Morgunblaðið - 25.04.1996, Page 60

Morgunblaðið - 25.04.1996, Page 60
>0 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996 ÍDAG MORGUNBLAÐIÐ Fetag endurskpðencfci Endurskoðendadagur Félag löggiltra endurskoðenda minnir félagsmenn sína á ráðstefnu, sem haldin verður þann 26. apríl á Hótel Loftleiðum. DAGSKRÁ: Kl. 12.00 Hádegisverður Hádegiserindi: Friörik Sophusson, fjármálaráðherra. Kl. 13.30 Setning ráðstefnu: Tryggvi Jónsson, formaður FLE. Kl. 13.35 Professor Andrew J M Christie, partner of Arthur Andersen, Edinburgh, specialising in tax and member of ICASC council (skoska félagið): Relationship between Tax Authorities in UK and Auditors. Kl. 14.20 Þorsteinn Haraldsson, löggiltur endurskoðandi. Samskipti skattyfirvalda við skattgreiðendur og umbjóöendur þeirra. Kl. 14.40 Umræður. Kl. 14.55 Kaffihlé. Kl. 15.15 Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Islandsbanka hf. Fjármagnstekjuskattur. Kl. 16.15 Garðar Valdimarsson, lögfræðingur og löggiltur endurskoðandi. Tvísköttunarmál. Kl. 16.45 Umræður. Kl. 17.00 Ráðstefnuslit: Tryggvi Jónsson, formaður FLE. Ráðstefnustjóri: Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyti. ■» « UMHVERFISSJÓÐUR VERSLUNARINNAR Umsóknir um styrki úr Umhverfissjóði verslunarinnar Umhverfissjóður verslunarinnar var stofnaður 1. október 1995 og þátttakendur í honum eru 120 matvöruverslanir um land allt. Tekjur sjóðsins eru af sölu plastpoka í verslunum. Umhverfissjóðurinn mun í byrjun sumars 1996 úthluta fé til verkefna, er falla að markmiðum sjóðsins, sem er að stuðla að bættu umhverfi landsins, fegrun þess og uppgræðslu. Megináherslan er lögð á úthlutanir til stærri verkefna en hluta af ráðstöfunarfénu mun verða úthlutað til minni verkefna. Félagasamtökum og einstaklingum, sem hyggjast ráðast í verkefni á sviði umhverfis- mála gefst hér með kostur á að sækja um styrki til Umhverfissjóðs verslunarinnar og skal um- sóknum skila á eyðublöðum sem fást á skrif- stofu sjóðsins í Húsi verslunarinnar á 6. hæð. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1996. Umhverfissjóður verslunarinnar, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík. Simi: 568-7811, myndsendir 568-5569. SKÁK Umsjón Margeir Pctursson Hvítur leikur og vinnur STAÐAN kom upp á árlega AEGON mótinu í Hollandi, en þar keppa skákmeistarar við skáktölvur. Bandaríski stórmeistarinn Yasser Seirawan (2.630) var með hvítt og átti leik gegn tölvu- forritinu COMET. 14. Rxh7! - Kxh7 15. Dh5+ - Kg8 16. Bxg6 - Bd4+ 17. Khl - Dd7 18. f5 — Ra6 19. Bh6 og tölvan gafst upp vegna afbrigðis- ins 19. — Bg7 20. Bg5 — Bxc3 21. f6! - Hxf6 22. Bxf6 - Bxf6 23. Hxf6 og mát fylgir í kjölfarið. Seirawan var sá eini sem vann allar sex skákir sínar við tölvumar. Vaganjan, Armeníu og Van der Wiel, Hollandi, hlutu 5 V2 v., Spe- elman, Englandi hlaut 5 v og þeir Christiansen, Bandaríkjunum, Cifuentes, Chile og Hollendingarnir Hartoch, Hoeksema og Ligterink allir 4‘/2. Tölvuforritin Capture, Nimzo, Now, Quet og Rebel 7 hlutu öll 4>A vinning, en þekktari forrit eins og Mchess Pro, Mephisto Genius og Hiarcs hlutu 4 v. Forritið Quest stóð sig best mælt í stigum og náði stórmeistaraár- angri. Tölvunum gekk síst betur en í fyrra- þrátt fyrir framfarir í forritun og vél- búnaði. Skýringin er sú að skákmeistararnir eru orðnir mun færari í að eiga við tölvustílinn. Athygli vakti að IBM sendi ekki „Djúp- blá“ sína til keppni, en hún vann eina skák af Kasparov um daginn. Segja sérfræð- ingar að þeirri ódýru aug- lýSingu sem IBM fékk með fjölmiðlafárinu sem þá greip um sig væri stefnt í hættu ef forritið yrði með. „Djúp- blá“ ætti sáralitla mögu- leika gegn Seirawan og öðr- um sem hafa rannsakað veikleika tölvanna. ísland og Israel tefla landskeppni í hraðskák í dag frá 14-16 á Grand Hótel Reykjavík. Ó, HÆTTU að spyrja endalaust hvort það sé einhver annar, þú ert næsturn eins slæmur og kærastinn minn! COSPER MAÐURINN minn er að bíða eftir áríðandi samtali. