Morgunblaðið - 07.05.1996, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
BREF • FORSETAKJOR
Ekkí þennan mann
á Bessastaði
Kynni mín af Ólafi Ragnari Grímssyni
I DAG
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
SVARTUR Ieikur
og vinnur
STAÐAN kom upp í viður-
eign tveggja stórmeistara á
opnu meistaramóti Sánkti
Pétursborgar í Rússlandi.
Konstantin N. Asejev
(2.530) va rmeð hvítt en
Valery A. Loginov
(2.525), Úsbekistan, var
með svart og átti leik.
Svartur hafði fórnað
hrók fyrir allsendis
ónógar bætur og við
honum blasti tap
þangað til hvítur lék
sínum síðasta leik, 36.
Be2-g4?? Það er lík-
legt að hýrnað hafi
yfir Loginov þegar
hann fékk leikinn á
sig:
36. — Dxg4! og nú var
ekki um annað að ræða
fyrir hvít en að gefast
upp, því 37. Dxg4 —
Hbl+ verður mát og ekkert
þýðir að víkja drottningunni
undan. Gott dæmi um and-
varaleysi þegar vinningurinn
virðist í höfn.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar í 2A, 3A og 3B í Melaskóla
héldu basar nýlega og færðu Rauða krossi Islands
ágóðann sem varð 8.273 krónur. Þau heita Hlynur
Davíð, Steinar Atli, Steindór Dan, Davíð Már, Kristó-
fer, Guðrún, Inga, Soffía og Sonja Huld.
GEFÐU mér svolítið af kaffinu þínu,
ég þarf að fylla blekpennan minn.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Dýrir plastpokar í Bónus
MIG langar að vekja athygli á því hve dýrir plast-
burðarpokarnir eru í Bónusverslunum, eða 9 krónur
pokinn. Þar að auki er þetta útlend framleiðsla og
handónýt í ofanálag. Þeir rifna um leið og maður
setur eitthvað ofan í þá. Mér finnst einnig að þeir
geti sýnt sóma sinn í því að selja íslenska poka.
Bónusveldið ætti að geta það eins og aðrar verslan-
ir, sem þar að auki selja þá ekki eins dýrt.
Rut
Farsi
C1994 F>nu» CHoorn/DlrtiuHd by Untywl Pmw Syndtem___________UJAIZ&t-ASS (CóO CTUftfcT
lÆXrpintC'
Víkveiji skrifar...
Frá Rannveigu Tryggvadóttur:
DAGINN fyrir skírdag árið 1979
kom Walter Mondale, varaforseti
Carters Bandaríkjaforseta, til
landsins í stutta, opinbera heim-
sókn. Á skírdagsmorgun, kl. 10,
sat hann fund með ráðamönnum
og var að honum loknum boðið til
hádegisverðar í forsætisráðherra-
bústaðinn í Tjarnargötu 32.
Kl. 12.35 þann dag kom ég út
úr húsi foreldra minna á Hávalla-
götu 9 og sá þá Ólaf Ragnar Gríms-
son aka hjá og beygja niður Hóla-
vallagötu. Þar sem ég hafði þá
nýverið tvívegis séð bíl hans lagt
við hús 95 ára gamais manns, Jóns
Halldórsonar, fyrrum söngstjóra
Fóstbræðra, er bjó þá einn á Hóla-
vallagötu 9, langaði mig til að vita
hvert Ólafur væri að fara. Beið ég
því aðeins með að fara af stað í
bíl mínum áleiðis til míns heima á
Seltjarnarnesi.
Er ég svo ók niður Hólavalla-
götu þá hafði Ólafur sem fyrr lagt
bíl sínum við húsið nr. 9 og var á
gangi niður götuna. Er ég beygði
upp Túngötu og leit í afturspegil-
inn sá ég hann smeygja sér inn
um hliðið við bústað sovéska sendi-
herrans í Túngötu 9,_sem er horn-
hús í Hólavallagötu. í mörg ár átti
ég úrklippu úr Morgunblaðinu, þar
sem málgagn sovétstjórnarinnar
greindi frá því sem Ólafur Gríms-
son hafði að segja um ferð Monda-
les til V-Evrópu.
