Morgunblaðið - 29.06.1996, Side 28
VIKU
LM
MORGUNBLAÐIÐ
28 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
Morgunblaðið/Sverrir
STURLA athugar laxamousse-ið í eldhúsinu.
Fyrir skömmu var fyrsta Norðurlandakeppnin í
matreiðslu haldin og lenti fulltrúi Islands, Sturla
______Birgisson, í þriðja sæti. Steingrimur_
Sigurgeirsson kynnti sér matseðil Sturlu og fékk
lánaða uppskrift að ljúffengum forrétt.
STURLA Birgisson, yfir-
kokkur í Perlunni, hefur
tvö ár í röð unnið keppn-
ina „matreiðslumaður ársins“ og
fyrir skömmu lenti hann í þriðja
sæti í fyrstu Norðurlandakeppni
matreiðslumanna.
Þetta var þriðja árið sem keppn-
in um matreiðslumann ársins var
haldin og hefur hún vonandi fest
sig rækilega í sessi. Ef rétt er að
staðið getur keppni af þessu tagi
haft mjög jákvæð áhrif. Hún ýtir
undir samkeppni og sköpunar-
gleði, ekki síst ef það fer að verða
keppikefli veitingahúsa að geta
státað af verðlaunahafa í keppn-
inni. Langtímaáhrifin ættu því að
vera þau að fagmennska og gæði
aukast enn frekar í íslensku veit-
ingahúsaflórunni.
Á matseðli Sturlu í Norður-
landakeppninni var í forrétt fersk-
ur lax með laxamousse, grillaðri
hörpuskel, krækling, krydd-
jurtasósu og tómatsmjörsósu, í að-
alrétt hreindýr með villisósu,
ostrusveppum, epli í calvados,
sneiddum og bökuðum kartöflum
og í eftirrétt anisparfait með
brómberjasósu.
Eins og gefur að skilja eru rétt-
ir, sem settir eru saman fyrir
keppnir af þessu tagi, ekki það ein-
faldasta sem venjulegir heimilis-
kokkar taka sér fyrir hendur.
Sturla hefur hins vegar sett saman
nýja útgáfu af forréttinum, sem er
aðeins einfaldari í matreiðslu, en
engu síðri hvað bragð varðar.
Raunar segir Sturla að þetta sé
rétturinn eins og hann hefði viljað
PERSKUR lax með laxamousse og hörpuskel
HRÉINDÝR með villisósu og ostrusveppum.
hafa hann í raun þótt hann hafi
þurft að breyta honum vegna
staðla keppninnar.
í laxamúsina þarf 100
grömm af laxi, 2 eggjahvítui',
50 ml þurrt hvítvín, hálfa
papriku, hálft zucchini, 6
lauf af basil, 3 hvítlauksrif
og 100 ml rjóma. Salt og'
pipar.
I kryddjurtasósuna þarf
300 ml rjóma, shallot-lauk,
steinselju, graslauk og fáfnis-
gras, eina eggjarauðu, eina
matskeið dijon-sinnep. Salt og
pipar.
I karrísósuna þarf hálfa flösku af
þurru hvítvmi, einn lauk, eina gul-
rót, einn hvítlauk, hálfan lítra af
laxasoði, 2 lárviðarlauf, lítra af
rjóma, hálfa matskeið karrí (eða
ögn meira eftir smekk) og lítra af
rjórna.
Að auki fallegt laxastykki á
hvern mann.
Athugið að hér er um hlutfalls-
uppskriftir að ræða sem hægt er
að breyta eftir fjölda gesta.
Hafið hugfast að karrísósan
er nánast súpa sem laxinn
og hörpuskelin er sett í
(sjá mynd) og þarf því
meira magn af henni en
ef um hefðbundna sósu
væri að ræða.
Aðferð
Mousse: Lax settur í
matvinnsluvél ásamt
eggjahvítu og hvítvíni.
Paprika, zucchini og basil fín-
saxað og bætt út í maukið.
Bragðbætt með salti og pipar,
rjóma bætt út í. Gufusoðið (helst í
ofni) í 15 mínútur.
Karrísósa: Grænmetið gróf-
hakkað og svissað í smjöri, karrí
bætt út í. Hvítvín ásamt laxasoði
soðið í tuttugu mínútur. Rjóman-
um bætt út í og þykkt með sósu-
þykkni, bragðbætt með salti og
pipar.
Kryddjurtasósa: Allt nema
rjóminn sett í matvinnsluvél og
maukað vel. Léttþeyttum
rjómanum bætt við.
Lax: Laxinn roðflettur
ásamt fitunni og gufusoð-
inn í um það bil fjórar
mínútur.
Hörpuskelin er loks
léttsteikt í smjöri, sölt-
uð og pipruð.
Karrísósan er sett í
skálar, laxi og hörpudiski
komið fyrir, og taumum af
ki-yddjurtasósunni hellt út í
karrísósuna.
ANISPARFAIT með bróm-
berjasósu.
Hvað er síþreyta ?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNiR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Undanfarnar vikur hef
ég verið afskaplega slappur og haft
viss einkenni flensu, s.s. beinverki,
án þess að hafa hita. Gæti þetta
verið svokölluð síþreyta? Hvemig
lýsir hún sér?
