Morgunblaðið - 25.04.1996, Side 13

Morgunblaðið - 25.04.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996 13 LANDIÐ Sænskir nemar heimsækja Hallormsstað Egilsstöðum - Hallormsstaðaskóli tók nýverið á móti 5 sænskum nem- endum og tveimur kennurum í heimsókn. Nemendurnir eru úr skóla frá Taaby í útjaðri Stokk- hólms. Undanfari heimsóknarinnar er sá að tveir kennarar komu austur s.l. október og var unnið að sameigin- legu þemaverkefni skólanna tveggja. Krakkamir skiptust síðan á myndum og persónulegum upplýs- ingum. Allir nemendur í verkefninu sömdu ljóð um sama efni, íslensku krakkamir skiluðu á íslensku og dönsku en sænsku börnin skiluðu á sænsku og ensku. Ljóðin vom hljóð- rituð og send á milli til hlustunar. Eftir þessi samskipti fóm kenn- ararnir að vinna fleiri verkefni um ísland með sínum nemendum og komu svo í heimsókn núna. Sam- skiptin hafa mest farið fram í gegn- um tölvu, póst og fax. Jón Guðmundsson kennari í Hall- ormsstaðaskóla sagði það sið í skól- anum að fara í ferðalag annað hvert ár og þá væri farið til útlanda. Lögð væri áhersla á að komast í samskipti við skóla á Norðulöndun- um, þannig að skólaferðalagið nýtt- ist sem fræðslu- og menningarferð auk þess sem að vera skemmtiferð. Jón sagði nemendur Hallormsstaða- skóla hafa átt samskipti við og hafa heimsótt skóla í Greve í Dan- mörku og Bergen í Noregi og að heimsóknir þessar hafi mikið gildi fyrir krakkana og gefi þeim sýn inn í aðra menningu. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir SÆNSKIR nemendur ásamt kennurum sínum tveimur og kennurum Hallormsstaðaskóla, þeim Kristínu Björk Gunnarsdóttur og Sif Vígþórsdóttur. Morgunblaðið/Egill Egilsson Kaffisala á vordegi Flateyri - Að Holti í Önundar- firði var haldin kaffisala til styrktar ferð nokkurra ung- menna á svæðismót seinna í sum- ar. Það er ekki annað hægt að segja en að menn streymdu víða að úr nálægum sveitum með ung- viði sem margt hvert fékk sína fyrstu upplifun af að sitja á hest- baki. Jafnvel Isafjarðarlögreglan stóðst ekki freistinguna að kíkja á kaffihlaðborðið og „kaloríu- mæla“ í leiðinni. ♦ ♦ ♦----- Innrás úr Borgarfirði Borgarnesi - Á annað hundrað listamenn úr Borgarfirði, Mýrum og Borgarnesi munu koma fram á skemmtikvöldi á Hótel íslandi annað kvöld, föstudagskvöldið 26. apríl. Að sögn Kristjáns Snorrasonar, bankastjóra og tónlistarmanns, í Borgarnesi, sem er einn af aðal- hvatamönnum þessa viðburðar, munu um 130 listamenn troða upp á þessari skemmtun. Meðal tónlist- aratriða má nefna Karlakórinn Söng- bræður, Samkór Mýramanna, Kvennakórinn Freyju, og Kirkjukór Borgamess. Þá mun Bjartmar Hann- esson ekki flytja vegamál, heldur gamanmál að sínum hætti. Veislu- stjóri verður Ómar Ragnarsson. Kveðst Kristján Snorrason sjálfur vera einn af meðlimum hljómsveitar- innar Upplyftingar sem leikur fyrir dansi. En í þeirri hljómsveit leikur einnig Haukur Ingibergsson, fyrrver- andi skólastjóri Samvinnuskólans á Bifröst. Gestasöngvari með hljóm- sveitinni verður alþingismaðurinn Magnús Stefánsson. Berum saman nokkrar gerðir 4ra dyra fólksbíla af millistærð: TEGUND MAZDA323 Toyota Corolla NissanAlmera MMC Lancer Suzuki Baleno OpelAstra LENGD 434,5 427.0 432.0 429.5 419.5 424.0 BREIDD 169.5 168.5 169.0 169.0 169.0 169.6 260.5 246.5 253.5 250.0 248.0 251.7 (Öll mál eru í cm. og fengin úr bæklingum bifreiðaumboðanna). Hjólhaf segir mikið um lengd farþegarýmis og fótarými. Eins og sést er MAZDA 323 stærstur þessara bíla. Um gæðin þarf ekki að fjölyrða, en komdu, mátaðu og taktu í MAZDA 323, því stuttur reynsluakstur segir meira en mörg orð! MAZDA 323 sedan LXi kostar nú aðeins kr. 1.346.ooo. OPIÐ FRÁ KL. 9-18, IAUGARDAGA 12-16 SKÚIAGÖTU 59 - SÍMI 561 9550 óbilandi traust!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.