Friðargöngufundur
Ólafs Ragnars
1980 eða 1981 efndu vinstri
róttæklingar með Ólaf Grímsson í
broddi fylkingar til fundar í Félags-
heimili stúdenta við Hringbraut og
skyldi hvatt til friðargöngu. Var
salurinn þéttsetinn og stóðu marg-
ir. Hafði einum manni úr hveijum
flokkanna þriggja; Sjálfstæðis-
flokki, Alþýðuflokki og Framsókn-
arflokki, verið boðið að tala en
einnig töluðu tveir eða þrír vinstri
róttæklingar og Ólafur þeirra síð-
astur. Meðan á ræðu hans stóð fór
ég til fundarstjóra og bað um orð-
ið. Skammtaði hann mér tvær
mínútur.
Ég hóf máls með því að fara
með eftirfarandi hugrenningu An-
dreis Sinjavskis, sovésks ljóðskálds
sem þá var landflótta á Vesturlönd-
um:
„Við gleymum frelsinu eins og
við gleymum vatninu sem við
drekkum og jörðinni sem við
göngum á en í raun er frelsið fá-
gætur hlutur." Síðan skýrði ég frá
ofannefndri heimsókn Ólafs Gríms-
sonar til sovéska sendiherrans.
Voru þá mínúturnar tvær sem ég
fékk til umráða liðnar og í ræðu-
stól vatt sér Ólafur Grímsson.
Sagði hann „konu þessa“ erfingja
Júpítersauðvaldsins. Það geta ekki
allir verið börn rakara, Olafur.
Friðargangan var aldrei farin.
Friðarhreyfingar
afhjúpaðar
í Staksteinum í Morgunblaðinu 24.
mars 1995 er vitnað í grein Andrew
Neil í The Sunday Times sem seg-
ir skjöl í Moskvu sýna að í vinstri-
hreyfingunni á Vesturlöndum hafi
verið margir nytsamir heimskingj-
ar sem beint eða óbeint gengu er-
inda Sovétríkjanna.
„Nú höfum við það frá yfir-
manni útbreiðslu sovésks áróðurs
á alþjóðavettvangi, hvorki meira
né minna, hvernig KGB stýrði
friðarhreyfingunum með eigin
hagsmuni að leiðarljósi, skrifar
hann. „KGB-mönnum tókst sér-
staklega vel upp þegar þeir skipu-
lögðu vestræna „friðar“-herferð til
að virkja almenningsálitið og
þvinga hinn veikgeðja Bandaríkja-
forseta, Carter, til að hætta við
nifteindasprengjuna sem Kreml
óttaðist að yrði áhrifarík fæling
gagnvart árásargetu 25.000 sov-
éskra skriðdreka í Austur-Þýska-
Iandi.
KGB studdi við bakið á fleiri
„friðarhreyfingum" þegar Vestur-
lönd ákváðu að setja upp stýriflaug-
ar á níunda áratugnum. En þá voru
Ronald Reagan og Margaret Thatc-
her við völd. KGB tapaði. Á áttunda
áratugnum, þegar Vesturlönd gáfu
mest eftir, virtust völd og alþjóðleg
áhrif sovétkommúnismans þvert á
móti óstöðvandi. Sovétríkin hörfuðu
ekki fýrr en Vesturlönd tóku á
móti af fullri hörku. Við höfum nú
þá vitneskju úr skjölum í Kreml að
það var vestræn hernaðaruppbygg-
ing, stýriflaugar og þróun Stjörnu-
stríðsáætlunarinnar, sem hræddi
Sovétmenn til að gefa friðnum
tækifæri...
Michael Foot, (fv. formaður
Verkamannaflokksins breska), var
mjög verðmætur fyrir Moskvu sem
viljugur prédikari sovésks áróðurs.
Það þurfti ekki að borga honum
fyrir þetta, ekki einu sinni að sann-
færa hann með rökum; hann trúði
áróðrinum sjálfur. í sérhvert sinn
þegar mikið lá við í kalda stríðinu
gat Moskvuvaldið treyst á hættu-
lega barnalega vinstrisinna á borð
við Foot að láta Sovétríkin ævin-
lega njóta alls vafa en trúa öllu
því versta um Bandaríkin. Það er
engin furða að KGB skuli hafa vilj-
að leggja rækt við-þetta fólk.“
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR,
Bjarmalandi 7, Reykjavík.
AÐ ER ánægjulegt að fylgjast
með því hvað flugsamgöngur
á milli íslands og Þýzkalands eru
að batna mikið. Flugleiðir eru að
hefja áætlunarflug til Berlínar í
fyrsta sinn nú í sumar og fljúga auk
þess til Hamborgar og Frankfurt.
