Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Bróðir okkar, HERMANN PÉTURSSON póstfulltrúi, lést þann 26. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Systkini hins látna. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR Úthaga 14, Selfossi, áðurtil heimilis á Oddhól, Vestmannaeyjum, andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 25. júní sl. Jarðarförin auglýst síðar. Magnúsina Sæmundsdóttir, Friðrik Friðriksson, Sæmundur Sæmundsson, Anna Margrét Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, ÓLAFUR ÁRMANN ÞÓRLINDSSON, dvaiarheimilipu Uppsölum, Fáskrúðsfirði, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 25. júní. Útför hans fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju mánudaginn 1. júlí kl. 14. Rögnvaldur Ólafsson, Þórunn Ólafsdóttir, Þórlindur Ólafsson, Stefanía Borghildur Ólafsdóttir. t Ástkær sambýliskona mín, móðir og tengdamóöir, SIGURLAUG EGILSDÓTTIR (Lauga) frá Hrafntóftum, síðasttil heimilis á elliheimilinu Grund, andaðist á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur miðvikudaginn þann 26. júní. Fyrir hönd ættingja, Sigurgeir Sigurðsson, Lilja María Sigurvinsdóttir, Magnús Sveinsson. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR ÞÓRUNN GUNNARSDÓTTIR frá Einarshöfn (Prestshúsi), Eyrarbakka, siðasttil heimilis á Sólvöllum, heimili aldraðra á Eyrarbakka. andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, 27. júní. Guðni Marelsson, Jóna Ingvarsdóttir, Friðþjófur Björnsson og barnabörn. Útför móður minnar, ÞÓRU AÐALSTEINSDÓTTUR, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð 23. júní síðastiiðinn, ferfram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 1. júlí kl. 13.30. Hallgrfmur Stefánsson. t Útför hjartkærs bróður okkar og mágs, ÁSGEIRS SIGURJÓNSSONAR, Vfðimel 21, ferfram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. júlí kl. 13.30. Ágúst Sigurjónsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Hilmar Grímsson, Stefanía Sigurjónsdóttir, Jón Guðnason, Víglundur Sigurjónsson, Ragnheiður H. Hannesdóttir. BJÖRN GUÐMUNDSSON + Björn Guð- mundsson fædd- ist í Reykjavík 24. september 1937. Hann lést á Gjör- gæsludeild Sjúkra- húss Reykjavíkur 20. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaða- kirkju 28. júní. Bjöm var 58 ára gamall er hann gekk sín síðustu spor. Hans er saknað af öllum þeim sem honum kynntust. Hann lifði fögru lífi og lét margt gott af sér leiða. Faðir Guðmundar, föður Bjöms, var séra Gísli Kjartans- son, prestur í Sandfelli í Öræfum. Faðir Ástu, móður Bjöms, var Þór- hallur Daníelsson, kaupmaður og útgerðarmaður á Höfn í Hornafirði. Móðir hennar var Ingibjörg Frið- geirsdóttir. Bjöm Guðmundsson gekk í Samvinnuskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan árið 1955. Einu ári síðar, 1956, fékk hann atvinnu hjá fyrirtæki Ásbjöms Ólafssonar stórkaupmanns í Reykjavík og starf- aði þar til dauðadags. Á því sama ári kvæntist hann dóttur hans, Ólaf- íu. Hún er fyrirmyndarkona sem leggur áherslu á að vera gjöful og gestrisin og að ala böm sín yel upp. Þau em fimm að tölu og barnaböm- in em fimm. Bömin em: Ásbjöm, giftur Helgu Einarsdóttur. Hann er útlærður rekstrarhagfræðingur. Guðmundur er iðnrekstrarfræðingur, ógiftur. Ól- afur Bjöm er í Háskóla Islands og leggur stund á viðskiptafræði. Sam- býliskona Ólafs Bjöms heitir Linda Björk Ingadóttir. Gunnlaugur er flugstjóri, ógiftur. Síðast nefni ég Ástu Friðriku sölumann. Hún var gift Ásgeiri Rafni Reynissyni. Þau skildu. Ég lýk þessum orðum mínum með því að votta frændfólki mínu dýpstu samúð. Ég bið af alhug að þessum ástkæra frænda mínum vegni vel á leið sinni í nýrri veröld. Anna Þórhallsdóttir söngkona. Ég kynntist Bimi fyrst fyrir um það bil tíu ámm. