Morgunblaðið - 25.04.1996, Blaðsíða 72
<Ö>
M
AS/400 er...
...med PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVlK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBLtaCENTRUM.lS / AKUREYRI: HAFNARSTR.&TI 85
FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Halldór Nellett
Línudans“
á hryggnum
FJOLDI erlendra skipa hefur
verið við mörk 200 mílna lög-
sögunnar á Reykjaneshrygg
undanfarnar vikur og oftar en
einu sinni hafa íslensku varð-
skipin á svæðinu þurft að
stugga við þeim þegar þau
hafa gerst of nærgöngul við
landhelgina. Myndin er lýsandi
dæmi um þetta en hún er af
radarskerminum um borð í
varðskipinu Ægi og var tekin
í byrjun vikunnar. Stóri hvíti
depillinn er varðskipið og
græna línan er landhelgis-
mörkin. Hvítu deplarnir eru
skip á svæðinu, en þau eru um
fjörutíu talsins á myndinni. Á
svæðinu nú eru um sextíu skip
samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar, en undan-
farna daga hefur ekki komið
til þess að stuggað sé við skip-
unum vegna þess að þau hafi
gerst of nærgöngul við ís-
lensku landlielgina.
■ EftirIit/4
Mildur
vetur
kvaddur
ÞÓTT íslendingar fagni sumri
í dag verður síst hægt að
kvarta yfir hörðum vetri, sam-
kvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni.
I því sambandi kemur fram
að meðalhiti í Reykjavik hafi
verið 1 gráða eða rúmri 1
gráðu yfir meðallagi á tímabil-
inu desember til mars sl. Úr-
koma mældist þriðjungi meiri
en venja er 408 mm. Sólskins-
stundir voru 195 sem er örfá-
um stundum færra en venja er.
Á Akureyri var meðalhiti
-0,3 gráður sem er 2,3 gráðum
yfir meðallagi og úrkoma þar
mæidist 107 mm eða rúmlega
'■ helmingur þess sem venja er.
Sólskinsstundir á Akureyri
voru 200 eða u.þ.b. 80 fleiri
en í meðallagi.
Veturnir 1990-1991 og
1991-1992 voru áiíka hag-
stæðir. Ivið hlýrra var þá bæði
á Akureyri og í Reykjavík en
í ár var mun þurrara og sólrík-
ara á Akureyri en þá.
Engínn sótti um prófessorsstöðu í röntgenlækningum
Háskólinn á í harðri sam-
keppni um starfsmenn
SVEINBJÖRN Björnsson háskóla-
rektor segist telja vissa hættu á að
samfara bættu efnahagsástandi
aukist líkur á að kennarar við Há-
skóla íslands sæki í betur launuð
störf utan skólans. Hann segir að
borið hafi á því að erfitt sé að fá
sérfræðinga á vissum sviðum til að
sækja um laus störf við Háskólann.
Enginn sótti um prófessorsembætti
í röntgenlækningum, sem nýlega
var auglýst, og aðeins tveir sóttu
um prófessorsembætti í tölvuverk-
fræði.
Hæfir menn erlendis
Um svipað leyti og Háskólinn
auglýsti þessar tvær prófessors-
stöður lausar var auglýst laust
embætti dómara við Héraðsdóm
Reykjavíkur og bárust 17 umsókn-
ir. Dómarar hafa orðið talsvert
hærri laun en prófessorar.
Sveinbjörn sagði að Háskólinn
ætti fyrst og fremst í erfiðleikum
með að fá umsækjendur um mjög
sérhæfð störf. Strangar hæfnis-
kröfur væru settar um þessi störf
og Háskólinn væri í samkeppni við
fyrirtæki og stofnanir um þá ein-
staklinga sem stæðust kröfurnar.
Auðveldara væri fyrir Háskólann
að fá menn til starfa í öðrum grein-
um. Nýlega hefðu t.d. 11 sótt um
prófessorsembætti í sálfræði. Einn-
ig sæktu yfirleitt margir um lausar
lektorsstöður.
