Morgunblaðið - 24.04.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996 13
LANDIÐ
Bændur ræða fjármál,
og lífræna ræktun
Veður-
barinn á
Vopnafírði
Vopnafirði - Veðurbarinn heitir bar sem
opnaður var á Hótel Tanga á Vopnafirði
um síðustu helgi. Eigendur og rekstrar-
aðilar hótelsins eru hjónin Svava Víg-
lundsdóttir og Bjarni Magnússon. Salir
hótelsins hafa verið endurbættir og hús-
næðið stækkað. Snorri Guðvarðsson,
málari, hefur haft veg og vanda að
skreytilist veggja svo segja má að hér
sé um eitt allsherjar listaverk Snorra að
ræða.
Sérstakur verndari Veðurbarsins er
Magnús Jónsson, veðurstofusljóri, sem
því miður gat ekki verið viðstaddur opn-
unina vegna veðurs. Það er vel við hæfi
að minna á veðrið hér á Vopnafirði sem
oft státar af hæsta hitastigi á landinu á
heitum sumardögum í brakandi hita og
sunnan hnúkaþey.
Ein af skreytilistum staðarins auk veð-
urkorta og veðurlína er gamalt veður-
skeyti frá árinu 1988 sem hljóðar þann-
Morgunblaðið/Pétur H. ísleifsson
EIGENDUR Veðurbarsins þau Bjarni
Magnússon og Svava Viglundsdóttir.
ig: 04085 ísland Vopnafjörður, 2518, júní
klukkan 18...10286 Hámarkshiti, hitastig
28,6 gráður af celsíus...30*24=Skeyti
lokið.
Egilsstöðum - Aðalfundur Búnaðarsambands
Austurlands var haldinn á Iðavöllum, fimtudag-
inn 18. apríl sl. Að þessu sinni var fundarstörf-
um lokið á einum degi, en venjan hefur verið
að fundurinn taki tvo daga og sé haldinn í júní.
Eignastaða sambandsins er góð en lausafjár-
staða slæm. Fundurinn beindi því til stjórnar
að bregðast við vandanum með sölu eigna og
hagræðingu í rekstri. Búnaðarsambandið réðst
í stóra útgáfu á s.l. ári en það var ritið ,Bú-
kolla" - Sveitir og jarðir í Múlaþingi, og er
sölu bókarinnar ekki lokið enn. Fundurinn fól
stjórn að vinna að því markmiði varðandi störf
ráðunauta að faglegar leiðbeiningar ráðunauta
verði forgangsverkefni og að þau störf verði
jafnframt aðskilin frá eftirlits- og stjórnsýslu-
störfum.
Há sæðingargjöld
Mestur tími í umræðu fór í að ræða um rekst-
ur sæðingarstöðvar á Héraði sem Búnaðarsam-
band Austurlands tók að sér á s.l. ári. Áður
voru 5 stjjðvar á sambandssvæðinu sem reknar
voru af nautgriparæktarfélögum. Sambandið
tók einnig við og sameinaði rekstur tveggja
annarra stöðva sunnan Reyðarfjarðar, á þessu
ári. Bændur sögðu gjöldin hafa hækkað við
yfirtöku sambandsins á sæðingarstöðvunum
og hækkunina vera e.t.v. meiri er þörf var á.
Útflutningur og lífræn ræktun
Fundurinn lagði þunga áherslu á að sláturleyf-
ishafar á Austurlandi nái samkomulagi um
slátrun og afurðasölu, þ.m.t. útflutning afurða.
Talsverður áhugi er meðal einhverra bænda
að reyna fyrir sér í lífrænni framleiðslu og
margir sauðfjárbændur eygja möguleika á að
fá viðurkennda vistræna framleiðslu. Beindu
bændur því til stjórnar að stuðlað yrði að því
að slíkir gripir geti komið til slátrunar en slát-
urhúsin þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til
þess að taka á móti lífrænni og vistrænni fram-
leiðslu.
Stjóm Búnaðarsambands Austurlands skipa:
Þorsteinn Kristjánsson, Borgarfirði, formaður,
Anna Bryndís Tryggvadóttir, Fljótsdal, Sigur-
bjöm Snæþórsson, Eiðahreppi, Ólafur Eggerts-
son, Berufirði og nýr stjómarmaður er Frið-
bjöm Haukur Guðmundsson, Vopnafirði en hann
tekur við af Birni Halldórssyni frá Vopnafirði.
Hjá sambandinu eru 3 ráðunautar í fullu starfí,
einn í hlutastarfí og einn skrifstofumaður.
Húnavaka
að hefjast
Myndlist, guðsorð og
rokktónlist meðal
dagskráratriða
Blönduósi - Húnavaka, hin árlega
menningarvaka Ungmennasambands
Austur-Húnavatnssýslu (USAH),
hefst síðasta vetrardag með tónleik-
um í Blönduóskirkju og lýkur með
dansleik laugardagskvöldið 27. apríl.
Eins og fyrr greinir hefst Húna-
vakan í Blönduóskirkju með tónleik-
um hvar syngja Grundartangakórinn
og kvennakórinn Ymur frá Akra-
nesi. Að tónleikum loknum verður
dansleikur í féiagsheimilinu og sjá
Norðan þrír og Asdís um fjörið.