Svar: Síþreyta er frekar óljós
sjúkdómsmynd sem hefur vakið
töluverða athygli á undanfömum
árum. Um orsakir þessa sjúkdóms
er ekkert vitað með vissu, allar til-
raunir til að fínna skýringu hafa
misheppnast. Að ýmsu leyti minna
einkennin á sýkingu en eftir viða-
miklar rannsóknir á fjölda sjúk-
linga verður að telja nokkuð ör-
uggt að hvorki sé um að ræða sýk-
ingu af völdum veira né sveppa.
Helstu einkennin eru stöðug
þreyta sem byrjar nokkuð skyndi-
lega og stendur vikum eða mánuð-
um saman, hitavella (allt að 38,5 ),
mikil svitamyndun, særindi í hálsi,
stækkaðir og aumir eitlar, verkir í
vöðvum eða beinum, höfuðverkur,
liðverkir og svefntmflanir. Margir
þessara sjúklinga fara snemma að
ur eða mánuði en í einstaka tilfell- 4a£ w -ag*
jpl Síþreyta um varir þetta ástand í meira en ár.
Spurning: Af og til fæ ég áblástur IHlHiiUI
Áblástur á
varir
sofa og vakna seint en eru þó
þreyttir. Ekki þurfa öll þessi ein-
kenni að vera til staðar hjá sama
sjúklingi. Stundum kemur sí-
þreyta í kjölfar flensu, lungna-
bólgu eða annarrar sýkingar en
það er ekki nærri því alltaf. Sumir
hafa talið síþreytu stafa af sjúk-
dómi í miðtaugakerfi eða að sjúk-
dómurinn sé aðallega af sálrænum
toga. Svo mikið er víst að margir
sjúklingar með síþreytu era þung-
lyndir en flest bendir til að það sé
afleiðing af þessu slæma likamlega
ástandi. Sjúklingar með síþreytu
þurfa oft á uppörvun að halda og
að fólk í umhverfi þeirra viður-
kenni að um sjúkdóm sé að ræða.
Venjulega er best að beita líkam-
legri þjálfun, fara rólega af stað en
auka þjálfunina hægt og hægt.
Flestir fá bata eftir einhverjar vik-
í kringum varimar og hefur þetta
ágerst í seinni tíð. Venjulegur
varasalvi dugar skammt og ég hef
reynt áburð sem heitir Zovirax,
með takmörkuðum árangri. Af
hverju stafar þetta og er eitthvað
til ráða?
Svar: Áblástur er veirusýking af
völdum svokallaðra herpesveira
(herpes simplex). Á að giska annar
hver einstaklingur er smitaður af
þessum. veirum, flestir smitast í
æsku en fólk getur smitast hvenær
sem er ævinnar. Þegar eitthvað
svæði hefur smitast, losnar við-
komandi aldrei við veirurnar,
lengst af era þær í dvala en við
vissar aðstæður blossar sýkingin
upp og viðkomandi fær áblástur
eða frunsur. Vessinn sem kemur
úr frunsunum í upphafi sýkingar
inniheldur veirar og getur smitað,
hvort sem er annan stað á sama
einstaklingi eða annan einstakling.
Það er því mikilvægt að sýna varúð
og hreinlæti þegar sjúkdómurinn
er á þessu stigi. Algengast er að
sýkingin sé á vörum eða umhverfis
þær en hún getur verið nánast
hvar sem er. Aðrir algengir staðir
eru munnhol, augu og kynfæri.
Einstaka sinnum geta herpesveir-
ur valdið alvarlegum og jafnvel
lífshættulegum sýkingum og er þá
einkum um að ræða nýbura eða
sjúklinga með bælt ónæmiskerfí.
Eins og áður var sagt liggja veir-
umar lengst af í dvala en við vissar
aðstæður blossar sýkingin upp. Yf-
irleitt er ekki vitað hvað setur
þetta af stað en stundum er það
sólarljós eða annað útfjólublátt
ljós, í öðram tilvikum kemur
áblá. tur í kjölfar kvefs, flensu eða
annarra sýkinga og einnig getur
útivera í köldu veðri eða streita
sett af stað áblástur. Oft byrjar
þetta með kláða eða fiðringi í einn
sólarhring eða svo, síðan koma
blöðrur sem springa, þá hráður og
þetta tekur gjarnan 1-2 vikur. Best
er að blöðrur og sár fái að þorna og
því á ekki að hylja þau með neinu.
Varasalvi hindrar þornun og getur
gert illt verra, zinkpasta (Zinkoxíð
Delta) er betra vegna þess að það
þurrkar húðina. Zovirax krem
(einnig krem sem heita Zovir og
Veban; innihalda öll virka efnið
acíklóvír) gerir takmarkað gagn
nema það sé borið á svæðið í upp-
hafi sýkingar; þegar myndast hafa
blöðrur gerir það lítið gagn. Þegar
um miklar eða alvarlegar sýkingar
er að ræða eru áðurnefnd lyf gefin
í töfluformi eða í æð.
• Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem þeim
liggur á hjartn og er tekið á móti
spurningum á virkum dögum milli
klukknn 10 og 17 í símn 5691100 og
bréfum eðn símbréfum merkt: Viku-
lok, Fax 5691222.