Morgunblaðið - 01.08.1996, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Stefán Jón Hafstein ráðinn ritstjóri nýja dagblaðsins - Dags-Tímans
Byggt verður á
reynslu starfs-
fólks blaðanna
STEFÁN Jón Hafstein hefur verið
ráðinn ritstjóri hins nýja dagblaðs
Dags-Tímans og hefur hann þegar
hafið störf. Hann kom á fund starfs-
fólks Dags á Akureyri í gær.
Stefán Jón sagði að þrátt fyrir
víðtæka reynslu af ýmsum fjölmiðl-
um hefði hann aldrei unnið á dag-
blaði áður og myndi því nota fyrstu
dagana í að ræða við og hlusta á
starfsfólk. Mikil uppsöfnuð reynsla
væri fyrir hendi hjá starfsfólki blað-
anna og á henni yrði byggt.
Blaðið á erindi á íslenskan
blaðamarkað
Mikil vinna væri framundan við
að móta hið nýja dagblað sem að
stórum hluta yrði unnið á Akureyri
en væri fyrir landsmenn alla. „Þetta
nýja starf leggst vel í mig, það er
afar áhugavert og heillandi, en jafn-
framt veit ég að það verður mjög
krefjandi," sagði Stefán Jón. „Við
ætlum að sýna íslenskum fjölmiðia-
heimi að það er hægt að gera betur
á þessum vettvangi en gert hefur
verið undanfarin ár.“
Stefán Jón sagðist þess fullviss
að þörf væri fyrir nýtt dagblað með
því svipmóti sem fyrirhugað væri
að gefa út og hann hefði trú á að
því yrði vel tekið á blaðamarkaðnum.
„Við teljum að þörf sé fyrir slíkt
blað og að það eigi fullt erindi,"
sagði hann, en blaðið og ýmislegt
sem því viðkemur verður kynnt á
blaðamannafundi á Akureyri í dag.
Stefán Jón nefndi á fundi með
starfsmönnum að hann væri ættað-
ur að norðan, en afi hans, Júlíus
Hafstein, var lengi sýslumaður á
Húsavík. Það legðist vel í sig að
starfa fyrir norðan. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið að aðal-
vinnubækistöð blaðsins yrði á Akur-
eyri, hann yrði þar sem vinnan yrði,
en ekki væri endilega nauðsynlegt
að flytja búferlum þar sem tæknin
gerði mönnum kleift að stunda störf
sín hvar sem væri.
Fimm vinnuhópar starfandi
Eyjólfur Sveinsson formaður
stjórnar Fijálsrar fjölmiðlunar sagði
að vinna færi nú í fullan gang við
undirbúning hins nýja dagblaðs, en
þegar hefðu nokkrir vinnuhópar
verið starfandi. Þeir hafa fjallað um
dreifíngu, tölvukerfi, tæknimál,
markaðs- og sölumál, en sá síðasti,
sem Ijallar um efnisumfjöllun og
umbrot, hefur störf í dag.
Eyjólfur sagði að ekki yrði ná-
kvæmlega gefið upp hvenær fyrsta
blaðið liti dagsins ljós, en miðað
hefði verið við að það yrði í kringum
miðjan ágústmánuð.
Nýr ritstjóri
Dags-Tímans
STEFÁN Jón Hafstein, nýráðinn
ritsljóri Dags-Tímans, er 41 árs
gamall fjölmiðlafræðingur, fædd-
ur í Reykjavík 18. febrúar 1955.
Hann er með háskólapróf í fjölm-
iðlafræði og boðskiptafræði.
Stefán Jón hefur lengi starfað
á Ríkisútvarpinu, sem fréttaritari
bæði í London og Bandaríkjunum,
frétta- og dagskrárgerðarmaður,
deildarstjóri dægurmáladeildar
og dagskrárstjóri Rásar 2. Hann
var stundakennari við HI 1987-
1989, starfaði sem sendifulltrúi
Rauða kross Islands erlendis 1985-
1991 og hjá Alþjóðsambandi
Rauða kross-félaga í Genf um
tíma 1985. Þá hefur Stefán Jón
starfað sem dagskrárgerðarmað-
ur hjá Stöð 2. Maki hans er Guð-
rún Kristín Sigurðardóttir hönn-
uður.
