Morgunblaðið - 25.04.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Deilur í bæjarstjórn Egilsstaða vegna staðsetningar vegar ogbrúaryfír Eyvindará
FRETTIR
Hefur áhrif á sam-
starf í meirihlutanum
„ÓNEITANLEGA mun þessi niður-
staða og það hvaða bæjarfulltrúar
taka þátt í henni hafa áhrif á okk-
ar samstarf, það getur ekki orðið
öðruvísi. En við höfum ekki tekið
neinar ákvarðanir um að slíta sam-
starfinu," segir Þuríður Bachman,
oddviti alþýðubandalagsmanna og
forseti bæjarstiómar Egilsstaða,
um áframhaldandi meirihlutasam-
starf við Sjálfstæðisflokk eftir þann
klofning sem varð í meirihlutanum
við afgreiðslu tillagna um staðsetn-
ingu brúar á Eyvindará.
Einar Rafn Haraldsson, oddviti
sjálfstæðismanna og formaður bæj-
arráðs, segir að ekkert hafi komið
fram um að breyting yrði á meiri-
hlutanum.
Brúin á Eyvindará á Seyðisfjarð-
arvegi þar sem hann kemur inn í
Egilsstaðaþorp er orðin léleg og
nauðsynlegt talið að byggja nýja
brú. Umræður um nýtt brúarstæði
hafa staðið í nokkur ár. Á síðast-
liðnu ári fóru línur að skýrast og
tveir staðir komu einkum til greina.
Annars vegar að byggja nýja brú
yfir Eyvindarárgil, 50 metrum neð-
an við núverandi brú, og hins vegar
að byggja nýja brú við Melshorn.
Seinni kosturinn hefði í för með sér
færslu Seyðisfjarðar- og Borgar-
fjarðarvegar þannig að umferðin
færi framhjá þorpinu, meðal annars
umferðin að og frá bílfeijunni Nor-
rænu á sumrin.
Vegagerðin leggur til að vegur-
inn verði færður og byggð brú við
Melshorn. í drögum að nýju um-
hverfismati, sem hún er að láta
vinna, kemur fram það álit að hag-
kvæmara sé að fara þá leið. Niður-
staðan er eftirfarandi: „Fyrir þá
sem leið eiga um Seyðisfjarðar- og
Borgarfjarðarveg styttast leiðir og
betri aðkoma verður að Hringvegin-
um, flugvelli og helstu þjónustu-
stofnunum og fyrirtækjum á Egils-
stöðum. Dreifing umferðar verður
meiri og öryggi meira. Nýir skipu-
lagsmöguleikar skapast og umgjörð
Eyvindarárgilsins verður ekki rask-
að. Búskaparskilyrði versna nokkuð
og e.t.v. þarf að flýta flutningi á
vatnsbóli Egilsstaðabæjar.“
Mælt með óbreyttri legu
Skiptar skóðanir hafa verið með-
al íbúa og forystumanna Egils-
staðabæjar um málið. Bæjarstjórn
hefur nú samþykkt að mæla með
óbreyttri legu vegarins. Fulltrúar
minnihlutans, framsóknarmenn og
óháðir, samþykktu tillögu Sjálf-
stæðisflokksins þess efnis en full-
trúar Alþýðubandalagsins vildu
færa veginn.
Einar Rafn Haraldsson, oddviti
sjálfstæðismanna, segir að málið
sé búið að vera lengi í farvatninu
og nú sé því lokið. Hann segir að
rök séu með og móti báðum leiðun-
um. Það hafi ráðið mestu um af-
stöðu sjálfstæðismanna að fólk hafi
byggt upp atvinnurekstur og þjón-
ustu eftir núgildandi skipulagi bæj-
arins þar sem gert sé ráð fýrir
óbreyttúm vegi. Ekki sé ljóst hvaða
áhrif færsla vegarins hefði á hags-
muni þeirra. „Ekki er tryggt að
bærinn beri ekki skarðan hlut frá
borði. Við vitum hvað við höfum
en ekki hvað við fáum,“ segir hann.
Gagnrýnir vinnubrögð
Þurðíður Bachman, oddviti al-
þýðubandalagsmanna, segir að af-
staða flokksins ráðist af forsendum
skipulags, náttúruverndar og at-
vinnu. Segir hún að færsla vegarins
myndi gera vegakerfið einfaldara
og dreifa umferðinni og þar með
auka umferðaröryggi. Þá myndi nýr
vegur opna möguleika á nýju iðnað-
arhverfi en á því væri þörf hvar sem
brúin yrði byggð.