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hvers konar öðlings- maður Bjöm var og minnist ég þess að í eitt af fyrstu skiptunum sem ég talaði við Bjöm var hann strax farinn að bjóða fram aðstoð sína eða eins og hann orðaði það: Ef það er eitthvað, Biddi minn, sem ég get einhvern tíma, aðstoðað þig með eða ef eitthvað bjátar á þá veistu hvar mig er að finna. Bara þetta eitt lýsir þeirri yndis- legu og hlýju manngerð sem Björn var. Bjöm var líka mjög rausnarlegur og virðulegur maður. Ekki getum við Ragnheiður lýst þeim tilfinningum sem helltust yfir okkur þegar við fengum þær fregnir að Bjöm væri farinn á móts við skap- ara sinn. Þeirri tilfinningu eigum við aldrei eftir að gleyma og eitt er víst að við eigum eftir að sakna hans mikið. Elsku Lollý og fjölskylda, við fjöl- skyldan sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessari miklu sorgarstundu. Söknuðurinn hverfur aldrei en sorgin dofnar, því lífíð verð- ur að halda áfram. Með þessum fátæklegu orðum langar okkur að kveðja vin okkar hann Björn Guðmundsson. Megi hann hvíla í Guðs friði. Guð gefí ykkur ijölskyldunni allan þann styrk sem þið þurflð á að halda í baráttunni við sorgina. Ykkar vinir, Birgir Svanur (Biddi) og Ragnheiður. Mikill heiðursmaður er fallinn frá. Bjöm Guðmundsson er dáinn. Hann féll á bezta aldri, aðeins 58 ára gam- all. Eftir sitja ástvinir, velunnarar og venzlamenn hnýpnir og harmi slegnir yflr ótímabæru brotthvarfi sómamanns úr heimi hér. En minn- ingarnar lifa, ylja, og deyfa sársauk- ann. Bjöm og Ólafía vom nágrannar okkar síðustu tíu árin. Reyndar voru þessi samrýndu hjón okkur ekki al- veg ókunnug, þegar við fluttum i Lálandið, því fyrirtæki okkar hafa t Maðurinn minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BÖÐVAR B. SIGURÐSSON bóksali, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju mánudaginn 1. júlí nk. kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Hjördís Ágústsdóttir, Ingibjörg Böðvarsdóttir, Gunnlaugur Magnússon, Böðvar Böðvarsson, Bjarney Sólveig Gunnarsdóttir, Hulda Böðvarsdóttir, Þórarinn Böðvarsson, Sigrún Ögmundsdóttir, Ágúst Böðvarsson, Þorgeröur Nilsen, Elísabet Böðvarsdóttir, Oddur Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS GUNNARS HALLDÓRSSONAR tónlistarmanns, Mýrarbraut 21, Blönduósi, er andaðist í Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi sunnudaginn 2. júní. Jórunn Erla Sigurðardóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Eva Maria Gunnarsdóttir, Gi'sli Benediktsson, Greta Engilberts Gunnarsdóttir, Guðmundur Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabarn. haft samskipti í fjöldamörg ár. Við fengum því þessa vináttu í arf frá forfeðrum okkar. Hefur aldrei borið skugga á, hvorki heima né í vinnunni. Við vorum svo heppin að fá að kynnast bamavininum og náttúru- unnandanum Birni, og fyrir það erum við þakklát. Bömin okkar munu ætíð muna eftir