Morgunblaðið - 22.03.1996, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1996 49
BREF TIL BLAÐSINS
Hvað er Nytjamarkað-
ur Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands?
Frá Ómarí Sigurðssyni:
EINS OG við vitum eru auðlindir
jarðar takmarkaðar, því er okkur
skyit að nýta þær af skynsemi.
Ennfremur að reyna að draga úr
mengun, auka gróðurvernd og nýta
hlutina betur en við höfum gert. í
því ljósi m.a. getur Nytjamarkaður
Rauða krossins orðið að gagni. Til-
gangur Nytjamarkaðarins er að
stuðla að betri nýtingu nytjahluta,
sem eru m.a. húsgögn, leikföng,
borðbúnaður, ísskápar og sjónvörp.
Hvernig berið þið ykkur að við
að endurnýja lífdaga þessara
hluta?
Þið getið t.d. látið þá fara í gegn-
um Nytjamarkað RRKÍ með því að
fara á næstu gámastöð Sorpu og
láta nytjahluti í nytjagám merktan
Nytjamarkaði RRKI.
í hverri gámastöð Sorpu er
aðeins einn gámur merktur
Nytjamarkaður RRKI.
Ég hvet ykkur til að spyija
starfsfólkið á gámastöðvunum um
nytjagám RRKÍ. Um ieið og þið
látið nytjahluti frá ykkur á þennan
hátt, eruð þið að vernda umhverfið
og styrkja gott málefni.
Hvað verður um
nytjahlutina?
Nytjahlutirnir eru yfirfarnir og
gert við þá ef þess er þörf, síðan
eru þeir seldir í Nytjamarkaðinum
þar sem allir geta verslað. Liknarfé-
iög á borð við Rauða krossinn,
Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðra-
styrksnefnd og Hjálpræðisherinn
hafa sérstakan aðgang fyrir sína
skjólstæðinga.
Markaðir eins og Nytjamarkaður
RRKÍ eru þekktir víða erlendis m.a
í Danmörku þar sem Rauði krossinn
NYTJAMARKAÐUR Rauða krossins.
rekur eitt hundrað slíka markaði.
Það er því ljóst að það er óþarfi
að eyðileggja hluti sem þið teljið
ykkur ekki hafa not fyrir af ein-
hveijum ástæðum. Með því að láta
þá í nytjagám merktan Rauða
krossinum eruð þið-að stuðla að
þrennu:
Umhverfisvernd, líknarfélög
hafa aðgang að nytjahlutum fyrir
sína skjólstæðinga og ágóða, ef ein-
hver er, lætur RRKÍ renna til líknar-
starfa.
Að endingu, þeir sem hafa gert
þetta kleift fyrir utan einstaklinga,
fyrirtæki og stofnanir eru: Reykja-
víkurdeild Rauða kross íslands,
Sorpa, íslandsbanki, Byko, Hreins-
un og flutningar, Gámaþjónustan,
Slippfélagið/Málningarverksmiðj-
an.
Nytjamarkaðurinn er til húsa að
Bolholti 6. Afgreiðslutími er frá kl.
13 til 18, mánudaga til föstudaga.
Þeir sem vilja nánari upplýsingar
geta hringt í okkur í síma
588-1440.
ÓMAR SIGURÐSSON,
forstöðumaður.
Menning til
menntunar
Frá Guðrúnu Jónsdóttur og
Sóley Veturíiðadóttur
BANDALAG íslenskra sérskóla-
nema (BÍSN) gefur sig út fyrir það
að styðja félagsmenn sína á sviði
lánasjóðsmála og annarra hagsmuna
er námsmenn varða. Ekki eru þessi
samtök þó eingöngu að sinna því
heldur reyna þau að stuðla að því
að menningarlegur andi fái svifið
yfir námsmönnum svona öðru
hveiju. Það vita það allir sem setið
hafa á skólabekk hversu það getur
tekið á sálartetrið að grúfa sig dag
og nótt yfir allskonar skruddur á
ýmsum tungumálum svo ekki sé
minnst á setu yfir kaldranalegum
lyklaborðum. Þegar líða fer á vo-
rönnina eru heilarnir orðnir svo vel
þjálfaðir í að snara ýmsum fræði-
heitum af ensku, dönsku, sænsku,
þýsku o.s.frv. yfir á íslensku að það
jafnast á við íjölþjóðlega orðabók.
Augun eru orðin ferköntuð með takt-
föstu blikki tölvubendilsins.
