Morgunblaðið - 07.05.1996, Side 43

Morgunblaðið - 07.05.1996, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMIIMGAR ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996 43 HELGA STEINUNN LÚTHERSDÓTTIR + Helga Steinunn Lúthersdóttir var fædd í Fischer- sundi 3, Reykjavík, 3. júlí 1919. Hún lést í öldrunar- lækningadeild Landspítalans 27. april síðastliðinn. Helga var dóttir Lúthers Hróbjarts- sonar, umsjónar- manns Austurbæj- arskólans, f. á Velli í Hvolhreppi 24. maí 1888, d. 14. mars 1978, sonur Hróbjarts Hróbjartssonar, sjó- manns, f. 20.10. 1858, d. 10.12. 1934, og Bjarghildar Magnús- dóttur, húsfreyju, f. 25. júlí 1861, d. 3. febrúar 1949. Þau bjuggu í Simbakoti á Eyrar- bakka. Móðir Helgu var Stein- unn Jónsdóttir, húsfreyja í Austurbæjarskólanum í Reykjavík, fædd á Stærribæ í Grímsnesi, 3.4. 1886, d. 15.7. 1942, dóttir Jóns Guðmunds- sonar, stórbónda Stærribæ og síðar í Hlíð, Grafningi, f. 17.12. 1861, og Hildar Filippusdóttur, húsfreyju frá Laugarvatni, f. 19.7. 1854. Helga átti fimm alsystkini og einn hálfbróður, sem var elstur, Skarphéðinn Jónsson, bifreiðastjóri, sem er látinn, maki var Jóhanna Ingv- arsdóttir þau áttu tvö börn, slitu samvistum. Sigurbjört Klara, f. 12.11. 1911, maki Hermann Guðmundsson, skrif- stofumaður, f. 27.4. 1916, d. 10.11. 1989. Fyrri maður Jón Ingvi Guðmundsson, þau áttu tvö börn saman. Hróbjartur, heilbrigðisfulltrúi, f. 2.10. 1914, maki Svava Halldóra Pétursdóttir, húsmóðir, f. 8.1. 1915, d. 1992. Þau áttu tvö börn saman. Rebekka, hús- móðir, L 27.1. 1917, maki Ósk- ar D. Ólafsson, varðstjóri í Slökkviliði Reykjavíkur, f. 22.6. 1912, d. 24.2. 1993. Þau áttu þrjá drengi saman. Hilm- ar Jón Hlíðar, pípulagninga- meistari, f. 3.1. 1921, hann er látinn, átti tvær dætur með Guðrúnu Ólafsdóttur, þau slitu samvistum. Björgvin, stöðvar- sljóri Pósts og síma, f. 9.5. 1926, fyrri maki var Soffía Eydís Júlíusdóttir, f. 17.9 1925, d. 19.3. 1968, þau áttu fimm börn saman. Seinni maki er Bogga Sigfúsdótt- ir, póstfulltrúi, f. 28.10. 1937. Þau eiga eitt barn sam- an. Helga var tví- gift, fyrri maður hennar var Sæ- mundur Þórarins- son sjómaður og eignuðust þau son 31.5. 1941, Reyni, hann er kvæntur Þóru Sigurðardótt- ir, f. 21.2. 1936, og eiga eina dóttur. Seinni maður Helgu var Hákon Kristgeirsson, verkstæðis- formaður á bílaverkstæði Steindórs í 40 ár, þau eignuð- ust fjögur börn. Finnbjörg, f. 10.3. 1947, sjúkraliði, fyrri maður Georg Ægisson, f. 5.3. 1945. Þau slitu samvistum, barn þeirra, Helga f. 19.12. 1965, sambýlismaður Jón Þórðarson, múrari, þau eiga eina dóttur, óskírð, f. 2.4.1996. Seinni maður Ólafur Sigurðs- son, rafeindavirki, f. 20.6. 1945, d. 30.7.1995. Þau eignuð- ust þrjá drengi þeir eru: Sig- urður, f. 8.4. 1970. Sambýlis- kona Bára Sif Pálsdóttir, f. 13.8. 1969. Barn Ólafur Már, f. 28.9. 1990. Hákon Ólafsson, f. 23.11. 1974. Lárus Ólafsson, f. 28.5. 1979. Steinunn Hákon- ardóttir, nuddkona, f. 26.6. 1949. Maki Páll Guðmundsson, f. 18.2. 1946. Þau eiga þijú börn, þau eru: Guðrún Björg, f. 13.12. 1968, maki Magnús Valberg Óskarsson, barn Steinunn Ósk, f. 13.12. Guð- mundur Pálsson, f. 9.7. 1973, Helga Pálsdóttir, f. 11.8. 1978. Kristborg Hákonardóttir, sjúkraliði, f. 3.6. 1953. Fyrr- verandi maki Lárus Þór Páls- son, f. 3.6.1952. Þau eignuðust tvö börn, Evu Björk, f. 15.6. 1974. Maki Jósep Hjálmar Sig- urðsson, f. 5.8. 