Morgunblaðið - 25.04.1996, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 25.04.1996, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996 59 BREF TIL BLAÐSIIMS Til vemdar lýðræði fyrir þingræði Frá Halldóri Kristjánssyni: MORGUNBLAÐIÐ birti 14. þ.m. langt viðtal við Davíð Oddsson for- sætisráðherra. Hluti þess er um for- setaembættið og að því verður vikið hér. Forsætisráðherra segir m.a. í sam- bandi við rétt forseta að skjóta laga- samþykkt undir þjóðaratkvæða- greiðslu: „Það yrði um leið hálfgerð stríðs- yfirlýsing við þingið andstætt öllum hugmyndum um þingræði í landinu og fjarri öllum hugmyndum sem menn gerðu sér um forsetaembættið í upphafi." Trúlega verður það forsætisráð- herra ofraun að færa rök að því að þetta ákvæði hafi verið tekið inn í stjómarskrána „Qarri öllum hug- myndum sem menn gerðu sér um forsetaembættið". Á það skal minnt að Alþingi skip- aði nefnd til að gera breytingar á stjómarskránni svo að forseti kæmi í stað konungs. Þá vom ijórir flokk- ar á þingi og tveir frá hveijum flokki í þessari átta manna stjómarskrár- nefnd. Þar komu við sögu ágætir og virtir lagamenn. Hitt má til sanns vegar færa að neitun forseta að staðfesta samþykkt Alþingis með undirskrift sinni „yrði um leið hálfgerð stríðsyfirlýsing við þingið". Þó er á það að líta að slíkt myndi ekki gerast nema þegar skoð- anir eru mjög skiptar innan þings og utan. Forseti þarf ekki að taka af- stöðu í deilunni. Hans hlutur gæti verið sá einn að skjóta deilunni undir atkvæði almennings. Davíð Oddsson kallar það „andstætt öllum hugmynd- um um þingræði í landinu". Þjóðaratkvæðagreiðslan getur ekki farið nema á tvo vegu. Annað- hvort verður löggjöfinni hafnað eða hún er staðfest. Verði hún staðfest má meirihluti Alþingis vel við una. Forseti hefur þá orðið til þess að meirihluti kjósenda samþvkkir verk þingsins. Yrði löggjöfinni hins vegar hafnað ættum við Iíklega að taka svo til orða að forseti hafi með málskoti sínu orðið til þess að veija lýðræðið fyrir þingræðinu. Það er ógætilega sagt hjá forsæt- isráðherra að málskot forseta til al- mennings sé „andstætt öllum hug- myndum um þingræði í landinu". Þetta ákvæði er í stjómarskránni vegna þess að sú hugmynd er og hefur verið til að það sé einskonar öryggisventill til vemdar lýðræðinu ef svo kynni að fara að því stæði hætta af þingræðinu. HALLDÓR KRISTJÁNSSON frá Kirkjubóli. Hjálpum bömunum heim Frá Berglind Magnúsdóttur: SAMÚÐARLEYSI það sem einkenn- ir núverandi stjómvöld í málum þeirra sem minna mega sín, hefur sannarlega bitnað á Sophiu Hansen. Mér og nokkrum vinkonum mínum líst ekki á ef stjómvöld taka sig ekki á í mannúðarmálum. Það sem mest er í fréttum frá Tyrklandi, eru mannréttindabrot og grimmd gagnvart minnihlutahópum. Þeim virðist næsta eðlilegt að leggj- ast svo lágt að aðstoða margbrotleg- an mann við að níðast á útlendri móður með að ræna bömum hennar. í utanríkisráðuneytinu virðast fáir hjálplegir utan Óiafur Egilsson sem við höfum heyrt að sé einstaklega góður maður og hefur hann reyndar margsýnt það. En valdsvið hans er takmarkað. Því skorum við á Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra að beita sér til hjálpar Sophiu Hansen og bömum hennar á erlendum vett- vangi og svo fjárhagslega. Ef við ættum peninga mundum við hjálpa. Margt smátt gerir eitt stórt. Þau með meðallaunin og minna eru lík- legust til að leggja þessu góða máli lið. Allir bankar taka við slíkri hjálp fyrir Sophiu. Hjálpum bömunum heim. BERGLIND MAGNÚSDÓTTIR, Flúðaseli 67, Reykjavík. - kjarni málsins! Þökkum eftirfarandi aðilum stuðninginn: spennubreytar Tandur sf Hjaltí Einarsson n[ý|f[o]r|m STEINAR WAAGE ðiu Sjöfn, efnaverksmiðja skóveíslun ÁlfaslieiSi31 Súfistinn Rafmætti ^Sigga & Timo Miðb* Gullsmiði JfivÁiarAot hrilu Vcrslunin Embla Hvalur hf. Þvottahús og ctnaiaug, Hraunbrún 40. Hópferðabílar K. Willatzen Skóhöllin Ostohusið Filmur og tramköllun firsT Bœjarbakari Fjarðargetu Búkabúð Btiðvars ú Guðmundur Innréttingar og húsgögn Tryggvi Ólafsson, úrsmiður MBÍStarínil Arason ehf. i sumar verða flokkarnir sem hér segir: DRENGIR f. fl. 5. júní - 12. júní 7-12 ára 2. fl. 12. júní - 20. júní 7-12 ára 3. fl. 20. júní - 27. júní 7-12 ára 4. fl. 27. júní - 4. júlí 7-12 ára HLÉ STULKUR 5. fí. 9. júlí - 16. júlí 7-12 ára 6. fl. 16. júlí - 23. júlí 7-12 ára 7. fl. 23. júlí - 31. júlí 7-12 ára HLÉ 8. fl. 6. ágúst-13. ágúst 7-12 ára HLÉ 9. fl. 14. ágúst-19. ágúst12-15 ára Verð fyrir eina viku er kr. 14.500 og er þá fargjald innifalið. Innritun fer fram á skrifstofu KFUM og KFUK við Floltaveg í Reykjavík, sími 588 8899 kl. 8-16 á virkum dögum. Einnig er skráð á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 17-19 á Hverfisgötu 15 í Hafnarfirði til 10 maí. Síminn er 555 3362. Kaldársel Sumarbúðir KFU/Vt og KFUK • Hafnarfirði Sumarbúðirnar eru á fallegum stað skammt fyrir ofan Hafnarfjörð í nágrenni Helgafells. Þar rennur Kaldá sem gefur tækifæri til bátsferða og hraunið í kring býður upp á fjölbreytt leiksvæði þar sem virki eru reist og farið í búleiki. Umhverfis er stórfengleg náttúra, vinin Valaból, eldstöðin Búrfell og Helgafell, spennandi hellar og margt fleira sem hægt er að skoða og njóta. íþróttir og leikir eru eðlilegur þáttur í . Daglega er veitt fræðsla um kristna trú Biblíuna, kenndar bænir og vers og sungnir fjörugir söngvar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.