STARFSFÓLK Dagsprents á fundi í gær. Fremst f.v. Guðjón Heimir Sigurðsson,
Guðmundur Þorsteinsson og Hafdís Freyja Rögnvaldsdóttir. Fyrir aftan þau silja
Baldur Ellertsson, Óskar Þór Halldórsson, Frímann Frimannsson og Svavar Ottesen.
Morgunblaðið/Kristján
ÓSKAR Þór Halldórsson ritstjóri Dags ræðir við Stefán Jón Hafstein, nýráðinn rit-
stjóra Dags-Timans. Fyrir aftan þá stendur Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri Dags.
Uppsögn ritstjóra Dags tengist ekki ráðningri nýs ritstjóra
Trúnaður við
stjórn Dags-
prents brostinn
NÚVERANDI ritstjórar Dags,
bræðumir Jóhann Ólafur og Óskar
Þór Halldórssynir, munu gegna
störfum sínum þar til nýtt sameinað
blað kemur út. Þeir sögðu upp störf-
um á mánudag.
Jóhann Ólafur sagði að uppsagn-
ir þeirra tengdust á engan hátt
nýjum ritstjóra, Stefáni Jóni Haf-
stein sem tók til starfa í gær. „Við
bjóðum Stefán Jón af heilum hug
velkominn til starfa og teljum gott
af fá jafn fjölmiðlareyndan mann
til starfa á Akureyri,“ sagði Jóhann.
Aðgerðin aldrei borin
undir okkur
Um ástæður uppsagnarinnar
sagði hann að þeir bræður hefðu
metið það svo að trúnaðarbrestur
hefði orðið þegar menn hefðu farið
út í þessar stóru aðgerðir, að Dagur
keypti Tímann og ætlunin væri að
smíða nýtt dagblað á grundvelli rit-
(<WÍj Hótel
Havpa
Akureyri
Gisting við allra
hæfi.
Þú velur:
Fjörið í miðbænum.
Friðsældina í
Kjarnaskógi
eða lága verðið á
gistiheimilinu
Gulu villunni
gegnt
sundlauginni.
Sími 461 1400.
stjórnarstefnu Dags. Eðlilegt hefði
verið að ritstjórar fengju að fylgj-
ast með framvindu mála og jafnvel
spurðir álits, en svo hefði ekki verið.
Fram kemur í upsagnabréfi Jó-
hanns Ólafs og Óskars Þórs að
Kaupfélag Eyfirðinga og Kaffi-
brennsla Akureyrar, sem eru meiri-
hlutaeigendur Dagsprents, hafi
kosið að gera samkomulag við
Fijálsa fjölmiðlun um að fyrirtækið
kæmi inn í rekstur Dagsprents sem
meirihlutaeigandi að lokinni hluta-
fjáraukningu. Sameina ætti Dag og
Tímann og rætt um að sú samein-
ing ætti að vera á grundvelli Dags
og hið nýja blað yrði undir ritstjórn-
arstefnu þess.
„Þessi aðgerð hefur af hálfu
meirihlutaeigendanna aldrei verið
borin undir okkur sem ritstjóra
blaðsins og aðila sem starfað hafa
inni í fyrirtækinu og verið í beinum
tengslum við lesendur sjálfa. Sá
trúnaður sem fram til þessa hefur
ríkt milli okkar sem ritstjóra blaðs-
ins og eigenda og hefur verið lykill-
inn að mjög bættum hag Dags-
prents hf. er þar rrieð brostinn,"
segir í bréfi ritstjóranna.