Þegar svo er komið er orðið tíma-
bært að lyfta sér örlítið upp og kynn-
ast félögum sínum í BÍSN. Góð leið
til þess er að mæta á þær uppákom-
ur sem hin árlega Menningarvika
hefur upp á að bjóða, en þó er ekki
alltaf það sama í boði. Ár hvert er
hugmyndaflæði mikið hjá þeim er
að Menningarviku standa og því
ýmislegt skemmtilegt hægt að gera
og allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi.
Meðal atburða á Menningarviku
í ár, sem nú er haldin í sjötta sinn,
má nefna ljósmyndamaraþon í boði
Regnbogaframköllunar og Hróa
hattar, listakvöld, kvikmyndasýn-
ingu, rokktónleika, keilumót og
dansleik svo eitthvað sé nefnt. Þess
má einnig geta að ljóða- og smá-
sagnakverið Læðingur kemur nú út
í annað sinn undir þessu nafni en í
tvö ár þar á undan kom út ljóðakver
sem ekki hafði neitt ákveðið nafn.
Læðingur inniheldur verk nemenda
úr skólunum innan BÍSN.
En af hveiju' að halda Menning-
ai-viku? Svarið við því er ósköp ein-
falt og augljóst öllum þeim sem
mætt hafa eða ætla sér að mæta á
atburði Menningarviku.
Innan vébanda BÍSN eru fimmtán
skólar og það segir sig sjálft að þar
kennir margra grasa í menningar-
og félagsflórunni. Að undirbúningi
Menningarviku standa nemendur úr
ólíkum skólum sem eiga það allir
sameiginlegt að hafa áhuga á að
kynnast fólki sem er að fást við ólíka
hluti. Vinnan við undirbúninginn er
sjálfboðavinna eins og allt annað
starf innan BÍSN.
Við viljum hvetja alla BÍSNara
og aðra að koma, sýna sig og sjá
alla hina. BISN er og verður aldrei
meira en það fólk sem innan félags-
ins er. Þegar áhugi félagsmanna er
lítill er við því að búast að félagið sé
í lægð. Um leið og almennur áhugi
vaknar á þessum hagsmunasamtök-
um verður BÍSN til alls líklegt. Hvað
er betra í baráttunni fyrir réttlátara
lánasjóðskerfi og hagkvæmum hús-
næðismálum en sterkt og öflugt fé-
lag sem er málsvari námsmanna?
Sýnið áhuga, styrkið BÍSN!
Gleðilega Menningarviku.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Fóstruskóla, meðstjórnandi BÍSN,
SÓLEY VETURLIÐADÓTTIR,
Þroskaþjálfaskóla íslands, vara-
formaður BÍSN.
Tilboðsdagar
Ioppskórinn
Útsölumarkaður
Austurstræti 20
Tegund: Salimex
Stærðir: 36-42
Litur: Svart rúskin
Verð: 995,-
Ath.!
Leðurfóðraðir
opps.kórinn
Utsölumarkaður
Austurstræti 20
sími: 552 2727
ESTEE LAUDER
ESTÉE LAUDER kynnir
DavWear
Super Anti Oxidant Complex
Spennandi nýjung í baráttunni
við ótímabæra öldrun húðarinnar.
DayWear dagkrem, sem inniheldur þrefalt varnarkerfi gegn
skaðlegum áhrifum umhverfisins, s.s. vegna þynningar
ósonlagsins, mengunar o.fl.
Einstakt oliulaust krem fyrir allar húðgerðir.
Kynningartilboð:
DayWear 50 ml. og ESTÉE LAUDER
þ/eosures þarfum 3,5 nil.
Verðkr.2.710. fe.
m
OayWear igp
-'M'IT Ami-Oxwl*111 ....
’-Vinoles.: ullra
Ráðgjafi frá ESTÉE LAUDER verður
í versluninni Söru í dag og á morgun.
Snyrtivöruverslun
Bankastræti 8,
sími 551 3140
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, simi
567-1800 ^
Löggild bílasala
Opið laugard. kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-18
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
Nýr bíll (óekinn) Suzuki Sidekick JXi '96
grásans., 5 g. (bein innsp.), spegilrúður
toppgrind o.fl. V. 1.980 þús.
MMC Lancer GLi Sedan '93, rauður, 5
g., ek. 56 þ.km. Gott eintak. V. 920 þús.
