Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mikil eftirspurn eftir leign- kvóta o g verðið hækkar Marg’ir komnir fram yfir þorsk- kvótann sinn en framboð lítið Breytt viðskipti MIKIL eftirspum er nú eftir leigu- kvóta enda kvóti að verða búinn í flestum tegundum nema ýsu og ufsa. Árni Guðnason hjá Kvóta- markaðnum segir mikið um að vera í smásölu núna og verð á þorski mjög hátt. Þá er Kvóta- markaðurinn að fara af stað með uppboð á þorskaflahámarki í krókakerfínu. Ámi segir marga vera komna fram yfír þorskkvóta sinn og því að kaupa smáa og dýra skammta til að bjarga sér fyrir horn. Verðið á leigukvóta hafí lækkað allt niður í 88 krónur en sé núna komið upp K95 krónur. Ámi segir framboð á ýsu og ufsa hins vegar vera mikið og þessar tegundir séu nú nánast gefíns, ýsan fari á 3-4 krónur og ufsinn sé nú á eina krónu. Daufur humarmarkaður Humarmarkaðurinn er mun daufari en í fyrra að sögn Árna og lítil viðskipti átt sér stað. Hann segir menn fara mun varlegar í sakimar vegna lélegrar vertíðar í fyrra og verkfallsins sem þá var og framboðið af humarkvóta því mun meira í ár. Leiguverð á rækju hafí lækkað eftir að hinir afkasta- miklu togarar hafí byijað að veiða á Flæmska hattinum og sé nú komið niður í 73 krónur en var hæst 90 krónur. Þá hafí leiguverð á karfa aðeins sigið, sé nú um 35 krónur og sömuleiðis á grálúðu sem sé nú um 25 krónur. Töluverð eftirspurn hefur verið eftir varanlegum kolakvóta hjá Kvótamarkaðnum og er verðið nú um 135 krónur. Þá hefur síldar- verðið hækkað mikið og hafa ver- ið boðin allt að 100 tonn af þorski í síldarkvóta. Ámi segir viðskiptin hafa verið með töluvert öðru sniði á þessu fískveiðiári en á því síðasta. Ástæðan sé meðal annars sú að margir hafí farið á úthafsveiðar, bæði á Flæmska hattinn og á Reykjaneshrygg, og mikið hafí því verið keypt af stórum skömmtum og verð þar af leiðandi fallið mun fyrr nú en í fyrra að þorskverðinu undanskildu. Uppboð á þorsk- aflahámarki Samkvæmt nýjum lögum um smábátaveiðar er smábátaeigend- um nú heimilt að framselja þorsk- aflahámark krókabáts yfír á ann- an krókabát með því skilyrði að allt hámarkið sé fiutt af viðkom- andi bát, enda fellur veiðileyfí hans niður og rétti til endurnýjun- ar er afsalað. Árni segist hafa orðið var við mikinn áhuga hjá trillukörlum varðandi þetta, bæði hjá þeim sem séu að úrelda og þurfi því að selja allan pakkann en einnig þeim sem vilja kaupa litla skammta og auka þannig heimildir sínar. „Við verðum með fyrsta uppboðið á mánudag og þá kemur í Ijós hvernig verðið verður en það hafa verið margar hug- myndir um verð. Það er mikil gerj- un í þessum viðskiptum og við verðum ekki með mikið magn á uppboðinu, kannski um 100-150 tonn, enda verður selt þétt. Króka- bátaeigendur ráða ekki við að kaupa stóra skammta í einu og við ætlum okkur að halda vel utan um þetta til að geta þjónustað þennan hóp líka. Það kemur síðan í ljós hvernig þessi viðskipti þróast á næstu mánuðum," segir Árni. Morgunblaðið/Þorkell Forsetaframbjóðendur í sjónvarpi FRAMBJÓÐENDUR tfl forseta íslands þau Pétur Kr. Hafstein, Grímsson, komu fram í sameiginlegri útsendingu Stöðvar 2 og Guðrún Agnarsdóttir, Ástþór Magnússon og Ólafur Ragnar Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi og var það síðasti málfundurinn. Söngflokkurinn „ Fire on the Mountain“ frá Utah í heimsókn á íslandi Vestur-Islendingur stjórnar flokknum SÖNGFLOKKURINN „Fire on the Mountain" frá Brigham Young- háskólanum í Provot Utah, Banda- ríkjunum, kemur til Islands í byijun júlí og heldur hér tvenna tónleika. Hann verður einnig fulltrúi Banda- rílqanna á CIOFF-þjóðlagahátíð sem haldin verður í júlí í Brunssum í Hollandi og kemur þar fram ásamt listafólki frá 63 löndum. Flokkurinn hefur á sl. 15 árum farið víða um heim og haldið tón- leika, flutt þjóðlög, sveitatónlist, „Cajun“ og jass. Sex af bestu tón- listarmönnum BYU leika á gítar, fiðlu, mandóh'n, banjó, munnhörpu og mörg fleiri hljóðfæri. Eftir að sendiherra íslands í Bandaríkjun- um, Einar Benediktsson, hafði verið viðstaddur flutning „Fire on the Mountain" á Íslendingahátíðinni í Utah bað hann flokkinn að halda tónleika á íslandi, segir í fréttatil- kynningu. 