Morgunblaðið - 25.04.1996, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 25.04.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996 19 LISTIR MYND eftir Gerði Gerður í Umbru „VORIÐ kemur í Gallerí Úmbru á sumardaginn fyrsta. Gerður Guðmundsdóttir textíllistakona býður gestum upp á ellefu við- stöður á göngu um salinn. í hverri mynd birta fuglar himins og jarð- ar komu vorsins,“ segir í fréttatil- kynningu frá Úmbru. Verkin eru öll unnin á þessu ári á bómull. Efnið er gegnlitað, en síðan er notuð blönduð tækni, einkum silkiþrykkstækni. Hver litur er þrykktur sérstaklega á myndflötinn og fuglarnir þrykktir á efnið í allt að sjö lögum. Gerður nam í Myndlistaskólan- um í Reykjavík 1983-84 og út- skrifaðist úr textíldeild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands 1991. Þessi fyrsta einkasýning Gerð- ar verður opnuð í dag, sumardag- inn fyrsta kl. 16 og stendur til kl. 18. Sýningartími: þriðjudagur til laugardags kl. 13-18 og sunhu- daga kl. 14-18. Henni lýkur 15. maí. Stuttmyndin Albaníu-Lára eftir Margréti Rún Guðmundsdóttur Ur drauma- heimi í gallharð- an veruleikann STUTTMYNDIN Albaníu-Lára eftir Margréti Rún Guðmundsdóttur verð- ur frumsýnd í Háskólabíói í dag. Myndin er gerð eftir handriti Margr- étar Rúnar sem vann til fyrstu verð- láuna í samevrópskri handritasam- keppni, First-Image-Europe, sem haldin var í París um þemað „flótta- menn í Evrópu“ en myndin hefur auk þess verið sýnd á fjölda alþjóð- legra kvikmyndahátíða og hlotið nokkur verðlaun. Myndin fjallar um níu ára al- banska telpu, Láru, sem býr ásamt fjölskyldu sinni á hæli fyrir pólitíska flóttamenn í Þýskalandi. Á hælinu, sem er til húsa í gömlum herbúðum, er þröng á þingi. Þar er samankom- ið fólk af flestöllu þjóðerni, mest einstæðir karlmenn og margir heldur slæmir á taugum. Til að losna við áhrifin frá þessu óþægilega um- hverfí teiknar Lára litla myndir sem hún hverfur síðan inn í: Hún er fal- leg ævintýraprinsessa og leikur sér innan um káta vini sína eða skraut- lega klædd tré, hún vinnur úr fortíð sinni og flóttanum til Þýskalands. Lára lætur sig dreyma fagra drauma um framtíðina, drauma sem verða fegurri og fegurri. Skyndilega er hún hrifsuð út úr þessum draumaheimi og inn í gallharðan raunveruleikan. Ætlaði ekki að gera þessa mynd Albaníu-Lára er lokamynd Mar- grétar Rúnar í kvikmyndaskólanum Hocschule fur Fernsehen und Film í Miinchen. Margrét segir að myndin hafi orðið til fyrir eins konar tilvilj- un. „Ég ætlaði í raun aldrei að gera þessa mynd. Ég hafði skrifað hand- rit að langri mynd um svipað efni en það gekk erfiðlega að fá styrki til framleiðslu á henni í Þýskalandi. Sennilega var það vegna þess að ákveðnir þættir þess handrits minntu á Hitler. Ég ákvað því að taka þátt í handritasamkeppninni í París og skrifaði handrit að stutt- mynd á einni viku. Ég bjóst auðvitað ekki við því að vinna eftir svo stutt- an undirbúningstíma en það varð samt úr. Eftir þessa viðurkenningu fóru styrkirnir að streyma inn.