Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C 145. TBL. 84.ÁRG. LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Kristinn Tæplega 195 þúsund kjósendur á kjörskrá KJÖRFUNDUR vegna kosninga til embættis forseta Islands hefst klukkan 9 í dag og lýkur kjör- fundi klukkan 22. A kjörskrá vegna forsetakosninganna eru 194.784 kjósendur. Kjósendur á kjörskrárstofni nú sem höfðu ekki kosningarétt vegna aldurs 1980 eru 76.781, eða 39% kjós- enda. I fámennum sveitahrepp- um stendur kjörfundur víða skemur. Kosið er í um 340 kjör- deildum á landinu öllu, þar af tæplega 100 í Reykjavík, og þurfa kjósendur að framvísa nafnskírteini eða gera grein fyr- ir sér á annan fullnægjandi hátt þegar þeir koma til kjörfundar. Hægt verður að greiða at- kvæði utan kjörfundar í dag hjá sýslumönnum og hreppstjórum, en þeir sem það gera verða sjálf- ir að sjá um að koma atkvæði sínu til yfirkjörsljórnar í því kjördæmi þar sem þeir eiga lög- heimili. Hjá sýslumanninum í Reykjavík geta þeir sem búsettir eru utan Reykjavíkur greitt at- kvæði utan kjörfundar kl. 10-12 og kl. 14-18. Reynist einhverjir þeirra sem koma til kjörfundar ekki vera á kjörskrá geta þeir haft samband við yfirkjörstjórn í viðkomandi kjördæmi. Von á fyrstu tölum upp úr kl. 22 Von er á fyrstu tölum í forseta- kosningunum upp úr kl. 22 í kvöld, eða skömmu eftir að kjör- stöðum verður lokað. Ekki er talið að endanleg úrslit liggi fyr- ir fyrr en um miðja nótt, en það stafar af því að mikið er um utan- kjörfundaratkvæði sem talin verða síðust. Þannig höfðu t.d. rúmlega 15% þeirra sem á kjör- skrá eru í Reykjavík greitt at- kvæði utan kjörfundar í gær. Talning atkvæða hefst víðast hvar klukkan 17. í Reykjavík fer talningin fram í Ráðhúsinu, í Reykjaneskjördæmi fer talning fram í íþróttahúsinu i Kaplakrika í Hafnarfirði, í Vesturlandskjör- dæmi fer talning fram í Grunn- skólanum í Borgarnesi, í Vest- fjarðakjördæmi fer talning fram á efstu hæð í Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði, í Norðurlandskjör- dæmi vestra fer talning fram í félagsheimilinu Bifröst á Sauðár- króki, í Norðurlandskjördæmi eystra fer talning fram í Oddeyr- arskólanum á Akureyri, í Aust- fjarðakjördæmi fer talning fram í félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði og í Suðurlandskjör- dæmi fer talningin fram á Hótel Selfossi. ■ Forsetalqör/2,6,11,34 Ciller o g Erbakan mynda stj órn í Tyrklandi Heittrúaðir fá forsætisráðuneytið fyrst um sinn Ankara. Reutcr. SULEYMAN Demirel, forseti Tyrklands, lagði í gær blessun sína yfir nýja samsteypustjórn Vel- ferðarflokks heittrúaðra múslima og Sannleiksstígsins, flokks Tansu Ciller, fyrrum forsætisráðherra. Necmettin Erbakan, formaður Vel- ferðarflokksins, verður forsætis- ráðherra nýju stjórnarinnar fyrst um sinn. Erbakan verður fyrsti heittrúaði músliminn sem sest í stól forsætis- ráðherra í Tyrklandi, og hafa heit- trúaðir ekki komist til svo mikilla valda í landinu frá því veraldlegt stjórnarfar komst þar á eftir fall Ottoman-keisaradæmisins 1923. Embættismenn Sannleiksstígs- ins sögðu í gær, að formenn flokk- anna myndu skiptast á um að sitja í forsæti stjórnarinnar. Fyrst um sinn verði Ciller aðstoðarforsætis- ráðherra og ráðherra utanríkis- mála. Velferðarflokkurinn hefur flest þingsæti, eða 158 af 550, og til samans hafa stjórnarflokkarnir 276 sæti. Sumir þingmenn Sann- leiksstígsins hafa þó hótað því, að þeir geti ekki veitt samstarfi við múslima brautargengi. í gær sagði einn þingmaður sig úr flokknum í mótmælaskyni. Velferðarflokkurinn er andvígur aðild Tyrklands að Atlantshafs- bandalaginu (NATO), og barðist einnig gegn tollabandalagi sem gert var við Evrópusambandið (ESB) í stjórnartíð Cillers. Reuter Maður stórra hugmynda NECMETTIN Erbakan umkringdur lífvörðum og fjölmiðlafólki eftir að ljóst varð í gær, að liann verður næsti forsætisráðherra Tyrklands. Fréttaskýrendur segja hann vera mann stórra hug- mynda sem stundum skorti þó smáatriðin í. Þótt hann sækti sér menntun til Vesturlanda hafði það ekki áhrif á trú hans, og frá því hann var 13 ára hefur hann beðist fyrir fimm sinnum á dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.