Lufthansa heldur uppi reglulegu
áætlunarflugi á sumrin og þýzka
flugfélagið LTU auglýsir í Morgun-
blaðinu um helgina áætlunarflug á
milli íslands og fjögurra staða í
Þýzkalandi í sumar þ.á m. til Berlín-
ar. Ef Víkveiji man rétt hefur Am-
grímur Jóhannsson einnig haldið
uppi reglulegu leiguflugi til Þýzka-
lands á sumrin.
Flugið til Berlínar er afar mikil-
vægt. Á næstu árum og áratugum
á -Berlín eftir að verða einn af helztu
miðpunktum Evrópu á nýjan leik.
Og Þýzkaland á eftir að verða enn
mikilvægari viðskiptaaðili fyrir okk-
ur íslendinga, þegar fram í sækir.
Við höfum margt til Þýzkalands
að sækja: viðskipti, menningu og
meiri áhuga á menningu okkar og
sögu en hjá flestum, ef ekki öllum
öðrum þjóðum utan Norðurland-
anna. Síðast en ekki sízt getum við
sótt til Þýzkalands mótvægi við þeim
ríku engilsaxnesku áhrifum, sem við
höfum orðið fyrir á síðustu 50 árum.
Það er merkilegt að sjá, hvað rótgró-
in menning Mið-Evrópuþjóðanna
hefur staðið rækilega af sér ásókn
bandarískra og brezkra menningar-
áhrifa.
Sumir telja, að íslendingar hafi
verið áhugalitlir um Þýzkaland og
þýzka menningu frá lokum heims-
styijaldarinnar síðari og skýringa
megi m.a. leita til þeirra atburða,
sem urðu á stríðsárunum af völdum
þýzkra nazista. Það má vel vera.
En það er liðin tíð.
Við eigum að leggja mikla áherzlu
á að auka samskipti okkar við
Þýzkaland á næstu árum og áratug-
um. Þýzkaland er eitt mesta efna-
hagsveldi í heimi. Við getum ekki
annað en notið góðs af því og áhuga
Þjóðveija á menningu okkar og ell-
efu hundruð ára sögu. Stórbættar
samgöngur stuðla að því, að þessi
samskipti aukist í náinni framtíð.
XXX
FRUMVARP, sem nú liggur fyr-
ir Alþingi til upplýsingalaga
gerir ráð fyrir, að almenningur geti
fengið aðgang að upplýsingum um
einkamálefni einstaklinga, þ.á m.
að sjúkraskýrslum og skýrslum sál-
fræðinga. Állsherjarnefnd Alþingis
hefur lagt til, að þessi aðgangur
verði ekki veittur að slíkum skýrsl-
um.
Þetta er skynsamleg tillaga hjá
þingnefndinni. Það er erfitt að átta
sig á, hvers vegna óviðkomandi
aðilar ættu að fá slíkan aðgang að
sjúkraskýrslum og skýrslum sál-
fræðinga. Eðlilegt er, að sjúklingur
og jafnvel nánustu aðstandendur
geti fengið slíkan aðgang en í yfir-
gnæfandi meirihluta tilvika eru
þetta upplýsingar, sem öðrum koma
ekki við.
Undantekningar gætu verið frá
því, ef sagnfræðingar framtíðarinn-
ar væru að fjalla með einhveijum
hætti um menn, sem komið hafa
við sögu lands og þjóðar og aðgang-
ur að slíkum skýrslum gæti varpað
ljósi á athafnir þeirra eða athafna-
leysi, sem erfitt væri að skýra með
öðrum hætti. Og þó yrði að fara
mjög varlega í það.
xxx
AÐ ER skemmtilegt að sjá,
hvers konar áhrif væntanlegt
beint flug Flugleiða til Halifax í
Kanada hefur. Um helgina mátti
sjá hér í blaðinu auglýsingar, sem
bersýnilega voru frá kanadískum
yfirvöldum, þar sem íslendingar eru
hvattir til að notfæra sér bættar
samgöngur og heimsækja Nova
Scotia. I auglýsingum þessum kom
fram, að síðar í maí megi vænta
heimsóknar fólks frá þessum hluta
Kanada til þess að kynna þá mögu-
leika, sem í boði eru. Bættar sam-
göngur opna alltaf nýjar víddir.