Hún rifjar það upp að í málefna-
samningi meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðubandalags sé
ákvæði um endurskoðun brúar-
stæðis með fyrirvara um arðsemis-
mat og sami fyrirvari sé í sam-
þykktu aðalskipulagi. Á síðasta ári
hafí komið arðsemismat og það
hafi verið jákvætt fyrir brú við
Melshorn en þrátt fyrir það hafi
sjálfstæðismenn skipt um skoðun.
Nú væri einnig komið nýtt umhverf-
ismat sem styddi sjónarmið alþýðu-
bandalagsmanna.
Þuríður telur að afstaða sjálf-
stæðismanna eigi eftir að hafa áhrif
á samstarf flokkanna og ekki síður
hvernig þeir stóðu að málum. Þann-
ig hafi annar fulltrúi sjálfstæðis-
manna, Bjami Elvar Pétursson, sem
væri fluttur af staðnum þótt hann
hefði þar enn lögheimili, mætt á
fundinn til að greiða atkvæði í
málinu en óskað síðan eftir leyfi frá
störfum. í þessu sambandi vekur
hún athygli á því að fyrsti varamað-
ur sjálfstæðismanna, Guðmundur
Steingrímsson, sé yfirlýstur fylgis-
maður færslu vegarins. „Ókkur
misbýður þessi vinnubrögð," segir
Þuríður en tekur það fram að ekki
sé hægt að horfa til þessa eina
máls við ákvörðun um áframhald-
andi samstarfs. „Við teljum okkur
vera að ná árangri á öðrum sviðum
og verðum að líta á heildarmyndina
þegar við hugsum okkar gang,“
segir hún.
Vegagerðin mun nú senda Skipu-
lagi ríkisins umhverfismat það sem
verið er að ljúka við og mun Skipu-
lagið auglýsa matsskýrsluna. Álit
bæjarstjórnar Egilsstaða fer vænt-
anlega þar með. Að loknum um-
sagnarfresti mun Skipulagið úr-
skurða hvort það fellst á tillögu
Vegagerðarinnar eða hafnar henni.
Margrét Frímannsdóttir vegna forræðismáls Sophiu Hansen
Eðlilegt að skoða
fjárhagslega aðstoð
MARGRÉTI Frímannsdóttur, vara-
formanni íslandsdeildar Alþjóða-
þíngmannásambandsins, fínnst eðli-
legt og nauðsynlegt að af hálfu ís-
Ienska ríkisins sé skoðað hvernig
hægt verði að veita Sophiu Hansen
fjárhagslega aðstoð vegna kostnaðar
við forræðismál hennar í Tyrklandi.
Hún gagnrýnir að utanríkisráðherra
skuli ekki hafa svarað erindi fulltrúa
allra flokka vegna málsins frá því í
fyrravor. Forræðismál Sophiu Han-
sen verður tekið fyrir í undirrétti í
Istanbúl í Tyrklandi í dag.
„Ég á fastlegá vön á því að menn
séu að skoða hvernig hægt sé að
hjálpa Sophiu því að skuldirnar eru
orðnar mjög miklar, m.a. vegna
flugs, síma og ýmislegs sem við
gætuni kannski með tiltÖlulega auð-
veldum hætti komið inn í. Mér finnst
það vera eðlilegt og nauðsynlegt því
að þetta er líka ákveðið prófmál sem
er þarna í gangi og það á sér ekki,
sem betur fer, hliðstæðu hérna,“
sagði Margrét. Hjá henni kom fram
að skuldir Sophiu nálguðust samtals
um 40 milijónir króna. „Hluti af því
gæti hugsanlega skilað sér á söfnun-
arreikning. En auðvitað nær ekki
nokkurri átt að lífvörðurinn hennar
hafí þurft að borga símann úti til
að hann væri opinri."
Peuingaáhyggj ur
að sliga Sophiu
Margrét sagði að peningaáhyggj-
urnar væri að sliga Sophiu. „Þó að
við getum kannski ekki rriikið gert
á meðan málið er nákvæmlega statt
í dómskerfínu liði henni betur ef
rætt væri við hana og sýndur ein-
hver litur," sagði hún. Hún tók fram
að fulltrúar allra flokka hefðu sent
utanríkisráðherra bréf og beðið um
fund um málið sl. vor. Hugsunin
hefðu verið sú að farið yrði yfir stöðu
forræðismálsins og hvað íslensk
stjórnvöld gæti gert til hjálpar. Bréf-
inu hefði hins vegar því miður ekki
einu sinni verið svarað.