Sumardaginn fyrsta verður messa
í Blönduóskirkju og eftir hádegi verð-
ur hin árlega sumarskemmtun
grunnskóla Blönduóss. Að kvöldi
sumardagsins fyrsta verður opið hús
fyrir eldri borgara sýslunnar og boð-
ið upp á fjölbreytt skemmtiefni.
Föstudagskvöldið verður helgað
unglingum sýslunnar og verður dans-
leikur þeim til heiðurs í félagsheimil-
inu og sér blönduóska hljómsveitin
BCLD um að halda uppi fjörinu.
Lokadag Húnavöku verður opnuð
myndlistarsýning á Sveitasetrinu.
Kristíne Elfride verður með sýningu
á þrívíðum klippimyndum og stendur
sýningin til 1. maí. Lokadansleikur
Húnavöku verður síðan á Sveitasetr-
inu og mun rokkarinn Rúnar Þór sjá
um fjörið. Sveitasetrið á Blönduósi
sér gestum og gangandi fyrir ljúf-
fengum veitingum meðan Húnavak-
an stendur.
------».♦.4-----
Félag stofnað
um lífræna
ræktun
Arnarneshreppi - Á öðrum fundi
sínum í Varmahlíð stofnaði áhuga-
fólk félagið Grósku, félag áhugafólks
á Norðurlandi um lífrænt ræktaðar
afurðir.
Umræður um lífræna ræktun hafa
jafnt og þétt aukist í þjóðfélaginu.
Þessu fólki, sem kom austan úr Þin-
geyjarsýslu og vestan frá Strcndum,
þótti rétt að stofna þetta félag til að
geta betur fylgst með því sem er að
gerast á þessu sviði og haft áhrif
eftir því sem ástæða er til. Stofnend-
ur Grósku vilja m.a. efla samstarf og
samvinnu neytenda og framleiðenda.
í fyrstu stjórn voru kosnir Jósavin
Arason, Arnarnesi, formaður, Rögn-
valdur Símonarson, Björk, Eyjafjarð-
arsveit, og Diðrik Jóhannsson, Akur-
eyri. Þeir sem óska að gerast félagar
geta snúið sér til stjórnarmanna.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
FRÁ vígslu iþróttahússins á Flateyri.
íþróttahúsið á
Flateyri vígt
Flateyri - Loksins, loksins gætu
Flateyringar hafa hugsað þegar
hið stórglæsilega íþróttahús
þeirra var vígt um hclgina að
viðstöddu fjölmenni hvaðanæva
að. Liðin eru hartnær 24 ár síð-
an hugmyndir voru fyrst reifað-
ar um byggingu íþróttahús.
Fyrst í stað var rætt um bygg-
ingu bráðabirgðasundlaugar. I
febrúarlok 1974 var siðan lögð
fram teikning að sundlaug og
íþróttahúsi unnin af Jes Einari
Þorsteinssyni. Áætlaður kostn-
aður á þeim tíma var 85 milljón-
ir. Tillöguteikningin gekk í
gegnum ýmsar breytingar eða
þangað til hún var endanlega
samþykkt í apríl 1974.
Þetta og ýmislegt annað varð-
andi byggingu hússins kom fram
í ræðu Kristjáns Jóhannssonar
sveitarstjóra við opnunarathöfn
hússins. Að lokinni ræðu Krist-
jáns kallaði hann á Sigurð Haf-
berg umsjónarmann hússins og
afhenti honurn lykil af stærri
gerðinni.
Margar góðar gjafir bæði í
formi blóma og peningagjafa
bárust sveitarfélaginu. Kristján
færði þakkir öllum þeim sem
lögðu hönd á plóginn bæði í
formi sjálfboðaliðavinnu og
einnig Iaunaðrar vinnu. Oft var
þetta erfitt en þetta hafðist með
samstilltu átaki allra.
Að lokinni ræðu Kristjáns
blessaði séra Gunnar Björnsson
húsið. Við tóku síðan fjölmörg
ávörp. Karlakórinn Ernir söng
nokkur lög. Vígsluathöfninni
lauk síðan með kaffi og dýrind-
is tertuhlaðborði.
Mesta fólksfjölgunin
á Hvammstanga
Hvammstanga - I búafjölgun varð
mest á Hvammstanga af þéttbýlis-
stöðum á Norðurlandi vestra á liðnu
ári, miðað við 1. desember 1995.
Fæðingar í læknishéraði Hvamms-
tanga voru yfír landsmeðaltali, eða
1,5 af hundraði. Alls fæddist 21 barn,
þar af tvennir tvíburar.
Fæðingardeild er ekki á Hvamms-
tanga og fara því verðandi mæður á
Blönduós, Akureyri, Akranes eða til
Reykjavíkur. Kvenfélagið Björk á
Hvammstanga færði Heilsugæslu-
stöðinni á dögunum fullkomna tölvu-
vog fyrir ungbörn, með ósk um far-
sæla starfsemi.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
UNGBARNAVOGIN afhent, f.v.: Sigríður Ragnarsdóttir, Sigríður
Ingólfsdóttir og Hermína Gunnarsdóttir, allar í stjórn kvenfélags-
ins, Helga Stefánsdóttir ljósmóðir, Guðrún Benónýsdóttir hjúkrun-
arfræðingur og Gísli Þórörn Júlíusson heilsugæslulæknir.