Morgunblaðið - 29.06.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Eurotunnel til
skiptameðferðar?
Lánardrottnar fá frest til júlíloka
París. Reuter.
ENSK-franska fyrirtækið Eurotunn-
el, sem rekur Ermarsundsgöngin,
hefur gefíð í skyn að það kunni að
verða tekið til skiptameðferðar, ef
enginn árangur náist í viðræðum við
banka um skuldasamning fyrir júlí-
lok.
Viðræðum Eurotunnel og banka
hefur lítið miðað áfram síðan fyrir-
tækið stöðvaði greiðslur á vöxtum
af átta milljarða punda skuld í sept-
ember og fór fram á að tveir dóm-
skipaðir milligöngumenn aðstoðuðu
við fjárhagslega endurskipulagn-
ingu.
Stjórnarformaður Frakka, Patrick
Ponsolle, sagði fjárfestum að koma
mundi á óvart ef dómari í París
neitaði að framlengja umboð milli-
göngumannanna, Wakehams lávarð-
ar frá Bretlandi og Frakkans Ro-
bertd Badinterd, til 31. júlí frájúní-
lokum sem fyrirtækið hafði farið
fram á.
Ef fyrirtækið yrði tekið til skipta-
meðferðar sagði hann að starfa yrði
eftir ólíkum frönskum og brezkum
reglum um greiðsluþrot og mundi
það ekki eiga sér hliðstæðu. Viðræð-
urnar verða „flóknar, langvinnar og
erfiðar", sagði hann.
Ponsolle sagði að Eurotunnel yrði
reiðubúið að bjóða lánardrottnum
nokkuð af hlutabréfum sínum í
skiptum fyrir „mjög verulega"
vaxtalækkun.“
Hann kvaðst ekki geta sagt hlut-
höfum frá stöðu fyrirtækisins í við-
ræðunum, en viðurkenndi að um það
væri þegjandi samkomulag að hluta
skuldanna yrði breytt í hlutabréf í
skiptum fyrir mikla lækkun á láns-
vöxtum bankanna.
Einnig væri samkomulag um að
skuldin yrði skorin niður á næstu
árum og hluthafar fengju nokkra
tryggingu fyrir því að verðmæti fjár-
festinga þeirra rýrnaði ékki.
Mest ferðast um
Atlanta-flugvöll
Skýtur O’Hare flugvellinum
í Chicago aftur fyrir sig
Genf. Reuter.
UMFERÐ farþega um flugvelli
heims jókst um tæplega 8% á fyrsta
ársfjórðungi og er mest ferðast um
flugvöllinn í Olympíuborginni Atl-
anta 1996.
Umsvif flugfélaga halda áfram
að aukast að sögn alþjóðaflugvall-
aráðsins ACI í Genf, þótt flugfrakt
ykist um aðeins 3,5% miðað við sama
tíma 1995.
í prósentum fjölgaði farþegum
mest í Afríku og fóru 6,4 milljónir
manna um flugvelli þar, 11,6% fleiri
en á sama tíma í fyrra að sögn ACI.
9,4% aukning
í Evrópu
Mesta athygli vekur þó 9,4%
aukning í 145 milljónir farþega í
Evrópu. Þótt sú aukning stafaði
sumpart af mikilli flugumferð fyrir
páska stafaði hún einnig af því að
nokkur flugfélög buðu ferðir á kynn-
ingarverði og af auknu sætarými
vegna tilkomu nýrra flugfélaga á
Spáni, Italíu og Bretlandi.
O’Hare flugvöllur í Chicago varð
að víkja úr sæti fjölfarnasta flugvall-
arins fyrir Atlanta, aðalbækistöð
Delta, opinbers flugfélags Ólympíu-
leikanna, og hins bágstadda Valujet-
flugfélags samkvæmt skýrslu ACI
um umferð um 460 flugvelli.
15,5 millj.
fóru um Atlanta
Á fyrstu þremur mánuðum ársins
fóru rúmlega 15,5 milljónir manna
— 18% fleiri en á sama tíma í fyrra
- um Atlanta. Á sama tíma fóru
15,4 milljónir um O’Hare, sem þar
með lenti í 2. sæti. Atlanta var í 2.
sæti í fyrra.