1961. Börn þeirra Arnar Freyr, f. 4.10. 1992, og Hákon Már, f. 21.3. 1995. Hildur Sif Lárusdóttir, f. 5.10. 1978. Kristgeir Há- konarson, stýrimaður, f. 28.1. 1956. Maki Sigríður Brynja Pétursdóttir, f. 29.1. 1956 d. 18.2.1994, barn Berglind Krist- geirsdóttir, f. 1.6. 1978. Utför Helgu fer fram frá Nes- kirkju og hefst athöfnin kl. 13.30 í dag. Ég heyri mig gráta, ég get þurrkaA tár mín, en ég get ekki lýst tilfinningum mínum. Ég trúi að þú vitir hvemig mér líður, mamma mín, það er sárt að kveðjast. Ég veit að þér var tekið fagn- andi þar sem þú ert nú. Ég veit að pabbi beið þín, hann sem var alla tíð þinn besti vinur. Við sem eftir erum fögnum endurfundum ykkar, þrátt fyrir sáran söknuð okkar. Mamma mín, þú varst veik síð- ustu árin. Vegna veikinda þinna átti ég erfitt með að vita hug þinn og hugsanir. Ég gleymi ekki tárum þínum að loknum heimsóknum til þín. Sorgin leyndi sér ekki, þú þurftir ekki að segja neitt, ég fann hvernig þeir leið. Tár þín sögðu mér að þú skynjaðir þótt þú gætir ekki tjáð þig. Það var erfitt þegar við urðum að fara með þig á öldrunarlækn- ingadeild Landspítalans í Hátúni. Þá var pabbi orðinn það mikið veik- ur að ekki var hjá því komist að sundurskilja ykkur. Það var erfitt fyrir okkur öll, nú er ég viss um að þið hafið hist og þau löngu, en fáu ár sem liðin eru frá kveðju- stund ykkar pabba, gleymast í gleðilégum endurfundum ykkar. Að vita af ykkur aftur saman riljar upp minningar, margar góð- ar minningar. Þið eruð góðir for- eldrar. Þótt þið séuð ekki lengur hér hjá okkur lifir allt það góða sem þið kennduð okkur bömunum ykkar. Þú áttir marga góða kosti. Þeir sem einna hæst báru voru gleði þín og hlátur sem ég aldrei gleymi. Þrátt fyrir veikindin hvarf ekki brosið'. Það er svo margt og svo margt mamma, sem mig langar að segja á þessari stundu, kannski er það óþarft þar sem ég veit þú lest huga minn. Mitt lán er að eiga þig sem móður. Minn grátur og mín tár eru blönduð sorg og gleði. Ég syrgi þig, mamma mín, um leið og ég sætti mig við vistaskipti þín. Þín Kristborg. Helga systir mín er látin. Síminn hringir, í símanum er Steinunn, dóttir Helgu, og tjáir okkur að mamma hennar hafi dáið kl. 16.15. Þetta var laugardaginn 27. apríl. Mig var farið að gruna að stundin nálgaðist eftir langvarandi veikindi hennar, hún lagðist inn á öldrunar- lækningadeild Landspítalans 12. mars 1993 með alzheimer-sjúk- dóm, Hákon gat ekki lengur hugs- að um hana, helsjúkur af krabba- meini. Hann lést tæpu ári seinna, 24. febrúar 1994. Tengdasonur þeirra lést úr krabbameini 30. júlí 1995, rétt fimmtugur. Tengdadótt- ir þeirra lést 18. febrúar 1994, 38 ára. Sorgin hefur knúið dyra í þess- ari fjölskyldu. Hjónaband Helgu og Konna var farsælt, þau samrýnd og mikið saman. Þegar frístundir voru ferð- uðust þau um landið með Lóu syst- ur og Óskari, sem nú er látinn, hann lést ári áður en Konni, sama dag, 24. febrúar 1993. Oft þurfti ég að fara til Helgu og Konna á þeim árum þegar allar bifreiðir sem voru notaðar voru árgerð 1926 og yngri og þurfti mikið að gera við. Alltaf voru þau boðin og búin að hjálpa í vandræðum mínum. Ég minnist spilakvöldanna okk- ar systkina og maka þegar Helga var búin að baka og við komum og spiluðum vist einu sinni í mán- uði með miklum hlátri og gleði, yndislegur tími. Það kom upp í huga minn atvik sem gerðist fyrir rúmum 40 árum. Ég var að vinna að símalögnum