glæsimenninu, sem alltaf átti eitthvað gott í vasanum fyrir litla munna. Manninum sem alltaf varð einn af strákunum á gamlárskvöld og gerði kvöldið þannig úr garði að börnin vildu hvergi annars staðar vera en heima í Lálandi. En Björn naut sín ekki síður í sumarbústað þeirra hjóna á Flúðum. Það er gaman að hafa átt þann kost að ganga með honum um landareign- ina, þar sem hver hrísla á sér sína sögu. Það fór ekki á milli mála að þar leið honum vel. Einmitt þangað sóttu þau hjón sér styrk og þangað munu Ólafía og bömin áreiðanlega halda áfram áð sækja sér styrk. Náttúran og ekki síst gróðurinn búa yfir meiri lækningarmætti en okkur grunar. Við hjónin hugsum nú sterkt til Ólafíu og hinnar stóm mannvænlegu fjölskyldu þeirra. Það er huggun harmi gegn að eftir lifir minningin um góðan dreng. Guð blessi minningu Björns Guð- mundssonar. Vertu sæll, kæri vinur. Erna og Jón. Sagt hefur verið að þeim mun dýpra sem sorgin ristir hjartað, þeim mun meiri gleði hafi það geymt. Þegar setja á fáein orð á blað við svo skyndilegt og ótímabært fráfall Björns Guðmundssonar verður hug- urinn sem lamaður og svo mjög tregt tungu að hræra. Fyrst verður okkur þó hugsað til ástvina allra og stóra vinahópsins sem nú hefur séð sól sortna á þessu bjarta og gróðurríka vori. Biðjum nú þess að sumarsólin blíð þerri tregatár og veiti birtu og yl í sérhveiju sorgarranni. Engin tök eru hér á að minnast þeirra traustu og nánu vináttu um áratuga skeið, sem vert væri. En eitt er víst að um þau samskipti leikur ljómi minning- anna, skuggalaus með öllu, sem ljúf- ur draumur. Draumur sem við hefð- um viljað eiga svo miklu lengur og að þurfa ekki að vakna til þess beiska veruleika sem nú er orðinn. Björn var allvel kunnugur landinu og þekkti fjölmargt fólk, vítt um byggðir landsins. Eignaðist hann því marga vini, enda hjálpsamur og greiðvikinn og kom sér alls staðar vel. Einnig var hann mjög víðförull utanlands, en best undu þau hjón sér í sumarbústaðarlandi fjölskyldunnar hér fyrir austan. Þar unnu þau stöð- ugt að ræktun trjáa, fegrun og fram- kvæmdum og er sá unaðsreitur glæsilegur minnisvarði um ræktun- aráhuga þeirra hjóna. Með þessum línum viljum við þakka af heilum hug þá hamingju að hafa kynnst Birni og hans fjöl- skyldu. Elsku Lollý og fjölskylda. Við biðj- um Guð að veita ykkur styrk í sárum harmi og sendum aðstandendum öll- um innilegar samúðarkveðjur. Sólveig, Sigurgeir og fjölskylda. Góður vinur, Björn Guðmundsson, er fallinn frá, það er sárt að sjá á eftir honum langt fyrir aldur fram. Mig langar að minnast hans fáum orðum. Fyrir 25 árum hófum við Erla kona mín verslunarrekstur og eitt fyrsta fyrirtækið sem við áttum viðskipti við var heildverslun Ás- bjöms Ólafssonar. Þar hófust kynni okkar við Björn. Við hjónin áttum því láni að fagna að þetta viðskipta- samband þróaðist í vináttusamband við hann, konu hans Lollý og þeirra fjölskyldu. Við höfum notið höfðing- legrar gestrisni á heimili og í sumar- húsi þeirra, þar sem þau nutu mjög samveru með fjölskyldu sinni, og ekki síst höfum við notið þess að hitta þau í viðskiptaferðum erlendis. Ógleymanlegar eru tvær ferðir með þeim hjónum er þau buðu okkur með til viðskiptavina sinna í Hollandi. Móttökur erlendu aðilanna og skipu- lag Bjöms gerðu þessar ferðir ein- stakar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.