Morgunblaðið - 29.06.1996, Page 60
60 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Tómas Tómasson
ÞRÁTT fyrir að Örlygur Richter (t.v.) sé nú skólastjóri
Fellaskóla mátti hann sín lítils gagnvart Skarphéðni.
HREINN Frímannsson, Skarphéðinn Pálmason og Sven Þ. Sig-
urðsson rifjuðu upp nokkrar skemmtilegar stærðfræðiformúlur.
Sven er forseti Skarphéðinga en þeir hafa aldrei sætt sig við
að zetan hafi verið numin brott úr íslensku máli, enda allir úr 6Z.
Skarphéðingar á
skólabekk (aftur)
GÓÐ aðsókn var á sögusýningu MR,
sem lauk sl. sunnudag enda margir,
sem vildu nýta tækifærið til að
draga aftur að sér andrúmsloft skól-
ans. Skarphéðingar voru þar á með-
al en þeir urðu stúdentar árið 1964
eftir árlanga setu í Z. Skarphéðing-
ar kenna sig við sinn gamla læri-
meistara, Skarphéðin Pálmason
menntaskólakennara, sem langa
vetrardaga mataði þá á stærðfræði-
og eðlisfræðiformúlum.
Það var því ekki nema von að
fagnaðarfundir yrðu þegar ekki
ómerkari maður en Skarphéðinn
sjálfur hitti sinn gamla hóp nemenda
í MR á síðasta degi sögusýningar-
innar.
WOÐLEIKHUSIÐ sími 551 1200
Q TAKTU LAGIÐ LÓA eftir Jim Cartwright
Á Akureyri kl. 20.30:
í kvöld lau. og sun. 30/6.
Miðasala hjá Leikfélagi Akureyrar í síma 462 1400.
Á Blönduósi kl. 20.00: Mið. 3/7. Miðasala á staðnum.
Á Egilsstöðum kl. 21.00: Fös. 5/7 og lau. 6/7. Miðasala á staðnum.
*/tir /'<> Csrtvf
Á Stóra sviói Borgarleikhússins
Frumsýning fös. 12.júlí kl. 20 uppselt
2. sýning sun. 14.júlí kl. 20 örfá sæti laus
3. sýning fim, 18.júlf kl.20 örfá sætl laus
4. sýning fos, 19.júlí kl.20 örfá sæti laus
5. sýning lau. 20.júlí kl.20
cni
Forsala aögöngumiða er hafin • Miðapantanir í síma 568 8000
Deubjftche* Sjmphonie-
Orche>&ter Berjtin,
Sbjórnandis VÍadimir A/ihkenazj
Hátíðartónleikar til heiðurs forseta
íslands frú Vigdísi Finnbogadóttur
Laugardalshöll, lau. 29. júní kL 16.00
Lista h á tí ð
Miðasala: Upplýsingamiðstöð ferðamála
Bankastræti 2, Reykjavík,
sími: 552 8588 & 562 3045
Miðaverð: 2.300 kr. 2.700 kr. 3.500 kr.
Debetkorthafar Landsbanka íslands fá
14% afslátt af miðaveröi
FÓLK í FRÉTTUM
BRUCE Dern og fyrrverandi
kona hans, Diane Ladd, ásamt
dótturinni Lauru Dern eru sam-
einuð fjölskylda á ný — en að-
eins á hvíta tjaldinu. Þau munu
öll leika í myndinni „Mrs.
Munck“ sem Diane Ladd skrif-
aði handritið að. Auk skriftanna
leikstýrir Ladd og er það frum-
raun hennar á því sviði.
Ladd segir að þegar hún tal-
aði við fyrrverandi eiginmann-
inn, Dern, um hlutverk í mynd-
inni, hafi hún sagt við hann að
þrátt fyrir að hann væri ótækur
eiginmaður væri hann bara ansi
góður leikari.
Ladd og Dern hittust upphaf-
lega þegar hún var sautján ára
þegar þau léku bæði í „Orpheus
Descending" sem frændi Ladd,
leikskáldið kunna Tennessee
Williams skrifaði.
Richard Gere
með Bondstúlku
► H.IARTAKNÚSARINN með gráa hárið, Richard Gere
hefur sést undanfarið með fyrrum Bondstúlku, Carey
Lovvell. Sáust þau fyrst saman á Bob Dylan tónleikum
og hafa verið óaðskilj-
anleg síðan. Lowell r
lék í Bondmyndinni /
Lieeiice to Kill árið / 'l*’
UIS‘1. Siðan liofm /
Cage fer með ^
aðalhlutverk í. Á
íiáinsármmm var liiin
fyrirsæta fyrir tískumerkin Calvin
Klein og Ralpli Lauren.
Sameinuð
fjölskylda
- í bili
LAURA Dern ásamt
föður sínum Bruce.
Morgunblaðið/Helga Jónasdóttir
AFREKSFÓLK HHF eftir verðlaunaafhending'una ásamt Stefáni Konráðssyni.
*
Iþróttamaður ársins valinn hjá HHF
Á HÉRAÐSÞINGI Héraðssam-
bandsins Hrafna-Flóka, sem
haldið var fyrir skömmu, var
m.a. valinn íþróttamaður ársins
1995. Birna Hannesdóttir ÍFB
varð fyrir valinu en hún er efni-
leg fijálsíþróttakona og vann
til margra afreka síðastliðið ár.
Veittar voru viðurkenningar
þeim aðilum sem þóttu standa
sig best í þeim íþróttagreinum
sem stundaðar eru innan HHF.
Fannar Steindórsson UMFT var
valinn körfuknattleiksmaður
ársins, Finnur Hannesson ÍFB
var valinn knattspyrnumaður
ársins, Haukur I. Sigurðsson
UMFT var valinn sundmaður
ársins og Thelma Kristinsdóttir
GÞ var valinn golfmaður árs-
ins. Gestur Héraðsþingsins,
Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, afhenti við-
urkenningarnar.