Morgunblaðið - 29.06.1996, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
L
FRÉTTIR
Eins hreyfils flugvél nauðlenti
í Geldinganesi í gærkvöldi
Tveir menn
sluppu ómeiddir
TVEIR menn sluppu ómeiddir
eftir að eins hreyfils tveggja
sæta flugvél af gerðinni Cessna
152 í eigu Flugtaks hlekktist á
í nauðlendingu í Geldinganesi
skömmu fyrir kl. hálfátta í gær-
kvöldi.
Karl Alvarsson flugumferð-
arsljóri segir að vélin hafi farið
í loftið frá Reykjavíkurflugvelli
kl. 19.15 og hefði neyðarkall
borist mjög skömmu síðar.
Flugmaðurinn hugðist nauð-
lenda í Mosfellsbæ en náði því
ekki og nauðlenti í Geldinga-
nesi.
Að sögn Skúla Jóns Sigurðar-
sonar, formanns rannsóknar-
nefndar flugslysa, missti hreyf-
ill vélarinnar afl og stöðvaðist.
í nauðlendingunni hlekktist vél-
inni á og henni hvolfdi. Flug-
stjórn gerði Landhelgisgæsl-
unni samstundis viðvart og var
þyrlan TF-SIF, sem þá var ný-
lent á Reykjavíkurflugvelli,
send upp í Geldinganes. Hún
lenti þar kl. 19.31 og flaug með
mennina á Reykjavíkurflugvöll.
Þeir voru ómeiddir.
Skúli Jón segir að vélin hafi
verið tekin á leigu af einkaflug-
manni og hann hafi ætlað að
fljúga til Stykkishólms með einn
farþega. Hann segir að flak
vélarinnar hafi verið fjarlægt í
gærkvöldi og hreyfill hennar
tekinn til rannsóknar.
Hann segir að rannsókn á til-
drögum slyssins muni beinast
að því að komast að ástæðum
þess að hreyfillinn stöðvaðist.
Fjórðungsmót sunnlenskra hestamanna
Líkist landsmóti
Hellu. Morgunblaðið.
FJÓRÐUNGSMÓT sunnlenskra
hestamanna fer fram dagana 3.-7.
júlí nk. á Gaddstaðaflötum við
Hellu. Að mótinu standa 16 hesta-
mannafélög á Suðurlandi, en starfs-
svæði þeirra er frá Lómagnúpi í
austri að Hvalfjarðarbotni í vestri.
Þar sem flest stærstu hesta-
mannafélög landsins taka þátt í
mótinu lætur nærri að 70% skráðra
félagsmanna í Landssambandi
hestamanna (LH) eigi þar aðild.
Fjórðungsmót á Suðurlandi líkist
þannig landsmóti að umfangi.
Vegna nýlegra breytinga á lögum
LH er útlit fyrir að þetta fjórðungs-
mót verði hið síðasta á Suður-
landi, enda er gert ráð fyrir að
landsmót verði framvegis annað-
hvert ár en ekki á fjögurra ára
fresti eins og verið hefur.
Á Gaddstaðaflötum hefur á und-
anfömum árum verið unnið að
gagngerri uppbyggingu svæðisins,
en fyrir landsmótið 1994 má segja
að það hafi verið komið í núver-
andi horf og telst nú með betri
mótssvæðum landsins. Öli aðstaða
verður innan seilingar fyrir hesta-
menn, beitarhólf, tjald- og bíla-
stæði auk fjölbreyttrar veitinga-
sölu á svæðinu. Þá eru aðeins
nokkur hundruð metrar i aðra
þjónustu á Hellu.
Búist við fimm þúsund manns
Að sögn Fannars Jónassonar,
framkvæmdastjóra FM, er von á
a.m.k. fimm þúsund manns á mót-
ið en gestir munu hafa verið um
tíu þúsund á síðasta landsmóti.