“ Til Albaníu Margrét Rún segir að til þess að fara ekki með neina vitleysu um Albani í myndinni hafi hún ásamt samstarfsmönnum sínum farið til Albaníu og kynnt sér land og þjóð. „Maður hafði auðvitað heyrt miklar hörmungarsögur af ástandinu í land- inu en það var hins vegar ýmislegt sem kom okkur á óvart þegar þang- að var komið. Við fórum með miklar matarbirgðir með okkur því við héld- um kannski að við myndum eiga í erfiðleikum með að fá mat. En ann- að kom í ljós; Albanir eru svo gest- risnir að við höfðum ekki undan að sækja matarboð, fimm eða sex á dag. Var ágengnin jafnvel svo mikil að við þurftum að beita hörku til að afþakka sum boðin. En auðvitað urðum við líka vör við mikla fátækt og skildum það mætavel að fólkið vildi reyna að koma sér úr landi.“ Auk Albaníu-Láru verður stutt- myndin La Haine frumsýnd í Há- skólabíói í dag. Myndin er eftir 25 ára gamlan franskan kvikmynda- gerðarmann, Mathieu Kassóvitz að nafni, og hefur hlotið frönsku kvik- myndaverðlaunin sem kennd eru við Cesar. Margrét Rún Guðmundsdóttir Burtfararprófstónleikar í Ytri-Njarðvíkurkirkju í DAG sumardaginn fyrsta mun Andrés Bjömsson trompetnem- andi við Tónlistarskólann í Keflavík halda tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju og hefjast þeir kl. 17.00. Með Andrési leikur Krystina Cortes á píanó. Tónleikamir era liður í burtfararprófi Andrésar frá skólanum en áður lék Andrés Björnsson skólanum í Keflavík árið 1985 þá 10 ára gamall. Kennarar hans í upphafi voru Björn R. Einarsson og Jónas Dagbjartsson en síð- ustu árin hafa kennarar Andrésar verið Karen Sturlaugsson og Ásgeir Steingrímsson. Andrés hefur leikið með ýmsum hljómsveit- Andrés einleik með Sinfóníu- um innan skólans og utan s.s. hljómsveit íslands á tónleikum Lúðrasveit, Léttsveit og Jass- hennar í Keflavík þann 21. mars hljómsveitum Tónlistarskólans í síðastliðinn. Keflavík auk þess sem hann Efnisskráin er fjölbreytt og hefur leikið með Lúðrasveitinni samanstendur af Andante et Svaninum, Stórsveit Reykjavík- Allegro eftir Ropartz, tveimur ur og Sinfóníuhljómsveit Æsk- köflum úr trompetkonsert eftir unnar. Haydn, Sónötu eftir Hindermith Aðgangur að tónleikunum er og írskri þjóðlagatónlist. ókeypis og öllum heimill á meðan Andrés hóf nám í Tónlistar- húsrúm leyfir. Mikil og falleg söngrödd TONLIST Gcrðarsafni EINSÖNGSTÓNLEIKAR Kristín Sædal Sigtryggsdóttir sópransöngkona og Hrefna Unnur Eggertsdóttir píanóleikari fluttu íslensk söngverk og Sígaunaljóðin eftir Dvorák. Þriðjudagurinn 23. apríl, 1996. FYRSTA lag tónleikanna var Draumalandið, eftir Sigfús Einars- son qg á eftir fylgdu tvö lög_ eftir Pál ísólfsson, Söknuður og í dag skein sól, er Kristín söng mjög vel. Hún hefur mikla og fallega rödd, sem hún beitir af töluverðri kunnáttu. í Sígaunaljóðunum, eftir Anton Dvorák naut sín vel mikil rödd henn- ar, þó best sungna lagið væri Rings ist der Wald, sem er þýðasta lagið í þessum frábæra lagaflokki. Píanó- leikur Hrefnu var góður en á köflum nokkuð sterkur, sérstaklega í kraft- mestu lögunum, en Kristín hefur það mikla rödd, að í heild var styrkleika jafnvægið nokkuð gott. Eftir hlé vora sungin eingöngu íslensk sönglög og fyrst Siesta eftir Magnús Á. Ámason, myndlistar- mann en samdi nokkur lög við kvæði eftir Stein Steinarr, sem hafa verið gefin út á þrykk fyrir mörgum árum. Laglínan í Siesta er einföld en undir- spilið var sérlega skemmtilega unnið. Það fór vel á að syngja eitt laga Magnúsar en tónleikagestir voru umkringdir af myndverkum eftir konu hans, Barböra Ámason. Ekki veit undirritaður til þess að lög Magnúsar hafí verið flutt á tónleikum og mættu