4.000 afkomendur íslenskra innflytjenda í Utah Á árunum 1855 til 1890 fluttu um 400 íslendingar til Utah og settust að í Spanish Fork en sá bær er fyrir sunnan Salt Lake City. Nú búa um 4.000 afkomendur þessara íslensku landnema í Utah en Span- ish Fork er elsta íslendinganýlend- an í Ameríku. Með flokknum verður dr. Clark Thorsteinson, Vestur-íslendingur og konsúll íslands í vesturfylkjum Bandaríkjanna. Hann kennir við BYU. Á sama tíma munu um 40 afkomendur íslensku landnemanna í Spanish Fork koma til íslands og verða viðstaddir tónleikana sem haldnir verða í Vestmannaeyjum 8. júlí í Safnaðarheimili Landa- kirkju kl. 21 og í Reykjavík 9. júlí á Fógetanum kl. 21. Þetta verður stærsti hópur frá Spanish F'ork sem heimsótt hefur ísland. Vestur-íslendingurinn Mark Geslison, sem starfar við tónlistar- deild BYU, stjómar söng- og dans- flokknum „Fire on the Mountain en BYU er stærsti einkarekni há- skóli Bandaríkjanna, rekinn af Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu (Mormónakirkjunni) með rúmlega 28.000 nemendur fra Bandaríkjunum og yfir 100 öðrum löndum. Jóhann efstur ís- lending-- anna Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. í SJÖTTU umferð opna skák- mótsins í Kaupmannahöfn, sem tefld var í gær, gerði Jóhann Hjartarson jafntefli við enska stórmeistarann Speelman en Margeir Péturs- son tapaði fyrir danska al- þjóðlega meistaranum Sune Berg Hansen. ísraelski stórmeistarinn Eran Liss er óvænt efstur í mótinu, með 5 'A vinning. Jó- hann er efstur Íslendinganna með 4 ‘A vinning, Margeir er með 4 vinninga en þeir Héð- inn Steingrímsson, Bragi og Bjöm Þorfinnssynir og Davíð Kjartansson hafa allir 3 vinn- inga. Forræðismálið í Tyrklandi Ekki látið reyna á um- gengnisrétt EKKI verður hægt að láta reyna á umgengnisrétt Sop- hiu Hansen og dætra hennar í Tyrklandi strax 1. júlí nk. Undirréttur í Tyrklandi dæmdi Sophiu og dætrum hennar umgengnisrétt í júlí og ágúst í Tyrklandi með úr- skurði frá 13. júní sl. Staðfesting verið send Sigurður Pétur Harðarson, stuðningsmaður Sophiu, sagði að henni hefði þegar verið send staðfesting á úrskurðin- um frá 13. júní. Ekki hefði hins vegar borist staðfesting á því að dómurinn hefði verið birtur fyrrverandi eiginmanni Sophiu í Tyrklandi. Staðfest- ingin bærist væntanlega síðla í næstu viku. Þegar hún hefði borist væri hægt að fara að huga að því að láta reyna á umgengnisréttinn. Arekstur við Stekk ÁREKSTUR varð á Reykja- nesbraut á gatnamótunum við Stekk um hádegisbilið í gær. Báðir ökumennirnir fengu að fara heim að lokinni skoðun á Sjúkrahúsi Suðumesja en farþegi í annarri bifreiðinni var fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur í Fossvogi til frekari skoðunar. Ekið á 9 ára barn Ekið yar á níu ára bam á reiðhjóli í Njarðvík, á Njarðar- braut skammt frá Kjarrmóa eftir hádegi í gær. Var bamið flutt á Sjúkrahús Suðumesja en fekk að fara heim að skoð- un lokinni. Bifreið var ekið út af vegin- u™ á Garðvegi við gatnamótin að Heiðarholti í gær. Bfllinn enti a umferðarmerki en eng- m slys urðu á mönnum, að sogn logreglunnar í Keflavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.