í Skerjafirði þegar vindur sér að mér maður sem er að vinna með okkur og segir: Ég lék mér oft á Bergþórugötunni og ég gleymi aldrei henni systur þinni, Helgu, hún ein af fegurstu konum, sem ég hef séð, ljóst hárið niður á herð- ar, þykkt og mikið, hláturinn hreinn og tær, brosið fallegt og góðlegt kallaði á bros á móti, hlýj- an og vinsemdin í andlitinu og augun, sem vissu mikið en sögðu aldrei frá. Þessa mynd af systur minni hef ég alltaf geymt í hugskoti mínu því hún er sönn, svona var Helga systir. Farðu í friði, Helga systir, nú ert þú komin til hans, sem þú hef- ir þráð svo lengi, og búið þér um- hyggju og ást. Björgvin Lúthersson. Nú er amma mín farin til afa en það þráði hún ábyggilega mest af öllu. Þó að ég hafi búist við þessu var þetta samt áfall og í leiðinni ákveðinn léttir, hún var loksins komin á öruggan stað þar sem henni liði betur. Elsku amma mín, ég vil með þessum orðum þakka þér fyrir allar þær stundir er við áttum saman: Vertu sæl, vor litla hvíta lilja. Lögð í jörð með himnafóður vilja, leyst frá lífi nauða Ljúf og björt í dauða, lést þú eftir litla rúmið auða. (M. Joch.) Vertu sæl, amma mín. Eva Björk. + Elskuleg eiginkona min, ELÍSABET SVEINSDÓTTIR, Bauganesi 30, andaðist á hjartadeild Borgarspítalans aðfaranótt sunnudagsins 5. maí. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Davið S. Jónsson. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN ÞORBERGSSON, Vopnafirði, varð bráðkvaddur sunnudaginn 5. maí. Útförin auglýst síðar. Björk Sigurjónsdóttir, Þorgils Sigurðsson, Ari Sigurjónsson, Snorri Sigurjónsson, Sævar Árnason, og barnabörnÁsta Sigurjónsdóttir, + Astkær eiginmaður minn, faðir okkar, og sonur, SIGURÐUR KR. SIGURÐSSON, Þinghólsbraut 21, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 4. maí. Útförin verður auglýst síðar. Birthe Sigurðsson, Anna Karína Sigurðardóttir, Magnús Kr. Sigurðsson, Rósa Magnúsdóttir. + Frænka min og systir okkar, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Dvalarheimili aldraðra, Stykkishólmi, andaðist 1. maí. Jarðarförin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 11. maí kl. 14.00. Unnur Torfdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Kristján Jónsson. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Prestbakka, Kópavogsbraut 77, Kópavogi, lést í Landakotsspítala 5. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Jón Ármann Steinsson, Gunnhildur Hreinsdóttir, Halldór Guðmundsson, Maria Julisa Orongan og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLBERA PETRÍNA HJÖRLEIFSDÓTTIR, áðurtil heimilis í Erluhrauni 11, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 6. maí. Guðbjörg Jónsdóttir, Hjörleifur Jónsson, Erna Guðlín Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. 1 Opið kl. 1 3- 1 8 alla virka daga og iaugardaga kl. 13-17. Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin, Kópavogi, sími 564 3555. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI KRISTÓFERSSON frá Fögruvöllum, Vestmannaeyjum, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja sunnudaginn 5. maí. Jarðarförin fer fram fró Stóra-Dalskirkju undir Vestur-Eyjafjöllum laugardaginn 18. maí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Björgvin Guðnason, Erna Alfreðsdóttir, Vignir Guðnason, Martea Guðmundsdóttir, Nína Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.