Morgunblaðið - 29.06.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 27
Ljósmyndir/Gunnar Hallgrímsson
ungi hefur sett upp fjarsjá sem gefur 22 falda
stækkun. „Tveir rauðhöfðaandarsteggir voru
að lenda og það gefur til kynna hversu fjöl-
skrúðugt andalífið er hérna. Nú vantar okkur
bara urtönd. Hún hlýtur að vera hérna ein-
hvers staðar.“
Auk allra andanna sjáum við hettumáva,
kríur, hrossagauka, grágæsir og á steini úti í
miðri tjörn sitja tveir óðinshanar.
„Það má kannski kalla þá furðufugla því
þeir hafa svolitla sérstöðu meðal fugla,“ seg-
ir Gunnar. „Þeir eru kvenréttindafuglar. Yf-
irleitt er karlfuglinn litskrúðugri en kven-
fuglinn, en hjá óðinshönum er kvenfuglinn
miklu fallegri og litskrúðugri en karlinn og
hún stundar fjölveri. Tekur nokkra karla og
lætur þá frjóvga sig og eftir varpið yfirgefur
hún hreiðrið og lætur karlana sjá um afgang-
inn.“
I íjöruborðinu er fugl með langt rautt nef,
sem hann stingur í sjóinn og skvettir yfir sig.
Gunnar segir mér að þetta sé tjaldur að baða
sig. Svo heyrum við í vellandi spóa, en einn lið-
urinn í fuglafræðunum er að þekkja þá á hljóð-
inu. „Eitt atriðið er iíka að þekkja þá á flugi,
eins og stelkana þarna. Þú sérð það bara á
töktunum í fiuginu og hljóðið í þeim styður
greininguna," segir Gunnar.
Og alltaf bætast við nýjar tegundir. „Þarna
sérðu lóu uppi á túni og svo kemur hérna lítill
fugl fljúgandi sem sest rétt hjá tjaldinum. Það
er lóuþræll. Svo er spóinn þarna ennþá lengra
til vinstri og hann er iíka að baða sig.“ Blaða-
maður játar fúslega að fuglaskoðun er
skemmtileg iðja.
Flórgaðinn á Ástjörn
Ástjörnin er sérstök náttúruperla með auð-
ugu fuglalífi og þangað liggur leið okkar næst.
Gunnar vill sýna mér flórgoðann, sem þar hef-
ur aðsetur.
„Það er sef í Astjörninni sem flórgoðinn
sækir í,“ segir hann. „Þeir hafa þá sérstöðu að
þeir byggja flothreiður. Þeir tína strá og búa
til svona bungu á floti og síðan festa þeir hana
við stráin í kring. Það er talsvert af flórgoða
við Mývatn en hann er sjaldgæfur í þessum
landshluta og fer fækkandi. Fuglaverndarfé-
lagið hefur haldið á hverju ári flórgoðadag við
Ástjörn, þar sem fólki gefst tækifæri til að
koma og skoða fuglinn. Þetta er fallegur fugl
og full ástæða til að vekja athygli á honum og
passa upp á hann.“
Gunnar bendir mér réttilega á að fuglaskoð-
un sé ekki bara skemmtileg og spennandi tóm-
stundaiðja heldur ekki síður holl, enda fylgir
henni heilsusamleg útivera. Auk þess samein-
ist í henni ýsmar góðar dyggðir svo sem þolin-
mæði og skipulagshæfíleikar.
„Þolinmæði er sú dyggð sem sérhver fugla-
skoðari verður að hafa í ríkum mæli. Þegar ég
var yngri var óþolinmæðin mér fjötur um fót.
Með aldrinum hefur maður róast,“ segir
menntaskólaneminn fullorðinslega og bætir
við: „Það besta við þetta er hins vegar að mað-
ur fer inn í annan heim. Það er gott að gleyma
tímanum, detta út úr amstri hins daglega lífs
og inn í heim fuglanna og vita ekkert hvað tím-
anum líður.“ Og það eru vissulega orð að
sönnu.
Fjölskrúðug fuglaflóra
Q ÞESSI fugl hefur ekki enn verið
greindur til tegundar. Fuglaskoðarar
eru ekki á eitt sáttir hvort um er að
ræða auðnutittling eða hrfmtittling.
Myndin er tekin í Fossvogskirkjugarði
í vor.
n GRÁSPÖR, kvenfugl. Gráspörvar eru
H mjög sjaldgæfir flækingar á fslandi en
samt verpa nokkur pör á Hofi f Öræf-
um þar sem myndin er tekin.
Q GRASTÍTA er mjög sjaldgæfur amer-
fskur vaðfugl. Þessí grastíta sást við
Garðskagavita á Reykjanesi.
Q UNGUR bláhrafn í Hafnarfirði. Blá-
hröfnum svipar til hrafna en þeir eru
minni og með hvassara nef. Bláhrafn-
ar eru allalgengir flækingar hér á
landi.
nj SVARTÞRASTARKVENFUGL á hreiðri.
Svartþrestir eru algengir flækingsfugl-
ar á fslandi og verpa stundum. Ein af
þeim tegundum sem eru að nema
land hér.
r« FJALLAFINKUKARLFUGL sem ég náðl
“ f Kirkjugarðinum i Fossvogi. Fjalla-
finkur eru annað dæmi um flækings-
fugl sem gæti náð fótfestu hér á
landi.
Q HÁVELLUSTEGGUR f vetrarbúningi.
Þessi skrautlega önd er fslenskur
varpfugl.
rj DÓMPÁPI er falleg fínkutegund sem
flækist stundum hingað frá Evrópu.
Þessi mynd er af karlfugli sem er að
éta kom af fóðurbretti.
n SVÖLUSTELKUR er sárasjaldgæf am-
“ erfsk steikstegund. Svölustelkar halda
sig yfirleitt við polla og tjarnir eins og
þessi fugl sem fannst f Laugardalnum.
Qj} HÁVELLUKOLLA á flugi.
m AUÐNUTITTLINGUR er næstminnsti
“ fugl íslands. Hann lifir á birkifræjum
og skordýrum.
rn STOKKÖND er sú andategund sem
flestir telja sig þekkja. En hvernig
skyldi kvenfuglinn Ifta út?
QQ SVONA Iftur stokkandarkolla út.
m ÞESSI litli spörfugl, sem heitir græn-
“ ingi, fannst aðframkominn úti á Sel-
tjarnarnesi eftir flug alla leið frá Am-
erfku. Hann var hafður f fóstri en náði
ekki bata og drapst.
m MENN sem merkja fugla verða að
“ þekkja unga hinna ýmsu tegunda f
sundur. Þó að margir efist, þá er
þetta nú samt kria.
m ÓÐINSHANI, karlfugl. Óðinshaninn er
mikill kvenréttindafugl. Kvenfuglinn
gerir lítið annað en að verpa eggjun-
um og lætur kariinn liggja á og ala
upp ungana.