Morgunblaðið - 25.04.1996, Blaðsíða 51
4
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996 51
MINNINGAR
GUÐMUNDUR
GÍSLASON
+ Guðmundur
Gíslason hús-
gagnasmiður fædd-
ist í Reykjavík 8.
apríl 1915. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli í
Reykjavík að kvöldi
mánudagsins 15.
apríl síðastliðins.
Foreldrar hans
voru hjónin Hall-
dóra Þórðardóttir,
f. 14.5. 1891, d.
25.1. 1984, frá
Ráðagerði á Sel-
tjarnarnesi og Gísli
Guðmundssonar, f. 6.7. 1884, d.
26.9. 1928, gerlafræðingur, frá
Hvammsvík í Kjós. Systir Guð-
mundar er Guðrún, f. 21.12.
1913. Hún var gift Þorvarði
Jónssyni og eignuðust þau eina
dóttur, Eddu.
Hinn 11. desember 1948
kvæntist Guðmundur eftirlif-
andi konu sinni, Guðbjörgu Sig-
urbergsdóttur, f. 10.5. 1921, frá
Eyri við Fáskrúðsfjörð. Guð-
mundur og Guðbjörg eiga þijár
dætur. Þær eru: 1) Dóra, f. 9.2.
1950, var gift Sören Videbæk
Nielsen, skilin. Eiga þau tvær
dætur, Birgitte, f. 12.12. 1977
og Barböru, f. 30.1. 1975. Barb-
ara og sambýlismaður hennar,
Denis Jörgensen, eiga einn son,
Nicholas Videbæk, f. 28.3. 1996.
2) Oddný, f. 25.8. 1952, var gift
Gunnari Dagbjartssyni, skilin.
Eiga þau tvö börn, Gísla Viðar,
f. 6.10. 1972, sambýliskona hans
er Margrét Þóra Guðmundsdótt-
ir, og Guðbjörgu, f. 2.8. 1970,
sem er gift Valdimari Jónssyni
og eiga þau tvö börn, Hörn, f.
20.10. 1993 og Atla Snæ, f. 29.1.
1996. Eiginmaður Oddnýjar er
Guðmundur Guðmundsson og
eiga þau tvö böm, Hildi Dröfn,
f. 26.9. 1981, og Guðmund, f.
12.7. 1983. 3) Ema, gift Daða
Jóhannessyni. Þeirra sonur er
Gauti, f. 27.8. 1995.
Útför Guðmundar fór fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
gær.
Crfisdrvkkjur
/ið
GflíH-m n
Sími 555-4477
Stúdentamyndir
PETUR PETURSSON
LJÓSMYNDASTÚDÍÓ
LAIIGAVEGI 21 • SÍMl 552 0624
í hugann koma
margar ljúfar minning-
ar sem ekki verða tekn-
ar frá okkur. T.d. hve
gaman það var að koma
með mömmu til þín á
verkstæðið í gamla
daga. Þar gafst þú okk-
ur alltaf litla kók og
„hundakex“ eins og við
kölluðum það. Kókið
var reyndar alltaf við
stofuhita en það skipti
engu máli, þetta var
alltaf jafn gott.
Minningin um hijúf-
ar en samt svo mjúkar
hendurnar sem struku yfir litla kolla
er ofarlega í huganum. Það færðist
yfir mann svo mikil ró, svo ekki sé
nú minnst á það þegar við fórum
í „fagur fiskur í sjó“. Hendurnar
minntu helst á fínan sandpappír.
Beijamóferðin sem þú og amma
fóruð með okkur í og Gilli týndi
húfunni sinni. Allt er þetta í svo
fersku minni.
Það er nú ekki hægt að segja
að þú hafir verið neinn brandara-
karl, afi minn, en það komu nú
stundum frá þér ansi fyndnir punkt-
ar. T.d. þegar mamma og amma
voru að segja þér frá því að búið
væri að skíra litla langafastrákinn
þinn og að hann héti Atli Snær.
Þú varst farinn að heyra illa og
sagðir: „Ha, heitir hann Asni
Hlær?“
Elsku afi, við vitum að það verð-
ur vel tekið á móti þér, eins ljúfur
og góður og þú varst. Guð geymi
þig og varðveiti.
Guðbjörg og Gísli Viðar
(Gugga og Gilli).
