Morgunblaðið - 22.03.1996, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1996 53
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/RAX
EINS OG sjá má er saniheldni mikil hjá liðsmönnum holiensku
pönksveitarinnar' Bobwire.
Pönkið blómstr-
ar í Hollandi
Pönkaramir í hollensku sveitinni Bobwire
em ekki eins ógnvekjandi og tónlist þeirra
gefur óreyndum ef til vill til kynna. Að
minnsta kosti slapp blaðamaður Morgun-
blaðsins óskaddaður frá þessu viðtali.
BOBWIRE hefur starfað, með hlé-
um, í áratug, eða frá árinu 1986.
Reyndar höfðu liðsmenn sveitarinn-
ar þá spilað í nokkurn tíma undir
nafninu Delirium,
svo sjá má að um
enga nýgræðinga er
að ræða. Þeir lýsa
tónlist sinni sem
blöndu af pönki og
„hardcore“-rokki.
Hvernig er að
starfrækja pönksveit
í Hollandi? „Það er
frekar erfitt, þar sem
samkeppnin er mikil.
Pönksveitimar eru
margar og bítast um
hylli tiltölulega fárra
pönkaðdáenda. En
það er gaman. Betra
en að safna frímerkj-
um,“ segir Eric, söngvari. „Og þó,“
segir Peter trommuleikari. „Hann
er frímerkjasafnari," útskýrir Eric.
Peter gerir sig líklegan til að hreyfa
andmælum, en þau kafna í næstu
spurningu.
Koma stjórnmál eitthvað við sögu
í hollensku pönki? „Pólitískur rétt-
trúnaður er afar áberandi meðal
pönkara í Hollandi. Ef maður er
kjötæta liggur við að líf manns sé
í hættu, svo dæmi sé tekið. Við
erum aftur á móti fylgjandi frelsi
á öllum sviðum.
„Gerðu það sem þig
langar til og vertu
sá sem þú vilt vera,“
er viðkvæðið hjá
okkur. Okkur er illa
við alls konar reglur
og um það snýst
pönktónlistin að
okkar viti.“
Hljómsveitin
heldur ferna tón-
leika hér á landi um
helginja. I gærkvöldi
spilaði hún ásamt
Botnleðju í Rósen-
bergkjallaranum og
í dag heldur hún síð-
degistónleika í Hinu húsinu. í kvöld
stígur hún á stokk í Norðurkjallara
MH og munu hljómsveitirnar Maus,
Saktmóðigur og Örkuml verða
henni til halds og trausts. Sömu
sveitir hita upp fyrir sveitina á loka-
tónleikum hennar hér á landi í bili,
sem haldnir verða annað kvöld á
Tveimur vinum.
BOBWIRE hefur gefið
út þrjár vínilplötur og
hyggjast liðsmenn
gefa út geislaplötu á
næstunni.
Kópavogur Kópavogur!
Föstudagskvöld
Tríóíð Kjarfan og Stuðsystur.
Laugardagskvöld
miómsveitin Asar.___________ Veitingastaðurinn
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SIMI 587 5090
Gömlu dansarnir í kvöld.
Hljómsveitin Ármenn ásamt söngkonunni ^
Mattý syngja og leika tyrir dansi.
tiins leitandi og sisvanga
kr mm TnTí aÆU >éá m
oo i Bóhsdlu studenta. Veitingar milli
5 k I. 23. Ifl FZlTTi
PEPSl
MAX
í k-oíd
GEIRMUNDUR
VALTÝSSONAR
ÁSAMT HLJÓMSYEIT
GARDATORGI
/ . ''íT'i' " s' 'V.'
FÖSTUDAGS-
OG
LAUGARDAGSKVÖLD
HLJÓMSVEIT
ÖNNU VILHJÁLMS.
Blönduð tónlist stórt dansgólf
ENGINN
AÐGANGSEYRIR
Verið velkomin Pripps léttöl
GaröahrSin—Fossinn
Gengið inn GARÐATORGSMEGIN
sími 5659060, lax 5659075
/
þin sagai
Upplifið söng, glens og gaman í SÚLNASAL
með hinum óviðjafnanlegu Borgardætrum en þær kunna
svo sannarlega að skapa ósvikna stemningu.
Ásamt Borgardætrum koma fram Ragnar Bjarnason og
stórhljómsveit undir stjórn Eyþórs Gunnarssonar.
Danshlj ómsveitin
SAGA KLASS leikur fyrir
dansi ásamt söngvurunum
Sigrúnu Evu Ármannsdóttur
og Reyni Guðmundssyni.
Borðapantanir á Borgardætur eru í síma 552 9900.
Listamennirnir
Raggi Bjarna og
Stefán Jökulsson
halda uppi stuðinu á
MÍMISBAR.