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: Iauga@mbl.is Góður veitingastaður VIÐ hjónin fórum eitt kvöldið á Fjörukrána í Hafnarfirði að fagna 50 ára trúlofunarafmæli okkar. Við nutum mjög góðs kvöldverðar og góðrar þjónustu svo ekki er hægt að hugsa sér betra. Svo var okkur ekið heim til Reykjavíkur þeg- ar við vildum fara heim. Þetta finnst okkur sér- lega góð þjónusta og við- mót allt til mikillar fyrir- myndar og erum afar þakklát þessu öllu. Anægð hjón Tapað/fundið Fjallahjól tapaðist SVART og fjólublátt ný- legt fjallahjól af gerðinni Treck tapaðist úr hjóla- geymslu í Lautasmára fyrir u.þ.b. tveimur vik- um. Hjólið var með svört- um brettum. Á hjólinu höfðu líka verið glitaugu, púlsmælir á stýri og aðr- ir aukahlutir, en einhver hafði séð ástæðu til að bijóta þá af og hafa með sér í sömu viku og þeir voru festir á, en festing- arnar gætu hafa verið á ennþá. Ung fermingar- stúlka átti hjólið og er þetta annað hjólið sem hún tapar, en hitt hvarf fyrir nákvæmlega ári síð- an úr sömu geymslunni. Ibúar í hverfmu eru vin- samlega beðnir að at- huga hvort í geymslum þeirra leynist nokkuð hjól sem þeir kannast ekki við, en þar sem margir búa gæti bæst við hjól án þess að fólk taki sér- staklega eftir því. Allar upplýsingar eru vel þegnar í heimasíma 564-3938 (vinsamlega talið inn á símsvara ef enginn er heima) eða í vinnusíma 569-1323. Fundarlaun. Úr tapaðist ÉG VAR í leikfimi í Stúdíó Rögnu 6. mars sl. Ég hef líklega sett úrið mitt í rangar buxur þeg- ar ég fór í sturtu. Urið er með gylltri keðju með svartri skífu. Þetta er mjög tilfínningalegt tap þar sem ég fékk það í morgungjöf fyrir tæpum tveimur árum. Sá sem er með úrið er vinsam- lega beðinn að hringja í mig í vinnusíma 581-3508 eða heimasíma 562-1216. Gæludýr Kettlingar FALLEGA kettlinga vantar gott heimili. Upp- lýsingar í síma 565-2043. Farsi , Bg hbitafc /bú €C*ýt cÁ þú xt&u he-/ma.-lej kJxús -kerfc." Víkveiji skrifar... EGAR þetta tölublað Morgun- blaðsins berst lesendum í hendur er sumar að ganga í garð. Eflaust finnst fleirum en Víkverja að sumarið sé reyndar komið, enda hafa fjörbrot vetrarins verið svo mild, að náttúran hefur þegar gengið til sumarstarfa í hans skjóli. XXX UM SUMARDAGINN fyrsta segir svo í bók Árna Björns- sonar um sögu daganna: „Sumar- dagurinn fyrsti er á fimmtudegi, nú 19. til 25. apríl, en 9. til 15. apríl í gamla stíl fyrir 1700. Um fyrsta sumardag er getið þegar í elstu heimildum. Vikan var helsta tíma- eining í gamla íslenska tímatalinu og kann það að valda nokkru um að nafn fyrsta sumarmánaðar, Hörpu, er ekki þekkt fyrr en frá 17. öld. Nafnið virðist dregið af vorhörkum en síðar tengist það öðrum persónugerðum mánaðar- heitum og er þá litið á Hörpu sem yngismey sem piltar eiga að fagna á fyrsta degi. Sumarblóta er lítillega getið í frásögnum af heiðnum sið. Þótt heimildir séu fámálar er líklegt að íslendingar hafí alltaf haldið til dagsins í mat 0g drykk eftir efnum og ástæðum. Sumargjafir eru þekktar frá 16. öld og eru miklu eldri en jólagjafir. Ekki var unnið nema nauðsynjastörf eða táknræn sumarstörf og hafa börn nýtt dag- inn til leikja. Víða var messað á sumardaginn fyrsta til miðrar 18. aldar en húslestrar héldust mun lengur. Samkomur heljast í sveitum og bæjum á 19. öld. Eftir aldamót tengjast þær ungmennafélögunum en frá þriðja áratugnum hefur dag- urinn verið helgaður börnum með skrúðgöngum, skemmtunum og út- gáfustarfi. Fyrsti „barnadagurinn“ var í Reykjavík árið 1921. Ymis þjóðtrú tengist sumarkomu og er meðal annars talið vita á gott ef sumar og vetur „frýs saman“ að- faranótt sumardagsins fyrsta. Þeg- ar maður sá fyrsta tungl sumars átti hann að steinþegja þar til ein- hver ávarpaði hann. Úr ávarpinu mátti lesa véfrétt, og hét þetta að láta svara sér „í sumartunglið". Víkvétji óskar lesendum sínum gleðilegs sumars!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.