fræðast af henni og hún var glettin og gaman- söm í góðra vina hópi. Sá sem býr yfir miklum fróðleik hlýtur að vera sjálfur fróðleiksfús og þannig var Oddný. Fram til síðustu stundar hélt hún andlegu þreki og heilbrigði og leitaðist eftir að fylgjast með því sem var að gerast í þjóðfélaginu. Það var ekki aðeins á andlega sviðinu sem Oddný var vel að sér. Þegar kom að heimilishaldi og mats- eld lék allt í höndum hennar og var til fyrirmyndar. Hún hafði ánægju af ýmiss konar hannyrðum sem báru hagleik hennar glöggt vitni og þær voru hennar aðalviðfangsefni síð- ustu æviárin. Það var gott að koma á heimili hennar í risinu í Laufási þar sem allt var fágað og hlutum raðað af smekkvísi. Sitja þar við gnægtaborð, horfa út á hafið og' njóta einlægrar gestrisni þessarar elskulegu konu. í þeim heimsóknum var aldrei gert ráð fyrir því að menn lifðu á brauði einu saman. Þetta eru ljúfar minningar. Ég þykist vita að Oddný hafi saknað heimahaganna og vinanna fyrir austan þótt aldrei hafi hún orðað slíkt, en langt fram á elliár fór hún austur á land á hveiju sumri og dvaldi þar í nokkrar vikur hjá skyldfólki og vinum. Þær ferðir voru henni ætíð tilhlökkunarefni. Aldrei heyrði ég hana gera nokkurn saman- burð á þeim tveim stöðum þar sem hún hafði búsetu um ævina. Oddný var grönn og fínleg kona. Hún var bein í baki og létt í spori og hvorugt breyttist þótt aldurinn yrði hár. Eg minnist þess er Oddný dvaldi fyrir nokkrum árum á heilsu- hælinu í Hveragerði að ég fór þang- að til að heimsækja hana. Ég vissi ekki herbergisnúmerið hennar og fann engan til að uppiýsa mig svo ég ráfaði um gangana í von um að hafa upp á henni. Ég lagði af stað inn eftir löngum gangi og sá þá hvar ung kona kom á móti mér frá hinum enda gangsins. Ég gekk til móts við hana og er við nálguðumst hvor aðra sá ég að þessi unga kona var Oddný sjálf. Hún var þá tæplega níræð og ég undraðist hreyfíngar hennar og allan limaburð sem minnti frekar á unga konu, jafnvel ungling. Ég held að unglegt fas hennar hafi endurspeglað þann ferskleika er hún bjó yfír í sál sinni og huga. Þótt líkaminn yrði undan að láta fyrir ellinni þá gaf hugurinn hvergi eftir. Æska mannsins er ekki bundin við neinn aldur. Æskan er gróandi sálar- innar og endist nákvæmlega jafn- lengi og þessi gróandi, segir Sigurð- ur Norðdal í bókinni Líf og dauði og þetta fannst mér sannast á Oddnýju. Við Sigurður, eiginmaður minn, vorum tíðir gestir hjá vinum okkar i Laufási og áttum þar margar dýr- mætar stundir. Þar eignuðumst við vináttu Oddnýjar sem var okkur mikils virði og við fáum seint full- þakkað. í dag kveðjum við þessa traustu og góðu konu með söknuði og þakklæti í huga. Sólveig Karvelsdóttir. + Bróðir minn og móðurbróðir, GUÐBJÖRN KRISTÓFER KETILSSON fyrrum bóndi að Hamri, Hörðudal, andaðist á dvalarheimilinu Fellsenda 20. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Gísli Ketiisson, Kristinn Breiðfjörð. Systir mín og fraenka okkar, GEIRLAUG ÞORBJARNARDÓTTIR, Akbraut, Eyrarbakka, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 23. mars kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Slysavarnafélag islands. Anna Þorbjarnardóttir og systkinabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför KARLS MAGNÚSSONAR, Jökulgrunni 9, Reykjavík. Sigurborg Guðmundsdóttir, Sigrún Karlsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.