Morgunblaðið - 04.06.1996, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Jeltsín semur við Kákasusríki
Kveðst geta
tryggt frið
í Tsjetsjníju
Kislovodsk, Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
undirritaði í gær samstarfssamn-
inga við þrjú Kákasusríki, Armeníu,
Azerbajdzhan og Georgíu, og kvaðst
fullviss um að tilraunir hans til að
koma á friði í Kákasushéraðinu
Tsjetsjníju bæru árangur.
„Rússar vilja frið á öllu Kákasus-
svæðinu. Það er undirstöðuatriði í
stefnu Rússlands í málefnum svæð-
isins,“ sagði Jeltsín í Kíslovodsk,
um 200 km frá Tsjetsjníju, eftir að
hafa undirritað samningana ásamt
Edúard Shevardnadze, forseta Ge-
orgíu, Levon Ter-Petrosjan, forseta
Armeníu, og Hajdar Alíjev, forseta
Azerbajdzhans.
Samningarnir kveða á um að
landamæri ríkjanna á svæðinu verði
virt, svo og mannréttindi og réttindi
þjóðarbrota. Forsetarnir fjórir sögð-
ust ætla að berjast gegn herskáum
aðskilnaðarsinnum og heittrúar-
mönnum og samþykktu að stofna
„sameiginlegt efnahagssvæði" ríkj-
anna fjögurra.
Ter-Petrosjan og Alíjev áréttuðu
að staðið yrði við vopnahléssamning
Armena og Azera, sem batt enda á
mannskæð átök þeirra um héraðið
Nagomo-Karabakh, meðan unnið
yrði að samningi um framtíð héraðs-
ins.
Enn barist í Tsjetsjníju
Samstarfssamningurinn þykir
ekki mjög veigamikill en undirritun-
in veitti Jeltsín tækifæri til að sann-
færa kjósendur um að hann legði
mikla áherslu á að tryggja frið á
Reuter
HAJDAR Líjev, forseti Azerbajdzhans, Levon Ter-Petrosjan, forseti Armeníu, Edúard She-
vardnadze, forseti Georgíu og Borís Jeltsín undirrita samstarfssamninginn í Kislovodsk.
Kákasussvæðinu. Forsetar Kákas-
usríkjanna þriggja fóru allir lofsam-
legum orðum um Jeltsín og sögðu
endurkjör hans nauðsynlegt til að
tryggja frið og stöðugleika á svæð-
inu.
Jeltsín sagði að vopnahléssamn-
ingurinn við leiðtoga tsjetsjenskra
aðskilnaðarsinna fyrir viku hefði
greitt fyrir varanlegum friði í
Tsjetsjníju. Hann kvaðst ætla að
standa við friðaráætlun sem hann
kynnti 31. mars, þar sem hann lof-
aði að senda rússnesku hersveitirnar
frá Tsjetsjníju gegn því að tsjetsj-
enskir skæruliðar létu vopn sín af
hendi.
Ekkert lát virðist þó á átökunum
í Tsjetsníju þrátt fyrir að vopnahlé
ætti að taka gildi klukkan átta að
íslenskum tíma á föstudagskvöld.
Sex rússneskir hermenn biðu bana
og ellefu særðust í tveimur
sprengjuárásum á brynvagna í
Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju, á
sunnudag, að sögn fréttastofunnar
Interfax. Fréttastofan hafði eftir
embættismanni í Grosní að fámenn-
ir skæruliðahópar héldu áfram að
laumast inn í borgina til að und-
irbúa árásir á hermenn.
Rússar og Tsjetsjenar sökuðu
hvorir aðra um að hafa brotið vopna-
hléssamninginn. Tsjetsjensku að-
skilnaðarsinnarnir hafa gefið Rúss-
um frest til föstudags til að standa
við loforðin um brottflutning hers-
veitanna, ella yrði þeim sagt stríð
á hendur að nýju viku fyrir forseta-
kosningarnar í Rússlandi.
Tsjetsjensku aðskilnaðarsinnarn-
ir féllust á að hefja í dag viðræður
við Rússa um framkvæmd samn-
ingsins og fangaskipti, að sögn rúss-
nesks embættismanns í gær. Við-
ræðunum var frestað á laugardag
vegna ágreinings um öryggi tsjetsj-
ensku sendinefndarinnar og meintra
árása rússneskra hersveita á þorp
í Tsjetsjníju.
Sumarfirí á íslandi
Sunnudaginn 16. júní nk. mun sérblaðiö Ferbalög verða helgað
sumarfríum á íslandi. í blaðinu verður sagt frá ýmsum ferða- og gisti-
möguleikum og athyglisverðir áningarstaðir skoðaðir. Gönguferðum,
veibi, golfi o.fl. verða gerð góð skil og til nánari glöggvunar verða birt
ýmis upplýsingakort. Þá verður fjallað um undirbúning fyrir fríið,
viðlegubúnað, útbúnað bílsins og húsbílsins.
Til gagns og gamans verða birtar grilluppskriftir, krossgátur fyrir börn og
fullorðna og þrautir fyrir þau yngstu.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þcssum blabauka, er bent á ah
tekih er vih auglýsingapöntunum til kl. 12.00 mánudaginn 10. júní.
Anna Elínborg Gunnarsdóttir og Arnar Ottesen, sölufulltrúar í
auglýsingadeild, veita allar nánari upplýsingar í síma 569 1171
eha meh símbréfi 569 1110.
Kær kveðja,
Tyrkneskir bókstafstrúarmenn sigruðu
Yilja sljórnaraðild
Istanbul. Reuter.
VELFERÐARFLOKKURINN,
flokkur tyrkneskra bókstafstrúar-
manna, var sigurvegari sveitar-
stjórnarkosninganna í Tyrklandi á
sunnudag og í gær lagði hann fram
vantrauststillögu á stjórn Mesut
Yilmaz forsætisráðherra.
í kosningunum á sunnudag fékk
Velferðarflokkurinn 33,5% atkvæða
en næstur honum kom Föðurlands-
fiokkur Yilmaz með 20,9%. í þriðja
sæti var síðan Sannleiksstígurinn,
flokkur Tansu Ciller, fyrrverandi
forsætisráðherra, með 12%.
Bókstafstrúarmenn bættu við sig
3,5% frá því í þingkosningunum í
desember og styrkir það stöðu
þeirra í umræðum um vantrauststil-
löguna, sem hófst í gær. Hugsan-
legt er, að hún komi til atkvæða á
föstudag. Gerir Velferðarflokkurinn
kröfu til aðildar að ríkisstjórninni.
Ciller hefur raunar gefið í skyn,
að hún muni styðja vantrauststil-
lögu Velferðarflokksins en ýmsir
telja þó, að sigur hans á sunnudag
muni þrýsta stjórnarflokkunum
saman, a.m.k. um stundarsakir.
MALVERKA-
UPPBOD
Málverkauppboð á Hótel Sögu
fimmtudaginn 6. júníkl. 20.30.
Sýning uppboðsverka
í dag kl. 12.00-22.00,
á morgun kl. 12.00-22.00,
fimmtudag 6. júníkl. 12.00-18.00.
við INGÓLFSTOR G,
SÍMI552 4211