Þeir nefna einnig að rekstraraf-
gangur sem náðst hefði að undan-
förnu mætti þakka trúverðugri rit-
stjórnarstefnu og einhug sem ríkt
hefði meðal starfsfólks. „Það fólk
á allan heiður skilinn fyrir ósér-
hlífni í þágu lesenda blaðsins og
mikla þolinmæði á undanförnum
átta árum þegar fyrirtækið gekk
tvisvar í gegnum fjöldauppsagnir
og tvær greiðslustöðvanir." Þá
segja þeir að ekki hafi verið haldinn
fundur með starfsfólki til að upp-
lýsa um stöðu mála fyrr en viku
eftir að tilkynnt var um breyting-
arnar og sá fundur hefði verið hald-
inn að beiðni ritstjóra blaðsins. Stór
hluti starfsfóiks hefði einungis haft
fregnir af málinu gegnum fjölmiðla.
Stjórnendur fyrirtækisins hafi mar-
goft ítrekað við stjórnarmenn að
upplýsingaflæði yrði bætt, enda
ljóst þegar breytingar verða á fyrir-
tækjum að stjórn beri að tryggja
starfsfólki upplýsingar um fram-
kvæmd mála, ella sé langt í frá
tryggt að starfsöryggi sem það
sækist eftir sé tryggt.
Langt í frá sársaukalaust
„Vegna aðdraganda þeirra breyt-
inga sem nú er verið að gera og
þess hvernig á málum hefur verið
haldið er það niðurstaða undirrit-
aðra að segja upp störfum. Sú
ákvörðun er langt í frá sársauka-
laus, sérstaklega vegna samstarfs-
fólks í Dagsprenti og ekki síður
vegna þeirra velvildar sem við höf-
um mætt hjá fjölda lesenda blaðs-
ins,“ segir í uppsagnabréfi ritstjóra
Dags. Á fundi stjórnar Dagsprents
í gær var uppsögn ritstjóranna
hörmuð.
OPNUM A MORGUN
á Akureyri
•SUB
l®
Hluthafafundur í
Dagsprenti 1 dag
Hlutafé
verður
aukið um
helming
HLUTHAFAFUNDUR í Dagsprenti
verður haldinn síðdegis í dag,
fimmtudag, en tilefni fundarins er
að taka afstöðu til tillögu um aukn-
ingu á hlutafé félagsins. Það er nú
23,5 milljónir króná og verður aukið
um helming, í 47 milljónir.
Hlutafjáraukningin verður að
hluta til notuð til kaupa á útgáfu
Tímans og að hluta til í rekstur
vegna aukinna umsvifa og endurnýj-
unar á tækjabúnaði.
„Stjórnin telur að þær fyrirætlan-
ir að sameina útgáfu Dags og
Tímans skapi enn betri grundvöll til
útgáfu á fijálsu og óháðu dagblaði,
sem leggja mun áherslu á að sinna
málefnum landsbyggðarinnar með
vönduðum og góðum fréttaflutningi
auk þess að fiytja fréttir af málum
líðandi stundar og sinni áfram því
hlutverki sem Dagur gegndi sem
áhrifamikið dagblað á Norðurlandi,"
segir í fundarboði til hluthafa.
Telur stjórnin að með þessum
breytingum sé einnig möguleiki á
að auka verðmæti hlutabréfa Dags-
prents, enda sé ætlunin að stefna
að því að fá hlutabréf Dagsprent
skráð á Opna tilboðsmarkaðnum.
Ný stjórn
Ný stjórn verður kjörin á hlut-
hafafundinum og er gert ráð fyrir
að nýir eigendur, Fijáls fjölmiðlun,
eigi þijá menn í stjórninni, einn komi
frá Kaupfélagi Eyfirðinga sem
áfram mun eiga um 25% í Dags-
prenti og þá verður líklega einn
stjórnarmanna úr röðum þeirra sem
komu að endurskipulagningu félags-
ins fyrir um tveimur árum.