Ólympíuleikarnir fara fram 19.
júlí til 4. ágúst og gerir ACI ráð
fyrir að áhrifa þeirra muni gæta
langt fram á haust.
Heathrow-flugvöllur Lundúna,
þriðji fjölfarnasti flugvöllur heims
1995, hafnaði nú í 5. sæti á eftir
Los Angeles, sem er í 3. sæti, og
Dallas-Forth Worth, sem er í 4. sæti.
Flugfrakt jókst mest í Miðaustur-
löndum, um 21,1% í 422.222 tonn.
Mest var flutt af flugfrakt í Norður-
Ameríku, 5.9 milljónir tonna.
7,4% aukning
vestanhafs
Alls fóru tæplega 284 milljónir
farþega um bandaríska flugvelli frá
janúar til marz og er þeð 7,4% aukn-
ing. Evrópa var í öðru sæti með 145
milljónir að sögn ACI.
Tæplega 91 milljón farþega, 7,1%
fleiri en í fyrra, fóru um flugvelli á
Asíu-Kyrrahafssvæðinu - þar á
meðal Narita í Tókýó, sjötta fjölfarn-
asta flugvöll heims.
Farþegum á flugvöllum í Miðaust-
urlöndum fjölgaði um 7,9% í 11.5
milljónir. í Rómönsku Ameríku fjölg-
aði farþegum, sem fóru um flug-
velli, um aðeins 1,5% í 18.9 milljónir
farþega.
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónusta fyrir
brúðkaupið i
(ýf) SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12* Sími 568 9066
- Þar færöu gjöfina -
Öllum þeim mörgu, stofnunum, félögum og ein-
staklingum, sem glöddu mig meö heimsóknum,
gjöfum og skeytum á áttrœöisafmœli mínu,
þakka ég af alhug og biö þeim velgengni og
blessunar.
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 21
Aðeins í Pro Shop verslunum
Abu Garcia hefur nú sett á markaö sérvalda veiðilínu
- Pro Shop, sem aöeins er seld í viöurkenndum
Pro Shop verslunum. í veiðilínunni eru Ambassadeur
og Cardinal velöihjól, Pro Shop veiöistangir og sérstakir
Toby spúnar. Þær verslanir sem selja Pro Shop vörur,
vinna eftir einkunnaroröunum: Gæöi, þekking,
þjónusta.
Eftirfarandi verslanir eru Pro Shop verslanir:
Veiöimaðurlnn, Hafnarstræti 5, Reykjavík
Sportkringlan, Kringlunni, Reykjavík
Útllíf, Glæsibæ, Reykjavík
Kaupfélag Skagfiröinga, Ártorgi 1, Sauöárkróki
Veiöibúö Lalia, Bæjarhrauni 20, Hafnarfiröi
Veiöisport, Kaupvangsstræti 21, Akureyri
Sportvík, Hafnarbraut 5, Dalvík
Kaupfélag Árnesinga, Kirkjubæjarklaustri
Umboðsadill: Veiöimaöurinn ehf., Hafnarstræti 5, sími: 551 4800
Cardinal Exellent Gold: 5.734 kr.
Pro Shop EXS 106: 10.990 kr.
Pro Shop EXC 86: 8.494 kr.
Pro Shop EXC 96: 9.503 kr.
Pro Shop EXS 76: 8.114 kr.
Pro Shop EXS 86: 8.931 kr.
Pro Shop EXS 96: 8.266 kr.
-■:f r
tvrSͧ5ÉÉs&
'
kosnin&akafli
og kosninsavaka
KosiiiiigakaHi á llólcl Borg
Kosningakaffi stuðningsmanna Ólafs Ragnars
í Reykjavík verður á Hótel Borg frá kl. 10 til 17.
Hljóðfærasláttur, söngur, ávörp - laufíétt stemmntng!
Kosiiiiii»avaka í Súlnasal
Klukkan 21 hefst kosningavaka í Súlnasal Hótel Sögu.
Fylgst verður með sjónvarpsútsendingu og dansað fram
á nótt við tónlist hljómsveitarinnar Saga Class.
ftí%
4*
i/y
-2
&
£>
J?
Sttióningslólk
Sliiðlinii að öruggri kosiiingii
Olals Ragiiars (a íiiissonar!
GeirR. Tómasson.