söngvarar athuga söngv- erk þessa sérstæða og gáfaða lista- manns. Þijú lög eftir Jórunni Viðar, Söngl- að á göngu, Mamma ætlar að sofna og Við Kínafljót, voru öll vel flutt en best þó það fallega lag Jórunnar, ! Mamma ætlar að sofna. Vöggukvæð- ið eftir Emi! Thoroddsen var best sungna lag tónleikanna, aldeilis fal- lega túlkað og mótaða af listakonun- um báðum. Betlikerlingin eftir Sigvalda Kald- alóns er að því leiti til erfítt lag, að | ekki má ofgera því í túlkun, því lag- ið sjálft og textinn eru við mörk I þess sem má gera. Bijósttónarnir í' upphafi lagsins voru einum of harðir | og hefðu mátt vera veikari, þ.e. mýkri og gæddir samúð en ekki til að túlka eitthvað ægilegt. Eftir söngvin okkar, Sigfús Hall- dórsson, fluttu þær stöllur Vorljóð I mjög fallega og einnig Lindina eftir | Eyþór Stefánsson og lauk tónleikun- um með laginu Leitin, eftir Sigvalda I Kaldalóns, sem eins og mörg laga | Kaldalóns má ekki oftúlka. Kristín Sædal Sigrtyggsdóttir er I góð söngkona, hefur mikla og fallega söngrödd, er vel ætti að þo'la miklu erfiðari söngskrá. t.d. viðfangsefni I úr óperubókmenntunum. Hrefna Eggertsdóttir er góður píanóleikari og gerði margt mjög vel í Dvorák og sömuleiðis í íslensku lögunum, sérstaklega í skemmtilegu píanóund- irspili í lagi Magnúsar Á. Amarsonar. Jón Ásgeirsson 1. Flokkur Dagar: 31. maí - 6. júní Aldur: 9 -11 ára (85-87) Lengd: 6 dagar Verð: kr. 12.900 5. Flokkur Dagar: 1. júlí -10. júlí Aldur: 12 - 13 ára (83-84) Lengd: 9 dagar Verð: kr. 18.900 9. Unglingaflokkur Dagar: 6. ág. - 14. ág. Aldur: 14 - 17 ára (79-82) Lengd: 8 dagar Verð: kr. 16.900 Unglingaflokkur er bæði fyrir pilta og stúlkur 13. Karlaflokkur Dagar: 5. sept. - 8. sept. Aldur: 17-99ára Lengd: 3 dagar Verð: kr. 7.000 2. Flokkur Dagar: 6. júní -13. júní Aldur: 9-10 ára (86-87) Lengd: 7 dagar Verð: kr. 14.900 3. Flokkur Dagar: 13. júní - 20. júní Aldur: 10 -12 ára (84-86) Lengd: 7 dagar Verð: kr. 14.900 6. Flokkur Dagar: 10. júlí -18. júlí Aldur: 10 -12 ára (84-86) Lengd: 8 dagar Verð: kr. 16.900 10. Flokkur Dagar: 14. ág. - 22. ág. Aldur: 10 - 13 ára (83-86) Lengd: 8 dagar Verð: kr. 16.900 7. Flokkur Dagar: 18. júlí- 25. júlí Aldur: 10 -11 ára (85-86) Lengd: 7 dagar Verð: kr. 14.900 11. Iþróttaflokkur Dagar: 22. ág. - 30. ág. Aldur: 9 - 12 ára (84-87) Lengd: 8 dagar Verð: kr. 16.900 4. Flokkur Dagar: 20. júní - 28. júní Aldur: 11 -13 ára (83-85) Lengd: 8 dagar Verð: kr. 16.900 Kaffisala: í dag, sumardaginn fyrsta, verður kaffisala tll styrkt- ar starfinu í Vatnaskógi frá kl. 14-18 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg Þar verður hægt að skrá siq í flokka sumarsins. Skráning: Skráð er í sumarbúðirnar í Vatnaskógi á virkum dögum frá kl. 8-16 í húsi KFUM og KFUK vlð Holtaveg og í símum 588-8899 og 588-1999. í daa. sumardaainn fvrsta. verður tekið við skráninqum (síma 588-1999 frá kl. 10-18. Skráningargjald er 3000 kr. og er óafturkræft en dregst frá dvalargjaldi en rútugjald bætist við dvalargjald. Veittur er 10% afsláttur fyrir systkini sem fara í sumarbúðir KFUM og KFUK. 8. Ævintýraflokkur Dagar: 25. júlí -1. ág. Aldur: 12 -14 ára (82-84) Lengd: 7 dagar Verð: kr. 14.900 12. Feðgahelgi Dagar: 30. ág. -1. sept. Aldur: 7 - 99 ára Lengd: 2 dagar Verð: kr. 4.100
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.