Pontiac Trans Sport SE ’92, rauður,
sjálfsk., ek. 73 þ. km. Fallegur bíll. V. 1.980
þús.
Mazda 121 1.3 16 ventla '92, 5 dyra, 5
g., ek. 50 þ. V. 750 þús.Tilboðsverð 650
þús.
Mazda 323 1.6 GLX 4x4 Station ’94,
steingrár, 5 g., ek. 58 þ. km., álfelgur o.fl.
V. 1.180 þús.
BMW 316i '93, ek. 52 þ. km., 5 g., 4ra
dyra, hvítur, 2 dekkjagangar. V. 1.600
þús. Sk. á dýrari jeppa, allt að 2,3 millj.
V.W. Golf CL '92, 3ja dyra, hvítur, ek. 110
þ. km., fallegur bíll. V. 680 þús. Sk. á
dýrari 4ra eða 5 dyra bíl.
Toyota Landcruiser stuttur bensín ’88,
steingrár, 5 g., 33“ dekk, álfelgur. V. 1.190
þús. Sk. ód.
Fiat Panda 4x4 '90, hvítur, 5 g., ek. 43
þ. km., bíll í toppstandi. V. 390 þús.
Suzuki Fox langur '86, hvítur, 33“ dekk
B-23 Volvo-vél. V. 590 þús. Tilboðsv. 490
þús.
Grand Cherokee Limited V-8 ’94, ek. 15
þ. km., grænsans., einn með öllu, gullfal
legur bíll. V. 3.950 þús.
Mazda 323 F 1600 ’92, sjálfsk., ek. 54
þ., álfengur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.080
þús. Tilboðsverð kr. 990 þús.
Plymouth Voyager SE ’95, 7 manna, blár,
sjálfsk. (6 cyl.), ek. 18 þ.km. Rafm. í rúðum
o.fl. Sem nýr. V. 2.850 þús.
Audi 100 C '86, 4 g., ek. 180 þ. Góður
bíll. V. 450 þús.
Nissan Patrol diesel turbo Hi Roof (lang-
ur) '86, 5 g., ek. 220 þ.km. 36“ dekk,
spil o.fl. Mikið endurnýjaður. V. 1.550 þús.
M. Benz 280 SEL '82, sjálfsk., ek. 177
þ.km. rafm. í öllu, 2 dekkjagangar. Óvenju
gott eintak. V. 1.250 þús.
Hyundai Accent GS Sedan '95, ek. aðeins
4 þ.km. V. 960 þús.
Nissan Patrol Turbo diesel langur ’92, 5
g., ek. 156 þ.km., rafm. í rúðum, !æst
drif, áfelgur o.fl. V. 2.550 þús.
Dodge Grand Caravan LE 4x4, 7 manna.
'91, 4 captain stólar og bekkur, ABS
bremsur og loftpúði í stýri, rafm. í öllu
samlæsingar, ek. 96 þ.km. V. 1.980 þús.
Honda Accord EX ’91, rauður, sjálfsk
ek. 102 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu, álfelg
ur o.fl. V. 1.090 þús.
Toyota Hi Lux Extra Cap '91, ek. 80 þ.
km., plasthús, flækjur, 38“ dekk, álfelgur,
5:71 drifhlutföll. No-Spin að aftan, geisl
asp. o.fl. V. 1.580 þús.
Toyota Landcruiser GX diesel Turbo '93,
5 dyra, sjálfsk., ek. 77 þ. km., 33“ dekk,
brettakantar, álfelgur o.fl. V. 3,9 millj.
Sk. ód.
Bílar á tilboðsverði:
Mazda 323 GLX 3ja dyra ’86, hvít-
ur, 5 g., ek. 100 þ. km. á vél, spoil-
er o.fl. V. 330 þús. Tilboðsv. 230
þús.
Dodge Aries ’87, 2ja dyra, sjálfsk.,
ek. 95 þ. km., brúnsans. V. 390
þús. Tilboðsv. 270 þús.
M. Benz 250 ’82, blár. V. 390 þús.
Tilboðsv. 250 þús.
MMC Pajero stuttur ’83, 32“ dekk,
upph. Fallegur og góður bill. V. 440
þús. Tilboðsv. 360 þús.
Nissan Micra ’88, 5 g., ek. 122 þ.
km. (langkeyrsla). V. 280 þús. Til-
boðsv. 190 þús.
Lada Samara 1500 ’90, 5 g., ek. 80
þ. km. V. 220 þús. Tilboðsv. 150 þús.