Margrét sótti fund Alþjóðaþing-
mannasamtakanna í Tyrklandi í síð-
ustu viku. Henni gafst í þeirri ferð
tækifæri til að tala við Hasíp Ka-
plan, lögmann Sophiu. Hún hafði
eftir honum að nánast væri öruggt
að endanleg niðurstaða fengist í for-
ræðismálið innan sex mánaða.
Morgunblaðið/Emilía
ÁGUSTA R. Jónsdóttir, fulltrúi sýslumannsins í Reykjavík,
tryggði að tombólan færi fram með löglegum hætti. Með henni
á myndinni er Finnbogi Gylfason, fulltrúi Landsbjargar.
Landsbjörg setur á
laggir Gíró-tombólu
Þingsályktunartillaga á Alþingi
Meiðyrðalöggj öf
verði endurskoðuð
LÖGÐ hefur verið fram þingsálykt-
unartillaga á Alþingi, þar sem skor-
að er á ríkisstjórnina að hraða end-
urskoðun þeirra ákvæða hegningar-
laganna sem fjalla um meiðyrði.
Einnig er lagt til að ríkisstjóm-
inni verði falið að láta semja sér-
stakt lagafrumvarp um framkvæmd
á þeim ákvæðum stjórnarskrárinnar
sem eiga að tryggja prentfrelsi.
Höfð verði hliðsjón af þeim laga-
ákvæðum sem eiga að tryggja
prentfrelsi og tjáningarfrelsi í
grannlöndunum en þess verði jafn-
framt gætt að taka mið af nýrri
tækni í fjölmiðlum.
Úrelt löggjöf
Flutningsmenn eru Svavar
Gestsson, Jón Kristjánsson, Krist-
inn H. Gunnarsson og Kristín Hall-
dórsdóttir. í greinargerð kemur
m.a. fram, að meiðyrðalöggjöfin sé
úrelt, eins og nú sé háttað fjölmiðl-
un. Engu að síður þurfi að vera til
löggjöf sem veiji fólk eins og kost-
ur er fyrir meiðyrðum og ósönnum
áburði og því sé nauðsynlegt að
setja lög um prentfrelsið sem hluta
af tjáningarfrelsinu í heild.
LANDSBJÖRG hleypir af stokkun-
um fjáröflunartombólu með 100%
vinningshlutfalli eftir helgina. Tom-
bólan hefur fengið nafnið Gíró-tom-
bóla og felst í því að öllum Islending-
um á aldrinum 16 til 75 ára verður
sendur gíróséðill í pósti með tilkynn-
ingu um að viðkomandi eigi tomból-
umiða á næsta pósthúsi. Viðkomandi
fær svo tombólumiðann, þ.e. ávísun
á tombóluvinning, afhentan á póst-
húsinu gegn 989 kr. gjaldi. Smærri
vinningar verða afhentir á öllum
sölustöðum Skeljungs.
Finnbogi Gylfason, fulltrúi Lands-
bjargar, sagði að vinningamir yrðu
af ýmsu tagi. Hann sagði að tryggt
væri að allir fengju vinning og
smæstu vinningarnir væru að verð-
mæti 300 til 400 kr. Aftur á móti
væru um 50% líkur á því að viðkom-
andi kæmi út á sléttu eða í hagn-
aði. Af vinningum nefndi Finnbogi
tölvumargmiðlunarpakka, reiðhjól,
30.000 geisladiska, 25.000
kiljubækur frá Máli og menningu,
15.000 vasatölvur og 25 matarút-
tektir frá 10/11 verslununum að
verðmæti 10.000 kr. hver. Stærstu
vinningarnir eru tvær Honda Civic-
bifreiðar og 100 ferðavinningar til
borga í Evrópu.
175.000 gíróseðlar
Sendir verða út 175.000 gíróseðl-
ar og því til viðbótar hafa verið gefn-
ir út 25.000 tombólumiðar í lausa-
sölu. Finnbogi sagði að tombólan
væri eins og allar aðrar .tomþólur,
þ.e.a.s. engin núll. „Ágóðinn 'rérinur
til björgunarstarfa á vegum Lands-
bjargar sem er rík naúðsýri á :eftir
erfitt undangengið ár. % á þá sér-
staklega við snjóflóðin fýrir .vestan
í fyrra,“ sagði hann. Byijað verður
að auglýsa Gíró-tombóluna,, í sjón-
varpinu í kvöld. Gíróseðlarnir verða
svo sendir út eftir helgina.
Hugmyndin að Gíró-tombólunni
er alíslensk og á Landsbjörg von á
því að jafnstór tombóla með 100%
vinningshlutfall sé einsdæmi í heim-
inum.