„Færri gestir á fjórðungsmóti er
aðallega vegna færri erlendra
gesta, sem verða þó um eitt þús-
und, en fjöldi hrossa sem sýndur
verður slagar upp í fjöldann á
landsmóti, en reiknað er með að
sýnd verði um sex hundruð hross.“
Að sögn Fannars verður mótið
sett miðvikudaginn 3. júní. Fyrstu
tvo daga mótsins verða kynbóta-
hross hæfileikadæmd og fram fer
forkeppni í öllum flokkum gæð-
inga. Þessi forkeppni er nýmæli
og er framkvæmd eftir nýsettum
reglum LH. Á mótinu verða enn
fremur sýningar kynbótahrossa,
kappreiðar, ræktunarbússýningar,
útreiðatúr og kvöldvökur. Þá mun
hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar leika fyrir dansi í risatjaldi á
föstudags- og laugardagskvöld.
Kosninga-
skrifstofa
Upplýsingar um forseta-
kosningarnar eru gefnar
á kosningaskrifstofunni
í Borgartúni 20 og í
síma 588 6688
Upplýsingar um kjörskrá
og atkvæðagreiðslu utan
kjörfundar eru gefnar í
síma 553 3209
Morgunblaðið/Júlíus
Rit með fróðleik um hag landbúnaðar
4.638 lögbýli voru
í byggð árið 1994
38% sauðfjárbænda
eldri en 55 ára
HJÁ Hagþjónustu landbúnaðarins
er komið út ritið Hagur landbúnað-
arins, sem stofnunin tekur saman
á tveggja ára fresti. Ritið skiptist
í 12 kafla sem hver um sig fjallar
um tiltekinn málaflokk í máli og
tölum. Megináhersla er lögð á
umfjöllun um tímabilið frá 1990-
1994.
í fréttatilkynningu kemur fram
að mikinn fróðleik sé að fínna í
ritinu um íslenskan landbúnað.
Af einstökum málaflokkum sem
teknir eru til umfjöllunar má nefna
eignarhald og ábúð á bújörðum,
framleiðslu, verðlagsmál, sam-
setningu framleiðenda eftir aldri
og búsetu, og afkomu í landbún-
aði.
Fardagaárið 1993/94 voru alls
skráð 4.638 lögbýli í byggð á ís-
landi. Auk þeirra voru skráðar
eyðijarðir 1.836. Verðlagsárið
1993/94 voru 3.233 býli skráð
með kýr og/eða sauðfé. Svína-
kjötsinnleggjendur voru 116 að
tölu og innieggjendur eggja og
alifuglakjöts 61. Um 38% þeirra
sem lögðu inn afurðir af sauðfé
árið 1994 voru eldri en 55 ára og
framleiddu þeir um 34% af öllu
kindakjöti. Af mjólkurinnleggjend-
um voru á sama tíma 33% yfir
55 ára aldri og framleiddu þeir
um 27% af allir mjólk.
í umfjöllun um verðlagsmál í
Hagi landbúnaðarins kemur m.a.
fram að raunverð á nýmjólk og
fyrsta flokks dilkakjöt, (bæði verð
til bænda og smásöluverð), hefur
farið lækkandi á undanförnum
árum, samtímis því sem miklar
breytingar hafa orðið á rekstrar-
umhverfí landbúnaðarins.
Hagur landbúnaðarins er 160
bls. og fæst hjá útgfeanda, Hag-
þjónustu landbúnaðarins á Hvann-
eyri.
Skoðanakannanir
_______________._.——
Ólafur
Ragnar með
37,7-40,4%
ÓLAFUR Ragnar Grímsson
fær 40,4% fylgi ef miðað er
við þá sem afstöðu tóku í
skoðanakönnun DV og Stöðv-
ar 2 sem birt var í gær. Næst-
ur kemur Pétur Kr. Hafstein
með 29,6% fylgi, þá Guðrún
Agnarsdóttir með 27,5% og
loks Ástþór Magnússon með
2,5%.
Fylgi Ólafs Ragnars er
rúmum sex prósentustigum
lægra en í síðustu könnun
DV 20. júní en Guðrún Agn-
arsdóttir eykur við sig um
átta prósentustig. Fylgi Pét-
urs Kr. Hafstein er rúmu pró-
sentustigi lægra en í síðustu
könnun.
Gallup-könnun
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun Gallups á íslandi fyrir
Sjónvarpið, er fylgi við Ólaf
Ragnar Grímsson 37,7%
þeirra sem tóku afstöðu í
könnuninni. Pétur Kr. Haf-
stein fær 30,8%, Guðrún Agn-
arsdóttir 28,2% og Ástþór
Magnússon 3,4%.