Sveinbjörn sagði að erlendis
væru starfandi mjög hæfir menn
sem vonast hefði verið eftir að
sæktu um prófessorsembættin í
rafmagnsverkfræði og röntgen-
lækningum. Hann sagðist gera ráð
fýrir að stjórnendur læknadeildar
myndu hafa samband við sérfræð-
inga í röntgenlækningum og kanna
áhuga þeirra á að koma til starfa
við Háskóla íslands. Bæri það ekki
árangur yrði reynt að leysa málið
til bráðabirgða með öðrum hætti.
Grunnlaun 140 þúsund
„Það sem við höfum að bjóða
þessum mönnum er 140 þúsund
króna dagvinnulaun á mánuði. Við
erum með launahvetjandi kerfi, sem
gefur þeim færi á meiri launum.
Þeir geta fengið greidda yfirvinnu
ef þeir vilja kenna meira en kennslu-
skyldan segir fyrir um. Þeir geta
einnig fengið-greiðslur úr sjóði ef
þeir eru duglegir að birta ritgerðir
um rannsóknir sínar,“ sagði Svein-
björn.
Bættur efnahagur þjóðarinnar
og aukin eftirspum eftir vel mennt-
uðum einstaklingum gæti haft
óæskilegar afleiðingar fyrir Háskól-
ann að mati háskólarektors.
„Sumir segja að það hafi bjargað
okkur undanfarin ár að hér hefur
verið kreppa í atvinnumálum. Fyrir-
tæki hafa af þeim sökum ekki get-
að greitt eins há laun og áður var.
Nú gengur betur í rekstri fyrirtækj-
anna og þess vegna óttumst við að
kennarar sem eiga kost á því freist-
ist til að fara úr störfum við Háskól-
ann og í betur launuð störf hjá fyrir-
tækjum."
Ávöxtun LSR notuð til niðurgreiðslu
7 milljarðar tapaðir
TEKJUR Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins skertust um 712
milijónir á síðasta ári vegna
ákvæðis í reglum sjóðsins um að
hann noti hluta ávöxtunar sinnar
til að greiða niður uppbætur á líf-
eyri. Síðan ákvæði um þetta var
sett árið 1980 hefur sjóðurinn tap-
að 7,3 milljörðum.
I nýrri úttekt Talnakönnunar
hf. á LSR segir að ef vilji sé til
að koma í veg fyrir að eignir sjóðs-
ins, sem í dag nema um 22 milljörð-
um, þverri alveg sé nauðsynlegt
að breyta lögum um sjóðinn og
fella út ákvæðið um endurgreiðslu
hiuta af ávöxtun sjóðsins til launa-
greiðanda. Stjórn sjóðsins tekur
undir þessa ósk í ársskýrslu sinni.
Steingrímur Ari Arason, aðstoð-
armaður fjármáiaráðherra, segir
að í sumar verði tekin til alvarlegr-
ar skoðunar sú leið að loka Líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins og
ráða nýja ríkisstarfsmenn á öðrum
kjörum.
■ Lokunarleiðin skoðuð/36-37
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fögur og full bjartsýni
Fegurðardrottning Islands
1995, Hrafnhildur Hafsteins-
dóttir, heldur utan á sunnudag
til Las Vegas þar sem keppnin
um Ungfrú alheim fer fram 17.
maí nk. Hrafnhildur segir
strembinn tíma vera framundan
í Bandaríkjunum, en keppendur
um titilinn eru hátt í 100 talsins
og skyldur þeirra margar.
Úrslitakvöldið eru tíu stúlkur
valdar í úrslit en íslenskar stúlk-
ur hafa fæstar verið sigursælar
í keppninni fram til þessa.
„Eg er vel undirbúin, líkam-
lega sem andlega, er búin að
kynna mér tilhögun keppninnar
og fer út full bjartsýni," segir
Hrafnhildur. „I keppninni er
verið að fiska eftir fleiru en
útliti, þannig að ég get átt von
á spurningum á borð við hver
sé staða nútímakonunnar eða
hvaða atburðir rísi hæst á þess-
ari öld. Álagið er því mikið.“
Hún les nú fyrir stúdentspróf
í Verslunarskóla íslands þannig
að timinn hefur verið af skorn-
um skammti, en hefur að sögn
notið ómetanlegrar hjálpsenii
margra, sem auðveldað hefur
undirbúninginn fyrir keppnina.