Elsku langafi. Mamma segir mér
að nú sért þú dáinn og farinn til
Guðs. Að Guð ætli að geyma þig
og varðveita því hann er alltaf svo
góður, alveg eins og þú varst.
Við áttum ekki langt líf saman
en þegar við hittumst þá langaði
mig alltaf að hlaupa til þín, kyssa
þig og knúsa, og það gerði ég. Það
gleður mig að vita hvað það gladdi
þig og gaf þér mikið, þessir fáu
kossar og faðmlög, og ég vona að
sú minning hafi fengið að fara með
þér til Guðs.
Ég á af þér myndir sem ég á oft
eftir að skoða og þannig mun minn-
ing þín lifa með mér.
Mig langar að lokum að deila
með þér bæninni minni, sem ég er
búin að læra og við mamma förum
alltaf með á kvöldin áður en ég fer
að sofa.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pét.)
Þín,
Hörn.
ERFIDRYKKJUR
Næg bílastæði
P E R L A N sími 562 0200
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðbord, fallegir
siilir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
os 562 7575
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LÖFTLEIÐIH
Elsku afi. Nú hefur þú fengið
hvíldina sem þú varst farinn að þrá
svo heitt og farið að líða aftur vel
eftir að hafa verið veikur um langt
skeið og liðið misvel á þeim tíma.
r
Framtíð Evrópu - nýsköpun
sem vopn í samkeppni
Ráðstefna um „grænbók“ framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins á sviði nýsköpunar
Scandic Hótel Loftleiðir mánudaginn 6. maí 1996, kl. 8.30 -17.00
Framkvæmdastjóm Evrópusambandsins gengst fyrir ráðstefnu um nýsköpun og samkeppnishæfni Evrópu
gagnvart Asíu og Bandaríkjunum og stöðu íslands í því samhengi. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við
Rannsóknarráð íslands, Utflutningsráð íslands og iðnaðarráðuneytið.
Markmið ráðstefnunnar er að kynna „grænbók“ framkvæmdastjómar Evrópusambandsins á sviði nýsköpunar
og hvetja til umræðu um skilyrði nýsköpunar og tillögur til úrbóta sem fram koma í bókinni.
Ráðstefnan er opin öllum þeim sem hafa áhuga á að móta nýsköpunarstefnu framtíðarinnar og vilja stuðla að
samkeppnishæfu atvinnulífi á Islandi.
Dagskrá:
Ávarp viðskipta- og iðnaðarráðherra, Finns Ingólfssonar.
Dr. Constant Gitzinger fulltrúi framkvæmdastjómar Evrópusambandsins kynnir „grænbókina“.
Dr. Vilhjálmur Lúðvíksson framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs íslands fjallar um stöðu nýsköpunar í íslensku
%
atvinnulífí.
Starf í vinnuhópum:
Vinnuhópur I:
Vinnuhópur II:
Vinnuhópur III:
Vinnuhópur IV:
Vinnuhópur V:
Matarhlé
Að beina rannsóknarstarfí að nýsköpun.
Að virkja mannauð í þágu nýsköpunar.
Að bæta skilyrði fyrir fjármögnun nýsköpunar.
Að bæta umhverfi nýsköpunar á sviði laga og reglugerða.
Að hvetja til nýsköpunar og nýtingar á nýrri tækni meðal lítilla og meðalstórra
fyrirtækja, sérstaklega svæðisbundið. Aðlaga hlutverk og aðferðir opinberra aðgerða
varðandi nýsköpun.
Niðurstöður starfsins í vinnuhópum kynntar
Umræður um niðurstöðumar
Fundarlok
Ráðstefnustjóri er Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands.
Pátttaka tilkynnist til Rannsóknarráðs íslands í síma 562 1320. Pátttakendum verður send „græn-
bókin“ og önnur fundargögn. Óskað er eftir því að menn geti þess við skráningu í hvaða vinnuhópi
þeir hafi áhuga á að taka þátt. Þátttakendur geta sent skriflegar athugasemdir við „grænbókina“ til
Rannsóknarráðs íslands og verða þær ræddar í vinnuhópunum.
Rannsóknarráð íslands hefur opnað upplýsingamiðstöð fyrir þá sem óska frekari upplýsinga um
„grænbókina“ eða ráðstefnuna.
3
RANNIS
V
European Commission
&
/tí
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS
TRADE COUNCIL OF ICELAND
lönaöar- og viöskiptaráðuneyti
J